Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Súmm súmm Síðasta sunnudag komu Atli Viðar og Raggi hingað heim eftir sirkusæfingu og borðuðu indverskan kjúkling og nöön (ft. af naan, Atli Viðar bjó til) og Vigdís sat hérna með okkur í veikri tilraun til félagsþroska. Þegar þeir fóru spurði Vigdís hvort ég yrði ekkki þreytt á að vera með þeim. "Nei, alls ekki. Hvað meinarðu?" "Nei, bara. Þeir grínast svo hratt."
P.S. Bætið Davíð Þór Jónssyni á listann yfir mennina sem ég vil giftast og ala 4-5 börn.
P.S. Í leit minni að þessum myndum rakst ég á þessa síðu, þar sem eru meðal annars greinar eftir þá sem eru að prófa IV, og sjittt fokking sjitt hvað ég þarf að prófa þann leik...
A dancer, romancer Örlítil sjálfsskoðun Samt ekki of mikil, þar sem fólk er víst að gúgla mér... Upp á síðastið er allt að rætast. Allt er að ganga mér í haginn, nema kannski skólinn en það gengur samt ágætlega þar. Það er bara þar eins og með strákamálin, metnaðarleysi er að há mér.
Magadansinn gengur eins og í sögu. Það hefur sjaldan verið jafn mikil orka og gleði og samvinna í gangi eins og í Shams El Amar um þessar mundir. Í kvöld byrja síðan ný magadansnámskeið í Kramhúsinu og ég held að allir tímar séu stútfullir. Gleði gleði gleði. Shake what your mama gave you.
Ég spilaði músík og ómúsík með Kitty á Organ síðasta lau, hún fór heim snemma og ég kláraði ein til 5. Ég er ekkert smávegis sátt við sjálfa mig, þar sem þessi staður er risastór og með monsterdansgólf. Ég vona heitt og innilega að ég fái að spila þar aftur.
Í morgun fékk ég símtal þar sem ég var beðin um að dansa í danssýningu sem verður frumsýnd eftir 2 vikur. Ekki magadans, heldur einhvers konar sígaunadans og fjúsjón af módern, flamenco og þjóðdönsum. Ein stelpa datt út, og ég var fengin í staðinn. Ég á að mæta á fyrstu æfinguna á miðvikudag og ég hlakka bara til ha.
Sirkustímarnir eru líka frábærir og ég er ekkert smávegis glöð með mig í þeim, þótt vissulega vanti ýmislegt upp á mig þar. Ég get staðið á höndum núna í smástund, alveg sjálf. Og það sem Lee er að láta okkur gera eru hlutir sem ég hélt að ég myndi aldrei nokkurn tíma treysta mér í heil á geði. Ég hef ávallt verið lofthrædd, svo lofthrædd að ég get ekki gengið á stultum. Ég á reyndar langt í land með að standa á öxlunum á manni sem er einn og 90 á hæð, en svei mér þá hvort ég sé ekki að verða betri og betri flyer (sá sem leikið er með, sá sem er ofan á í flestum pósunum) með hverjum degi. Ég fékk nokkur rassafive í gær, sem hvetur mig áfram á Pavlovskan hátt. Í gær hrósaði kennarinn mér og sagði að það væri eins og ég hefði fengið confidence shot.
Allt nema í rauninni. Nema frá sjálfri mér. Jú, og Atla Viðari og Ásdísi, en það hefur voðalega lítið með sirkustímana að gera, þannig lagað.
Og þá komum við að strákamálunum. Ég er búin að spila út öllum trompum að ég held til þess eins að tapa fyrir einhverjum Bennigan'z lífstíl með konu sem honum sjálfum finnst ekkert spes, hún er bara ýkt góð í að koma að sektarkennd hjá honum (segir hann). Ekki misskilja mig, það er ekkert að lífstílnum, hann verður bara Bennigan'z séu engin heilindi í gangi. Það sem er Bennigan'z er þessi pressaða og leikna hamingja. Það eina sem ég get gert núna er að standa á hliðarlínunni og hlæja að þessu, því ef ég hlæ ekki, brotna ég niður. Ekki vegna þess að ég sé í sárum (þó auðvitað sé ég það), heldur vegna þess að ég er að horfa á góðan vin minn óhamingjusaman... Og eins ógeðslega og það hljómar, þá er hægt að gera svo marga ógeðslega góða brandara úr þessu. Ég er s.s. búin að taka úr mér hjartað og það er týnt einhvers staðar í draslinu í herberginu mínu. Æji þetta er svo mikil Regina Spektor staða. Will you feel better, better, better Will you feel anything at all?
