Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

    follow me on Twitter

    Alexandra Kjeld
    Anna Samúelsdóttir
    Arnór Bogason
    Sir Atli Freyr Steinþórsson
    Atli Viðar Þorsteinsson
    Ásdís Eir White
    Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
    Björn Egilsson
    Björn Helgason
    Birgir Pétur Þorsteinsson
    Bragi Páll Sigurðsson
    Colin McNally
    Einar Steinn Valgarðsson
    Elín Lóa Baldursdóttir
    Erna Guðríður
    Freyr Dyrason
    Guðrún Inga
    Gunnar Benediktsson
    Helgi Hrafn Guðmundsson
    Ingi Einar Jóhannesson
    Íris Hauksdóttir
    Kári Sighvatsson
    Konráð Jónsson
    Kristín Ósk
    Nanna Gunnarsdóttir
    Orri Tómatsósuson
    Ólafur Egill Egilsson
    Ómar Sigurvin
    Ragnheiður Sturludóttir
    Rósalind Soheir
    Santino
    Sigurjón Bergþór Daðason
    Steindór Grétar Jónsson
    Steingrímur Karl Teague
    Særós Mist Hrannarsdóttir
    Tinna Mjöll Karlsdóttir
    Una Sighvatsdóttir
    Þórður Gunnarsson
    Þuríður Pétursdóttir
    Önundur Páll Ragnarsson
    Örlygur Hnefill Örlygsson


    Gamalt:

    september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008 desember 2008 janúar 2009 febrúar 2009 mars 2009 apríl 2009 júní 2009 september 2009 nóvember 2009 desember 2009 febrúar 2010


    This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






    31.1.05 :::

    Ég fór til Akureyrar að sjá Óliver Tvist. Það er stórkostlegt hversu stórhuga þetta litla leikfélag er. Nú er sýningin búin að ganga í mánuð, en það var selt upp í rjáfur, ég sat á næstaftasta bekk og hvert einasta sæti í húsinu var fullt. Við systurnar sátum saman, en mamma, amma og kærastinn hennar ömmu voru dreifð um áhorfendasvæðið. Leikararnir voru hverjir öðrum betri, nema kannski Margrét Eir sem lék svo mikið með öllum líkamanum að hún minnti allra helst á Jar Jar Binks. Fyrsta “leikna senan” var með henni og fátækrafulltrúanum og var arfaslakt og gaf ekki tóninn sem skyldi, því bendi ég fólki á að standa ekki strax upp, heldur bíða eftir að sýningin hefjist fyrir alvöru. Persónugalleríið er virkilega flott, teiknimyndalegir karakterar hjá þeim sem tókst vel til. Útfararstofufjölskyldan var alveg snilld (svo ég noti orðalag þjónsins á La Vita e Bella (prófa að segja með Akureyrarhreim, skemmtilegt)). Lausnirnar í þeim senum eru skemmtilegar, sérstaklega með líkkisturnar. Þroskahefti sonur útfararstofuhjónanna er virkilega góður, ég gat ekki trúað því að það væri sá hinn sami og leikur Billy Sæks, sem er algjörlega hinum megin á skalanum þegar kemur að hörku, dug og karlmennsku. Skrýtið að Jón Páll hafi ekki fengið meira að gera hér heima.
    Krakkarnir í sýningunni eru allir mjög góðir, ekket verið að horfa út í sal eða bora í nefið, þrátt fyrir að þau séu allflest mjög ung. Óliver Tvist sjálfur skilar sínu mjög vel. Ólafur Egill var alveg stórkostlegur sem Fagin, og hann heldur sýningunni uppi á alllöngum kafla, en gerir það svo vel að það kemur ekki að sök. Þó ég sé auðvitað draugahlutlæg þá er ég sammála gagnrýnendum um það að það vel þess virði að fara að sjá þessa sýningu, þó ekki væri nema aðeins til að sjá frammistöðu Óla. Þó er ég ósammála flestu með hina leikarana, allir eru að gera mjög góða hluti og eru virkilega hluti af heildinni. Þó standa Margrét Eir og fátækrafulltrúinn langt utan þessarar heildar, því miður.
    Konan sem sat við hliðina á Vigdísi táraðist og greip í hana af því hún var svo glöð og skemmti sér svo stórkostlega, stúlkan sem sat við hliðina á mömmu var að koma í annað sinn og kunni og söng með öllum lögum og ég dansaði út úr leikhúsinu.

    (Ég ætlaði að birta gangrýni Tilfinningabangsans en hún var óskiljanleg að stórum hluta, en hér er hluti hennar:)

    ...Lögin volu mölg melankólíhlk, en mél fannhlt hlöngulinn á munaðalleyhlingjalhælinu hlkemmtilegahltul; "Ólivel, Ólivel! Hvað el að heyla? Hann heimtaði meil!"
    ... Að hljálfhlögðu el ég tengdali hlögunni en flehltil, þal hlem ég el hljálful munaðalleyhlingi, en móðil mín dlaphlt í Tvíbulatulnunum í hlæðilegu hllyhli á vegum Óhlama Bin Laden. Hlýningin hlnelti mig djúpt í hjaltahltað og hltóð ég mig oft að því að hlnökta lítið eitt í hlolgelguhltu atliðunum.
    ... Í lokin klappaði ég hlvo mikið og ölt að ég gat ekki hleyft hendulnal í tvo daga á eftil. Ég held að ég hlé kominn með gigt.


