Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

    follow me on Twitter

    Alexandra Kjeld
    Anna Samúelsdóttir
    Arnór Bogason
    Sir Atli Freyr Steinþórsson
    Atli Viðar Þorsteinsson
    Ásdís Eir White
    Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
    Björn Egilsson
    Björn Helgason
    Birgir Pétur Þorsteinsson
    Bragi Páll Sigurðsson
    Colin McNally
    Einar Steinn Valgarðsson
    Elín Lóa Baldursdóttir
    Erna Guðríður
    Freyr Dyrason
    Guðrún Inga
    Gunnar Benediktsson
    Helgi Hrafn Guðmundsson
    Ingi Einar Jóhannesson
    Íris Hauksdóttir
    Kári Sighvatsson
    Konráð Jónsson
    Kristín Ósk
    Nanna Gunnarsdóttir
    Orri Tómatsósuson
    Ólafur Egill Egilsson
    Ómar Sigurvin
    Ragnheiður Sturludóttir
    Rósalind Soheir
    Santino
    Sigurjón Bergþór Daðason
    Steindór Grétar Jónsson
    Steingrímur Karl Teague
    Særós Mist Hrannarsdóttir
    Tinna Mjöll Karlsdóttir
    Una Sighvatsdóttir
    Þórður Gunnarsson
    Þuríður Pétursdóttir
    Önundur Páll Ragnarsson
    Örlygur Hnefill Örlygsson


    Gamalt:

    september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008 desember 2008 janúar 2009 febrúar 2009 mars 2009 apríl 2009 júní 2009 september 2009 nóvember 2009 desember 2009 febrúar 2010


    This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






    28.11.03 :::

    Allt í lagi, Konráð.
    Lífið hefur upptekið mig mikið sl. viku en nú eru prófin að fara að byrja og þá verður bloggað meira... nei.

    Herranóttin er farin að taka á sig gífurlega skemmtilega mynd. Ég nældi mér í nýtt hlutverk. Samhliða því að leika drottninguna, er ég leiklistarkennari. Vinnunni er lokið þetta árið en um miðjan janúar hittum við hina leikarana (leikmyndina.... nei djók) og þá verður leikritið alveg fest.

    Heima hjá mér ómar eitt lag sérstaklega mikið þessa dagana. Mamma mín, pabbi og systir passa vel upp á það að lagið víki ekki úr huga mér. En einfaldasta ráðið til að losna við lag sem maður fær á heilann er að læra textann. Gjöriði svo vel.

    Hún hitti hann á pöbb eitt kvöld
    á Country pub í Reykjavík
    Hún starði á hann mjög ákveðinn
    Hann glápti á móti dauðadrukkinn
    Hún kinkaði kolli og blikkaði hann
    Hann var dáleiddur af allann Vodkann
    Hann fór til hennar og sagði
    hvar hann var frá
    Hún sagði "Veistu hvað?"
    Við höfum sameiginlegt
    því við komum bæði frá Kópavogi

    Ást á pöbbnum, þau féllust í ást á pöbbnum
    Nú grætur hann -
    Hann átti að kynnast henni fyrst
    Hún eyðir öllu hans fé.
    Hann sparar ekki neitt
    Hann vildi kaupa hús,
    en hann á varla fyrir öl krús
    Til að gera allt verra hann missti vinnuna
    (þú ert rekinn)
    í staðinn að vinna fór hann norður með henni
    Hún dróg hann til Akureyrar
    Þau dönsuðu línudans fram til klukkan 3
    Syngjandi...við komum bæði frá Kópavogi


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:35







    13.11.03 :::

    Einhyrningaveikin?
    Ég fékk einkirningssótt. Sigurður komst vel að orði þegar hgann lýsti því eins og að vera með tvö hné í kokinu.
    Kennararnir eru óghressir með það hversu fljót ég var að ná mér...

    Og ég fékk hlutverk í Herranótt. Ég leik drottningu sem Ísabella Rosselini lék forðum daga. Voða sæt og fín... Kórónur og demantar og bævængir og ástarævintýri....


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:19







    7.11.03 :::

    Ríkharður III
    Úff. Ekki gaman. Af hverju að setja upp Shakespeare ef maður hvefur hvorki neinu við að bæta né til að heiðra skáldið? Þessi sýning var of artí. Nú gæti fólk spurt sig hvort ég er ekki bara heimsk. Það má vel vera, en mér finnst að leikrit eigi að vera aðgengilegt og standa fyrir sínu án þess að hver einasti áhorfandi þurfi að hafa tekið tveggja ára bókmenntakúrs.
    Leikritið rembdist við að vera flippað á stöku stað, en það náði aldrei nógu langt til að maður væri að meðtaka flippilegheitin. Sums staðar minnti það á menntaskólaleiksýningu, og það lélega. Um það bil 3-4 manneskjur héldu leikritinu uppi og hinar voru bara gerðar að skrípapersónum . Rúnar Freyr var æði slakur.
    Nú var leikstjóri frá Litháen fluttur inn til að leikstýra. Hann lét leikarana oft á tíðum leggja áherslu á orð sem engu skiptu, kannski af því að honum fannst þau hljóma svo sterkt.
    Stundum sást það á leikurunum að þeir skildu ekki alveg hvað þeir voru að segja og gátu ekki alveg leikið það, því að þeir voru að rembast við að muna eitthvað sem fyrir þeim var merkingarlaus della.
    En búningar voru flottir og umgjörð, þótt leikmynd hefði mátt vera hönnuð með hljóðburð í huga. T.d. ekki hafa páfagaukaprikið þannig að leikarar sneru sér við til að tala við þann sem í því sat.
    Nanna Kristín var ekki góð, hafði enga rödd fyrir dramatíska Shakespeare-kvennsu. Hún öskraði bara eins mikið og hún gat. "ÉG ER DROTTNINGEEEEEEN!!!!"
    Samrskipti persónanna voru ALDREI sannfærandi.

    En Hilmir Snær var mjög góður. Það var samt svolítið skrýtið að vera að láta hann fara úr að ofan í tíma og ótíma, því að maður trúði ekki alveg að Ríkharður III væri með voðalega afmyndaðan skrokk... Það eina sem maður sá var Hilmir Snær með gífurlega stíliseruð bringuhár að þykjast vera ógeðslegur.

    Í raun má skrifa allt sem miður fór á leikstjórann og þann sem castaði í hlutverk.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 08:53







    3.11.03 :::

    Jæja. Loksins gat ég flutt fyrirlesturinn. Þetta var skemmtilegur fyrirlestur og Helgi hakkaði mig ekki í sig. Sjúff. Hann spurði ekki einu sinni út úr Jóni Jónssyni, hvað þá Guðmundi Péturssyni. Mér tókst meira að segja að hlæja Helga Ingólfsson. Mig grunar samt að hann hafi meira verið að hlæja að mér og fjölskyldumynstri mínu... því hann hló þegar ég nefndi kærastann hennar ömmu sem heimildamann.

    Ég gerði ekkert merkilegt um helgina. Sumarbústaðaferð smumarbústaðaferð segi ég nú bara. Alkóhólistar og tækifærissinnar!


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:06