Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

    follow me on Twitter

    Alexandra Kjeld
    Anna Samúelsdóttir
    Arnór Bogason
    Sir Atli Freyr Steinþórsson
    Atli Viðar Þorsteinsson
    Ásdís Eir White
    Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
    Björn Egilsson
    Björn Helgason
    Birgir Pétur Þorsteinsson
    Bragi Páll Sigurðsson
    Colin McNally
    Einar Steinn Valgarðsson
    Elín Lóa Baldursdóttir
    Erna Guðríður
    Freyr Dyrason
    Guðrún Inga
    Gunnar Benediktsson
    Helgi Hrafn Guðmundsson
    Ingi Einar Jóhannesson
    Íris Hauksdóttir
    Kári Sighvatsson
    Konráð Jónsson
    Kristín Ósk
    Nanna Gunnarsdóttir
    Orri Tómatsósuson
    Ólafur Egill Egilsson
    Ómar Sigurvin
    Ragnheiður Sturludóttir
    Rósalind Soheir
    Santino
    Sigurjón Bergþór Daðason
    Steindór Grétar Jónsson
    Steingrímur Karl Teague
    Særós Mist Hrannarsdóttir
    Tinna Mjöll Karlsdóttir
    Una Sighvatsdóttir
    Þórður Gunnarsson
    Þuríður Pétursdóttir
    Önundur Páll Ragnarsson
    Örlygur Hnefill Örlygsson


    Gamalt:

    september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008 desember 2008 janúar 2009 febrúar 2009 mars 2009 apríl 2009 júní 2009 september 2009 nóvember 2009 desember 2009 febrúar 2010


    This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






    30.7.03 :::

    Ég er komin heim frá Hrísey, til þess eins að þvo, pakka niður og fara að heima eina ferðina enn. OG hitta manninn minn.

    Það var frábært að vera í Hrísey. Ég var aðstoðarleikstjóri, eða meira svona hjálparleikstjóri, hárgreiðsludama, blómaskreytir, barnaþjálfi og skrifta við sjónvarpsmyndina "Myndin af Jesú." Öll familían tók þátt. Pabbio lánaði hmpu, mamma kokkaði, Vigdís aðstoðakokkaði ásamt Ellen Egilsdóttur, Egill mömmubróðir framleiddi, konan hans, Tinna, leikstýrði og skrifaði handrit, synir þeirra gerðu leikmynd og tengdadóttir lék líka, ásamt Herdísi móður Tinnu. Aðalhlutverk voru í höndum Árna Tryggva og sonardóttur hans, Sólrúnar, en pabbi Sólrúnar sem við þekkjum öll sem "Afa" lék meðhjálpara.

    Skemmtilegasta kvöldið var þegar ég sat og drakk krækiberjaraðvín með Agli frænda mínum ig Ingólfi Margeirssyni og hlýddi á þá tala um ævintýri Ringo Starr í Atlavík. Inn á milli kom Ingólfur með skemmtilega fróðleiksmola.

    Myndin verður sýnd um næstu jól eða páska í sjónvarpinu.

    Ég hlakka til að komast til Krítar og hvílast. Auðvitað væri samt best af öllu að hvíla sig þar með Skúla, en það er svona. Vinnandi maður. Skúli og gleðisveitin hans spilar í Eyjum um næstu helgi. Ég ætla ekki þangað. Ég er ekki svona útilegutýpa og svo þarf ég bara að pakka sko.
    Ef fólk fer til Akureyrar mun hljstn Douglas Wilson spila þar. Sú hjómsveit heitir í höfuðið ál eikfimikennara á Laugum. Ekki blakboltum, eins og Skúli hélt....

    Annars bara bíbb bíbb.


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:58







    8.7.03 :::

    ÞAÐ ER SVO ERFITT AÐ VERA FALLLEEEEEEEEEG!!!
    í gær komu nokkrir ólögulegir menn inn á Gamla. Þeir keyptu mikið áfengi handa sér og stelpum sem eru fæddar 1987. Þeir litu þó varla við yngismeyjunum sem þeir höfðu meðferðis og böðuðu í tekíla, heldur dáleiddust af fegurð minni. Þeir urðu móðgaðir þegar Ásgeir bauð frama aðstoð sína, og sögðu að þeir vildu bara að SÆTA STELPAN afgreiddi þá. Svo voru þeir almennt ógeðslegir og höfðu gríðarlegan áhuga á því að vita hvenær ég væri búin á vakt.

    Allt svona finnst mér gífurlega óþægilegt. ég veit ekki af hverju.

    Síðustu helgi skrapp ég í bæinn. Ég...
    hélt matarboð,
    fór í tívolí,
    fór á fund útaf stuttmynd sem ég er að aðstoðarleikstýra,
    skellti mér í brúðkaup
    fór á tónleika,
    borðaði yfir mig af karamellubúðing og súkkulaðibúðing
    og fékk mér humar.

    í brúðkaupinu spuði Skúli, afi hans Skúla hvort við Skúli værum ekki næst. (Vá, 3x Skúli í einni málsgrein) Það fannst mér gaman.

    Lallalla bless


    Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:40