Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






31.5.07 :::

Síðasti sjéns í Mokkaglens
Okay.
Á morgun, föstudag, er ég að spila í síðasta sinn á Kofanum áður en ég fer (fyrir utan næsta lau, en þá verða það ég OG Ingi).
Á laugardag er síðan síðasta magadansmadnessið með hópnum mínum áður en ég fer út. Ég dansa á Alþjóðadeginum í Íþróttahúsinu í Hafnarfirði. Við byrjum um 1, og dönsum 3 dansa, með 5 mínútna millibili. Megatöff og gaman.
Ef fólk vill eiga með mér félagslega unaðsstund utan þessa og kveðjupartýsins 8. endilega hafa samband.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:56







Nýja heima.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:28







Sárvantar!
Endurskoðanda sem talar ensku! Erlend vinkona mín með eigin atvinnurekstur á Íslandi fær nákvæmlega enga þjónustu hjá skattinum, það er allt vesen fyrir hana og hún þarf alltaf að vera með túlk með sér. Sárvantar góðan enskumælandi endurskoðanda, ASAP. Þekkirðu einn þannig?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:27







28.5.07 :::

Ég er búin að vera svo tussuöflug um helgina
Tsh-tsjing eins og segir í laginu. Ég ætlaði að kíkja á mannlífið í gærkvöldi, en ákvað að vera bara heima í náttfötunum að borða hnetutopp. Það var tussuskemmtilegt.
Haha. Hér var maður að spyrja um hvali sem maður sæji frá Reykjavík. Ég var alveg: Já, dolphins, minke whales, and humpback whales.
"Achso, dolpies minkies and humpies."
Haha. Api.
Síðan er fólkið skemmtilegt sem verður reitt þegar það er ekki hægt að fara í Landmannalaugar á hvaða tíma árs sem er. Þá er maður alveg miður sín og afsakar íslenska náttúru. Þá verður fólk alveg brjálað og spyr af hverju við byggjum ekki brýr og alvöru vegi. Þá pissa ég yfir viðkomandi.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:28







22.5.07 :::


Stokkhólmur
Vávávávávávávávává.
Ég á engin orð yfir þessa hátíð. Stórfenglegt, dásamlegt, frábært komast ekki nálægt því að lýsa þessu. Mig langar svo mikið að senda Mohammad og Zeinu ímeil og þakka fyrir mig, en ég á bara engin orð ennþá. Ég ímeila þeim um leið og ég finn orðin. Festivalið er haldið ár hvert í Svenska Balletskolan, sem er staðsettur í gömlu brugghúsi sem er gríðarlega stórt, með milljón sölum og frábæru danssviði. Skólahúsið sést hér til hliðar. Kaffistofan uppi bauð upp á arabískan mat í hádeginu, en þar sem ég prumpa svo mikið af arabískum mat ákvað ég að sleppa því… En þarna var líka basar með fullt fullt fullft fullt af magadansdóti. Ég keypti mér næstum búning, en ákvað að gera það ekki, þar sem ég á 3 draumabúninga nú þegar.

Við lentum um miðjan dag á miðvikudaginn. Ég fékk lykla hjá Gulla sem var á Íslandi í síðustu viku, og fór beint hingað heim. Hringdi í hann þegar ég var komin inn úr dyrunum, og þá kom í ljós að hann var bara enn á Íslandi og ég hafði slotið út af fyrir mig. Jibbígaman.

Þá um kvöldið fórum við að borða á líbanskan veitingastað. Við pöntuðum okkur svona "Já góðan dag ég ætla að smakka allt," sem voru 18 réttir sem komu á borðið. Ég borðaði mjög mikið og stelpurnar hlógu að því hvað ég væri mikið trunta og brussa.
Ég valt heim með Margréti og Nadiu í eftirdragi því að þær gistu á stað sem þær voru ekki nógu sáttar við og þær lúlluðu hjá mér á meðan Gulli var á Íslandi.
Síðan lúrðum við okkur því að festivalið byrjaði daginn eftir. Mastertímarnir voru 2 og hálfur tími, og það þýðir ekkert að slaka á í þeim.

