Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

    follow me on Twitter

    Alexandra Kjeld
    Anna Samúelsdóttir
    Arnór Bogason
    Sir Atli Freyr Steinþórsson
    Atli Viðar Þorsteinsson
    Ásdís Eir White
    Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
    Björn Egilsson
    Björn Helgason
    Birgir Pétur Þorsteinsson
    Bragi Páll Sigurðsson
    Colin McNally
    Einar Steinn Valgarðsson
    Elín Lóa Baldursdóttir
    Erna Guðríður
    Freyr Dyrason
    Guðrún Inga
    Gunnar Benediktsson
    Helgi Hrafn Guðmundsson
    Ingi Einar Jóhannesson
    Íris Hauksdóttir
    Kári Sighvatsson
    Konráð Jónsson
    Kristín Ósk
    Nanna Gunnarsdóttir
    Orri Tómatsósuson
    Ólafur Egill Egilsson
    Ómar Sigurvin
    Ragnheiður Sturludóttir
    Rósalind Soheir
    Santino
    Sigurjón Bergþór Daðason
    Steindór Grétar Jónsson
    Steingrímur Karl Teague
    Særós Mist Hrannarsdóttir
    Tinna Mjöll Karlsdóttir
    Una Sighvatsdóttir
    Þórður Gunnarsson
    Þuríður Pétursdóttir
    Önundur Páll Ragnarsson
    Örlygur Hnefill Örlygsson


    Gamalt:

    september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008 desember 2008 janúar 2009 febrúar 2009 mars 2009 apríl 2009 júní 2009 september 2009 nóvember 2009 desember 2009 febrúar 2010


    This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






    22.6.05 :::

    Sólgleraugu
    Sem barn sá ég Egil Ólafsson eitt sinn setja á sig sólgleraugu. Hvort það var í einhverri bíómynd eða hvað veit ég ekki en síðan þá hef ég alltaf minnt sjálfa mig á hann þegar ég set á mig sólgleraugu, enda erum við með svipað höfuðlag. Um daginn fann ég mér loksins sólgleraugu sem ég var ekkert eins og Egill með, ég var bara eins og ég. Ég var ofsalega sátt í þrjá daga. Svo kemur Egill í heimsókn, sér sólgleraugun á eldhúsborðinu, setur þau á sig, horfir í spegil og segir: "Þessi eru fíííííín maður." Jæja. Ég kreppi bara augun í Englandi.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:53







    20.6.05 :::

    GASP
    Föstudaginn 24. september 2005 verðum við Ásdís og Þórunn í pæjukjólum á White Stripes tónleikum í New York. Ég er búin að hlusta á allar plöturnar núna í kvöld og æfa mig á lögunum sem ég kunni ekki alveg. Svo tíndi ég orma á meðan. Fann eina kyrkislöngu fyrir framan norska sendiráðið. Það var gaman. Ég var samt svolítið hrædd. Náði 100 dýrum í kvöld.
    Liggaliggalái.
    Svo á ég Kool Aid.
    Og eldaði fyrir heimsfrægan mann í gær. Honum fannst maturinn góður og var fullur þakklætis.
    Og Vigdís mín fær að gista yfir fjölskulduhelgi í Egyptalandi hjá Yasmin, vinkonu minni sem er mjög sniðug og skemmtileg.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 03:32







    19.6.05 :::

    KJÁNÓ
    Á heimasíðu Og Fótafón er hægt að ná sér í hringitóna. Það sem erfiðar leitina er að það er enginn að taka til í hringitónunum og raða þeim rétt. Þessa tóna fann ég í flokknum 1940 og eldra:
    • ABC, Jackson Five... Michael Jackson fæddist 1956 eða 7 ef ég man rétt.
    • Give Peace a Chance með meirstara Lennon sem fæddist 9. október 1940
    • I got you babe með Sonny og Cher eða Sonní sem sér
    • Mercedes Benz með Janis Joplin!!! Hélt að hún væri nú holdgervingur hippamenningarinnar
    • These Boots are Made for Walking með Nancy Sinatra... einhver að ruglast á Sínötrum þar... eða ekki.
    • Ticket to Ride með Bítlunum... ég mun aftru hrekja það með því að benda á fæðingardag John Lennon

    Á ég að hlæja eða gráta???


