Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Laugardagurinn 1. mars 10: Vakna. Taka til ullarföt og útigalla. Fokk ég þarf að finna stígvél. 11: Fara til Kittýjar Uppúr 11: Keyra á Laugarvatn og taka upp myndband fyrir breskan gaur í fyndnum búningum. Má ekki segja meir. 5: Leggja af stað í bæinn. 6: Matarboð fyrir ljósadýrafólkið. 11: Horfa á stúlknahóp sem ég er að kenna sýna afrakstur erfiðisins á árshátíð. Beint eftir það: DJa á Óliver með Ragga.
Úr gamalli fundargerð frá herranæturfundi, 3. nóv, 2002. Frank: Fundur 3. nóv Frank Cassata 91 árs Mættir: Frank, Markús, Jón, Margrét & Óli Mál: Þyðandi Útlit og svona ATH: Margrét er að verða brjáluð á kökuboðum fjölskyldu Skúla, reynum að fækka þeim * Frank vill vera með lengri fingur *Jón ætlast til þess að sé ekki truflaður * Fá auðveldari hamborgara, ekki Elvis ananas * Frank og inneign og ekki sundlaug * Markús og sítrónukók ATH: Magga fékk fröllu með tómatssóu. Markúsi var neitað um fröllu, Margréti var bannað að vera "fröllumaðurinn". Frank kom ekkert nálægt fröllum Jóns. * Og Markús vill vera í áramótskaupinu... ef ekki þá í mánaðamótaskaupinu *Frank Líka! Meira! LÍNUR! *Frank vantar kynlíf, athuga það! Markús líka * Föstudagurinn - fyllerí, Steinþ. BPÞ & Markús. Siminn sinn o.s.frv.
ERU APAR KANNSKI MENN? Þegar ég var polli las pabbi minn fyrir mig bókina Júlíus, um apa sem bjó í dýragarði í Kristiansand. Júlíus var lagður í einelti og bitinn af honum puttinn, og meðan hann var að jafna sig var honum komið í fóstur hjá tveimur dýralæknafjölskyldum til skiptis, svo hann fengi félagslegt uppeldi. Þessi bók er stútfull af alls kyns góðum myndum. Júlíus að mála, Júlíus að stelast í frystinn, Júlíus að misþyrma kanínu (í alvöru) og fleiri góðar. Mikið öfundaði ég stelpurnar sem fengu að sofa með apa upp í hjá sér... svo mikið að í seinni tíð er ég stöðugt að reyna að lokka apa upp í til mín. Nei? Hérmá lesa meira um Júlíus og kaupa listaverkin hans.
Í gærkvöldi kom hún Ragnheiður Eyja vinkona mín í heimsókn. Eftir bað í eldhúsvaskinum þar sem hún borðaði jógúrt... ...hoppaði hún um rúm mömmu og pabba í mikilli gleði og kallaði: PARTÝ! PARTÝ! því að það er orðið sem ég kenndi henni síðast þegar við vorum að hanga saman. Þá fór hún með mér í sirkústíma og ég sagði henni að við værum að fara í partý. Hún man ennþá eftir því og þegar hún sér íþróttaleiki í sjónvaprinu og fimleika kallar hún: PARTÝ! PARTÝ! Þá einmitt laug Ragnar að fólki að við ættum þetta barn. Sannkallað partý.
En svo við bindum þetta saman: Ég reyndi af veikum mætti að róa krílið niður og lesa Júlíus. Eða svona, skoða myndirnar. Eyja var mjög hress og vildi allt annað en að hafa það rólegt að lesa bók, svo leikaraunginn tók að leika allt sem apinn gerði á myndunum, og þannig varð þessi mynd til: Enn á ný höfum við Eyja gert internetið að betri stað.
Bestu kaup lífs míns? Í fyrsta sinn sem ég fór til New York gerði ég fáránlega góð kaup. Einu sinni sem oftar skildum við Ásdís okkur frá strákunum til að fara að versla. Í krúttattacki dauðans keypti ég kjúklingabúning á 2 ára gamalt barn. Ég meina kjúklingabúningur! HALLÓ! Egill og Konni héldu mig brjálaða þegar ég sýndi þeim búninginn og Ásdís hló alla leiðina heim á hostelið. Ennþá á ég ekki barn og fólk hélt að ég væri nett geðsjúk að kaupa þetta því að í hvert sinn sem ég sýndi fólki búninginn breyttist ég í eitthvað svolítið óþolandi með eggjahljóði. Og auðvitað viðurkenndi ég alveg að vera ekki alveg heil. Þangað til núna. Þetta vídjó sannar að þessi búningur er bestu kaup sem gerð hafa verið frá því að Davíð keypti þetta öl þarna. Ha. Nei?
