Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






30.12.07 :::

Sprengiljós
Ég vil hvetja fólk til að kaupa flugelda hjá björgunarsveitunum, en ekki hjá einkaaðilunum sem eru að selja. Þetta er helsta fjáröflun sveitanna, og þær hafa staðið sig mjög vel í vetur í óveðrunum sem hafa geysað, og meira að segja bara síðast í dag!
Mamma mín bjó til slógan fyrir björgunarsveitirnar: Kemur örninn þér til bjargar? Því að einn af þeim sem eru að selja flugelda er Örn Árnason.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:24







25.12.07 :::

Rökleysa
Eitt af mínum uppáhaldsjólalögum þegar ég var í kór, heitir Hin fyrstu jól. Ljóðið er eftir Kristján frá Djúpalæk. Hluti þess að mér finnst þetta óendanlega skemmtilegt lag er furðuleg rökleysa sem kemur þar fram.

Það dimmir og hljóðnar í Davíðsborg
í dvala sig strætin þagga.
Í bæn hlýtur svölun brotleg sál
frá brunni himneskra dagga.
Öll jörðin er sveipuð jólasnjó
og jatan er ungbarnsvagga.

Og stjarna skín gegn um skýjahjúp
með skærum lýsandi bjarma
og inn í fjárhúsið birtan berst
og barnið réttir út arma
en móðirin sælasti svanni heims
hún sefur með bros um hvarma.

Alveg Jesú að fæðast í snjókomunni. María og Jósef hlaupandi á milli gistihúsana og asninn pikkfastur í skaflinum. Og fjárhirðarnir úti með féð sem getur ekkert étið í haganum því að grasið er allt undir klakabrynju.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:05







24.12.07 :::

Gleðileg jól

1. Myndin er eftir frændur mína, Óla og Gulla, sem gefa okkur alltaf dónajólapakka og -jólakort. Við erum svo jólaleg í þessari fjölskyldu.
2. Þessi jól verða mér erfið. Systir mín heldur til Argentínu annan í jólum, og það í fjórar vikur. Ég kvíði fyrir jólaboðunum án hennar. Og lífinu bara. Ég fæ samt í skaðabætur að fara með Ragnheiði Eyju á jólaball. Það finnst mér mjög spennandi og ég er a hugsa um að klæða hana í kjúklingabúninginn. Njeh.
3. Takk allir sem dönsuðu í kringum jólatréð í gær. Þetta var falleg stund sem við áttum saman.
4. Ég byrja að vinna 3. jan í Sunnudagskastljósinu með Evu Maríu. Ég hlakka mikið mikið mikið til. Þá er ég komin með vinnu og tilvonandi barnsföður. Vantar bara íbúð og þá get ég farið að slaka.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:23







22.12.07 :::

I don't want to think, but my thoughts are all there
Cloetta Paris - Broken Heart Tango

What else could he be but a jester?
Danny Kaye - The Maladjusted Jester

Say that you remember
Dancing in September

Eart Wind and Fire - September

It’s not love but it’s not bad
Moe Bandy - I just Started Hating Cheating Songs Today

I just called to say
'I love you'

Stevie Wonder - I just called to say I love you

Last call, last call.
Now I've heard it all.
The excuses get weaker as the stories get tall.

Ellis Paul - Last Call

I ain't sayin' you treated me unkind
You could have done better but I don't mind
You just kinda wasted my precious time
But don't think twice, it's all right

Bob Dylan - Don't Think Twice, it's All Right.

Seems like you're the only one who knows
What it's like to be me

The Rembrandts - I'll be there for you

I need your arms around me
I need to feel your touch

Cake - Never There

But I've got to think twice
Before I give my heart away
And I know all the games you play
Because I played them too.
Oh but I need some time off from that emotion
Time to pick my heart up off the floor.

George Micheal - Faith

Lord, it hurts her doing this again
Kenny Rogers - Daytime friends and Nighttime Lovers

When you are near to me, I am in ecstasy
I'd swallow the pain and pride...

Grass Roots - Wait a Million Years

It ain't so much a question of not knowing what to do.
I've known what's right and wrong since I was ten.

