Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






31.5.08 :::

James Blunt er í Top Gear. Ég segi nú bara eins og maðurinn hér að neðan: Join me next week on 'Let's Make no Fucking Sense' where I'll be waxing an owl.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:16







30.5.08 :::

Þegar allt er svart huggar maður sig við...

Og þegar það verður svartara:


(Er þetta kannski skrýtið því Tómas var læknir sem keyrði um á mótorhjóli?)


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:17







26.5.08 :::


Áður en hugmyndin Láttu ekki vín breyta þér í svín kom upp kom upp tag-line-ið Láttu ekki bjor breyta þér í bjór.
Fólk að byggja stíflur út um allt, nagandi niður tré við Laugaveginn og syndandi í Reykjavíkurtjörn.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:58







25.5.08 :::

Gloria,
You're always on the run now
Running after somebody,
You've got to get him somehow.
I think you've got to slow down
Before you start to blow it;
I think you're headed for a breakdown,
So be careful not to show it.
You really don't remember,
Was it something that he said?
Or the voices in your head,
Calling Gloria?

Gloria,
Don't you think you're falling?
If everybody wants you,
Why isn't anybody calling?
You don't have to answer
Leave them hanging on the line,
Calling Gloria.

Gloria,
I think they've got your number,
I think they've got the alias
That you've been living under.
But you really don't remember,
Was it something that they said?
Or the voices in your head
Calling Gloria?

Gloria
How's it gonna go down?
Will you meet him on the main line,
Or will you catch him on the rebound?
Will you marry for the money –
Take a lover in the afternoon?
Feel your innosense slipping away,
Don't believe it's coming back soon.
And you really don't remember,
Was it something that he said?
Or the voices in your head
Calling, Gloria?

Gloria
Don't you think you're falling?
If everybody wants you,
Why isn't anybody calling?
You don't have to answer,
Leave them hanging on the line,
Calling Gloria.

Gloria
I think they've got your number
I think they've got the alias
That you've been living under.
But you really don't remember
Was it something that they said?
Or the voices in your head
Calling, Gloria?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:46







22.5.08 :::

Broody
10. Menn með einhvers konar græjur. Ég veit ekki alveg af hverju. Ég er ekki að tala um svona vegavinnumenn, meira svona á delicatskala. Verkfæri sem gefa til kynna að viðkomandi sé laghentur og kunni að fara með verkfæri.
9. Menn í læknafötum. Þurfa alls ekki að vera læknar (ómæjulianrhind-tuttælovjú). Ég held að allir rassar séu súpernæs í svona buxum. Þetta minnir mig líka á heimadaga í London, þar sem einu mjúkfötin sem til voru voru svona föt sem maðurinn hafði rænt af spítalanum.
8. Menn með bítlahár. Það er hárfín lína milli ljótt hár - bítlahár - úr sér vaxið ógeðslegt hár með svona tjullum út til hliðana.
7. Menn sem skora á mig í eldhúsinu. Ég er svo mikill strákur. Menn sem skora á mig að þeir geri eitthvað betra en ég í eldhúsinu ná keppnisskapinu upp. Ef ég vinn, frábært. Ef ekki, ómædeis.
6. Menn sem ýta á marga takka og eru með fullt af snúrum í töskunni. Svona "á ég að binda þig með snúrunum og ýta á takkana þína?" Nei djók. HÆ PABBI.
5. Menn sem hafa það gott sjálfsálit að þeir geta staðið fyrir framan hóp fólks vopnaðir míkrófóni og fengið alla til að væla úr hlátri. Það er gaman að vera gellan sem þeir bjóða upp á drykk eftir vel heppnað show. Ekki það að ég þekki það.
4. Menn sem eiga börn. Hvað er betra en sönnun á frjósemi? Og væntumþykju? Jii.
3. Menn með börn. Úff.
2. Menn sem kunna að dansa. Snúðu mér, dýfðu mér.
1. Menn með hljóðfæri. Æji já ég er svo leim.

(Tali menn góða dönsku kvalifæar það sem þrjú stig)


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:24







‘The Weird Girls Project hefur verið boðið að taka þátt í Concrete and Glass Arts and Music festival í London í október. Fjáröflun stendur yfir til að koma okkur þangað, geta gist og borðað, leigja leikmuni og hanna og fá búninga saumaða. Ef fólk vill forvitnast meira um verkefnið er hægt að sjá alls konar upplýsingar hér eða haft samband við ungamömmuna, kitty-von-sometime@mail.com og fengið sent PDF skjal með upplýsingum um hópinn og hátíðina sjálfa. Fleiri sem koma fram á hátíðinni etu til dæmis Yeah Yeah Yeas og MIA.

