Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






31.7.08 :::


Næstu dagar!
Brjálað partýstuðzani á Thorvaldsen yfir versló, þar sem DJ Mokki litli skemmtir fólkinu. Jájá, föstudag, laugardag og sunnudag. Partýtjútt. Ji, maður er bara farinn að spila á stöðum þar sem er dresskód. Endilega kíkið við og fáið ykkur mojito og segið mér að ég sé sæt. Takk.
Miðvikudaginn í næstu viku er síðan svakalega flott magadanssýning á Organ. Við erum nefnilega búnar að tryggja okkur Ahmed Fehkry, sem er dásamlegur kennari. En - nú er krónan fokkt öpp í hausnum, svo að við viljum hjálpa Kramhúsinu að standa undir kostnaði og því erum við að halda fjáröflunarsýningu. Þarna verða margar af flottustu magadansmeyjum Íslands, og Margrét Samúels ætlar að sýna okkur goth magadans! Eftir sýningu verður létt kennsla í undirstöðuatriðum og síðan verður fáránlega skemmtilegt dansipartý. Þúsundkjell inn. Endilega meldið ykkur hér


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:57







28.7.08 :::

Draumalandið
Ó, leyf mér þig að leiða
til landsins fjallaheiða
með sælu sumrin löng.
Þar angar blómabreiða
við blíðan fuglasöng.
Þar aðeins yndi fann ég,
þar aðeins við mig kann ég,
þar batt mitt tryggðaband,
því þar er allt sem ann ég;
þar er mitt draumaland.
-Jón Trausti


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:04







27.7.08 :::

Ég er búin að vera á breytingaskeiðinu undanfarið út af þessu vídjói. Svakalega mikið mússímú.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:43







25.7.08 :::

Það er fátt eins fagurt eins og rödd nývaknaðs manns. Svo djúp og krumpuð. Sko, röddin sem kemur eftir kúriröddina. Ég hvet sem flesta til að hringja í mig þegar þeir eru nýstaðnir upp úr rúmi. Það væri skemmtilegt. Takk fyrir.
P.S. Illt í maganum fyndið.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:34







22.7.08 :::

Lífið gengur sinn vanagang
Ég er mikið í því að fremja félagsleg sjálfsmorð í vinnunni og á heimavelli. Nýyrði eru búin til hvern dag. Ég fæ furðuleg símtöl frá enn furðulegra fólki. Fólk í Ömmuríku vill kela við mig eða eignast börnin mín - aldrei bæði í einu, sem er furðulegt, með tilliti til líffræðinnar. Ólíklegasta fólk hefur trú á mér og segir að ég sé metnaðarfull. Ég fitnaði um 8 kíló í Ömmuríku, sem er ókei, bara meir að hrista í magadansinum.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:23







14.7.08 :::

Ég gæti skrifað svo mikið...
um þessa ferð. 3 vikur og aðeins meira er svolítið langur tími til að skrifa ferðasögu um. Jú, mikið karaoke og mikið comedy.
En ég vil frekar segja fólki frá öllum litlu sögunum. Þær eru líka svo mikið neimdropp að það yrði klám að skrifa þær hér.
Svoooo - ég ætla BARA að skrifa neimdropppönsin.

... svo ég tók mynd af Terry Richardson sem hann tótallí sá og ég gekk í burtu í túristaskömm.

... og Lady Gaga er að fara að syngja á Miss Universe. Steikt.

... en þá voru þau bara hætt með vikulega showið í UCB því þau eru komin með eigin sjónvarpsþátt.

... heyrðu, neinei, eru þeir ekki bara í LA að leikstýra og leika í bíómynd.

... og um morguninn vakna ég við það að Regina Spektor er að hringja í hann. Ég fríka nett út á því og þá segir hann: Eigum við að gera símaat í Mark Ronson?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:23







12.7.08 :::

