Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

    follow me on Twitter

    Alexandra Kjeld
    Anna Samúelsdóttir
    Arnór Bogason
    Sir Atli Freyr Steinþórsson
    Atli Viðar Þorsteinsson
    Ásdís Eir White
    Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
    Björn Egilsson
    Björn Helgason
    Birgir Pétur Þorsteinsson
    Bragi Páll Sigurðsson
    Colin McNally
    Einar Steinn Valgarðsson
    Elín Lóa Baldursdóttir
    Erna Guðríður
    Freyr Dyrason
    Guðrún Inga
    Gunnar Benediktsson
    Helgi Hrafn Guðmundsson
    Ingi Einar Jóhannesson
    Íris Hauksdóttir
    Kári Sighvatsson
    Konráð Jónsson
    Kristín Ósk
    Nanna Gunnarsdóttir
    Orri Tómatsósuson
    Ólafur Egill Egilsson
    Ómar Sigurvin
    Ragnheiður Sturludóttir
    Rósalind Soheir
    Santino
    Sigurjón Bergþór Daðason
    Steindór Grétar Jónsson
    Steingrímur Karl Teague
    Særós Mist Hrannarsdóttir
    Tinna Mjöll Karlsdóttir
    Una Sighvatsdóttir
    Þórður Gunnarsson
    Þuríður Pétursdóttir
    Önundur Páll Ragnarsson
    Örlygur Hnefill Örlygsson


    Gamalt:

    september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008 desember 2008 janúar 2009 febrúar 2009 mars 2009 apríl 2009 júní 2009 september 2009 nóvember 2009 desember 2009 febrúar 2010


    This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






    31.5.06 :::



    Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:00







    Said, one, two princes kneel before you....
    Áðan talaði ég við gæja með blómakrans um hálsinn. Í miðju samtali birtust ÞRÍR gæjar. Ég vissi ekki að þeir væru að reyna við mig fyrr en Raggi tók í hönd þeirra og þeir tóku mjög fast í hönd hans, svona typpa eitthvað. Ragnar sagði að þetta væri eitthvað strákakód, ég á sjéns ekki þú eitthvað. Heimsku gaurar.
    S.s. þrír gæjar í keppni um mig. Steikt. Ég hló úr mér lifrina þegar ég heyrði þetta frá Ragga, að þeir hefðu allir brotið í honum handbeinin, því sem næst. Oh, typpatrákar.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 02:38







    29.5.06 :::

    Fólkungagatan


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:15







    28.5.06 :::

    Margt skrýtið
    Sem ferðamaður á ég kannski ekki að gagnrýna neitt, en samt.
    Mjög vinsælt á barnum í Svíþjóð: Klaki, rósavín, fanta og einhver lauf í glasi. Rammt, vemmilegt, laufin verða sveitt.
    Ömurlegt: Hraðbankarnir eru stöðugt með eitthvað sambandsleysi. Gjörið svo vel og reynið síðar. Ég á sko nóg á kortinu mínu, það er bara sambandsleysi. Jæja, ég fer þá bara í bankann. Komst að því þar að bankar í Svíþjóð hafa ekki kortalesara og geta því ekki hjálpað ferðamönnum sem eru alloft í veseni með hraðbanka. Iss kúkapiss.
    Sprautufíklar eru út um allt. Fyrsta daginn minn gekk ég framhjá pari sem sprautaði sig í garði. 10 ára strákur hjólaði framhjá á meðan. Jahér. Það er nefnilega búið að loka almenningsklósettum vegna sprautufíklana, og þau sem eru enn opin eru með sérstöku ljósi þannig að það er ekki hægt að sjá æðar, þannig þeir verða bara að sprauta sig á almannafæri.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:48








    Gaming Flay
    Ég er farin að sakna systur minnar of mikið. Alls staðar sem ég fer er Vigdísarlegt dót eða skrýtið fólk eða nammi eða eitthvað. Mjög steikt.
    Sýningin í gær gekk vel, þrátt fyrir hárkolluvesen. Eftir sýninguna fórum við Særós, Erla og Valerie á geðveikan Khebab-stað. Ferskt og gott, stór matsalur og GOSBRUNNUR í honum miðjum. Namminamminammi. (Mjög erfitt að fara skemmtilegt út að borða án þess að Perli Nördi sé með)