Fór um mig undarleg örvænting, er yfirgafstu mig. Einmanna, hrjáður og hryggbrotinn, ég hrópa nú á þig. S.O.S., ást í neyð Ein þú getur bjargað mér. S.O.S. aðra leið Aldrei hjarta mitt að landi ber. Án þín ég færi á vonarvöl í vesöld, eymd og svall. Andvaka, sjúkur af sálarkvöl ég sendi út neyðarkall. S.O.S., ást í neyð Ein þú getur bjargað mér. S.O.S. aðra leið Aldrei hjarta mitt að landi ber.
Ruuvi Ég er veik heima hjá mér og er með Skandinavíusamviskubit. Ég er að vinna að panskandinavísku verkefni í vinnunni með gríðarlega myndarlegum útvarpstappa sem ég ætlaði að klára í gær og í dag (verkefnið, ekki útvarpstappann - dojjj) en þá nær horskessan að tækla mig. Hax. En já. Ég er búin að finna svo mikið af óendanlega góðum (i.e. slæmum) (i.e. spila á Kofanum) lögum á safninu. Ég er til dæmis komin með sándtrakkið úr Bugsy Malone. Þar er eitt gott lag. "Aftaninn langa - leita menn hér fanga - makka hér og manga - gróusögur ganga því á dansgólfinu vangað er." Miklu miklu meira stemmingslag en Staupasteinslagið. Gömul hliðar saman hliðarlög hafa einnig tekið sér bólfestu í tölvunni minni og ég er búin að vera að blasta Það er svo undarlegt með unga menn og S.O.S. Ást í neyð. Síðan á barnarokk með kúabjöllu upp á pallborðið hjá mér þessa dagana eins og Klaufadansinn með Glámi og Skrámi og Sæmi rokk með Hrekkjusvínunum. Löhöhöhögregluþjónn nefndur er Sæmi.
(Talandi um - mig vantar fleiri plötusnúðameðmæli)
Titill færslunnar er fenginn úr finnsku. Finnska hefur ekki samhljóðaklasa í byrjun orða eins og íslenskan, en þetta orð er sama orð og íslenska orðið skrúfa. Ég sakna Haralds Bernharðssonar.
Andvörp og unaður Mér er illt alls staðar eftir sirkúskúnstir helgarinnar. Við byrjuðum á léttri æfingu á föstudag í vondu veðri. Á laugardaginn sveik ég lit allhressilega og sirkúsaði á árshátíð 365 miðla. Hér er mynd af okkur Atla og Ragga í búningsherberginu. Þess má geta að við deildum búningsherbergi með Sprengjuhöllinni. Síðan var túrbóæfing í gær með trampólínusessjóni og allt. Ég er marin á furðulegustu stöðum og illt eftir því. Það er eitthvað dásamlegt við það að finna að manni sé illt í flestum vöðvum líkamans þegar maður andvarpar.
febrúar so far Þetta er búið að ganga ágætlega. Ég er svolítið samt að fara öfugumegin fram úr þessa dagana en þú veist. Ég hef aldrei séð jafn mikið af eiturlyfjum í höndum fólks eða í fólki eins og það sem af er febrúar. Eiturlyf gera mig mikið mikið mikið hrædda. Ég var líka kölluð feit af einhverjum ljósaperuföggum og varð mikið niðurdregin af því. Ég er samt ekki slösuð eða veik og það er ekki búið að setja eitur í hjartað mitt ennþá.
Framundan. Föstudagur. 18:00 Sushi með Vigdísi og Brynju. 20:00 Laga búninginn minn 22:00 fara á antirasistatónleika á Gauknum 00:00 Dansa magadans á antirasistatónleikum á Gauknum.
Laugardagur 13:00 Pönnsur hjá RögguPlögg. 19:00 Farið á Thorvaldsen og stillt upp græjum. 20:00 Austurbæjarskólareunion. 21:00 Sorrý bless krakkar verð að fara að plötusnúða OH SNAP Og síðan niður á Thorvaldsen að snúða með Inga í afmæli. 23:00 Innflutningspartý hjá Etla og Arnu. Og síðan aðeins í bæinn kannski.
Sunnudagur 9:00 Ísklifur. 16:00 Fundur vegna vetrarhátíðar. Droppað inn á magadansæfingu og síðan borðað eitthvað gott. 18:00 Sirkúsæfing.
Það væri skemmtilegt að búa til Fánumynd sem byggðist bara á þessari helgi. Hah.