Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






27.6.07 :::

  • Mamma mín varð fimmtug í gær/dag. 26. júní. Já, hún er ungleg og sæt og góð. Ég talaði við hana og Vigdísi áðan. Og Gústa vin hans pabba, pabbi var ábyggilega að vaska upp, eftir gríðarlegt afmælishúll sem ég missti af. Vigdís var nokkuð fegin, þá þarf hún ekki að horfa upp á mig magadansa.


  • Þegar ég var lítil stelpa, hékk þessi mynd hér til hliðar í eldhúsinu hjá ömmu og afa á Háaleitisbraut. Þessi mynd er uppáhaldsljósmyndin mín í öllum heiminum. Ég man eftir að hafa drukkið kakó með ömmu undir henni og okkur langaði svo að drekka það strax, en það var of heitt, svo við settum klaka í það. Hvað sem því líður, þá ætla ég mér að hafa svona mynd í eldhúsinu mínu þegar ég flyt að heiman. Einhvern veginn vissi ég alltaf að þessi kona á myndinni væri alveg pottþétt amma mín, því að hún er svona. Allir snúa sér á eftir henni.

  • En svona líður mér stundum. Menn hrópa og flauta og kalla hér. Sérstaklega svona slísí vegavinnumenn og allir slökkviliðsmennirnir út um allan bæ í dag. Í dag var einhver slökkviliðsdagur og það voru slökkviliðsmenn alls staðar. Ég veit ekki alveg hvað var málið með það. En já, alltaf þegar eitthvað svona gerist man ég alltaf eftir þessari mynd.

  • Síðasti WKUK var síðasts sunnudag. Þeir sem vita ekki hvað þetta er þá eru þetta vinir mínir sem eru með sketsaþátt á Fuse, og þeir eru/voru alltaf með lifandi sjó á Pianos á sunnudögum. Ég var að vinna í dyrunum síðasta sunnudag, svo ég gat séð smávegis af þeim... Í SÍÐASTA SINN!! Trevor er nefnilega að fara í burtu í 8 mánuði... að leika í bíómyndum og skrifa bíómyndir og eitthvað. Hann er voðalegur spaði. Ef þið trúið mér ekki, kíkið þá á kommentin á WKUK síðunni, tjah og síðunum þeirra. Timmy er oft að sýna mér message sem hann fær frá 14 ára stúlkum, um það hversu mikið þær langi að sofa hjá honum. Þetta er allt voðalega furðulegt. Mig langar svo mikið að flytja þá til Íslands og vera með eitt gigg þar, og kannski taka Cracked out með, því þeir eru æði. En maður þarf að vera spaði til þess.

  • Ég er hætt að nota sjampó. Neinei, það er ekki vegna þess að ég er að svelta eða bý á götunni. Við vorum bara að tala um sjampó um daginn og þá kemur á daginn (hoho) að Darren hefur alllldrei notað sjampó. Og hann hefur verið með sítt hár sko. Mamma hans er víst einhver náttúruhjúkka og eitthvað, og Timmy hefur ekki notað sjampó í ár. Þeir eru með súpergott hár báðir, og það er ekki nein hrútalykt af hárinu þeirra. Eins og þeir myndu segja, it's the new thing. Hárið mitt er hins vegar ekki alveg að fatta þetta, og er alveg grease lightning, en það er svo heitt úti að það eru allir sveittir og greasy hvort eð er.

  • Ég er að vinna tvöfalda vakt á morgun og hinn, því að um næstu helgi erum við öll vinirnir að fara að heimsækja foreldra Joels í Pennsylvaniu (vá, þarna fékk ég Brakúla-flassbakk). Þetta hafa þau gert síðastliðin 3 ár, fara helgina sem er næst 4 júlí, því þá er flugeldasýning og læti. Foreldrar Joels eiga svakastórt hús með sundlaug. Ég hlakka mikið mikið til!!!