Og á meðan ég er eitthvað að leika mér að dansa og spila músík og í sirkustímum og í einhverjum gaggóleik þá sé ég Árna Klett í Mogganum, og hann er lögfræðingur núna.
Það er kannski rétt að leggja áherslu á að nafnlausum kommentum verður eytt.
- Aubrey ferðast nú vítt og breytt um Bandaríkin til að kynna myndina sem hann lék í fyrir þónokkru síðan, Zach and Avery og Fergus, þar sem hann leikur hálfþroskaheftan mann og hefur hlotið mikið lof fyrir.
- Hafið þið heyrt lagið Better með Regina Spektor í úbartinu nýlega? Kate vinkona mín lék í fyrsta myndbandinu sem gert var við það lag, en síðan varð önnur hugmynd ofan á sem official myndbandið. Leiðilegt, því að hin hugmyndin gerðist á strippstað þar sem voru alls kyns konur, meira að segja dvergakona. Bömmer.
- Og Brendan segir fjálglega frá því á blogginu sínu 20. október að hafa verið handtekinn þegar hann leyfði góðri vinkonu sinni að heyra brot úr nýjustu bókinni sinni. Hann er virkilega spældur yfir því að blöðin hafi sagt hann vera 24 en ekki 25. Vinkonan reyndist vera Amy Winehouse og varð víst að reykja hass meðan hún hlustaði á Brendan lesa fyrir sig. Jahérna.
Næsta helgi! Á föstudag er ég að spila með Maísól á 7-9-13. Endilega komið með ykkar eigin gimmick, hristur, hrossabresti, sápukúlur, glimmerbombur. Að gefnu tilefni skal tekið fram að fyrrverandi kærastar eru ekki velkomnir.
Eins og ég er lítið fyrir að taka hvaða amerísku siði sem er og halda þeim við hér á Íslandi, eons og t.d. Valentínusardaginn, þá finnst mér skemmtilegt að vera í búning. Ég er búin að vera með í þessu Weird Girls verkefni hennar Kittyar í þónokkurn tíma, og það var mér mikill heiður þegar hún bað mig að hjálpa sér núna á laugardaginn. Við skrýtnu stelpurnar erum allar þekktar tjúttpöddur, mjög sætar, fyndnar, og okkur finnst gaman að vera í búning.
Let it never be said, that the romance is dead Kaiser Chiefs - Ruby
I've climbed a hundred thousand ladders but this snake keeps bringing me back down. Sandbox - Stress Diet
I'm getting old and I need someone to rely on. Keane - Somewhere Only We Know
You say you're gonna leave, I know it's a lie, 'cause that will be the day when I die. Buddy Holly - That will be the Day
I don't want to fall in love with a maybe. Scissors for Lefty - Next to Argyle
You do it to yourself, you do, and that's why it really hurts. Radiohead - Just
I don't want to feel what I cannot control. Cloetta Paris - Broken Heart Tango
The hardest thing in the world to do is to find somebody who believes in you. M Ward - Sad Song Og síðan er Jack White alveg með þetta:
Her stare is louder than your voice Because truth doesn't make a noise The White Stripes - Truth doesn't make a noise
You just keep on repeating all those empty "I love you"s Until you see you deserve better... The White Stripes - You Don't Know What Love Is (You Just Do As You're Told)
She's been singing it all along But you were hearing a different song The White Stripes - The Denial Twist
The way you clean up the wreck Is enough to give one pause You seem to forget just how this song started I'm reacting to you Because you left me broken hearted It's just that you can't just take the effect and make it the cause The White Stripes - Effect and Cause
Afsakið hversu ímó þetta blogg er. Ég er alls ekki í uppnámi. Ég er bara að hlusta á svo mikið af góðri músík þessa dagana.
