Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Tjúttpaddan 1. Við ákveðna tegund tónlistar brest ég í einhvers konar Eggert Þorleifsson-danspor. Það lag sem er svona steríótýpískast fyrir hvers konar lög það eru sem valda hamskiptunum, er lagið Got My Mind Set on You með George Harrison. 2. Vó það var kona með hækju að ganga hérna inn. Eitt sem væri töff: Ef hún talaði í haiku-um. Hækjuhaikukonan. 3. Heitt: Menn með síðan topp. Það er svo grunge. 4. Verður heitt í janúar: MOONBOOTS! Retarded is the new rehab.
Óformleg könnun á áhuga Þannig er það nú, að þegar ég bjó úti í eplinu kynntist ég mörgum listamönnum. Stærstur hluti þeirra eru grínistar. Mig langar gríðarlega mikið að flytja þá inn í samstarfi við einn vin minn og hafa risastórt grínkvöld næsta vor/snemmsumar. Þar myndu koma fram Whitest Kids you Know (besti skets í HEIMI hér), ásamt Sean Patton, John F. O'Donnell og mjög mikið kannski Aubrey Tennant, og líklega myndi ofyrtvíeykið Cracked Out hósta þetta allt saman. (Downloadið laginu Bennigan'z, það er frábært) Whitest Kids eru gríðarlega stórir í Bandaríkjunum. Fyrsta serían þeirra var sýnd á Fuse network sem er svipað batterí og MTV. Sería númer tvö verður á IFC (Independent Film Channel) og þeir eru spenntir fyrir því og hafa látið hafa eftir sér: "Þá getum við sýnt brjóst og rassa, sem við máttum ekki á Fuse."
Nú langar mig að spyrja ykkur, vini mína, hver haldið þið að áhuginn sé fyrir alvöru Lower East Side stand up-i og gríni og skemmtun? Erum við kannski bara góð með Pablo Francisco og þarna son hans Ladda?
Nýtt hobbý Ég er komin með nýtt hobbý. Núna mæti ég í sirkustíma einu sinni í viku þar sem ég læri að djöggla (reyndar bara klútum enn sem komið er, en það er samt geðveikt), standa á höndum, balansa alls konar á fólki, gera handahlaup á lærum fólks og svo framvegis. Þetta er svakalega gaman. Ég er reyndar búin að vera með harðsperrur í TVO DAGA og get varla hreyft mig, en það er vel þess virði. Kennarinn er síðan með Flight of the Conchords hreim sem gerir þetta enn skemmtilegra.
Takk fyrir lögin Ég er búin að fá öll lögin sem ég bað um. Takk elskurnar mínar.
Samt eitt.
Af hverju kommentar fólk nafnlaust? Eru gamlir kærastar að skoða síðuna? Er doktor Tómas búinn að mastera íslenskuna? Finnur frægt fólk sig knúið til að kommenta á ruglið í mér? Er kannski Bryan Garza búinn að vera í fjarnámi við Háskóla Íslands? Er Brendan Sullivan búinn að heimfæra það sem hann kann í gelísku upp á íslensku? Ha?
Það sem ég myndi vilja fá til Íslands - Lady GaGa. Dirty Icecream er frábært lag. - Scissors for Lefty. Allt með þeim er gott. Limewire. Já. Ghetto Ways, Mama og Lay down your Weapons. Hann syngur í talstöð og það er ýkt töff. - Whitest Kids you Know. Í vinnslu ásamt líklega Sean Patton og John O'Donnell, og kannski Aubrey Tennant. Ekki örvænta þótt þið þekkið ekki nöfnin, þetta er svona toppurinn á standöppgrísistum, ólíkt þessari froðu sem við fáum hérna heima. Guð minn góður íslenskt standup er svo leim. - Flight of the Conchords. Sjáum til hvernig WKuK gengur. Sketsarnir þeirra eru fyndnir, en þeir eru mun betri live.En það er ekki hægt fyrr en eftir svona ár. Kannski verða þeir orðnir of frægir þá.