  • Vintagebúðin sem ég stofnaði á myspace gengur framar öllum vonum. Óendanlega skemmtilegt hobbí... að versla fyrir annað fólk. Dótið sem ég get ekki selt get ég selt í Beacon's closet og fengið andvirðið í inneign í búðinni. Þannig að þetta er svona skemmtilegur bíttibúðarleikur.

  • Brette vinkona mín ákvað að gefast upp í síðustu viku. Já, gefast upp. 25 ára skráir hún sig á Jdate, sem er svona einkamál.is síða, nema fyrir gyðinga. Eingöngu. Þarna er hægt að fletta í gegnum prófíla fólks, og spurningar eins og "do you keep kosher?" og "how often do you go to the synagogue?" eru notaðar til að matcha fólk saman. Ég hef skemmt mér konunglega yfir linkunum sem hún hefur sent mér á þessa síðu, en hún er í þessu af alvöru, og leitar að strangtrúuðum gyðingi sem er svona slétt sama um kosher en er að leita sér að eiginkonu. Hún er að fara á deit með einum á föstudaginn. Ok, einkamál.is var nú krípí, en hvað þá í svona furðufuglastórborg eins og þessari????



Slegið inn af Mokki litli klukkan 04:40







25.6.07 :::

Góhr
Zach: Like, dare me anyhting. ANYTHING, I'll do it.
Trevor: Ok, I dare you to go out, steal a baby and raise it as your own.

Og! Núna er ég bardama, magadansmær, og bissnesskona.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:30







24.6.07 :::

Klemman

24. júlí eru White Stripes tónleikar. Þeir eru í MSG, risastórt allt saman. Góðu sætin eru fyrir löngu búin. Enginn vill fara með mér. Devon á afmæli þennan dag.
+ Uppáhaldshljómsveitin mín
+ Besta tónleikaband heims
- Afmæli Devon
- Léleg sæti
+ Gríðarlega gott hljóðkerfi
+ Allir sem fara eru aðdáendur, ólíkt Íslandi þar sem allir fara bara á allt.
- Ég fer ein.

25. júlí eru Hanson tónleikar í Webster Hall.
- Ég kann bara eitt lag með Hanson, og í sannleika sagt held ég að þau séu ekki mikið fleiri.
+ Kate vinkona mín getur kannski reddað backstagepassa... sem gæti reddað bestu myspacemynd í HEIMI.
- 32 dollarar fyrir band sem á eitt lag?
+ 16 ára aldurstakmark.
+ Frekar litlir tónleikar og sætir.
- Sama verð og White Stripes tónleikarnir.

6. ágúst eru Muse að spila í MSG. Cold War Kids hita upp. Ég held að það sé engin spurning um að fara þangað, en enn á ný er þetta "enginn vill fara með mér"-element.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:36







22.6.07 :::

Búgí búgí

Þessi maður, sem já, lék í Josy and the Pussycats á mjög góður tacostað sem bíður upp á taco með steinbít. Ég ætla aldrei að smakka það.

MC Chris hitaði upp fyrir vini mína á tónleikum. Hann er 1 og 50 og lítur stórt á sig. Hann gekk upp að stelpu og var eitthvað: Hey, don't you know who I am? I'm pretty big. Og hún sagði: Erm, you look pretty short to me. Hohohohoho.

Hún er í danstímum í sama dansstúdíói og ég.

Á uppáhaldsísstaðnum mínum. Hann er rétt hjá Pianos og býður upp á rósablaðaís sem er svooooo góður.