Oklahoma - I'm Just a Girl Who Can't Say No

So I want to warn you laddie
Though I know that you're perfectly swell
That my heart belongs to Daddy
Cause my Daddy, he treats it so well.

Marilyn Monroe - My Heart Belongs to Daddy

Í SIIIIIIILFURPAPPÍR
Sniglarnir - Jólahjól


Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:08







21.12.07 :::

Próflokadjamm!
Á bar: Þurí og Kristín Ósk
Í dyrum: Jón og Hurðaskellir
Tilboð: Á tekíla þegar við spilum tekílalagið! 350 kjell. Suðrænt og seiðandi.
Lítill jólaglaðningur í boði fyrir góða vini okkar.

Mynd: Arnór Bogason
Myndvinnsla: Bogór Arnason
Diskókúla: Barnór Ogason


Slegið inn af Mokki litli klukkan 08:20







18.12.07 :::




Pottþétt Mokki
Það eru svo margar stelpur búnar að biðja mig um að gera fyrir sig mixdisk. Svo: Þið getið náð í þennan mixdisk eða svona það sem þið viljið af honum. Varúð samt, þetta er svakalega mikill stelpudiskur. Hægrismella og velja save eða download linked file við lögin sem þið viljið. Ég mæli samt með því að fólk nái í allt og hlusti í þessari röð því að list mín felst í því að gera playlista. Ehemm.


1. The Boppers - Mr Bassman
Ég veit ekki af hverju, en mér finnst þetta jólalegt lag. Kannski er það vegna þess að það er svolítið Prúðuleikaralegt?

2. George Harrison - Got My Mind Set On You
Það er langt og myrkt tímabil í lífi mínu þar sem ég gleymdi að þetta lag væri til. Það var hroðalegur tími. Síðan söng Elann þetta í karaoke og líf mitt opnaðist eins og blóm. Plötuumslagið af Cloud Nine er líka mjög gott.

3. Vincent Vincent and The Villains - Johnny Two Bands
Þetta er fyrsta upptökan af þessu lagi, sú sem EMI gaf út er ekki jafn grúví. Sá þá í London fyrir löngu síðan. Elska þá alla ennþá heitt og er skotin í bassaleikaranum.
You'll be a shadow in every crowd
You'll be a doubt at the back of my mind,
I don't know if i can forgive what you've done,
But give it time
Give it time
Oh Johnny Two Bands.


4. Kósý - Jólastelpa
Ég elska Kósý og var Bítlaaðdáandaskotin í Ragnari Kjartans eftir að þeir spiluðu Satisfaction í Gettu betur. Þarna syngur Heiða í Unun með þeim og eins og segir í inlay-inu á geisladisknum "langar alla strákana svo mikið að leiða hana í kringum jólatréð."
Hægan nú - þið erum fjórir, en bara ein ég er.
Færið ykkur frá mér,
troðið ekki á tá mér,
rífið ekki svona í hárið á mér!

Story of mæ læf.

5. Flight Of The Conchords - Foux Da Fa Fa
Þar sem næsta lag á eftir er á alvöru frönsku, er ágætt að hita aðeins upp og rifja upp hvað maður skilur í þessu tungumáli. Ef þið viljið gera föður min reiðan segist vera hrifin af eftirfarandi:
- Valdimar Örnólfssyni
- Tikka Masala
- Ragnari Kjartanssyni (pabbi ekki mjög hrifinn af þeim sem heita Ragnar)
- Frönsku.

6. Mathieu Chedid - Onde Sensuelle
Frakkar eru svo miklar bullukollur að þeir komast upp með að segja cheesy línur og bullurugl eins og "Það var sterk og falleg tilfinning að finna heimspeki andardráttar þíns milli orða minna." Jájájá. Og síðan er þetta alveg frekar dónó og sensjúal allt saman. Og síðan greiðir hann sér alltaf svona eins og fífl. Samt er Onde Sensuelle búið að vera eitt af mínum uppáhaldslögum síðan 2001. Ég heyrði það hjá styórfurðulegum Frakka sem ég hitti í Tékklandi. Mér fannst hann ýktur lúði þar til ég sá hann dansa við þetta lag.