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:36







    26.5.06 :::

    Hrós
    1. Ég var að skoða belti á magadansbasarnum og Sigga Nanna heyrir á tal sænskra stelpna. "Titta - Er Kirsten Dunst að dansa magadans?" Þær voru að tala um mig.
    2. Vinur Gulla; "Ah ok. So are there any other dancers in your family besides you two?"
    3. Ég verð í fremstu röð á sýningunni, Mahmoud Reda-megin. Hell yeah.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:22







    23.5.06 :::

    Svo rangt
    Í gær sýndi Gulli mér verk sem hann bjó til á workshoppi í Cullberg. Það snerist um mann sem er ekki til í alvöru, en algjöran snilling. Gulli tók síðan viðtöl við fjölskyldu sína og vini sem léku fólk sem þekkti danshöfundinn og sagði að hann væri stórkostlegur. Því varpaði hann á vegg á sviðinu og inn á milli viðtalana voru dönsuð verk "eftir" þennan mann.
    Eitt verkið, EVA BRAUN!!! var hreint út sagt æðislegt. Sýndur var tvídans milli Evu og Adolfs Hitlers. Á sama tíma, aftar á sviðinu dönsuðu saman maður í karekatjúrgyðingabúning við stúlku með borða sem á stóð Fraulein Deautchland. Frauleinin var alltaf að hníga í gólfið og þá hætti Adolf að dansa við Evu og reisti hana við á ný. Ég pissaði næstum í mig af hlátri.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 07:20







    22.5.06 :::

    sms
    HÆ ÉG ER Í SVÍÞJÓÐ ÝKT GAMAN.HÉR ER SUMAR.SEE YOU BYE.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:38







    21.5.06 :::



    Ferðaferðaferðalag
    Snemma snemma snemma í fyrramálið held ég alein til Stokkhólms. Ég hlakka til því ég bæði elska að ferðast ein og amma Erla segir að Stokkhólmur sé mjög falleg á vorin.
    Magadanshópurinn minn, Sakis Rouvas, nei ég meina Shams El Amar er að fara að taka þátt í Stockholm's Bellydance Festival, sem er stærsta magadansfestival í Evrópu. Sá sem getur giskað á hvað Shams El Amar þýðir, vinnur. Við dönsum tvo dansa á lokasýningunni á laugardagskvöldinu. Þeir eru geðveikt flottir báðir tveir, og loksins erum við að dansa í viðeigandi búningum, ekki þessum týpísku búningum sem allir búast við að maður klæðist þegar maður dansar magadans. ÁFRAM ÍSLENSKU POKADÝRIN!!!




    Hátíðin er frá fimmtudegi til sunnudags, en ég fer á morgun, 3 dögum á undan stöllum mínum. Ég ætla nefnilega að eyða tíma með Gulla frænda mínum, því mér finnst hann svo skemmtilegur. Ég hef lítið hitt Gulla undanfarin ár, hann flutti frá Íslandi 17 ára gamall til að dansa frá sér allt vit. Síðan þá hefur hann dansað líka í Kanada og Sviss. Síðan fór hann aftur "heim" til Svíþjóðar. Hann hefur ekki komið heim mikið síðan, nema um jól og einstaka páska. Síðustu jól lenti hann á aðfangadag og flaug heim annan í jólum. Greyið. Hann er yngsti dansarinn í sögu Konuglegu óperunnar til að hljóta æviráðningu. Ég fæ að horfa á æfingu. Hlakka mega mega til. Síðan ætlar hann frændi minn sæti að sýna mér Stokkhólm og búðir og Gamla Stan og kannski fara með mér á lífið ef ég verð þæg. Hann ætlar líka að lána mér sæng og handklæði. BESTI FRÆNDI Í ÚTLÖNDUM Í HEIMI!!!