(Þessi maður heitir Bryan Garza og ég elska hann næstum meira en ís)
I like you as a friend ... heitir skartgripalínan sem vinkonur mínar, Kate og Cristalle, hanna og framleiða sjálfar. Þær eru bara með hálsmen enn um sinn, en það er von á fleiru. Mig langar í þetta hálsmen, því það er óendanlega fyndið ... ef það væri til í silfri. Bú. Annars hvet ég fólk til að skoða þetta hjá þeim, það er margt svakalega kjút þarna. www.ilikeyou.asafriendcom
Töfrar internetsins Mig vantar eftirfarandi lög. Eigir þú þau væri stórdásamlegt ef þú gætir sent mér þau á maggamaack á gmail punktur com. Beck - Sexx Laws Chris de Burgh - Lady in Red Matthew Breed - Deserter GCD - Mýrdalssandur Hollies - Jennifer Eccles Bette Midler - Wind Beneath my Wings Prince - Pussy Control Scissors for Lefty - Secret Hotcha (Ég held) Temptations - Stand by me Ugly Kid Joe - Cat in the cradle
(Ég vil lög með bitrate um eða hærra en 160 því ég er lítill frekjugrís)
Google-attack Ég ætla að coina þetta orðasamband. Þetta er nett hjartaáfall, þegar maður missir andann og langar að lympast niður því heimurinn er svo grimmur, vegna einhvers sem maður kemst að þegar maður gúglar einhverjum sem maður var einu sinni skotinn í og er eiginlega ennþá en vissi ekki fyrr en maður sá þetta allt á gúgúl og upplifði sterkar tilfinningar í kjölfarið.
Í fyrsta lagi. Þessi mynd. Mig langar að nota upphrópanir úr Andrésblöðum. Já. þarna er hann. Á Beauty Bar. Þar sem við töluðum saman í fyrsta sinn. Hann var að DJa. Og kannaðist við hann af Pianos og var svakalega glaður að ég myndi eftir honum. Góð saga.
Í öðru lagi. Hann er kvótaður í gawker. Reyndar sem listamannavælukjói. Sem hann er. Hundrað og áttatíuprósent. Þarna neðst. Vælukjóagrís. Aww. Það er svona þegar maður er rithöfundur sem neyðist til að vinna sem plötusnúður til að ná endum saman yil að geta haldið áfram að búa í tveggja hæða íbúð á besta stað með eigin þvottahúsi og garði. Já, og skrifstofu. Og arni.
Í þriðja lagi. Bloggið hans. Þar sem hann segir fjálglegar en ég frá því að hann sé að hætta með einni stelpu, sem Guð má vita hver er. Sömuleiðis, vá sjitt fokk hvað hann er obsessed af fyrrverandi kærustunni sinni.
Já, þrjú google-attöck á minna en þremur mínútum. Sem betur fer er ég með blóðþrýstinginn hans pabba. Ha.
P.S. Vá hvað ég er hamingjusöm að hann talar ekki íslensku.
P.P.S REYNDAR er hann Íri og talar gelísku, og gæti þess vegna fattað ýmislegt. Hann t.d. vissi að Mokki væri strákanafn.
P.P.P.S Kannski finnst honum bara sjarmerandi að ég sé að gúgla honum. Svona eins og hann er svakageðveikur í sambandið við fyrrverandi kærustuna sína.
Þetta er hætt að vera sniðugt. 1. Ég viðurkenni hrifningu mína á Paul McCartney hér á blogginu, eftir að hafa verið laumu-Paulaðdáandi í ca 10 ár. 2. DAGINN EFTIR viðurkennir Renée Zellweger að hún sé voðalega skotin í kallinum.
Ég hef bara eitt um þetta að segja: I'm sorry? Outside? Should I bring my dueling pistols or my sword?
Meiri músík! (og förum að rífast já) OKAY. Bítlarnir. Já við erum að fíla þá. Og hér eru mín 5 uppáhaldsBítlalög.
1. For No One Ég er sein að viðurkenna það, en djúpt innan í mér er ég svo mikil Paulstelpa að það ætti að rassskella mig. En já. Þetta lag er með lúðri (érafílaða dojjj). En nei, svona í alvöru. Textinn er mjög margslunginn. Stelpan er cúl á því og heldur lífinu áfram, strákurinn er lasinn í hjartanu og síðan er söngvarinn í miðjunni að reyna að hugga hann, en samt ekki. And in her eyes you see nothing, no sign of love behind the tears, cried for no one - a love that should have lasted years (OG LÚÐUR!)
2. You Never Give Me Your Money Ef ég má telja Abbey Road brjálæðið sem eitt lag, er það hér, en fyrst ég þarf að velja eitt þá vel ég þetta lag. Af því mér finnst það vera krútt. Takk.