7. "Cloetta Paris - Broken Heart Tango
Það er töff að vera með bortið hjarta. Frábær texti og tómleikatjútt.
Don't say you love me for a start
Or you will be a boy with a broken heart.
Stop - I want to dance
And I might be up for a little romance
I offer you a tango in the dark
You're looking at a girl with a broken heart.

8. Lady Gaga - Dirty Ice Cream

Ég skil ekki að þessi pjása sé ekki búin að meika það big time. Hún er gógópía vinar míns. Í alvörunni. Ég hef séð hana hoppa upp úr köku íklædda diskókúlubikiníi í afmælisveislu á Beauty Bar. Þetta lag er töff. I don't find it really cute or sexy when you call or inst-st-st-stantly t-t-text me.

9. Fatboy Slim (Cornershop) - Brimful of Asha
Smá nostalgía. Maður má ekki spila of mikið óþekkt og nýtt í einu, ha. Mér finnst þetta lag mun betra en það er í alvöru. Besta intrusive R í söng kemur fram í "behind the cinema-R-isles." Það er eitthvað samt meira við þetta lag sem heillar mig en ég kem ekki fingrinum á það. (vei beinþýðingar úr ensku vei)

10. Shantel - Disko Partizani
Hápunktur á plötusnúðaferlinum mínum: Síðasta laugardag stóð ég i bláum magadansbúningi og spilaði þetta lag, á meðan fullt af fólki í Balkan þjóðbúningum dansaði og hló, svo ekki sé minnst á að Fólkmeð-Sirrý dansaði við eiginmann sinn, Satan. Það var frábær stund.

11. Laura Branigan - Gloria
Það er ekki djamm án þess að hafa Gloriu með. Skrýtið hvað ég er alltaf eina manneskjan sem fríkar út þegar það er spilað.

12. Grass Roots - Wait a Million Years
Krúttí.

13. Kaiser Chiefs - Ruby
Ég reyni að taka þetta lag sem oftast í Guitar Hero þegar strákarnir taka Dragon Force.

14. Nada Surf - Popular
Ég spilaði þetta lag á Organ og tveir menn kunnu textann ALVEG utanbókar. Ef annar ykkar les bloggið mitt þá er ég alveg til í að koma í bíó eða eitthvað.

15. (bónustrakk)Erin Markey & Joseph Keckler - What R U Into?
Þetta lag er voðalega jólalegt. Djók.
Erin Markey var ein þeirra sem ég kynntist í sumar. Hún kom reglulega fram á The Cock, stórkostlegasta hommabar New York-borgar (mímímímí New York mímímí). Ég og Adam vorum búin að dýrka þetta lag nokkuð lengi og kunnum það utan að þegar við fórum að sjá Erin og Joseph Keckler flytja það. Anyways. Textinn er búinn til úr einkamálaauglýsingum á Craigslist. Ekki fyrir viðkvæma.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:04







17.12.07 :::

Kramhúsjólasýningin
Já, það er mynd af mér aftan á Morgunblaðinu í dag.
Við skulum byrja á að kíkja hérna á byrjendurna mína dansa reivmagadans. Já, mér tókst að sameina áhuga minn á magadansi og reivi. Ég er svo stolt af þeim að þið getið ekki ímyndað ykkur það. Sumar eru bara búnar að dansa í 6 vikur!!! Og mér tókst að henda Ingu upp á svið, sem er ótrúlega hæfileikarík en með massívan sviðsskrekk.

Og síðan hópurinn minn. Við sömdum dansinn sjálfar, og við erum mjög stoltar af okkur. Ég er þessi í túrkísbláa.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:29







15.12.07 :::


Að gefnu tilefni
Þessi kona hér á myndinni er ekki ég. Mér finnst þetta ekki líkt mér. Auk þess er það ekki líkt mér að sitja fyrir nakin, og það á bók Þorgríms Þráinssonar. Síðan er enginn til í að gera mig hamingjusama.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:26







11.12.07 :::

