Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Heldur þann versta en næstbesta Á mér hvílir bölvun. Ég er alltaf í 2. sæti. Þetta byrjaði í maí árið 1999, í lok níunda bekkjar, þegar Gríma varð hæst í bekknum með 9,15 í meðaleinkunn en ég var með 9,14. Síðan þá hef ég verið föst í öðru sætinu, og það bara á einhverjum svona formalities. Næstum því þetta, næstum því hitt. Sígandi lukka, fokkjú. En ég meina, það er betra en að vera föst í 11. sætinu? Dsís lúís. Ég fékk mér tvö lítil páskaegg. Fyrri málshátturinn var frekar ómálsháttarlegur; Betra er að róa en að láta undan. Seinni var svona: Allt er leyfilegt í ástum og stríði. Mér finnst þetta voðalega miklir Winnipeg-málshættir. Gaman samt að segja frá því að hver einasti á þessari mynd á við sömu bölvun að stríða, samt er Timmy stórfrægur maður sem fær emaila um litlar stelpur sem vilja missa meydóminn með honum og Kate er módel og hefur prýtt riiiiisastór hús. Og ég og Erin erum alveg ágætar stelpur.
OH SNAP. Sería tvö af Whitest Kids er frábær. Það er líka svo gaman að horfa á þetta, sumum sketsum hefur maður fylgst með frá því að þeir fæddust yfir margaritum og nachosi á Pianos eða Cactus Berrys hvar svo sem Karin var að vinna það kvöldið. Suma hafði maður séð á sviði og fylgst með mótast þannig. Og whatcha know, ég er í besta sketsinum enn sem komið er. Síðasta skotið, þar sést í augun mín fyrir aftan hausinn á Zach. Újebeibí.
Hún Vigdís á afmæli í dag. Hún er 15 ára stelpugreyið. Endilega senda henni afmælis-sms. 8697242. Já, hún er á klóinu á þessari mynd. Ég er ekki vond systir, hún setti þetta sjálf á myspace-ið sitt í Barcelona-albúmið. Talandi um 15 ára afmæli, ég hitti Sigurð Eggertsson í gær á Kaffibarnum.
Nýja lingóið mitt, "tóts" er að breiðast út. Við Sunna prufukeyrðum þetta á Kaffibarnum í gær og það gekk svakalega vel. Gengur ekki jafn vel með "Djókback Mountain."
Annað hvort verður geðveikt gaman í vinnunni á morgun eða vandræðalegt... Ég vil frekar að það verði vandræðalegt, því ég hef svo gaman að slíku. Bing bong. Ég er fáránlega glöð að hafa sleppt páskaeggjaáti því þá verð ég ekki bólótt.
Og þetta um þetta skot í færslunni fyrir neðan; það er tóts um heyrnartólin.
Það er of snemmt að blogga um nokkurn skapaðan hlut.
If you think that our kiss was all on the lips C'mon, you got it all wrong. The White Stripes - The Denial Twist
You'll have bad times And he'll have good times Doing things that you don't understand. Tammy Wynette - Stand by your man
She says that long ago she knew someone but now he's gone She doesn't need him. Bítlarnir - For no one
That's no good for me, I don't need nobody, Don't need no one That's no good for me. The Prodigy - No Good
Just when you think that you're in control, Just when you think that you've got a hold, Just when you get on a roll, Here it goes, here it goes, here it goes again. OK Go - Here it goes again
Stelpur dansa. Sykurmolarnir - Luftgítar
What's that playing on the radio? Why do I start swaying to and fro? Sha-Na-Na - Those Magic Changes
I could never be the right kind of girl for you, I could never be your woman. White Town - Your Woman
If you want me to, I could hang 'round with you If I only knew That's what you're into. Flight of the Conchords - If you're into it
Krísland Sama hvernig heimasíða LHÍ lítur út á morgun munu einhverjir draumar mínir rætast á þessu ári. Það er t.d. boð um að koma fram á listahátíð í London í október með Weird Girls, svo töffaðri listahátíð að þarna eru líka TV on the Radio og Yeah Yeah Yeahs.Og síðan ýmislegt annað, kaupa íbúð. Eða vespu. Ef maður á ekki mann og allir eru hræddir við mann hvort eð er er alveg eins gott að vera á fallegri vespu.
Á morgun verð ég hinum megin við myndavélina. Ég veit ekkert hvað ég á að segja eða gera, en það eru þarna vanir menn í kringum mig. Ég er mest stressuð yfir klæðnaði... Ég á bara einhver skemmtileg föt sem passa ekki við nördastefið sem er að fara að vera í gangi... Nema Star Wars-kjólinn og hann er of munstraður. Oh jæja. Verð bara í einhverju svörtu. Og gullskóm.
Mamma mín heldur því fram að ég sé ekki í hljómsveit því við erum bara tvö í henni. Ég sagði henni að fokka sér. En síðan kom hún með svo töffað nafn að ég fyrirgaf henni þetta allt saman. Nú þurfum við bara að fara að semja eitthvað. Búa til og skapa. Fá sér eiturlyf og opna hugann og ýta á rec. Það er það sem þessi bönd gera. Maður er að er heyra þetta.
Og eitt enn: Verst er að ropa þegar maður er búinn að borða laukhringi og lýsi.