3. Wait Ég er voðalega hrifin af góðu skítmixi. Þarna er 3 lagahugmyndum blandað saman í eitt lag og það er svo fáránlega augljóst að það er bara skemmtilegt. Auk þess sem þetta er voðalega mikið Paul (lesist Paul ekki Pol - Hann heitir Paul með A og U, ekki með O)
4. Things we said today You say you will love me, if I have to go. Já Hemmi minn. Af hverju er það svo að 90% af þeim ástarjátningum sem ég fæ, fæ ég <4 dögum áður en ég held af landi brott? Það er af því að það er til Bítlalag um það. En já, enn á ný, meira Paul. Ég er svo voðalega hrifin af góðri röddun.
5. Lady Madonna Já, mér finnst það gott.
Að lokum vil ég benda á að Revolver er skemmtilegri en Stg Pepper.
Sumarmixið mitt Ace of Base - All that she Wants Þetta var eitt af lögunum "mínum" í karaoke. Scandinavia represent.
America - Sister Golden Hair Blake vinur minn kallaði mig alltaf systur sína. Það breyttist síðan í Sister Golden Hair Surprise. Ég hélt fyrst að hann hefði búið þetta til, en síðan heyrði ég þetta lag óvart. Ég þekkti lagið, en þegar ég heyrði það fyrst kunni ég ekki ensku og því ekki skrýtið að ég kannaðist ekki við lagið.
Beck - Sexx Laws Mig langaði alltaf að syngja þetta lag í karaoke og var alltaf að æfa mig, en það kom alltaf upp error þegar ég vildi syngja það í Karaoke Killed the Cat. Eitt kvöldið héldum við Timmy, Melissa, Aubrey og Dan Newbower framhjá KKtC og fórum á Singsing og ég gat sungið það þar og fékk mikið hrós fyrir.
Bell Biv Devoe - Poison Þetta er eitt þessara laga sem er betra í flutningi karaokestrákanna en upprunalega lagið. Samt alveg tussugott lag.
Calvin Harris - Acceptable in the 80's Ragga plögg sendi mér þetta lag og kann ég henni bestu þakkir fyrir. I've got hugs for you if you were born in the Eighties.
The Cardigans - Sick and Tired You can always say that summer had its charm. Ég varð svo skotin í svona krúttskamúsík í sumar. Ég held að ég sé að verða gömul.
Cracked Out - Bennigan'z Þetta lag er svo fyndið að ég keyri næstum á fólk þegar ég hlusta á það. "You got the highlights hair, barbwire tatoo - You're Bennigan'z You just bought the brand new Dave Matthew - You're Bennigan'z You go to Gold's gym just to work out your neck - You're Bennigan'z You slap your girl in the face cuz she disrespects - You're Bennigan'z X body spray and you're secretly gay - You're Bennigan'z You get a hard on from the Macy's display - You're Bennigan'z You saw The Lion King and you got some steaks - You're Bennigan'z You drove home drunk and parked your Lex in the lake - You're Bennigan'z Við Erin lentum í svo hræðilegri viðreynslu frá tveimur mönnum einu sinni á Pianos. Þeir voru báðir minni en við. Á tímapunkti snerum við okkur báðar að hvor annari og sögðum með vörunum: BENNIGAN'Z og síðan hlógum við svo mikið að þeir hrökluðust í burtu. Síðan gæti það vel gerst að ég giftist Jon Daly í Cracked Out. Það væri ekki leiðilegt. Ha.
Dire Straits - Walk of life Mörg lögin á þessum lista eru lög sem ég var búin að gleyma að væru til þangað til einhver snillingur söng þau í karaoke. Timmy söng þetta lag. Og það var gott.
FM Belfast - Synthia 24. ágúst spiluðu þau á Pianos. Þau skildu eftir Airwaves flyera og ég held að helmingur starfsfólksins á Pianos hafi sýnt áhuga á að koma. Vonumþaðbesta. George Harrison - Got My Mind Set On You Elann vinur minn algjörlega rústaði þessu lagi í karaoke. Það var mér mikil heiður þegar ég fékk að syngja með í bless bless-partýinu mínu.
Goldfrapp - Ride A White Horse Þetta lag minnir mig á alveg svakalega flækju sem ég var í rétt áður en ég hélt að utan. Fyrstu vikurnar mínar úti rann mér kalt vatn milli skinns og hörunds þegar þetta lag kom óvart upp á ipodnum mínum í sjöfflinu.
Grandmaster Flash & the Furious Five - White Lines (Don't Do It) Hefurðu séð mig dansa við þetta lag og öskra FREE BASE? Það er geðveikt. Þetta lag er brjálað. P.S. FREE BASE!