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:57







    18.6.05 :::

    Ó MÆ
    Londonferð eftir aðeins eina viku. Ég fíla fólkið sem ég er að fara með í tætlur. Við verðum hluta tímans í Buckimghamshire í einhverskonar sviðslista-workshoppi með Grikkjum, Ítölum og Kýpurum, en alls taka víst 21 þjóð þátt í prógramminu. Svo ætlum við að prófa að götuleika í London, sem ég vona að við megum... kannski þarf að fá leyfi eða eitthvað. Svo verðum við að sprella eitthvað í einhverri diplómataveislu. Ég hlakka mikið til. Það er gaman að lenda í ævintýrum.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:04







    14.6.05 :::

    Rúmdakk rúmdúmmtagg
    Rúmdakk rúmdúmmtagg
    Rúmdakk rúmdúmmtagg
    Rúmdakk rúmdúmmtagg

    Ég elska magadans. Ó mæ. Ef einhver talar arabísku, þá má segja mér hvað fe el-awel þýðir.

    Fór á Cirkör áðan... mér fannst sæðisfrumumaðurinn og alsberi maðurinn vera skemmtilegustu atriðin. Mig hafði alltaf langað að sjá alsberan mann gera fimleikaæfingar.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:29







    13.6.05 :::

    Heimsfræg
    Ef maður slær inn "street theatre" +iceland á Gúgúl, þá fær maður upp tvær myndir. Önnur myndin er af pönnuköku og hin myndin er af mér ófrískri, ástralska manninum mínum og dætrum okkar, Salóme og Höllu á baðherberginu okkar í Pósthússtræti.
    ...


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:03







    12.6.05 :::

    HJÁLP MAÐUR
    Kann einhver, ef það er hægt, að breyta lagi úr wma í mp3 svo ég geti spilað það í fagra litla diskógrís?
    Lagið er hér og það er ógissla skemmtilegt arabarokklag.

    Fólk úti í bæ 2
    Það er eitthvað mannfífl á Bylgjunni sem ég hef TVISVAR heyrt segja að lagi með Emilíönu Torrini loknu: Já, og Emilíana Torrini bara búin að ná svona langt haaaa.... búin að semja lag fyrir Kælí Mínúgg


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:00







    11.6.05 :::

    Fólk úti í bæ
    Þetta sá ég á bloggi núna áðan: En OH MY GOD ... þeir sem horfa á bachelor .. hvað er málið með þessa TRISH .. dííí ... ertu að grínast í STOCKER eða .. hehe ..
    Stocker já.

    Svo sá ég mann í ísbúðinni hans Herberts í dag. Hann var í bol sem hann hafði eytt peningunum sínum í á Landsmóti hestamanna líklega. Eða skáta, ég efa það samt.Landsmót er eins og góð munnmök, stóð á bolnum, maður kemur aftur og aftur og aftur... AAAAAHAHAHA nei. Já, sneddí að vera í fyndna bolnum á Landsmótinu, en ég persónulega hefi bara notað hann til að mála í honum eða tína orma að landsmóti loknu. Þetta var lítill maður sem pantaði sér stórkarlalega STÆRSTA BRAGÐAREFINN.

    Svo er maður með mér í ensku sem fór á svona tveggja tíma trúnó við mig á lokadjammi enskunema. Hann er að vinna fyrir Amnesty. Gott hjá honum. Hann reyndi að nappa mig um daginn, ég náði þó að snúa mig út úr því. Hann þekkti mig ekki einu sinni. HAHAHA. En já. Seinna sama dag var ég að götuleika mér í nágrenni nappstaðar hans. Hann gekk að okkur, þremur stúlkum og sagði hátt og snjallt: Jæja stelpur, hættið nú þessum fíflalátum og gangið í Amnesty. Við hreyfðum hvorki legg né lið. Það var enginn nálægt svo gaurinn glllllllataði kúlinu. Það var nú fyndið. Við hverju bjóst hann? Að við snöppuðum úr frostinu og skráðum bankanúmerið okkar hjá honum? En næst þegar hann nappar mig get ég sagt eitthvað sniðugt við hann. Til dæmis:
    - Þú gerðir lítið úr vinnunni minni svo ég ætla að prumpa framan í þig.
    - Hættu þessum fíflagangi og skráðu þig í... eða eitthvað svona, þarf að æfa þetta betur.
    EÐA
    - FOKK JÚ ALÆV.
    Tillögur eru vel þegnar.