Jólagjafahandbókin
Mig langar í:
  • Ýkt langa rca-jack snúru eða bara venjulega... maður á aldrei nóg (mín langa sæta er að gefast upp, en hún er 8 metrar og ég ellllska hana og er að hugsa um að ramma hana inn þegar ég hætti að nota hana eða nota hana sem hálsmen/belti).
  • Vettlingar til að gleyma á Bókhlöðunni og í prófstofum.
  • Arabaklút eða Palestínusjal eins og Jóhannes Beck kallar það, eða Arafat eins og Tryggvi kallar það.
  • Svört risastór moonboots.
  • Hvítt svona. Slæmt að eiga ekki kærasta þegar mann langar í skartgripi.
  • Heyrnartól.
  • Nomu-krydd. Fást í Fylgifiskabúðinni á Laugavegi og í Mosfellsbakaríi.
  • Civilization IV.
  • Litaðar vinylplötur. Þurfa ekki að vera spilanlegar, þó vissulega sé það kostur ef það er góð músík á þeim.
  • Magadansermar.
  • Matreiðslubækur.
  • Tom Arma barnabúning. Fyrir barn sko. Framtíðarbarnið mitt. Ég á samt kjúklingabúning. Mig langar helst í ísbjörninn, flamingóann, froskinn og kóalabjörninn.
  • Danny Kaye dót, t.d. þetta plakat hérna eða svona NÆLUSETT!!!
  • Lag um mig og þig og hvað við erum miklir grallaraspóar.
  • Innrammaða mynd af mér og þér, í silfurlituðum ramma.
  • Boð í mat/út að borða.
  • Loforð um sleepover og ísát.
  • Eitthvað rokk.

Og svo bara... frið á jörð (eins og Kosý segir)


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:49







9.12.07 :::

Going down the only road I've ever known
Í dag (laugardag) gerðist svolítið sem ég hefði átt að fá taugaáfall yfir. Nei kannski ekki... of stórt orð fyrir lítið fólk. En kannski eitthvað sem ég hefði átt að senda 18 bitur sms yfir. Að minnsta kosti hefði löngun átt að grípa mig til að halda af stað heiman frá mér og henda eggjum inn um glugga.

En nei. Ég skellti á og hugsaði: Hlaut að koma að því.
Síðan hugsaði ég: Hjúkket.
Og að lokum fékk ég hláturskast. Því að ég þegar ég hringdi var ég í kær-leiknum og ætlaði mér aldeilis að vinna kærleikinn fyrir fullt og allt.

It's like RAAAAAAAIIIN on your wedding day....

En - það kom ekki einu sinni sprunga í hjartað á mér. Það er búið að líma það svo oft saman að það er orðið óbrjótanlegt. Eins og jello-ið í Kährs-parketauglýsingunni í gamla daga.

Hey og síðan brenndi ég mig á straujárni.

En eins og Adam segir: It's like the old saying goes, God doesn't close one door without opening an Alexander McQueen store next to it.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:57







6.12.07 :::

Langar.
Þegar ég var lítil þá hlakkaði ég mikið til að gifta mig. Í seinni tíð hef ég þó gert mér grein fyrir því að það er ekkert sjálfgefið að ég fái svona prinsessudag þar sem ég get borðað uppáhaldsmatinn minn og haldið partý með öllum sem mér þykir vænt um af því að ég elska einhvern svo mikið og vil deila með honum persónuafslættinum mínum. Eða virkar það ekki þannig?
Jæja. Þar sem líf mitt er voðalega mikið Bridget Jones þá var ég búin að sætta mig við að enda sem pipardama. Sömuleiðis hafa þrír menn á Íslandi boðist til að verða eiginmenn mínir ef allt fer til fjandans, svo ekki séu taldir þeir sem vildu giftast mér úti í New York (því miður var einn þeirra kúkalabbi, annar ófrjór, þriðji gekk ekki í nærbuxum og sá fjörði var kanadískur). En ef allt bregst þyrfti ég bara að halda töffað þrítugsafmæli og þá væri ég bara góð, og jú reyndar, að hræra saman í svosem eitt eða tvö börn bara með einhverjum vini mínum. Þarf svosem ekki meira til en að fara óvart í vitlausar nærbuxur.
En. Síðan sá ég þetta vídjó og nú langar mig að gifta mig. Fast.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:02







3.12.07 :::

Vinir mínir eru skemmtilegri en vinir þínir.
Hér er frábært partýtrikk í boði Ragnars og Þórgnýs.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:30







1.12.07 :::

Botnið.
baram baram baram baram

BASE


baram baram baram baram...


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:56