    Eftir festivalið kíkí ég til Ragga í Gautaborg. Við ætlum að hlæja og drekka saman rauðvín. Ég sé dvöl mína hjá honum sem eitt rauðvínsnáttfatapartý. Við ætlum líka að kíkja í LISEBERG. Það verður geðveikt. Síðast þegar ég var þar fór ég 9 sinnum í rússíbanann. Ég byrjaði líka á blæðingum, þann 25. júlí 1997. Eitt skemmtilegt: Ég verð á blæðingum þegar ég fer í Liseberg. Viðeigandi.
    Ég sé ykkur seinna, skypeið mitt er mokkilitli. Yess.


    Mynd fyrir Þuríði:


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:44







    19.5.06 :::

    Bakvið böndin
    Ég hef ákveðið að fordæma þennan þátt. Ástæðan er sú að comic sans letrið er notað aðeins of óspart. Svo eru stelpurnar bara ekki nógu sneddí, mér líður eins og ég sé viðstödd lélegt J17-viðtal.
    Nýja klippingin hans Heimis, sem er peysuvinur minn, er ekki nógu góð.

    Systir mín fór í Silvíu-partý í gær. Ég og mamma stíluðum hana. Ýtið á myndina til að stækka hana.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:07







    Vinna yes
    Er búin að vera á milljón síðan á mánudag, í öllum vinnunum eigilega. Síðan er ég líka að klára verkefni og svona. Þetta gengur ekki vel.
    Annars er ég að fara til Stokkhólms á mánudag. Ég hlakka of mikið til. Illt í maganum hlakka til.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:26







    17.5.06 :::


    FRÁBÆRAR FRÉTTIR!!!
    Vissuði að stangarstökkvarinn, Evrósýnarstjarnan og sjarmörinn Sakis Rouvas verður kynnir á Evrósýn í ár? Er ég að elska það? Já.
    Ég mæli með því að gúgla myndum af stjörnunni. Sá sem finnur hversdagslegustu myndina vinnur.
    Þess má geta að Sakis hefur verið Myspacevinur minn í nokkra mánuði.
    P.S. Hann þvertekur fyrir það að vera samkynhneigður. *hjúkket*

    Ég fann Shake it myndbandið, eða s.s. live performans.
    Takið eftir því þegar gellurnar rífa sig úr drögtunum, þá eru þær í kögurbikiníum. Ég hef bloggað um þetta áður, en það er eins og þær séu með píkuhár alveg upp að mjaðmabeinunum, geðveikt löng píkuhár sem þær sveifla út um allt. Stórkostlegt.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:10







    16.5.06 :::

    Túrist informasjonn
    Við erum að uppfæra ýmsar upplýsingar á heimasíðunni okkar. So far hef ég séð svona milljón villur, en þetta eru þær bestu:
    Seefood menu
    Muscel relaxing hotpots

    Fylgist með, kannski að ég bæti við.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:23







    15.5.06 :::


    Í dag fékk ég sms frá Séð og heyrt. Séð og heyrt vildi tala við mig vegna þess hvað ég væri dugleg, að vera í svona mörgum vinnum og skóla og magadansi. Ég sagði neitakk, vegna þess að mér finnst það of mikið Ásdís Rán eitthvað.
    Talandi um Ásdísi Rán. Hún er fyrir ofan Ásdísi White í símanum mínum, og ég er alltaf óvart að senda Ásdísi Rán sms sem eru eitthvað: HÆ ÉG ER Á TYPPINU EN ÞÚ? og eitthvað.
    Hresst.
    Af hverju er ég með símann hjá Ásdísi Rán? Hún bauð mér og Shandi með sér og bikinístelpunum í stripparalimmóinn. True story. Þegar Shandi síðan kom inn í bílinn sagði hún fullum hálsi: Hér er Shandi úr NEXT AMERICA'S TOP MODEL.
    Hahahahahahaha.
    Vá hvað þetta var plebbaleg færsla. Skotveiðileyfi á mig. Like núna þú veist.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:03







    11.5.06 :::

    Yeah
    Já, ég er í buxum í dag sem mamma mín keypti á mig þegar ég var 14 eða 15 ára. Eigum við að ræða hvað ég er orðin mikið beib? (ekki grísinn samt)

    (eða jú, hann var krútt)


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:22







    Geðveikt
    Um daginn fór ég á Hamborgarabúlluna með Skúla. Allt starfsfólkið var með derhúfu sem á stóð: Búllan. Ef ég væri að vinna á þessum stað myndi ég heimta að fá derhúfu sem á stæði Dúllan.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:56







