Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






27.6.08 :::

Kannski er ástin eins og sæluhús.

Mér finnst best hversu margir eru búnir að taka númerið.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:36







24.6.08 :::

Setti nokkrar myndir á feisbúkk. Þarna kennir ýmissa grasa, mikið karaoke og meira að segja mynd af eiturlyfjum sem ég veit enn ekki hvað var. Við skiluðum þeim bara til dyravarðanna.
Og albúm 2.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:23







20.6.08 :::


Myndin er svidsett.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:49







18.6.08 :::


Sorrý með óskýrtið, svona er youtube.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:09







It’s weird to make a decision where everyone in your life disapproves, pretty vocally and directly. They said, "You've got one year left. Just do it." I had a full scholarship so I didn’t have to pay for it. They asked, "Why don’t you just get the degree so you can have it?" And I said, "You don’t understand. I was trying to figure out what I wanted to do and now I know. I have the answer and it’s dumb to waste any more time.
-Demetri Martin


Slegið inn af Mokki litli klukkan 02:58







12.6.08 :::

Hátíð í bæ
Samkvæmt þessu koma tvær hljómsveitir af sumardisknum sem ég setti hingað, til Íslands að spila á Aiwaves í haust; Yelle og Familjen. Hjartað mitt er hamingjusamt. Komum okkur í gírinn!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:51







10.6.08 :::

Ein í fokki, Mokki gægist út um gluggann
...Fyrst kom Bretinn, rjóður, yndislega góður
þá bjó hún Mokki í borgunum í bleikum kjól.
Svo kom kaninn, þaninn, Tommúnistabaninn
þá kættist Mokki ofsalega og hélt sín jól.

Takk.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:17







AAAAHHHH
New York Shock:
Var að horfa á Gossip Girl í gær, 7. þátt þar sem Chuck Bass vil lað pabbi sinn fjárfesti í Burlesque-klúbb. OG ÞAÐ ER THE BOX!! AAAHHHH!!!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:30







7.6.08 :::

Frábært
Michael, einn New York vinur minn sem er plötusnúður og íglatöff var að benda mér á frábært uppboð á Ebay. Hann myndi actually ganga í þessum peysum, því hann er úúútúrfríkaður gaur og myndi í alvöru komast upp með að klæðast þessu. En já. Ef þið eigið fimmúsdollars eða aðeins meira, af hverju ekki að skella sér á Bill Cosby-peysu?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:53







5.6.08 :::

Í kvöld sagði Eyja við mig: Manstu? Eyja? Hoppa pampólín?
Og legið í mér sprakk.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:27







1.6.08 :::

Ég þarf ást, ást
Eitt sumarið var ég í bestu sumarvinnu í heimi. Við nokkur sem töldum okkur vera mjög cúl á því stofnuðum leikfélag og fengum styrk frá Hinu húsinu til að setja upp leikrit. Það tókst mjög vel. Svo vel að Magnús Geir, sem leikstýrði okkur, setti það upp skömmu síðar í LA. Ég var megasátt við að brandari sem ég skrifaði fyrir treggáfuðu stue-pigen hélt sér í handritinu. Hann var svona:
OG hún fór til Reykjavíkur... í fýlu!
Nanna: Ha? Fór hún ekki bara í rútu? (síðan hló hún mjög mikið sjálf)
Í upphafi og lok þáttanna sungu Lydía og Sóli lög sem þau þýddu sjálf og eitt eftir sig. Og líka eitt í sleiksenunni. Þau voru eins og cheesy brúðkaupssöngvarar og voru svo fyndin og dásamleg...

En já.
Um daginn var ég að grúska í safninu á RÚV og sé að út úr einni hillunni skarar Fullkomið brúðkaup leikskráin. Og þarna var diskurinn sem við sendum inn á allar útvarpsstöðvarnar. Ég setti lögin inn í tölvuna mína og ég er búin að vera í gleðikasti yfir frábærum þýðingum hjá Sóla. Er samt ekki jafn glöð með midi-undirspilið... en whatevs.
Lagið Flýttu þér nú er íslenskun á You Can't Hurry Love og textinn er jafnvel skemmtilegri en sá upprunalegi.

Hún:
Ég þarf ást, ást sem tendrar mig
ég þarf að finna þess' einu sönnu
en mamma sagði:

Flýttu þér nú,
reynd' að finna þér mann
annars fellurð' á tíma
og önnur búin að næl' í hann.

Já flýttu þér nú,
reynd' að finna þér mann.
Farðu að leita
og finndu rétta brúðgumann

En sama hve lengi ég leita kann
ég aldrei fundið get
minn rétta eiginmann.
Ég er að missa mátt,
en verð að vera sátt
með næsta sem ég finn;
hann verður kallinn minn
því mamma sagði:

Flýttu þér nú,
reynd' að finna þér mann
annars fellurð' á tíma
og önnur búin að næl' í hann

Já flýttu þér nú,
reynd' að finna þér mann
farðu að leita
og finndu rétta brúðgumann.


Hann:
Ég er að bíða eftir réttri stund
ég er að leita að spennu og rómantík,
en konan sagði:

Tíminn er nú
ég skal vera þér trú.
Látum draum' okkar rætast
sá eini sem ég þrá' ert þú.

Já tíminn er nú
ég skal vera þér trú
því við hentum hvort öðru
þú finnur hvergi betri frú.

En á ég að hlusta á þetta raus?
Á ég að binda mig? Á ég að vera laus?
Get ég fundið það sem ég hef leitað að?
Nú slæ ég til, þett' er það sem ég vil
því að konan sagði:

Tíminn er nú
ég skal vera þér trú.
Látum draum' okkar rætast
sá eini sem ég þrá' ert þú.

Já tíminn er nú
ég skal vera þér trú
því við hentum hvort öðru
þú finnur hvergi betri frú.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:06







You didn't get the memo?
OK. Sebastien Tellier er frábær. Eða ég veit það ekki, ég þekki bara þetta júróvisjónlag vel, myndi ekki þekkja önnur með honum. En já. Í kvöld sátum við SunnaBen (BunnaSen) á pizzustað hér í bæ og ungur piltur vatt sér að okkur. Í vitleysisgangi mistók hann okkur fyrir einhverja hipstera, og ákvað að tala um Divine.
Hann sagðist ekki hafa heyrt lagið fyrir júróvisjón, en hafa misst legvatnið á kvöldinu sjálfu. Nú var flutningur lagsins þetta örlagaríka kvöld langt frá gæðum upptökunnar... svo að ég afskrifaði dúddann.
Júróvisjón er old news.
Það er ekki lengur cúl að tala um þetta lag sem það besta sem gerst hefur í tónlist árið 2008.
Þess ber að geta að samstarfsmaður minn benti mér á þetta lag í febrúar, og þegar ég spilaði það einu sinni á kofanum (já með litlu) voru allir alveg: Hvaða ömurlag er þetta? Spilaðu Steel Dragon.
Það er tóts úti að tala um þetta lag eins og maður sé að fræða fólk, maður á bara að þekkja þetta lag og ná augnsambandi við góðar vinkonur þegar það er spilað og missa sig svo í hliðarsamanhliðar. Að lagið sé gott er orðin almenn vitneskja og að tala um það til að þykjast vera inni í málum að einhverju leyti er Bennigan'z.
Og plís, nennir einhver að plana Sálarball á Broadway sama ágústkvöldið sem tónleikarnir eru svo crowdið verði nokkuð grisjað? Takk.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 04:13