    Mér finnst skemmtilegt að knúsa bera menn sem eru nýkomnir úr sturtu.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:58







    9.6.05 :::

    Vinna
    Fyrir hádegi lék ég mér á trampólíni og fór í splitt og langan kollhnís. Testaði svampagryfjuna og fór í heljarstökk.
    Það var gaman.
    Eftir hádegið bjó ég til hárkollu og klippti út blúndur.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:20







    5.6.05 :::

    Ótti
    Ég hræðist margt. Þegar ég var svona 6 ára hætti fö›rusystir mín með kærastanum sínum sem kunni að standa á haus, og bjó þar af leiðandi ein. Ég hef óttast að búa ein síðan þá. Ekki óttast svona eins og konurnar í Sex and the City, heldur öðruvísi. Ég var svo hrædd um að ná ekki símanum vegna þess að ég væri í sturtu og myndi missa af lífinu. Eða, einhver stórkostlega skemmtilegur myndi kíkja í heimsókn, og ég væri á klósettinu þegar dyrabjallan hringdi og gæti ekki girt mig nógu hratt. Strax þá byrjaði ég að skima eftir einhverjum til að búa með í framtíðinni, svo einhver svari símanum og dyrunum.

    Svo er stigi heima hjá mér. Einu sinni sagði mér einhver að undir stiganum væri refur sem vildi bíta mig í fæturna. Þegar ég er ein heima og það er dimmt, þá hleyp ég hratt upp og niður með hjartað í hálsinum, því ég er enn svo hrædd við þennan rebba.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:57







    Sex sells
    Ég er yfirleitt í topp 5 sætunum á bloggi Einars á hit me-listanum. Þar sem langfelstir lesenda dindilsins eru mér ókunnugir er þetta skrýtið. Mig grunar samt af hverju áhuginn stafar. Meðan hinir á listanum heita Pétur beikon, Kobbi svarti og fleira í þeim dúr, þá heiti ég Magga klobbi.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:06







    3.6.05 :::

    Magnús Nagmús
    Ég mæli með því að fara með Magnúsi í leikhús. Það er virkilega skemmtilegt.
    "Þetta er Magnús."


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:55







    2.6.05 :::

    Sat í rúmi með hundi
    Já. Ég er eina konan á Íslandi sem er ekki með göt. Nei, við erum tvær.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:16







    1.6.05 :::

    Stór dagur
    Fyrsti dagur Götulekhússins, öðru nafni Sæææææææææææl, ég heiti Maaaaaargrét.
    Svo frumsýndi ég myndina eftir smávægilegt tæknifát, síðasta daginn minn í vetur í Hlíðó. Dsís, ég vona að stundataflan mín leyfi mér að vinna þar næsta vetur. Það er ekki laust við að ég eigi eftir að sakna góðu barnanna... Og þó, þeirra slæmu líka, því eins og Ragna Lára benti mér á þá væru þeir krakkar nú ágætis getnaðarvörn. Henni þarf ég á að halda.
    Ó, elsku krakkaormarnir mínir.
    Ég læt myndina fylgja með, hún er kannski svolítið lásí að gæðum, 12 rammar á sek. Svo er mikið af stolinni mjúsikk í henni. Og svo afsaka ég prumpið í vindinum í sumum senum... Vala Matt var að nota bómuna. En takiði eftir öllum talentunum þarna... þetta eru hreint út sagt ótrúlegir krakkar. Ásta Kristín, vonda drottningin, er ný-orðin 9 ára. Margrét Vignisdóttir, góða drottningin, er 7 ára. Goði, stígvélaði kötturinn, er 8 ára. Ingvar, björgunarsveitarmaðurinn er í 1. bekk. Bara svona til að nefna nokkur dæmi.
    Vessgú-gú. (vista þetta á HÍ-svæðinu mínu, svo þið eruð ekkert að downloada einhverju mega mega erlendis frá...)















    Smelltu hér til að ná í vídjóið ef þú getur ekki skoðað það hér.

    Annars var hápunktur dagsins án efa að sjá Ragnheiði sætu í bíl með Björgu vinkonu sinni í dag. Við töluðum saman með höndunum á rauðu ljósi. Má ég sjá brjóstið þitt? Nei, ég er ekki í nógu flegnum bol. Ertu að fara heim? Já, að borða. Ég líka. Bæbæ.
    Allt með höndunum Ji, svo sneddí. Nels og Neddí.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:22