    Að lokum mæli ég með lauk pakota, 65 kjúkling og hvítlauksnaanbrauði á Götugrillinu fyrir þá sem fíla indverskan ÓDÝRAN mat (ekki fáanlegt á mölinni....).


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:51







    Fagri litli diskó...
    Fagri litli diskó...
    Fagri litli diskógrís...
    ó litli diskógrís!
    Þú ert diskógrís.
    ó fagri diskógrís....


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:29







    26.1.05 :::

    Auglýsingabarn
    Týpískt að heyra á mínu heimili 1987-92:
    Pabbi: "MAAAARGRÉÉÉT!!!!"
    Margrét: "JAAAAAAÁÁ?"
    Pabbi: "AUGLÝSINGAAAAAR!!!!"

    Ég horfði bara á auglýsingar sem barn. Sönnun:

    Minnit meid minnit meid æ ó duddurudududududu æ æ æ ó minnit meid minnit meid

    Af hverju að nota tvær flöskur þegar ein er nóg?
    Ég nota Wash and Go!

    Gallafatabarbí er að fara út
    smart föt
    fallegt hár
    margir vinir
    ekkert mál
    sæt og klár.

    Takk.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:57







    25.1.05 :::

    Líf mitt snýst um mat.
    Í gær ákvað ég að vera ótrúlega sniðug. Um leið og ég kom heim úr skólanum, þá bjó ég til grænmetislasanja. Svo skar ég það í 12 bita. Borðaði 3 í kvöldmat en plastaði hina og setti í frystinn. Nú á ég mikið nesti til að hita mér í skólanum.
    Svo er ég búin að horfa á BBC food og sá þar mjög sniðug grænmetisbuff. Auk þess ætla ég að gera fylltar tortillakökur og setja í frystinn. Allt í frystinn og svo í nesti. Ég get ekki einbeitt mér, ég hlakka svo til að borða nestið mitt. Víííííí´ííí´íí´....


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:33







    22.1.05 :::

    Spaugstofan
    Randver Þorláksson er versti leikari Íslandssögunnar. Honum finnst nóg að skýla sér á bakvið búning. Allar konurnar hans eru eins, svo eins að einu sinni var fyrsta setning hans í senu: "Ég er Sólveig Pétursdóttir."
    Dúddamía.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:44







    18.1.05 :::

    Á heilanum
    Mig dreymdi merkilegan draum í nótt. Þeir eru oftast gríðarlega ómerkilegir, en þessi var skemmtilegur.
    Vigdís mín var að hlusta á nýja it-ið, hljómsveit sem hafði rekið Birgittu og Jónsa út af markaðnum. "Og þeir semja allt sjálfir, þótt þeir séu dýr sko." Já, þetta var hljómsveit sem var samansett af alls kyns skriðdýrum. Ég reyndi að sannfæra systur mína um að það væri ekki satt, þetta væru gömul lög með nýjum texta. Upphófst þá mikið rifrildi, þar til ég fann gamlar plötur og leyfði Vigdísi að hlusta á upprunalegu útgáfurnar af "Gekkó Vest" og "I'm a Gecko,"sem var sungið við "In the Ghetto."

    Og já, ég er með bæði gekkó-lögin á heilanum.

    Ég horfi of mikið á Animal Planet, Discovery og National Geographic.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:16







    11.1.05 :::

    Einu sinni sá ég dásamlega bíómynd. Við pabbi sáum hana í Álfabakka þegar ég var svona 8 ára. Myndin hét Atlantis og var margverðlaunuð dýralífsmynd. Þetta voru alls kyns dýr og fiskar og hvalir að synda og svo var fundin tónlist sem passaði við. Hákarlaatriðið var til dæmis með hryllingstónlist, en selaaatriðið með breakmúsík. Þetta var sniðug mynd. Ég held samt að bara við pabbi þekkjum hana.
    En ég var að komast að því að Luc Besson leikstýrir henni. Það er frábært. Það er hægt að kaupa hana á Amazon. Ég ætla að skrifa niður allt þetta ár hvað mig langar í á Amazon og panta mér svo allt. Og kaupa allar jólagjafirnar á Amazon líka. Er það ekki áramótaheitið? Að skrifa niður allt sem mig langar í. Hollt og gott.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:06







    Skólinn byrjaður. Fullt af fólki hætt. Ég veit ekki alveg með þetta nám. Allir skemmtilegu kennararnir kenna ekki á vormisseri og vindurinn virðist farinn úr nemendum. Næstum helmingur er hættur. Svo er vont veður. Menningarsögukennarinn er sportisti sem var í ruðningspeysu í dag. Hann talaði um ameríska fótboltann. Hvað er ég að gera?


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:00







    10.1.05 :::

    Fyrsta vika nýs misseris
    Predator week á National Geographic. Óli frændi gaf mér Civilization III í jólagjöf.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:49