Hver aur er vel þeginn. Hægt er að senda með Paypal og þá er bara að ýta á þessa mynd – ýta á "send money" og receiving email address er theweirdgirls@gmail.com.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:05







21.5.08 :::

Ég þarf bara að coina brandarann.
Síðasta sunnudag fórum við Vigdís í bíltúr með pabba. Þegar við keyrðum framhjá Tjörninni sáum við túrista sem voru að taka myndir af húsinu í Tjörninni. Ég opnaði rúðuna og öskraði af öllum mætti: OH NO! IT'S MY HOUSE!
Túristarnir vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, en mikið hlógum við systurnar. Þið megið prófa þetta sjálf, en ekki voga ykkur að eigna ykkur brandarann.
Í lokin er svo mynd af okkur fyndnisgrísunum:


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:47







Fyrir þá sem misstu af afmælinu mínu
Fólk er að ræða um hver hápunktur afmælisins hafi verið, hvort það hafi verið maturinn eða dansinn. Já eða að amma og mamma voru í miklu tjútti fram eftir öllu. Eða fólkið sem fór í threesome-sleik. Eða stórbrotin frammistaða DJ kvikindis. Mér finnst það samt hafa verið ræðan hans Braga.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:30







20.5.08 :::

Heppnis
Í dag átti ég að fara á Grundarfjörð en fékk magapöddu svo ég treysti mér í vinnu, en ekki BÍLFERÐ. En það er allt í lagi, því ég fékk línu í útvarpsleikhúsinu í staðinn.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:04







18.5.08 :::

Golden.
See more funny videos at CollegeHumor

"I am the angel of death!"


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:34







15.5.08 :::

Allir sem ég þekki virðast vera að fara til New York. Svo á meðan ég var að ráðleggja fólki um hvað það ætti að gera fór ég að hugsa um hvað ég ætla að gera þarna. Jú, ég kem til með að gista hjá Erin og Brette og kannski hjá Eric líka (deila gleðinni og byrðinni). Erin býr í East Village svo við komum til með að vera í djókinu þar í kring, bókstaflega. Jú, við ætlum að fara á standup og improv öll kvöldin sem ég er hjá henni. Nú þegar íslenska krónan er fokktöppíhausnum er ekki úr vegi að mæla með ÓKEYPIS eða ódýrri skemmtun.


Ég er búin að lofa að sjá alla vinina grínast á sviði og hlakka mest til að sjá Demetri, því að ég gat aldrei séð hann live meðan ég var þarna. Honum fannst það skítt að ég hefði bara séð hann á jútjúb. Ég hef líka aldrei séð Oren live sem er ömurlegt því að hann er kærasti Erinar sem er besta NY-vinkona mín.
Ég vona að Whitest Kids séu allir í bænum meðan ég er þarna, en það eru litlar líkur á því. Ef þeir verða allir þarna þá eru þeir líklega í tökum... sem gæti aftur á móti þýtt fleiri atriði þar sem ég fæ að láta ljós mitt skína.

Ef lesendur ætla sér að fara á eitthvað stand up í New York er ágætt að segja þetta: Það eru nokkur sjó sem eru alltaf góð. Scum and Villainy á Pianos á sunnudögum klukkan átta (ókeypis), Greg Johnsson and Larry Murphy Show á Rififi á föstudögum klukkan átta, Gelmania á Rififi á miðvikudagskvöldum klukkan átta og The Sweet á The Slipper Room (á horni Orchard og Stanton) á þriðjudagskvöldum klukkan 8. Vænlegast til vinnings er að elta standupgrínista sem eru ætíð góðir. Svipist um eftir þessum nöfnum:

Demetri Martin
Er stundum með innslög í Daily Show, til dæmis þetta hérna. Hann er þekktastur fyrir mjög intellektúal grín, mjög lágstemmt. Ekkert Jim Carrey neitt. Brandarar sem leita á mann seinna, mjög útpælt. Snillingur í tímasetningum. Ótrúlega sætur og ilmar vel.

Sean Patton
Ég held að það segi meira en margt að þegar við Kitty sáum hann á Scum and Villainy kom drykkurinn hennar út um nefið á henni.

