Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Vegna yfirvofandi kjarabaráttu Mig vantar umsögn um það hversu góður plötusnúður ég er. Nei. Ö. Mig vantar umsögn um hversu skemmtilegt er þegar ég er að spila. Sendið mér stutta/langa klausu, fullt nafn og símanúmer ykkar á maggamaack ATTMERKI gmail.com Segi ykkur síðar fyrir hvað þetta er... en þetta kemur allt í ljós. Elskurnar.
Auðvitað skellir maður sér á þetta reunion. Sérstaklega þar sem ég passa í fötin sem ég var í þegar ég tók við einkunnunum mínum í 10. bekk. Tarkbuxur og allt maður.
Þessi mynd er frá sumrinu á milli 9. og 10. bekkjar. Þarna er ég í kjól sem ég keypti í Mótor og með kórónu úr Skarthúsinu. Ef myndin er stækkuð sést færni mín og frumlegheit með hárvöfflujárni. Gott ef ég er ekki líka með zikzakskiptingu líka.
Annars er ég að deyja alls staðar núna því að í gær prófaði ég afturábakheljarstökk. Eða back summersalt eins og við köllum idda.
Ég bið ykkur, ástvini og vandamenn ...að gera mér febrúar 2008 hinn bærilegasta febrúar til þessa. Febrúar 2004: Eftir tvær gríðarlega skæðar flensur fæ ég heilahimnubólgu og er lögð inn á spítala mitt í Herranæturæfingaferli og missi úr 3-4 vikur úr skóla. Grenntist reyndar um 12 kíló en kastaði líka upp öllu sem ég reyndi að setja ofan í mig og mátti ekki horfa í birtu. Febrúar 2005: Við Skúli hættum saman í viku og febrúar fer í að hætta saman og byrja saman aftur. Í kjölfarið fer ég að velta því mikið fyrir mér hvað ég er týnd, hvað mér finnst ömurlega leiðilegt í skólanum og hvað þetta er allt mikið ömurlegt eitthvað. Febrúar 2006: Í lok janúar leik ég í myndbandi við Jeff Who?-lagið Barfly og stórslasa á mér höndina og slít sinar og allt hvað eina. Hægri höndin er alveg tröppuð í gipsi og ég er komin upp á mömmu og Skúla að baða mig að greiða og klæða og mála mig. Febrúar 2007: Í stað þess að Tómas komi í heimsókn 3. febrúar hringir hann 1. febrúar og tilkynnir mér að hann geti þetta ekki lengur og finnist þetta vera kjaftæði. Ég eyði 70% af febrúar í jogginggallanum bara.
Og nú er mikið pótensjal að febrúar muni fara illa með mig á ný. Nú? 2. febrúar er reunion með Austurbæjarskóla. Stuð Íslands. Mamma hans Patta er að vinna með mér á RÚV og hún var svona að tjékka á stemmaranum í mér og spurði: Og hvað? Hvað ætlið þið að gera? Ég veit það ekki, sagði ég, bara leggja hvert annað í einelti eða eitthvað. Síðan er ég viss um að einhverjum drottningum verði steypt af stóli, eða að þær fyrirskipi aftökur. Það verður bara að koma í ljós. "Af hverju borðar hún ekki bara kökur?"
Fer ég á spítala? Lendi ég í ástarsorg enn á ný? Missi ég vinnu? Lendi ég í slagsmálum? Ég bíð spennt eftir að fá að vita hvað febrúar ber í skauti sér þetta árið.
Ó mæ deis Takk svo feitt Íslands fyrir laugardagskvöldið, þið vitið að við værum ekkert án ykkar. Þrátt fyrir dónakalla og fullar stelpur með leiðileg óskalög, þá er alltaf svo gaman að spila saman á Kofanum. Það sést nú samt á þessari mynd að hún er ekki síðan á laugardaginn, því að þarna er ég ljóshærð. Það var samt skemmtilegra en þetta síðasta laugardag.
Jájá. Síðan fór ég í heljarstökk í gærkvöldi. Það var feitt skemmtilegt. Þurfti að æfa mig á trampólíninu og er því illt Íslands í löppunum. Átsí.