La isla bonita
Nei, ekki enn eitt karaokevideo-ið... þrátt fyrir að ég eigi svakalega fínt svoleiðis með okkur Shandi að fokkings rústa þessu lagi. Ég fer af þessari eyju á morgun og lendi á hinni eyjunni snemma mánudagsmorguns. Ég hlakka til að sjá ykkur öll, en kvíði því að fara héðan. Ég þoli ekki þetta grænakortsbull. Mig langar í skóla hér, en ef ég er í skóla hérna þá þýðir það að ég má ekki vinna. Nema kannski í skólamötuneytinu eða eitthvað. Það sökkar.
Mér stendur til boða, þegar ég flyt hingað í lengri tíma, að leigja með Erin bestu vinkonu hér, og Adam, sem er kanadískur blaðamaður sem skrifar fyrir Huffington Post. Við Adam náum vel saman, aðallega í eldhúsinu í lasagnagerð. Einnig stendur mér til boða, vilji ég flytja strax í september (sem er ekki möguleiki), að leigja með 5 grínistum/pródúserum í loftíbúð í Chelsea (hverfið ofan við East Village, á 26. stræti), þar sem Kloke er að flytja til Californiu. Það væri ekki slæmt, riiiisaíbúð með tveimur baðherbergjum, stórri stofu, DJ setti í stofunni, fögru eldhúsi, stiga upp á þak... svo ekki sé minnst á endalaus namedrop tækifæri þar sem Kurt er nánasti samstarfsmaður Kristen Schaal. Í þessari íbúð eru auk þess haldin skemmtilegustu partý sem ég hef heyrt um... og allllltaf þemapartý. Jebb. Ljótar jólapeysur-þema. Snekkjuþema. Og svo framvegis.
En á Íslandi er allt hitt - Elsku Vigdís, elsku vinirnir, elsku mamma og pabbi. Vinnan mín, skólinn sem ég þarf að klára, vespan mín, magadansinn, vatnið. Og nokkrir draumar sem gætu ræst fljótlega. Dadadú.
Ég hlakka til að sjá ykkur öll og knúsa ykkur. Hópferð í sund eitthvað kvöldið? Ég kann fullt af skemmtilegum sundleikjum.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:44







10.7.08 :::

Að heilinn skuli geta þetta....
Ég er með sönnun þess að ég sé klár. Í gær fórum við nokknir karaokenördar á Stand, sem er hambóbúlla sem lætur mann fá stand. It's true. Síðan fórum við á karaokebarinn sing sing, þar sem við pöntuðum okkur herbergi til að æfa okkur. Athuga hvernig þetta og þetta lag virkaði. Ég ákvað að syngja California Dreamin', og horfa á enska textann til að átta mig hvar ég væri í laginu meðan ég söng þann íslenska. Ótrúlegt.

Sveitapiltsins draumur from mokkinn on Vimeo.

Og loxins, loxins, loxins, þorði ég, í þessum litla hópi fólks að syngja Gloriu.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:37







9.7.08 :::

Framhaldzani

Beauty Bar

Pianos

The Slipper Room


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:41







3.7.08 :::

Rasismi eða ekki?
Fyrir viku síðan stoppaði mig blökkumaður. Ég var á heimleið og þetta var um klukkan 1 að nóttu í East Village.
"Excuse me miss?"
"Yes?" Ég hélt að hann vildi vita hvað klukkan væri eða eitthvað.
"Where are you from?"
"Iceland?"
"Do you have any African ancestors?"
"No..."
"Are you sure?"
"Well, if I do, it's several hundred generations back..."
"WIFF A BOOTY LIKE THAT?"
Ég hló og gekk í burtu.
Er þetta rasismi? Allar blökkukonur eru með stóran rass? Og hvítar stelpur með stóran rass eru komnar af blökkufólki? Ha?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:33







1.7.08 :::

Project
"Spegilmyndir á sleasy börum/veitingastöðum." Myndirnar þurfa að vera teknar að kvöldi til, í spegil á kvennasnyrtingu á veitingastað eða bar. Betra er ef spegillinn er með einhvers konar kroti. Ég er komin með 7 só far. Stay tuned.

Fyrsta var eiginlega óvart. Ég þurfti bara svona reality check. "Jeij, ég er á Pianos!"

Þarna erum við komin á Rififi. Erin heyrði sko ótrúlega sætan grínista segja við vin sinn: Hey, hver er útlenska stelpan? Hún er soldið sexí. Og ég þurfti að documenta lúkkið.

Ég fór síðan á Beauty Bar. Brendan var ekki þar. Hjúkkit.

Næsta kvöld hitti ég sama grínista á bar sem heitir 7B og þarna gerði ég þetta einungis til að halda verkefninu áfram.

Beauty Bar. Aftur. Eftirpartý eftir grínsjó.

Pianos, uppi. Keypti hárdótið í MoMA-búðinni.

Pianos, niðri.

Rififi. Ég elska Rififi. Keypti þennan kjól því að ég var að deyja úr hita. Er búin að vera í honum síðan. Ég segi fólki að hann sé búinn til úr gamalli skyrtu af Jordan Catalano.

Cabin. Þarna sá ég ótrúlega ömurlega stelpu púlla svo geðveik múv á einn strák að ég dó næstum.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:30