John F. O'Donnell
Andstæða Demetri. Mjög ofvirkur, með mikill athyglisbrest (heldur maður), úthugsað hugsanaflökt svipað og Eddie Izzard er búinn að mastera.

Timmy Williams
Timmy besti. Nýbyrjaður í standupi af þessu tagi, er þekktastur fyrir sketsavinnu með Whitest Kids U Know.

Greg Johnson
Greg Johnsson er ekkert með þetta útpælt. Hann ER svona vandræðalegur. Alltaf. Hann væri mjög utanveltu ef hann væri ekki standupgrínisti. Frábær samt. Sem standupgrínisti. Ekki sem stefnumót samt.

Oren Brimer
Frekar old school í standupi, mjög nýstárlegur í sketsunum sem hann gerir. Mjög hugmyndaríkur. Týpískt New York standup að mínum dómi, en aðeins meira spæsí.

Todd Barry
Þekktastur fyrir að vera bongógaurinn í Flight of the Conchords. Er yfirleitt óundirbúinn og gerir miskunnarlaust grín að fólki í salnum. Mana ykkur til að setjast á fremsta bekk.

Auk músíkgrínistanna:

Cracked Out
Bennigan'z er með þeim. Orðheppnir strákar og frábærir karakterar sem þeir hafa skapað með Cracked Out. Mikið lagt í allt lúkk og upptökur.

Reggie Watts
Einn maður og lítið upptökutæki. Allt spunnið á staðnum nema The Fuck Shit Song.

God's Pottery
Dúett sem flytur kristileg akústíklög eins og "The pants come off when the ring is on." Ótrúlega skemmtilegt.

MC Chris
Einu sinni heyrði ég hann reyna við konu á bar. Eftir mikinn rembing að hans hálfu og engin viðbrögð frá henni, sagði hann "Don't you know who I am? I am kind of big!"
En hún sagði; "Really? You seem quite short to me"

og búktalarinn Carla Rhodes.
Hún er búktalari. I rest my case.

Þumalputtareglan er Greenwich Village er gamaldags og Jerry Seinfeld-legt, Lower East-Side er nýrra og ferskara, og yfirleitt meiri metnaður. Ég segi fyrir mitt leyti að ef það er múrsteinaveggur þá veistu að hverju þú gengur, ef ekki, þá verður þér komið á óvart.

Ég ætla líka að vera dugleg að sjá vinina sem eru í improv-inu í UCB. Ef einhver er að fara þarna í ágúst mæli ég með Del Close maraþoninu, 3 daga maraþon... jebb... 72 tíma stanslaust improv sem á sér stað 8-10 ágúst í ár. Helgarpassinn kostar einhverja 20 dollara. Uppáhaldsimprovhóparnir mínir eru Death by RooRoo, Serious game of butt play og Martha and the Rondellas.

Ef fólk er Brúklyn-sinnað er ótrúlega gaman að fara á sunnudagstónleikana í gömlu McCarren Park-sundlauginni. Þetta er sundlaug sem er ekkert vatn í, hljómgæðin eru mjööög spes. Sunnudagstónleikarnir eru ókeypis, en stundum eru stórtónleikar sem eru ekki ókeypis. Síðasta sumar spiluðu Yeah Yeah Yeahs þarna, ég var of sein að ná í miða og hlustaði því bara af þakinu mínu. 26. júní eru Devo að spila. Whip it maður.

Ég ætla líka út á Coney Island til að sjá hvað er búið að eyðileggja mikið... og taka eina ferð í Cyclone ef einhver nennir með mér.

Síðan kem ég til með að elta vini plötusnúðavinina, ég veit fyrir víst að Brendan er fastur einu sinni í viku á Beauty Bar.

Og borða íp íp íp.
Samurai í Williamsburgh er staður sem mig dreymir. Þrátt fyrir að krónan sé á breytingaskeiðinu þá eru 7.75 dollarar fyrir 12 bita, salat og misosúpu ekki mikið, hvað þá 9.95 dollarar fyrir 18 bita, salat og misosúpu. Ég ætla núna að blogga um nachosið á Pianos í áttunda sinn: Það er ruglað gott. Biðjið um extra mikið guacamole. Og fáið ykkur frozen margarita með.
Ef hungrið sækir á ykkur á absúrd tíma og þið eruð að tjútta í East Village mæli ég með 7A, sem er já, á horni 7th Street og Avenue A. Mexókóskur matur sem ég mæli með er t.d. El Nuevo Amenecer á horni Stanton og... ég veit ekki - One block from Piano's.
Í Williamsburgh er líka dinerinn Relish, sem tekur ameríska diner-menningu skrefinu lengra og býr til ótrúlegan mat. Ó nammi. Dinerinn lítur út eins og geimskip!!! Og! Milkshake myndbandið með Kelis var tekið upp þar.