Það er margt sem angrar. Af öllu í heiminum sem ég gæti verið með á heilanum, þá er ég með söng sem við sungum í 5. bekk á heilanum. Ég veit að svona 10 manns eiga eftir að fá þetta á heilann bara við að lesa orðin. Sorrý krakkar. Integer vitae scelerisque purus non eget Mauris iaculis neque arcu nec venenatis grauida sagittis, Fusce, pharetra... Já, svona er það. Sá sem er hreinn í líferni þarf hvorki máraspjót eða boga og örvar þungaðar eitri. Jeij. Það sem maður man og mun aldrei koma manni til góða. Pffft. Dagurinn í dag er búinn að vera viðburðarríkur. Til dæmis sagði Hjálmar Hjálmarsson mér að lesa The Secret.
Video killed the radio star? Óli Palli kom til mín í dag og sagði: Talaðu. Mokk: Ha? Óli Palli: Já, segðu eitthvað... Hreinn sagði að þú værir með útvarpsrödd. Talaðu! Ég varð stúmm um stund en sagði svo: Ég heiti Margrét og ég á afmæli sama dag og þú.
Ragnheiður Eyja var með mér í vinnunni í gær. Kona á safnadeildinni, sem ég man ekki hvað heitir, spyr mig hvort ég eigi nokkuð þetta barn. Nei, bara með það í láni. "Já, ég hélt það. Þegar þú varst að dansa á árshátíðinni sögðu allir: ótrúlegt að hún geti þetta, hún á alveg pínulítið barn! Ég ákvað að taka því sem hrósi, að ég væri í svona góðu formi að það væri ekki séns að ég ætti 15 mánaða gamalt barn. AAAAAAHHHH þess vegna lenti ég bara á hálfum sjéns á árshátíðinni. Það héldu allir að ég væri ráðsett kona sem ætti fallegasta barn í heimi.
Á sunnudagsmorguninn skreið ég upp í rúm til mömmu og pabba og við vorum að ræða um daginn og veginn. Við grípum inn í mitt samtal. Margrét: Síðan sendir hann mér þetta sms klukkan hálf fimm! Mamma: NOH! Pabbi (slær í mömmu ítrekað á meðan samtalið á sér stað): MARGRÉT ÞÚ ÁTT EKKI AÐ SEGJA OKKUR ALLT! Báðar: JÚ VÍST!
Mamma: Heyrðu, Margrét, ég hitti stelpu, svona tvítuga sem var aaaaalveg eins og þú. Og ég spurði hana: Ertu naut? og hún alveg: Uuu, já, af hverju? Og ég bara: Því að þú ert alveg eins og dóttir mín. Margrét: Hvað meinarðu alveg eins? Mamma: Bara alltaf að segja eitthvað svona asnalegt út í loftið.
Einn af hápunktum lífs míns Póstur númer 18 um Danny Kaye.
Mikið vildi ég að einhver í þessum heimi deildi ást minni á myndinni Hirðfíflinu með Danny Kaye. Þannig var það nú, að í gær á árshátíð RÚV stóð ég og talaði við tvo menn. Þeir hétu Haukur og Gaukur. Að sjálfsögðu var ég í hláturskasti innan í mér allan tímann út af þessu, en sem betur fer hafði ég hemil á mér og fór ekkert að segja frá þessari fyndnu tilviljun. King of jesters, and jester to the king!
Forystufíllinn kallar af fjarlægri strönd Ég fæ eitt ímeil/komment/sms/msn samtal á dag, að minnsta kosti, þar sem New York vinirnir segja "when are you coming back?" Erin vill skipuleggja svakapartý með öllum standöppunum auk þess að óverdósa á gulrótarsósunni minni, Brendan vill halda dansiballpartý, Brette vill fara út að borða á El Nuevo Camaro, Shandi og Timmy vilja halda Mokki-oke... ég vil fara í magadanstíma, syngja karaoke og borða ótrúlega mikið sushi og troðfylla ferðatöskuna í Beacon's og Vice Versa. "Ég veit það ekki, ég er í vinnu... og er smá mikilvæg..." Verst er samt þegar þau koma við það allra viðkvæmasta í mér. "Mokki, come home." En ég á heima hér líka. Doj doj doj. Talandi um heimili. Mig langar gríðarlega mikið að flytja að heiman. Allt er morandi í fallegum og vel staðsettum íbúðum. Já, ég vil búa í 101, ég er góðu vön, en það er fyrst og fremst vegna þess að það er hagkvæmast fyrir mig. Ég er að kenna í Kramhúsinu, og er að plötusnúða í bænum, svo að þetta er hagkvæmast. Síðan tek ég bara strætó í vinnuna eða tölti heim og fæ far með mömmu sín. Fyrir um 3 árum síðan vildi ég flytja að heiman og var að kíkja á íbúðir en var ráðlagt að bíða í nokkur ár á meðan íbúðarverð lækkaði. Ef eitthvað er hefur það hækkað upp úr öllu valdi, svo mikið að greiðslubyrði er mér ofviða, hvað þá eftir 10 ár!
mont Við Ragnar spiluðum á Óliver í gær og það var ótrúlega skemmtigaman. Þetta er svona átján sinnum fleira fólk en ég er vön að spila fyrir, en þar sem við vorum tvö segi ég bara níu sinnum. Sem betur fer stóð Ragnar i brúnni og ég var eiginlega svona skriftan þarna, ég tók samt alveg tvær góðar skiptingar, sem er gott því að ég fékk DJ forritið þann morguninn og gat æft mig í 15 mínútur að skipta og vera töff á meðan. Rokk og ról. Við vorum ráðin á staðnum og komum til með að spila þarna tvisvar í mánuði framvegis. Sé ykkur á Óliver krakkar. Doj!
P.S. Doj er nýja orðið mitt. Hægt er að segja dojjjjj ef maður er svona iiii en líka í staðinn fyrir YEAH! DOJ! Endilega experimenta með þetta. Doj.