Fox Eftir að hafa séð aðeins of flöffí ref í sjónvarpsfréttunum um daginn, kúrandi sér í fangi fréttamannsins langar mig gríðarlega mikið í gæluref. Hann myndi að sjálfsögðu hljóta nafnið Mikki. Ég má vera ófrumleg því að gæludýrið er frumlegt. Nú gætu einhverjir spurt: Gælurefur? Ertu geðveik Margrét? En ég er búin að finna hina últimat ástæðu þess að refur er besta gæludýrið. Margrét er niðri í bæ að labba með Mikka. "Hæ Margrét, hvaðarefureridda?" "MINN." "neeeeei... hann er brúnn..." "Hann skiptir um lit. GÆLUDÝR SEM SKIPTIR UM LIT. SKIPTIR UM LIT!
Damn it Um daginn sat ég hérna við borðið okkar inn á Innlendu dagsskrárdeild, mitt í hringiðu mannlífsins, og horfði á gamla Gettu betur-þætti. Sigmar spyrill pikkar í mig og spyr: Bíddö, af hverju ertu að horfa svona mikið á gamla Gettu betur-þætti? Ég vildi svo mikið segja: "Því að mig langar svo mikið að verða stigavörður" en síðan beit ég í tunguna á mér og sagði: "Við erum að vinna þátt um Ármann Jakobsson." Síðan fór ég inn á bað og lamdi mig í hausinn.
Bumbugrísinn minn Ég fór með mömmu í gær og við keyptum á mig buxur. Þær eru þröngar og svartar og ná alveg upp í mitti. Það er hægt að þrengja þær og víkka svo þær sitji alveg rétt á manni. Þær eru alveg svakalega töff. Og ég er í þeim í dag. Og rassinn á mér er gríðarlega sætur í þeim. Þegar búið var að borga þær gerði afgreiðslukonan okkur ljóst að þetta væru óléttubuxur. Frábært Margrét. En til að létta lundina er hérna lag til að dansa sensjúalt hliðar saman hliðar við.
Tímamót Ég er hætt að spila reglulega á Kofanum. Það er einfaldlega vegna þess að ég vil einbeita mér að hinum vinnunum, RÚV og kennslunni, og sirkusáhugamálinu. Það er nú bara þannig því miður að eins og mér finnst þetta skemmtilegt þá fæ ég meira fyrir að spila annars staðar, og þá í prívatveislum aðallega. Og þá er slæmt að vera bundinn við Kofann langt fram undir morgun. Ég ætla nú samt að taka eitt og eitt kvöld í afleysingum. Mér finnst ömurlegt að þurfa að hætta því mér finnst ógeðslega gaman að spila þarna þegar það er skemmtilegt. En ég meina, kannski þá að fólk sæki í að koma þegar ég er að spila. Eða kannski sökka ég bara big time og það bíttar litlu hvort ég spila fyrir fulla fólkið eður ei. Ég veit að ég á eftir að sakna þess að spila þarna, það er fínt fólk sem vinnur þarna þó gamli hópurinn sé að þynnast. Í gegnum þetta djobb hef ég kynnst mörgum sem í dag eru afskaplega góðir vinir mínir, fólk sem ég þekkti ekkert voða mikið eða ekkert fyrir. Og það má alveg segja ýmislegt slæmt um þetta djobb, en kostirnir vega þyngra. Síðan er ég komin með nýtt hár vúp vúp! Núna er ég eins og kona.
Some say love it is a flower Ármann Jakobsson hélt því fram þegar hann skrifaði um kynhlutverk í Njálu að saman mynduðu Gunnar og Njáll hinn fullkomna karlmann. Ég er meira á því að ef maður setur saman fjóra menn fái maður hinn fullkomna mann.
1. Ég er búin að finna svona 20 nöfn sem mig langar að skíra börnin mín. Nú get ég skírt hvert barn tveimur nöfnum og notað kannski 3. nafnið sem gælunafn, og þannig þarf ég bara að eignast 6-7 börn til að þetta gangi upp. Mig langar t.d. að skíra einn dreng eftir pabba og síðan ÝKT flippuðu nafni og kalla hann Mikki.* MIKKI MINN! VILTU ÍS? Og síðan yrðum við ýktir vinir, Mikki og Mokki. Gætum gefið út plötu með Hansoncoverlögum. En þá eru 17 nöfn eftir. Síðan mun faðir barnanna líklega vilja hafa eitthvað um þetta að segja. Kannski er pabbinn t.d. ekki með svona skemmtilegt gælunafn eins og við Mikki svo að hann færi kannski bara í fýlu. Þessir kallar sko. Nú halda mamma mín og pabbi því fram að ég muni aldrei eignast börn því að menn séu svo hræddir við mig. Pabbi minn stakk í alvörunni upp á því við mig þegar ég var 17 ára að prófa, þó ekki væri nema bara í nokkrar vikur að vera "hæverska stúlkan." *Það er ekkert nýtt að fólk sé með furðugælunöfn í fjölskyldunni, pabbi minn, Pjetur Þorsteinn er kallaður Mossi til dæmis.