Kelly Osbourne á sushistaðnum hérna 3 blokkum frá. Ef þið eigið leið um Brooklyn, farið á Samurai á Bedford Avenue og North 6th. Hádegitilboð eru 2 rúllur (12 bitar) á 7.95 dollara, og 3 rúllur (18 bitar) á 9.95. Innifalið er salat og Misosúpa. Á þessum góða góða stað pantaði Kelly sér grænt sallat. Hún var með þetta ljóta bleika hár og var að borða með einhverjum hljómsveitargaur sem ég kannaðist ekki við.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:05







Það er að komast á þetta regla
Byrja að vinna á morgun. Ég hlakka mikið til, það er alveg frábært fólk að vinna þarna. Ég verð með Cristalle á vöktum. Vúp vúp.
Ég fór í fyrsta magadanstímann í dag hjá honum Yousry Sharif og vá ég er dáin í öllum líkamanum. Ég er samt bara í intermediatetíma, standardinn hjá honum er roooosalegur. Hey, asíska konan í Grey's Anatomy og Sideways er í flamencotímum í sama dansstúdíói. Þarna eru líka krakkatímar og foreldrarnir sem senda börnin sín þarna eru STÓRfurðulegir og vilja allir að börnin sín verði Broadwaystjörnur. Því miður eru krakkarnir of ófríðir til að meika það í þeim heimi. Því miður.
Ég fór á tónleika í gær með CrackedOut og Reggie Watts og MC Chris. Atli Viðar sagði þegar ég sagði honum það: MC CHRIS? HEFURÐU ALDREI SÉÐ MC CHRIS BOLINN MINN? Og þá er MC Chris eitthvað gríðarlegt name. Og það voru svona 30 manns á tónleikunum.
Ég veit ekki hvort ég á að skella mér á DJ settið hennar Shandi eða vera heima og teygja á. Ég held að ég endi á því að teygja bara á.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:36







20.6.07 :::

Ég fór í dag í laundromatið. Mér finnst algjört sport að fara í laundromatið vegna þess að ég hef séð það í svo mörgum sjónvarpsþáttum. Ég byrjaði á því að fara og kaupa mér þvottaefni því að Adam notar eitthvað þvottaefni sem lyktar illa. Hann er með einhver ofnæmi og eitthvað. Hommnæmi. Þegar ég stóð og valid mér þvottaefni mundi ég eftir Überweiß-þættinum í Friends. Cúl men.
Þegar ég kom inn var óendanlega harður gaur að setja í þvottavél, síðan blótar hann allsvakalega eins og hann hafi gleymt einhverju. Hann snýr sér að gamalli spænskri konu og spyr hvort hann megi fá smá mýkingarefni hjá henni. Dúlló.
Annars er þetta Laundromat sneddí. Maður getur verið með margar vélar í einu og þvegið svart, litað og hvítt á sama tíma (eitthvað sem tók allt of langan tíma með eina þvottavél) og síðan skellir maður öllu í monsterþurrkarann.
Ó, hvað það verður gaman að hafa gott val um í hvað ég eigi að fara á morgun.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:50







19.6.07 :::

Í gær hitti ég þennan mann

Þennan til vinstri sko.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:54







18.6.07 :::

Í gærkvöldi fór ég aftur á Whitest Kids You Know og þessir dúddar hituðu upp. Þeir eru tvillar og þetta er eina atriðið þeirra. Þeir eru æðislegir.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:47







17.6.07 :::

Geit í kvöld
Jájá. Það er stemming hér í Brooklyn. Líf mitt tekur sífellt meira á sig mynd sjónvarpsþáttar. Adam, sem deilir með mér ást á indverskum mat og karlmönnum, var að bitcha yfir fyrrverandi í allan gærdag, en í morgun þá hitti ég þennan mann bara í eldhúsinu sem sagði mér að þeir ættu ársafmæli á miðvikudag. "We've been on and off." Jahá.
Síðan er ég víst að fara að hitta einn mann í kvöld sem er voðalega sætur og indæll. Reglurnar sem fylgja þessu eru hroðalega flóknar. Ef ég borga fyrir mig þá er ég dóni. Ef ég borga fyrir okkur bæði er ég asni. JAHÉRNA.
En ég ætla ekkert að lesa of mikið í neitt, ætla bara að láta eins og hann sé voðalega indæll að hafa ofan af fyrir mér á meðan ég þekki ekkert of marga.
Þessi gaur er alltaf að bjóða mér á tónleika. Hann er vinur vinkonu minnar, en hann er einn af karaokefastafólkinu, svo að það býður nú bara upp á eitthvað vandræðalegt.
OG! Ég byrja að vinna í næstu viku.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:14