Ég vil líka leika mér í leiserdiskóinu á Annex...

Ég var að hugsa um að nota tækifærið og taka einhverja magadanstíma hjá Yousry Sharif, en hann er eitthvað upptekinn út um allt í ár og því eru bara fastir tímar hjá Nourhan, konunni hans. Ég er að skoða önnur námskeið, en það eru ekki margir spennandi kennarar aðrir en hann... allt voðalega mikið amerískt...

Síðan verð ég auðvitað að láta sjá mig í karaoke.

Ég ætla ekki að versla mikið, en þá helst í Beacon's closet sem er MONSTERstór búð á N11th í Williamsburgh, mig minnir á Wythe og N11. Ég bjó á Bedford og N11. Sniff. Buffalo exchange er líka fín, á Driggs og N10th. Og uppáhaldsbúðin mín, sem einungis selur föt í sama klassa og Rokk og rósir, Vice Versa á Bedford og S3 eða N3.. man ekki alveg. En sjitt svo gott.

Uppáhalds cupcake bakaríin eru Sugar Sweet Sunshine og Cakeshop, sem er ekki bara cupcakebakarí við hliðina á Piano's, heldur líka fínasta tónleikavenue og plötubúð.

Mér finnst skemmtilegustu tjúttstaðirnir vera í Lower East Side, Williamsburgh og Greenpoint. Ef fólk er ágætisnördasinnað, er Barcade mjög skemmtilegur. Ekki bara bar, heldur líka ARCADE! Já, spilatækjasalur. Skammt frá er Brooklyn Brewery, þar sem er bjórsmökkun alla föstudaga.

The Box er staðurinn þar sem ég dansaði, þar er alvöru variety show. Hann er ekki ódýr. Að minnsta kosti 20 dollarar inn, og drykkir dýrir. Hins vegar ef fólk vill fara á gamaldagsfjölleikahús þar sem dansað er á mörkum velsæmis og hryllings, þá mæli ég með Boxinu. Varúð samt, sértu ekki frægur eða kaupir borð fyrir 60.000 kall, þá gætirðu þurft að bíða í klukkutíma í röð.

Ef fólk á pening er sniðugt að fara í MOMA-búðina og redda öllum jólagjöfnum á einu bretti. Í alvöru. Þegar pabbi og mamma fara þarna kaupa þau svona 30 hluti og síðan eru jóla-og afmælisgjafir bara klárar.

Þetta er s.s. það sem ég myndi gera. Gangi ykkur vel.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:26







13.5.08 :::

... með íbúðinni fylgir geymsla í kjallara sem hefur aðallega verið notuð sem kynferðislegur pyntingaklefi. Þarfnast viðhalds.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:30







11.5.08 :::

Einu sinni velti ég því fyrir mér hvernig lífið væri ef fólk brysti út í dans og söng af minnsta tilefni. Síðan kynntist ég Margréti.
Arnór Bogason


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:39







9.5.08 :::


Í dag var rigning og eftir eina sendiferð út í bæ á vespunni var ég gegnblaut... neðan mittis. "Ég þarf að fara að fá mér góðar mótorhjólabuxur sem eru regnheldar" hugsaði ég í nágrenni slökkvistöðvarinnar, en um það leyti sem ég var hjá Veðurstofu Íslands mundi ég eftir samfestingablæti mínu. Núna er ég með skærrauðan samfesting á heilanum. Ég þarf bara að finna hann!
Sem betur fer er þurrkari á Ríkisútvarpinu.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:28







4.5.08 :::




Já, þetta erum við Ousama Emam eftir sýninguna áðan. Sigga Nanna sagði honum að dansa við mig og ég fór í netta kleinu. Síðan svitnaði ég jafn mikið og sést á myndinni. Hann ætlaði víst að gefa mér blóm en ég var í svo mikilli kleinu að það mistókst.
Ég á mun fleiri myndir af mér með alls konar átrúnaðargoðum og stjörnum og goðsögnum (yeah you heard me) en þær koma þegar sagan öll kemur.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:44







1.5.08 :::

Dúddamía
Ousama Emam.
Áts.
Fokk.
Ég kann ekki að tala lengur.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:24