INXS - I Need you Tonight Þetta lag er án efa besta karaokelagið mitt. Mig langar svo mikið að fara á Ölver og taka brjálað performans þar. Og crowdsurfa. En það er víst ekki í boði.
Laura Branigan - Gloria Brian Berrebbi og Matt Coats rústa þessu lagi í karaoke. RÚSTA ÞVÍ. Þegar ég var að væla í Erin að enginn væri skotinn í mér sagði hún: "But everyone wants you, they're just trying to figure you out." Þá söng ég á móti: If everybody wants you - WHY ISN'T ANYBODY CAAAAAAAAAAAAAALLING? Og það var svakafyndið því henni brá svo mikið.
Mark Ronson - Just You do it to yourself you do, and that's why it really hurts. Um kókaínneyslu fólks sem ég þekki varla lengur.
Mathieu Chedid - Onde Sensuelle Þetta lag er alltaf sumarþemalag, og búið að vera það síðan ég var 17.
Nada Surf - Popular Besti texti í heimi? Já. Biturt og gott. Ég held að enginn sem var lúði í gamla daga sé ekki töff í dag.
Nena - 99 Red Balloons. Ö. Karaoke?
Neneh Cherry - Buffalo Stance No money man could win my love, it's green card that I'm thinking of…
Pálmi Gunnarsson - Hvers Vegna Varst' Ekki Kyrr Skrýtið. Ég hef aldrei fílað þetta lag neitt sérstaklega, fyrr en ég heyrði það í ipodsjöffli. Þá hafði ég ekki heyrt íslensku í of langan tíma og gladdist mjög. Síðan svaraði ég Pálma: Ég vildi frekar búa í New York.
Peter Bjorn & John - Amsterdam Þetta lag var alltaf spilað þegar ég labbaði inn í urban Outfitters.
Petshop Boys - Westend Girls Valgeir skipaði mér að hlusta meira á Petshop Boys. Og mér finnst þetta ag cúl.
The Prodigy - No Good (Start The Dance) Besta bandið til að hlusta á þegar maður brunar um í neðarjarðarlestakerfinu.
Rihanna - Umbrella Eins og Sam Brown hefur svo oft bent á: It's a song about friendship.
Sandbox - Stress Diet I've climbed a hudred thousand ladders but I'm only getting close to death. Ég sá þá spila live og ég er ástfangin af því hvernig Colin segir s.
Scissors for Lefty - Ghetto Ways ÉG ELSKA ÞETTA LAG SVO MIKIÐ. Ég fór með Shandi að sjá "vini hennar frá San Fran spila." Þegar þeir síðan byrjuðu að spila fattaði ég að þetta voru Scissors for Lefty. Og ég dó. Þarna var ég, og svona 10 aðrir að horfa og hlusta. Síðan var ég kynnt fyrir þeim. Sjitt fokk. Brian Garza, viltu eignast börn með mér? Spin Doctors - Two Princes Hæ. Ég hitti spngvarann í sumar. Auk þess sem þetta lag átti frekar oft við. Svona. Í lífi mínu bara. Ha.
Talking Heads - Psycho Killer Stuart vinur minn, sem vinnur sem TÖFRAMAÐUR, söng þetta oft í karaoke og það var geggjað. Í kveðjuboðinu dönsuðum við Kate svo flott við þetta lag að við erum að hugsa um að gerast gógópíur að atvinnu.
Whitesnake - Here I go Again Ef þið hafið ekki séð vídjóið sem ég póstaði á sínum tíma þá geturðu bara gleymt þessari "vináttu" okkar.
Þekkir þú ekki lögin mæli ég með niðurhali, eða að ég get ímeilt þér þau.
Sjeik Ég er í Shakespeare kúrs í skólanum. Nú er því haldið fram að hann hafi fæðst 23.-26. apríl. Flestir vilja segja 23. apríl því það er Saint George's day og það er víst töff. Ég er hins vegar algjörlega á móti því og vil segja að hann eigi afmæli þann 25. apríl.
Þá á ég afmó sama dag og Shakespeare, Björn Ulvaeus, Al Pacino og Ella Fitzgerald. Jájájá.
Ég hef sagt það áður að Renée Zellweger á líka afmæli 25. apríl. Við deilum sjúkum áhuga á sömu mönnum (mínus þennan þarna kántrílúða). En ég meina. Ok. Hún var með Jim Carrey OG Jack White. Í síðustu viku las ég síðan fréttir um að hún og Paul McCartney væru eitthvað að stinga saman nefjum. Kannski var hún ekkert að reyna við hann, heldur að lýsa yfir hrifningu sinni á laginu For No One. Það væri auðvitað algjörlega í hennar stíl.