Why are there so many songs about rainbows and what's on the other side? Ung stúlka óskar eftir manni. Hávöxnum, lagvissum og fyndnum. Helst dökkhærðum. Má alls ekki vera innskeifur. Viðkomandi verður að hafa gaman að því að borða, dansa eins og fullorðið fólk og gera grín að mér. Hann á líka að hafa gaman að dansi yfirhöfuð. Viðkomandi verður að hafa gaman að því að kyssast. Og hann verður að vera meira töff en ég, en samt eins einlægur og Kermit. Einu sinni hélt ég að ég hefði fundið Kermitinn minn, en síðan fattaði ég að ég hafði ruglast því hann var með eins rödd og Kermit.
Pabbi: Heyrðu, ef þið tvær eruð að fara þarna í kvöld, þá ætla ég kannski að fara í bíó með mömmu þinni. Nei, hún vill alltaf sjá "ástarmynd með gamanívafi." Ég get ekki farið á þessa No Reservations. Nei, heyrðu, hér er mynd með Jody Foster. Ha. Hún er nú til í það. Ekki segja henni að þetta sé hasarmynd.
Pabbi: Nei gvuð, ég verð svo lofthræddur í byggingum. Ég get staðið og horft fram af klettabrún og verið bara glaður, en í byggingum verð ég alveg brjálaður.
Mokki: Ég ætla að spila fyrir þig hérna eitt lag. Pabbi: Ó! ÞETTA ER SVO FALLEGT LAG! Nú fer ég að gráta. Slökktu á þessu. Sendu mér þetta lag.
Ég elska þessa mynd Farsi, Hrói höttur-hetjumynd, söngleikur, brjálaðir búningar, dvergar, ástarsaga, galdrar, riddarar og burtreiðar, sakamál, slap stick, allt. Allt í einni mynd. Bíðið eftir laginu. Gjörið svo vel, uppáhaldsatriðið mitt í þessari stórbrotnu mynd.
(Þegar þarna er komið við sögu hefur Hawkins (sem allir kalla Giacamo því hann er í dulargervi sem hirðfífl) reynt við prinsessuna meðan hann var dáleiddur, stolið lyklinum af leynigöngunum til að leiða byltinguna í gegn en prinsessan tók hann því hún hélt að þau ætluðu að hlaupast á brott saman en pabbi hennar fann hann. Hinn rétti konungur er litla barnið í körfunni. Konan í græna kjólnum er kærasta Hawkins, en konungurinn girnist hana. Sömuleiðis ákváðu Hawkins og ráðgjafi konungsins að drepa þrjá menn sem vildu gera bandalag við Griswold, nema Hawkins var einnig dáleiddur þegar ráðagerðin átti sér stað. Hawkins veit ekki að Giacamo, sem hann rotaði og fór í fötin til að komast inn í höllina, var fyrst og fremst ráðinn sem leigumorðingi, ekki sem hirðfífl.)
Þetta er lítið lag um fiðrildi og flugur og frækorn og smugur er út um allt sjást. Þetta köllum við ást.
Eins og þið vitið kannski erum við Ragnar og Atli Viðar í miklum skemmtigríntímum á sunnudögum þar sem við eyðum mestum tíma á hvolfi og að klifra á hvoru öðru, kasta boltum og klútum og passa okkur að slasa okkur ekki. Ég er reyndar frekar löskuð núna á mörgum stöðum, en það lagast. Það er bara vont að krjúpa og sitja og skipta um gír og skrifa nafnið mitt. Á mánudögum hittumst við án kennarans og æfum okkur því að við erum stundum svolítið aftarlega á merinni svona miðað við hitt fólkið sem gæti þess vegna gengið á höndum út í bakarí. Ég þjáist aðallega af því að vera skíthrædd auk þess að vera með þungan bossaling. Á mánudögum er ég s.s. að kenna magadans í tvo og hálfan tíma, og er síðan að sprikla með félugunum í svona einn og hálfan klukkutíma. Og vitið þið, það er mega workout í gangi við það að vera á hvolfi og svona (sjá Ragnar, sveittan, hér að neðan). Á milli tímanna minna í kvöld sendi ég Ragnari sms því ég fann að ég var að verða svöng. Og við vitum hvað gerist þegar ég verð svöng. Ég verð mjög pirripú og reið. Enska orðið yfir þetta er "hangry," búið til úr hungry og angry. Ég bað hann að kaupa handa mér franskar og kók því að váts mig langaði í eitthvað þess háttar. Þegar þeir félagar birtast síðan, koma þeir með banana, skyr, geðveikt gott hollustusúkkulaði með cookies and cream (vitandi hversu hrifin ég er af oreo), og smoothie. Ég fór næstum því að gráta. Ég hef ekki fundið svona mikla ást í langan tíma. Takk elsku ninjakisurnar mínar.