2. Hér er síðan smá mynd af systur minni sem er að skemmta sér og greinilega öðrum líka í sumarbúðum í Argentínu.
3. Ég vil að orðið greði festist í sessi. Það er myndað á svipaðan hátt og gleði. Get it? Got it. Good.
Ekki það að ég sé kölluð Magga yfir höfuð... ...en í um daginn var sungið fyrir þekkt íslenskt dægurlag, sem oft hefur verið sungið fyrir mig einungis því ég og aðalkonan berum sama nafn. En þarna fékk ég kökk í litla hálsinn minn. Fyrst kom Bretinn rjóður, yndislega góður, þá bjó hún Magga' á Borginni í bleikum kjól. Svo kom Kaninn, þaninn, kommúnistabaninn þá kættist Magga ofsalega' og hélt sín jól. Svo færðist aldur yfir eins og galdur og alltaf verra' og verra varð í karl að ná. Nú er Magga stúrin því olíu á skúrinn er erfitt nema fyrir fjandans aur að fá. Það er bara þetta með aurinn og olíuna og skúrinn sem stenst ekki. EN!! Ég er með fullt jákvætt á móti. Vinnan mín er ótrúlega skemmtileg og mikið að gera og miklir takkar. Ég þurfti reyndar að horfa á ALLTOFMIKINNFÓTBOLTA í dag, en á morgun fæ ég að fara niður í MR! Síðan er búið að stilla upp Gettu betur-settinu í kjallaranum, og ég fæ alltaf illt í hjartað þegar ég labba framhjá því. Svona á góðan hátt. Þetta er ást. Eftir að hafa unnið að þættinum með Páli Óskari spurði ég sjálfa mig að spurningunni sem er í viðlaginu hans: Er þetta ást? Að kveljast og þjást? Svarið var nei og hef ég því ákveðið að um sinn einbeiti ég mér að ástarsambandi mínu og Gettu betur og þefa af sænginni minni. Í fréttatíma núna um helgina var verið að tala um albinóakrókódíla og að þeim hefði verið stolið úr dýragarði. Áður en innslagið (fagmál) byrjaði er kynning fréttamanns, og þá er svona lítil mynd í horninu og hnyttinn texti. Í þetta sinn var textinn einstaklega hnyttinn, en þar sagði: Rándýr skriðdýr. Og þú veist eruð þið að spekka þennan fíl?
2007 Janúar Árið byrjaði í þvílíkri hamingju. Janúar kom og fór hratt. Ég skráði mig sem plötusnúð í símaskránni. Það var rokk, þar til að ég sá að Heiðar Austmann er líka plötusnúður í símaskránni. Ég lærði um lífið í janúar.
Febrúar 3. febrúar spiluðu Ross og Rachel saman í fyrsta sinn á Kofanum. Snemma í febrúar hætti helvítis hjartalæknirinn með mér mjög brútalt, öllum að miklum óvörum, Nema kannski systur hans. Það var vont að tala í tvær vikur, ég fékk mig varla til að gera nokkurn hlut nema kenna og DJa, og það var tussuerfitt. Vetrarhátíðin Kramhússins var haldin á Nösu og tókst vel. Það sem ég lærði í febrúar: Hamingjan er úr plasti ef hún er spiluð á fullu blasti.
Mars Í byrjun mars fékk ég ógeðspest. 3. mars var pabbi minn í Orð skulu standa. Rokk. Ég magadansaði á árshátíð enskunema og það var fínt. Fyrirpartýið fyrir árshátíðina var samt best, þar sem Magnús Sigurðsson reif buxur og fór í kvenmannsbuxum á árshátíðina.