    10.5.06 :::

    ÉG VAR AÐ AFGREIÐA FÆREYJING.
    Hann keypti trilljón símakort.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:53







    9.5.06 :::

    Pirripú
    Í vinnunni minni, sem lofar mjög góðu, eru aðeins PC tölvur. Mér finnst þetta mjög óþægilegt. Þetta er ekki mjög ólíkt því þegar ég var með hægri í fatla, ég kunni alveg að klæða mig, en það tók bara ofsalegan tíma og var suddalegt vesen. Ég er að vinna með mjög hressum stelpum.
    Í gær spurði mig breskur maður hvort hann mætti gera mig ólétta. Stelpunum fannst það fyndið, en ég hafði heyrt þetta svo oft áður.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:10







    6.5.06 :::

    Dúllurassakrúttkrútt
    Hverjir? Dyraverðirnir á Kofanum.
    Síðast þegar ég var hérna var ég að væla yfir að ég hataði óskalögin, þau eyðileggðu allt, en ég spilaði þau sem beðið væri um svona 5 sinnum. Ég fór að tala um gróðaáætlun mína, að byrja að selja bara óskalögin. Human Jukebox. Myndi selja þau á 500 kall, og gæti spilað mjög slæm lög með góðri samvisku. Þegar þeir mættu í vinnuna gáfu þeir mér gjöf. Þeir höfðu búið til límmiða fyrir mig í tölvunni sem á stóð: ÓSKALAG: 500 KALL.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:29







    5.5.06 :::

    Ertu í prófum? Ég líka!!
    Komdu samt að dansa á Klofi Tómatsósufrændans í kvöld.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:00







    3.5.06 :::

    Namedrop
    Jájá. Myndir Írisar voru megagóðar miðað við hversu drukkin stúlkan var.


    Hjemme hos mig. Þarna er klukkan bara svona hálf sjö, en ég er samt að leika lausum hala.


    Þið trúið því kannski ekki, en bíllin er ekki á hreyfingu, við erum bara að leika þetta.


    Komnar á árshátíðina, strax orðið mjög gaman.


    Versti fordrykkur Íslands. Ég fékk mér bara spræt. Tjékkið á dúinu á Rósu. Agli Ólafs fannst það sexý.


    Rétt áður en ég fór inn á svið reyndi Íris að éta á mér brjóstin.


    Síðan var boðið upp í dans. Við tókum dansgólfið. Næstbesto dansherra Íslands, á eftir Hilmi Jenssyni.


    Eftir dansinn var ég þyrst svo við Ingvar skelltum okkur á barinn. Ég fék mér gingerale.


    Þessi gaur reyndi við mig allt kvöldið.


    Kvöldið endaði á góðu klósetttrúnó um kjóla, dekk og inntökupróf.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:07







    Í vinnslu
    Þetta er allt í vinnslu. Skólaferill minn er einnig í vinnslu. Ég sagði við Unu um daginn að mér væri ekki að ganga nógu vel og hún sagði að það væri nú bara klassískt minni á þessum tíma árs. Þá var ég ennþá fyndnari og sagði að í raun væri skólaferill minn klassískt háð.
    Ég er mjög stolt af dansinum hér að neðan, ekki kóreógrafíunni, því hún er engin, heldur að hafa dansað fyrir allt þetta fólk sem mér er búið að finnast cúl frá því ég var stelpuskott. Eh, frá upphafi stelpuskottsára minna. Því ég er stelpuskott. Ég er líka þreytt.
    Thank you for me.
    Bæbæ.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:19







    1.5.06 :::

    So you think you can dance?
    Var að koma heim af árshátíð Þjóðleikhússins. Það var gaman. Grænmetislasanjað var ágætt, ég þorði ekki í kirsuberjaöndina með mangóchtney eða eitthvað. Ég var með skemmtiatriði. Það gekk vel, þrátt fyrir annað magadansskemmtiatriði fyrr um kvöldið. Það var allt í lagi, ólíkir dansar, og hún var í bleiku, en ég í bláu. Tótallí different sko.
    Ýttu hér til að sjá


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 02:46