Another night on the job 01:06 - Heartbeats með Knife. Þetta er ekki gott lag stelpur. Ekki gott!!! "mímímímímímímímí to lean on." Ekki einu sinni þegar maður er jafn drukkinn og þið.
01:13 Damn Girl með Justin Timberlake. Ógeðslegt óskalag. En ég meina, hvað gerir maður ekki fyrir hóp af sætum stelpum? P.S. Er einhver til í að gera paródíu af þessu lagi um feita konu sem stíflar vatnsrennibraut og skíra það "Dam Girl"?
01:39 Jokerman með Bob Dylan. Því það er enginn hérna inni nema gallhörðu Dylanstrákarnir. Fyndnir svona strákahópar sem eru eins og einhverskonar hjarðir þar sem allir heita einhverjum nöfnum sem eru öll eins og klæða sig í köflótt og hlusta á sömu músík. Hvar eru menn sem eru eins og listaverk að horfa á á svona stundum? Ha.
01:44 Johnny Two Bands með Vincent Vincent and the Villains. Þið ljóta fólk getið átt ykkur og ég spila bara mitt uppáhalds. JÁ.
01: 52 Brown Eyed Girl með Van Morrison. Ég þarf að fara í klippingu. Ég er eins og ég veit ekki hvað.
01:54 Get Back með Bítlunum. Og gamli homminn sem er hér oft söng með. Þó ekki "Get back," heldur "Bíba! bíba!" Ööö ok.
02:41 Girls on Film - Duran Duran. Á einhver íslensku útgáfuna af þessu lagi? Þegar Atli Rafn var nýskriðinn úr leiklistarskólanum þá söng hann með hljómsveit í þættinum Stutt í spunann einu sinni, og hét lagið þá "Sprund í mynd." Atli Viðar, redda.
02:44 Allt fyrir ástina með Páli Óskari. Ok. Eina ástæðan fyrir því að ég er að spila þetta lag er vegna þess að það er búið að biðja um það 15 sinnum. Rúnk. Skemmtilegt hvað þetta lag og hitt lagið hans, eru sama lagið. Þau eru meira segja jafnlöng.
02:48 Baywatch lagið. Maður kom til mín og sagði að ef ég kyssti hann ætlaði vinur hans að gefa honum miða á Airwaves. Hann var hávaxinn, dökkhærður og hrokkinhærður. Ég kyssti hann og síðan var það búið. Og hló innan í mér, vitandi að það er uppselt á Airwaves. Góð saga.
02:57 On Call með Kings of Leon. Leiðilegasta lag í heimi. Já. Og staðurinn tæmdist. Spilum Muse. Fyllum hann á ný.
03:05 Reptilia með The Strokes. Gott lag. Það eru líka svo sætir strákar sem fíla það.
03:23 Total Eclipse of the Heart. Ég þarf að bæta á jólaóskalistann hér til hliðar: Gong. Til að nota einungis í þessu lagi. Fyrst að Karaoke Killed the Cat er að hætta. Jebb. Hætta.
03:32 Popular með Nada Surf Nei, ekkert komment, bara monta mig að vera að spila það. Brooklyn represent.
03:44 Space Queen með 10 Speed. Það er maður fyrir utan að fela sig fyrir mér. En ég þekki jakkann þinn. Kallinn. Stalker. Dahjók.
03:49 Boogie boogie með Sveittum Gangavörðum. Og nú er hann á barnum. Enn að fela sig. Elsku litla músin. Það er þá rétt sem foreldrar mínir segja, að menn séu hræddir við mig.
