Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






28.4.08 :::

STOKKÖND!
Á morgun fer ég til Stokkhólms. Liggafokkinglái.
Ég ætla meðal annars að taka tíma hjá:

Nour

Ousama Emam (hann er mjög sexí, ekki láta Nubianbúninginn blekkja ykkur)

Lubna Emam
ooooooooog

MAHMOUD REDA!!!! sem ég elska, dýrka og dái.

Síðan ætla ég mér að borða sushi, líbanskan mat, meira sushi og besta khebab á Norðurlöndunum. Sjáumst krakks.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:51







25.4.08 :::


Eina myndin á internetinu.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:02







19.4.08 :::

Sumarlög.

Ingimar Eydal og hljómsveit - Sumarást
Þetta lag er sumarlegt en tregafullt. Gaman hvað það er engin innlifun í gangi í Mitt hjarta söng - hún er mín sumarást.
Passið ykkur á sumargreddunni krakkar.


Blondie - The Tide is High
Sum hljóðfæri eru sumarhljóðfæri. Marimba fellur í þann flokk. Ég er líka hrifin af lúðrum. Ekki jafn hrifin af lúðrum og lúðum samt...


Hljómar - Sveitapiltsins draumur
Fyrir okkur borgarbörnin er sveitin bara til á sumrin. Ég sé fyrir mér mann sem er útitekinn í framan, ber að ofan en í smekkbuxum. Úff. Sem er smá lúði.


Connie Francis - Lipstick on your Collar
Mér finnst hress lög um framhjáhöld gríðarlega skemmtileg. Þá á ég við lög sem eru empowering. Ekki svona "þú ert bara í því að reyna við mig en samt áttu konu sem er ljót"-lög heldur "þú ert nú meiri kjáninn, ég tjútta bara án þín slúbertinn minn." Þetta lag krefst þess að maður sé í sumarkjól sem er með pilsi sem hreyfist.
You said it belonged to me, made me stop and think
Then I noticed yours was red, mine was baby pink

Hún er svo klók hún Connie.
Ég sé líka fyrir mér hóp af músum að syngja bakraddirnar.


Þú og ég - Í Reykjavíkurborg
Koma tímar, koma ráð - segir máltækið. Ég er að bíða eftir að þetta lag verði költ hjá svona Lost in Iceland-nördum. Reykjavík er svo mikil Reykjavík á sumrin. Það er líka gaman að biðja um þetta lag og fallbeygja nafn bandsins. ÁTTU REYGJAVÍGURBORG ME ÞÉROGMÉR?


Sebastien Tellier - Divine
Believe it or not - ÞETTA ER FRANSKA EVRÓSÝNARLAGIÐ Í ÁR. Þetta er í fyrsta sinn sem Frakkar senda lag sem alfarið er sungið á ensku. Pródúserað af öðrum gæjanum úr Daft Punk, og myndbandið er frábært. Ég hlakka til að sjá hvernig sviðsframkoman verður. I-I-I-I.


Stuðmenn - Ólína og ég
Frábært rím og fallegt lag. Sumarið má koma þegar maður gerir hliðarsamanhliðar við Ólínu og mig. Ég heyrði í gær útgáfu Sigga hjálms af laginu sem var falleg, en ekki svona falleg. Öðruvísi falleg skulum við segja.


Beck - Sexx Laws
Rosalega eru hressu lögin hans alltaf sumarleg þrátt fyrir að hann sé í Vísindakirkjunni. Þetta er einhver lenska þarna. Ég dýrka t.d. öll sumarlögin hans Tom Cruise.


Hrekkjusvín - Sæmi rokk
Og annað sumarhljóðfæri: KÚABJALLA. Kannski er skrýtið að setja lög með Agli svona þétt saman, en eins og mamma mín segir: Það er aldrei hægt að spila hann í klessu.


Vincent Vincent and the Villains - Pretty Little Girl
Ég elska þetta retrorokkband. Dúllídúllídúll. Hef sagt það oft, sá þá í London með Tom og BéHelgasyni. Hafdís Huld hitaði upp fyrir þá. Ég á tvö lög í viðbót sem ég skelli á næstu mixdiska.
Hversu sumarlegur er gítarleikurinn? Svona 8000 sumarlegur.


Belle Stars - Iko Iko
Þetta lag var í Rain Man og einhver laug að mér að Cindi Lauper syngi það.
Marimba og kúabjalla. I rest my case.


Bonde Do Rolle - Solta o Frango
Þetta þýðir "Sleppið kjúklingnum út." Ég segi nú bara sleppið gleðinni út. Djöfull er bítið í þessu næs, eins og drengurinn sagði. Haaaaaa.


Familjen - Det Snurrer i min Skalle
Fyrst maður er kominn í world music er ágætt að fara í skánskt teknó. Svíar fatta það að vel sungið teknó er fallegt og hentar flestum, svona eins og Ikea. Ég er spæld að á meðan ég er í Stokkhólmi spilar Familjen á Ítalíu. Piss. Þetta er svona sumarástarlag um að hlaupa saman út í vorið og syngja. ÓMÆDEIS. Og það er sungið á skánsku.
Kreisí.


Deep Zone and Bathazaar - DJ, Take me way
Jú, þetta lag er búlgarska júróvisjónlagið. Samstarfsmaður minn er búinn að veðja að það vinni. Hann lagði 10.000 undir, og ef það vinnur þá fær hann 300.000 til baka. Ég er hugsa um að leggja eitthvað aðeins undir... því þetta lag lofar góðu. Ég meina, breikarar, leiserharpa og hún verður aðeins klædd bodypaint á sviðinu. Auk þess sem það mun kvikna í plötunum sem þeir (þykjast) skratsa á í miðju lagi. ELDPLÖTUR. LEISERHARPA. BODDÍPEINT. Spekkið myndbandið.