Ég fór í nostalgíukast og missti mig yfir Gettu betur og Herranótt. Ég og Ingi spiluðum á árhátíð eðlis-, efna-, stærð- og matvælafræðinema. Pabbi átti afmæli og Vigdís og það var ýkt gaman. Það sem ég lærði í mars: Líf mitt er fullt af yndislegu fólki.
Apríl Í apríl gerði ég fólki heyrinkunnugt um New York plönin mín, eftir að hafa tekið tvo mánuði í eitthvað vorkunnardjók. Á sama tíma og þetta var gert opinbert lenti ég í þeim mesta sénsamánuði sem ég hef lent í. 13. apríl var geðveik magadanssýning í Þjóðleikhúskjallaranum. Tom var ennþá að senda mér msn skilaboð og eitthvað furðulegt en ég var samt að verða betri í röddinni. Við Vigdís fórum á Leg og dóum úr ást. Og ég hélt upp á afmælið mitt og fékk tréklossa að gjöf, sem hvöttu mig eindregið til að taka aksjón og reyna að læra meira á traktor. Það sem ég lærði í apríl: Það er góð lykt af mér, og ég á aldrei eftir að geta lært á traktor.
Maí Ég hélt áfram að reyna að læra á traktor, og sýndi þar með og sannaði að ég mun aldrei læra af mistökum mínum. Ég fékk mér nýjan búning, þann svarta sem ég elska, en hann er í hvíld núna. Tom sendi mér ímeil þess efnis að ég ætti afmælisgjöf hjá honum. Hæ. Fokk him. Prófin komu og fóru og gubbedí. Ég fór til Stokkhólms að dansa og sýna og læra og BORÐA. Hvað er best? 4 dagar fullir af magadansi með sushi í hádegismat, og arabískum eða indverskum í kvöldmat. Tímar á daginn, sýningar á kvöldin. Síðan var það bara count down until New York. No sleep 'till Brooklyn. Það sem ég lærði í maí: Ég stend mig betur á öllum öðrum vígsstöðvum en í skólanum.
Júní, júlí, ágúst. Ég reyndi að coina frasann "djókback mountain" í byrjun júní en það gekk ekki alveg upp. 8. júní var kveðjupartý og það var ýkt gaman. Síðan flutti ég út 9. júní. Fyrst var ég í viku með familíunni og síðan skildu þau mig eftir og ég mátaði New York. Ég elskaði borgina meira með hverjum deginum, en á sama tíma jókst hatur skassins Katrínar og fylgidama hennar á mér. Æj, hún er nú meira krúttið. Ég tók nokkrar vaktir á Pianos, það var fínnnt. En síðan fór ég að selja kjóla á netinu og dansa í boxinu og hjálpa Adam að ljósmynda. Ég kynntist frábæru fólki, og á sama tíma og ég fjarlægðist karaoke vinina mína fór ég að eyða miklum tíma með comedy-fólki. Smátt og smátt stóð vinahópurinn minn saman af standupgrínistum einungis, og allt lífið varð eins og sjónvarpsþáttur vegna allra tilsvaranna sem áttu sér stað. Kelly Osborne virtist elta mig á röndum, en síðan komst ég að því að hún bjó 3 húsum frá mér. Ojts. Ég fór á Conan O'Brien, Scissors for Lefty, leyni-Mikatónleika, aukalék í Whitest Kids U'Know, hóstaði bingó. Nokkrum dögum áður en ég kom heim grenjaði ég í Brendan, strák sem ég var gríðarlega skotin í: "I don't want to go home!" og hann svaraði: "But you are home, honey." Og kyssti mig á ennið. Það sem ég lærði í sumar: Ég á tvær heimaborgir og DJar í New York fá borgaða prósentu af sölu á barnum.
September Viku eftir að ég kom heim datt ég í sama munstrið. Skólinn byrjaði og ég reyndi að vera jákvæð. Ég gúglaði Brendan og komst að of miklu. Maher kom til Íslands og Leila, og ég var í 3. sæti í Íslandsmeistarakeppninni í magadansi, þrátt fyrir mikil mikil veikindi. Við Ragnar og síðar Atli líka byrjuðum að mæta í sirkustíma og í kjölfarið slösuðu þeir sig mikið mikið út um allan bæ í svokölluðum alkóbatics. Ég sigraðist smátt og smátt á lofthræðslu og fór að treysta á alls kyns fólk að grípa mig. Ég reyndi að læra að djöggla sem gekk ekki alveg nógu vel, en ég kann núna alls konar annað. Sem fyrr skemmti ég mér vel á öllum öðrum vígstöðvum en í skólanum. Mig tók að langa voðalega mikið í moonboots og langar enn. Það sem ég lærði í september: Ég kann óeðlilega mikið af lögum úr Dýrunum í Hálsaskógi.