03:52 Umbrella með Rhianna. Svona til að segja "said I'd always be your friend."
03:55 Sexx Laws með Beck. Bara svona því ég er óendanlega fyndin. Meira fyndin en ógnvekjandi. Ha.
04:22 Intergalactic með Beastie Boys. Ég lét henda manni út. Það var gaman. Hann var alltaf að toga í tölvuna mína. Api.
04:25 Summer of 69 með Bryan Adams. Ég var nú alltaf meira hrifin af laginu sem hann gerði með Mel C.
04:26 Sama lag. Hér eru ósmekklegheitin í hámarki. Ég á ekki til orð. Best að fara að pissa.
04:36 Toxic með Britney Spears. Vá það er svo mikið af földum skilaboðum. Einhvern tíma ætla ég að semja smásögu sem er bara lagaheiti, og lögin segja sögu eða þú veist oj hvað ég er þreytt.
04:39 I want Candy með Bow Wow Wow. Og sagan heldur áfram.
04:42 Hey Mickey. Don't break my heart Mickey.
04:44 Baby Got Back með Sir Mix Alot. Hún er alveg óheppnari með hlutföllin en ég. Ef þið viljið áframhald sögunnar þá bara talið við mig.
Boxið Í Fréttablaðinu í dag er "frétt" þess efnis að Jessica Simpson hafi framið félagslegt sjálfsmorð tvö kvöld í röð á skemmtistaðnum The Box. Fyrst kvartaði hún yfir reikningnum og seinna kvöldið stakk hún af án þess að borga. Ég verð nú bara að segja, að maður fer ekki á The Box án þess að vita að þetta er dýrasti skemmtistaðurinn á Lower East Side. Bara að fá borð kostar um þrjátíu-fjörutíu þúsund. Kampavínsflöskurnar eru mun dýrari en á Goldfinger, og g og t kostar 13-14 dollara. Kate vinkona mín vinnur sem "hostess" þarna. Það sem hún gerir er að bjóða fólk velkomið og hafa yfirsýn yfir að allt sé smooth. Hún fær stundum svona moneyhandshakes frá einhverjum Bennigan'z og lifir sældarlífi á handaböndunum einum saman. Annars er það þannig að cúl celebar fá allt ókeypis, en Jessica er ekki ein þeirra. Ég man í sumar þegar OC liðið var þarna og sendi okkur kampavín upp á búningherbergi, þá var húmorinn "Hvað í fjandanum eru þau að gera hér? Ég vona að þau hafi borgað fyrir flöskurnar!" Þegar liðið vildi síðan koma upp til okkar var þeim meinaður aðgangur og við hlustuðum á þau rífast við verðina í gegnum hurðina, tístandi af hlátri. Ó Box, ég sakna þín. Simon Hammerstein, eigandi og tjúttpadda, á sviðinu. -> Þarna sjást svalirnar sem voru iðulega fullar af fólki sem var tussufrægt og maður þurfti að fara þar í gegn til að nálgast sviðsinnganginn. Skríllinn var síðan á borðunum niðri. Ég ætla rétt að vona að Jessica hafi fengið borð niðri, eða uppi vinstra megin frá okkur séð.
Velvakandi í dag Það er óskiljanleg árátta kvenna að plokka hár af líkama sínum. Þetta er árátta sem er tilbúin af tískufólki. Þetta er ekki í þágu karlmanna, því loðnir fótleggir kvenna eru yndislegir. Karlmaður
Mikið þætti mér gaman að vita hvaða atvik varð til þess að þessi karlmaður sá sig knúinn til að skrifa í Velvakanda. Hvað var dropinn sem fyllti mælinn? Hitti hann kannski fyrstu loðleggjakonuna sína síðustu helgi? Eða er hann sick and tired eins og í Cardiganslaginu á stingandi leggjum?
Oh these girls sincerely blow our minds; They breathe new life into checking our voicemail. There the kind of girls you wish would stick around, And mama, we learned our lesson: Say the word mine, and lose girls every time; You must befriend 'em, before you mess with them.
úr laginu Mama, your Boys will Find a Home með Scissors for Lefty.