A Cause des Garçons - Yelle (Tepr remix)
Ég vil fá mennina úr myndbandinu til að kenna dansinn á Íslandi. Þangað til þarf maður bara að rembast einn heima. Ég reyndi þetta með Katrínu í gær ogf við rákum alltaf vitlausubeinin saman.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:10







17.4.08 :::

Vídjó sem Atli Viðar gerði af því þegar ég keypti mér barn.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:10







16.4.08 :::

Er fólk að grínast með verðið á James Blunt?
Mig langaði svakalega mikið á þessa tónleika, en frekar fer ég svona sex til átján sinnum á Santa María.

Hey, síðan er hérna skemmtilegt vídjó sem Kitty og skrýtnu stelpurnar hennar gerðu. Chris klippti og tók. Ég er kanínan sem fer í handahlaup. Ég vil að við gerum myndband fyrir James Blunt en fólk er ekki spennt fyrir því.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:46







14.4.08 :::

Mokk mælir með:
  • Að skoða öll gömlu vídjóin frá Ný dönsk á jútjúb. Annað hvort hefur þetta verið kjánalegt þá eða mjög töff. Þetta eldist gríðarlega vel. Frelsið og Nostradamus eru í uppáhaldi.

  • Frábærum nýjum matsölustað á Laugavegi 24 eða 26 sem heitir Santa Maria. Þetta er alvöru mexíkanamatur, ekkert ostasósutexmexkjaftæði. Þarna er allt búið til á staðnum, sósurnar og allt. Ég fékk mér sósu sem var gerð úr chili og 70% súkkulaði. GOTT GOTT GOTT. Og ekki skemmir verðið fyrir. Við Vigfús Perli fórum þarna á föstudaginn. Hún fékk sér burrito og tvær kók og ég fékk mér tostadas og kórónubjór. Allt þetta kostaði 2800. Síðan er gaman að segja frá því að þarna voru líka Páll Óskar og Frosti einusinnimínus. Og það kemur bráðum margarituvél þarna!!!

  • Að eiga góða vini.

  • Lambhúshettum. Algjört möst í þessum kulda undir hjálminn.

  • Að snúa út úr þekktum dægurlagatextum. Dæmi:
    Hvar er auminginn?
    Hvar ertu lífið sem ég þrái?
    Oh, oh auminginn,
    —hvar eru gleði mín og sorg?
    Hvar er auminginn?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:44







13.4.08 :::



Feisspeis
Á feisbúkk er eitthvað svona grínidjók sem er eitthvað "Finnst þér þessi sætur? En þessi?"-application sem er mjög skemmtilegt til dægrastyttingar. Ég á víst að vera vinsælli en 94% af feisbúkk sem er nú bara nokkuð gott svona miðað við að ég er ekkert rosalega góð landkynning. Síðan er manni sýnt hverjir eru jafnir manni og eru í sama kjötflokki. Þarna eru alls kyns Arabar og önnur dúlludýr sem ég þekki ekki neitt, Helgi Hrafn Guðmundsson poppar upp við og við og síðan einn strákur sem er að vinna hérna á RÚV sem kemur ítrekað upp. Hann er einn af mjöööög fáum sem ég er ekki enn farin að heilsa. Má ég kynna kjötflokksbróður minn: Ágúst Bogason.
Mér þætti gaman að sjá hvernig pabba hans myndi ganga í þessu gríni.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:30







9.4.08 :::

Þessi grein hefur sótt á mig undanfarna daga. Ekki aðeins vegna þess að þetta er nettur viðbjóður, heldur líka vegna allra flækkjanna sem þarna skapast. OK.
Pabbinn er líka afi barnsins. Hann er líka tengdafaðir sjálfs sín. Mamman hálfsystir dóttur sinnar... sem gerir pabbann að mági barnsins...
Ég get farið í endalausa hringi í þessu. Eins og í laginu Ég er afi minn með Ladda.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:22







8.4.08 :::

KY-D25
Ég held að ég hafi aldrei verið svona töff á ævi minni.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:45







3.4.08 :::

Draumfarir síðustu daga

Wagamama.

Nachosið á Pianos.

Gili Gulu.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:38







2.4.08 :::

Þetta var ekki aprílgabb. Liggaliggalái.
Kettlingurinn mun heita (Benito) Mussolini, kallaður Músi. Samstarfmaður minn stakk upp á þessu nafni og hann vann.
(ERTU ÁNÆGÐUR?)


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:43







1.4.08 :::

Och nu brinner hela skogen.
Næsta mánudag mun ég fara í vinnuna á fyrsta ökutækinu mínu. Ég hlakka mikið mikið mikið mikið til að fá vind í hárið og kalt á hnén og allt það. Fokkaðuðér Tom, fokkaðuðér Brjánn Sultarvængur, ég kaupi mér bara hjól sjálf.
Nei djók. Þetta hefur lítið með þá tussusnúða að gera. Þetta er svona lítil dömuleg vespa, 50 cc því ég hef ekki próf á stærra.

En hvað á ég að skíra músluna? Hún er nákvæmlega eins og þessi á myndinni, með merki ítalska flughersins og allt saman.
Mér dettur í hug Mikki, Músi, Ísbjörn, Auður eða Ragna Lára. Fleiri nafnatillögur eru vel þegnar.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:45