P.S. MIG SÁRVANTAR BUFFALOSKÓ FYRIR KOMANDI HELGI Í STÆRÐ 38-39. Er tilbúin að kaupa ef áhugi er fyrir því. Svona 2000 kall? Ha?
Ókeypis danstímar! 3.-7. september eru ókeypis prufutímar í Kramhúsinu til að kynna starfsemi vetrarins. Ég er að kenna magadans þarna í vetur og prufutíminn minn er klukkan 18:00 á morgun. Ýttu hér til að skoða planið! Shake it oh-oh shake it oh-oh shake it oh-oh shake it shake it...
Komin til Íslands Þessi færsla er ekki um neitt. Svolítið eins og að skrifa í dagbók. Ég er svona að sætta mig við að vera hér. Ég elska ykkur öll. Já. Og mér finnst gaman í vinnunni. Mér finnst samt EKKI gaman í skólanum. Og mér finnst ekki gaman að það er ekkert að gerast nema á föstudögum og laugardögum. Maður þarf svo mikið að gera prógrammið sjálfur hér. En samt.
Ég saknaði drifkraftsins sem ég finn í Reykjavík. Í New York er fólk voða mikið í því að skrá sig hjá agent og bíða við símann, hvort sem það á við um að finna sér vinnu, audition, eða íbúð. Jafnvel deit. Fólk skráir sig á heimasíður og bíður eftir matchi. Það vantar allan blóðþorstann.
Kannski þess vegna var ég svona cúl í New York. Ég var minn eigin herra. Ég gerði mér grein fyrir að ég ein vissi hvað ég vildi. Og Shandi benti á það eitt kvöldið. "I think I know why they don't like you. You're like: I know what I want and I am going to get it. And it terrifies them." Síðan benti hún á að þetta væri ástæða þess að ég ætti alla þessa vini, sem virtu mig og dáðust að þessu lífsviðhorfi. Og eftir vangaveltur komst hún að þeirri niðurstöðu að "hinir" væri bara sjúklega afbrýðissamir og vildu í raun ekkert meira en að vera vinir mínir.
If I can make it there I'll make it everywhere? Ekki satt. Maður þarf bara að vera alinn upp eins og ég. Ég efast um að ég hefði getað meikað þetta sumar eða lífið almennt ef ég hefði ekki verið alinn upp sem sterkur einstaklingur. Sumir segja að ég sé egótrippi. Og ég er það. Mottóið hans Jesse vinar míns er: If you don't think you're the shit, why should I?
Ég fékk langan tölvupóst frá Adam sambýlismanni mínum í dag. Ég sakna hans svakalega mikið. Við erum góðir vinir og gerðum mikið saman. Við hjálpuðum hvor öðru í gegnum alls kyns drömu og líka vinnulega séð, hann kom oft með mér að velja kjóla og ég hjálpaði honum við að kasta módel, fótósjoppa og ég fékk meira að segja að hjálpa til á settinu hjá honum. Við unnum og bjuggum vel saman, og þekktum vel inn á hvort annað. Adam hélt því oft fram að ég væri samkynhneigður karlmaður fastur í líkama ungrar konu. Og síðan sagði hann að ég væri eina stelpan sem hann þekkti sem væri alls ekki fag hag að neinu leyti. Flestar bandarískar stelpur vilja nefnilega eiga einn hommavin. Þær búast við að hommavinurinn sé sífellt til í að kenna þeim munnmakatækni og éta með þeim ís, og búast við að þær megi nota gay slangur eins og þeim sýnist. Mest allt gay slangur sem þessar stelpur nota er samt fengið úr hræðilegum bandarískum sjónvarpsþáttum sem ala á steríótýpískum kvenímyndum og ímyndum samkynhneigðra.
Amma mín, Margrét Erla, er mikil heimskona. Hún hefur ávallt sagt: Gott fólk hittir bara gott fólk. Ég held að síðustu tvö árin í lífi mínu sanni það svo um munar. Jú, ég sé alveg fólk sem er ekki gott. En ég er ekkert í því að hitta það. Ég held að þeir vinir mínir sem hafa ferðast einir viti hvað ég á við. Góða fólkið finnur alltaf hvort annað.
Ég er komin til Íslands til að klára háskólann. Hvern veit hvað gerist næst. Ég læt ykkur vita.
Það verður partý.
Mamma mín kallar systur mína Emil þessa dagana. Og hún kallar mig Einar Áskel. Ég elska mömmu mína svo mikið.