Október Sirkstímarnir gengu alltaf betur og betur á sama tíma og hjartað í mér sökk. Við Atli Viðar gerðum ógeðslegt veðmál sem ég vann að lokum. Á Halloween lögðum við í Weird Girls undir okkur Organ og Kitty var í uppnámi svo ég kláraði sjálf frá 3-5 og varð gríðarlega sátt við sjálfa mig og myndirnar sem voru teknar þetta kvöld. Skari tók þær. Sömuleiðis tókum við Ragnheiður eitt kvöld á 7-9-13 sem var ágætt, en ekkert spes. Undir lok mánaðarins var ég komin í svakalega krísu og langaði að kýla fólk í andlitið og kyssa síðan á bágtið. Flækjan var orðin svo gífurleg að ég gat ekkert annað en hlegið. Valgeir sendi mér lagið Broken Heart Tango með Cloetta Paris. Vigdís dáðist að mér fyrir að geta haldið sönsum verandi vinkona Atla Viðars og Ragga, því að þær "grínast svo hratt." Það sem ég lærði í október: Vinir mínir elska mig allt allt allt of mikið. Samt taka of margir mig sem sjálfsagðan hlut og gleyma að ef þú kyssir mig á munninn hvað þá á fæðingarblettina mína, þá kyssirðu mig líka á hjartað.
Nóvember Ég fékk ofsalegt skúbb úr herbúðum fyrrverandi kærasta. Sam Brown kom í heimsókn. Atli Viðar fann gamalt ástarbréf í ferðatösku sem ég lánaði honum. Ég dansaði í Silk Road sem tókst svoan allt í lagi. Ég pissaði í mig líka. Líf mitt minnti gríðarlega mikið á alla sjónvarpsþætti sem ég hef séð og allar rómantískar gamanmyndir líka. Það sem ég lærði í nóvember: Þrátt fyrir að ég sé gríðarlega mennsk, er ég víst guðdómleg. Eða svona. Þannig. Og ég kann hátt í 500 lög utan bókar.
Desember Arnór átti afmæli í byrjun mánaðarins og ég fékk að elda mat. Það var ýkt gaman og stórfurðulegt að ég kæmist ekki á séns aldarinnar. Lovjúleikurinn var coinaður svo um munaði og hann stendur enn. Í miðjum lovjúleiknum komst ég samt að hinu mesta ólovjúi sem gat átt sér stað og hjartað í mér gufaði upp. Ég dansaði á jólasýningu Kramhússins og plötusnúðaði eftir á, en samt lenti ég enn ekki á neinum almennilegum séns. Pabbi minn kallaði Ragga samfaradrottningu fyrir framan hann og Við Ingi spiluðum á brjáluðu próflokadjammi á Kofanum og það leið yfir stelpu og það kom sjúkrabíll og allt. Síðan komu jólin. Eiginlega strax. Ragnheiður Eyja var skírð á jóladag. Vigdís fór til Argentínu í sumarbúðir annan í jólum (ekki vera Bennigan'z og segja: HA? sumarbúðir? núna? Það er sumar hinum megin við miðbaug) og ég sakna hennar svo mikið að mér er illt. Það sem ég lærði í desember: Tilfinningar hverfa ekki, það verður bara auðveldara að lifa með þeim.
Árið var viðburðarríkt og mikil ævintýri áttu sér stað. Ég átti samt til að verða mjög einmana á árinu, svo ég vil þakka öllum ykkar sem eruð alltaf svona góð við mig og eruð tilbúin að borða með mér sushi og ís og hlæja að bröndurunum mínum.
Nýja árið lofar góðu, það byrjaði með lovjúleiknum og gistipartýi og miklu prumpi, þó ekki með Vigdísi. Ég byrjaði í nýrri vinnu í dag og það var ótrúlega gaman og mikið af tökkum og svona. Ég er komin með bíbb bíbb kort svo ég er í svakalegum 24 leik þarna.