16.6.07 :::

Perks
Devon, sem ég leigi af herbergi vinnur fyrir svona bjútímag. Ég hef aldrei á ævi minni séð svona mikið af snyrtivörum eins og hérna. Notaðu bara það sem þú vilt, ég fékk þetta allt gefins. Síðan eru hún og Adam sem býr með mér að fara að stíla einhverja töku og mega EIGA fötin að henni lokinni. Og þetta er eitthvað designerdót.
Ég fæ nú bara að borða á staðnum sem ég vinn á og finnst það bara fínt.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:21







Íbúðin mín er æðisleg. Ég er með riiiiisastórt herbergi og herbergisfélagi minn hefur jafn mikinn áhuga á indverskum mat og vöfflum og ég. Í íbúðinni eru harðviðargólf og stórt eldhús og pínulítið krúttbaðherbergi. Internetið heitir Twatsuck. Devon býr hinum megin við götuna.
Hverfið er gríðarlega hip og cúl, og hérna býr bara ungt fólk í vintage fötum. Sem er gaman já.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:17







13.6.07 :::

Svona er lífið
Síðasta sunnudag kúkaði á mig fugl en það er allt í lagi því að síðan sá ég J Lo OG!!!! Ricky Martin. Blap blap. Síðan borðuðum við á Spice Market og ég dó af matargleði. Það jafnast of fátt við matargleði.
Síðan fór ég á Pianos og talaði við Carlo, nýja bossinn minn og hann er tussuhress bara. Ég sá líka Whitest Kids You Know og Cracked Out (hlustið á lagið FUPA og líf ykkar mun breytast að eilífu!!!).
Síðan bara þetta venjulega, Karaoke Killed the Cat og allt það. Jájájá. Ég söng Ooh Ah Just a Little Bit með Gina G og ég og Kate sungum saman C'est La Vie með B*Withced. Enginn Ameríkani þekkti lagið en what the hell maður.
Hey og ég er með símanúmer hérna!!! Og í allt sumar. Það er +1 347 302 6507.
Ég fer að skoða íbúðina mína annað kvöld. Blap blap.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:36







7.6.07 :::


Það væri gott að fá að vita hverjir munu sjá sér fært að mæta á morgun, til að geta gert ráðstafanir með alls kyns.

Og ég vil ítreka þetta með að það má endilega vera með uppákomur. Ég veit um eina sem verður um miðnættið. Uppáferðir eru líka í boði fyrir þá sem vilja.

Díses fokk ég er svo fyndin.

Annars er ég bara að pakka. Ég er með of mikið af kjólum og hælaskóm. Neinei. Hah.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:52







4.6.07 :::



Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:37







3.6.07 :::




Djók

Jæja, þá er "djók í poka" búið að ná útbreiðslu eftir 9 ár af því að reyna að breiða þetta út. Hún Elín Eva sagði þetta í fyrsta sinn um haustið 1998 í balletskólanum við hann Guðmund balletkennara. Hann móðgaðist eitthvað við það, svo að þetta festist mjög fljótt í sessi.

EN!!! Ég var að fatta nýtt núna áðan þegar ég var að tala við Arnór á msn. Þegar eitthvað er svakalega mikið djók, s.s. stærðarleg andstæða djóks í poka, þá segir maður Djókback Mountain.

Þið megið byrja að nota þetta.

Einn tveir og nú.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:56







2.6.07 :::

Játning
Líf mitt er sjónvarpsþáttur.
Veit ekki hvort hann er drama eða grín, það fer allt eftir því hvernig síðasti þátturinn verður. Eins og í Shakespeare.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:48