Á fimmtudeginum mætti ég í tíma hjá Yousry Sharif, þeim sem ég er að fara að vera hjá í New York. Hann er svona 55 ára gamall maður með bumbu og yfirvaraskegg. Tíminn hans var endalaust púl og mikil tækni og innlifunin hans í dansi er rooooosaleg. Hann er án efa einn besti kennari sem ég hef verið hjá, aginn er rosalegur og tíminn líður hratt. Ég fékk margar blöðrur á lappirnar í tímanum hans. Ég þurfti að skipta um bol í miðjum tímanum vegna svita. Ég hef aldrei á ævi minni svitnað jafn mikið.
Í hádeginu fór ég á mjög góðan sushi stað við skólann, Dragon Sushi og settist til borðs með magadansmær frá Rússlandi. Hún var svolítið furðuleg, en voðalega indæl. Sushiið var gott og motherfokking ódýrt. Ég fékk 14 bita fyrir 900 krónur íslenskar, og ég var alveg pakksödd. Auk þess var þetta hollur matur fyrir átökin. Ég borðaði hádegismat á þessum stað alla daga nema einn, þá borðaði ég sushi í kvöldmat. Djöfull er ég töff.
Seinna þann dag fór ég til Tito í tæknitíma. Tito, sem sést hér til hliðar dansa ofan á trommu með vatnspípu á hausnum (já ég veit, megacúl) er einn allra besti dansari sem ég hef séð á sviði og fá hrós og bros frá þessum manni (þrátt fyrir að hann sé brosmildasti maður heims) er alveg rosalegt. Hann kenndi mér og öðrum rosalega mörg svona crowd-pleasing trick eins og að ... nei þið skiljið ekki termínólógíuna.
Seinna þetta kvöld var sýning og keppni, og Josy var í 3. sæti ásamt Lenu Astrid. Sýningin var frábær eins og alltaf.

Á föstudeginum þurfti ég að labba framhjá sviðinu þar sem Ahmed Fehry, Tito og Ousama Emam voru að æfa sig. Ousama var ber að ofan og ég fór nett hjá mér. Sjiiii svo flottur.
Við æfðum á sviðinu á föstudag, og það gekk svakalega vel. Sumar voru samt ósáttar með plássin sín eins og gengur og gerist. Ég var á sama stað í fyrra, á stað sem er kallaður dúlluhornið, fremst lengst til vinstri við hliðina á Soheir vinkonu minni.
Ég var bara á einu námskeiði á föstudag, aftur hjá Yousry Sharif. Tito kom og horfði á því hann var svo skotinn í einni vinkonu minni híhíhíhí. Khaled Mahmoud sagði samt við Josy: "Ha? Er hann skotinn í Fífí? Já en, hún er lesbía..." og hafði þá lesið aðeins of mikið í knús okkar Fífíar og kelerí. Stelpu sem var dónaleg og bar ekki neina virðingu fyrir Yousry var hent út, við mikinn létti þeirra sem eftir voru.
Nawal var í þessum tíma, hún er svakalegur dansari frá Marokkó og hún var bara eitthvað að dansa.. fyrir framan mig.... þetta var allt frekar steikt og varð ennþá bilaðra þegar Mohammad Khasefy bættist við. Hann stjórnar víst Reda-troup núna og er rosalegt big shot, þrátt fyrir að mér finnist hann svakalega furðulegur gaur. Síðan var maður að snúa sér og rekast óvart í Camilla Lombardi og Khasefy og Nawhal. Þetta var svo steikt.
Ég fékk mér falafel í brauði á Folket’s Kebab í kvöldmat, sem er svakalega góður kebabstaður sem er nálægt skólanum. Þar er gosbrunnur og alltaf þegar5 ég fer þangað er ég eini óarabinn þar. Ætli það segi ekki ýmislegt um gæði staðarins...



Um kvöldið var sýning þar sem Aida Nour (hér að ofan) dansaði meðal annara. Hún er svo frábær og falleg á sviði. Rétt fyrir sýninguna fór ég baksviðs með Soheir og Maher og við vorum að skooða búninga sem hún hannaði. Enn á ný fékk ég svona: Vó, ég er bara eitthvað í búningsherberginu hennar Aidu og hún og Maher eru eitthvað að djóka bara.
Eftir þá sýningu tók ég þessa frábæru mynd hérna:

Þetta eru frá vinstri: Vivien Malova, einhver kall, Mahmoud Reda, Ousama Emam, Farida Fahmy, Lubna Emam, Yusry Sharif, Khasefy, Ahmed Fehkry og fyrir framan eru Magdy El Leisy, Tito og Zahra. Og hér er vídjó af öllum að dansa saman. Snilld.


Þegar ég kom heim var Gulli kominn heim. Hér er mynd af honum að búa til leðurvesku fyrir kærustuna sína.
Við æfðum aftur á sviðinu á laugardag. Einu sinni stóð Maher í miðjum hring og var að leiðrétta okkur eitthvað, þá kom Ousama Emam og stillti sér upp í miðju hringsins, við hliðina á Maher, og sagði eitthvað á arabísku og þeir hlógu ýkt mikið. Hann hafði víst sagt: Oh, mig langar að prófa að vera þú, bara í eina mínútu. Arabarnir voru mikið að öfundast út í Maher að vera með langsætustu stelpurnar í sínum hópi. Liggaliggalái ha.
Síðar þann dag sprakk víst allt einhvernveginn allt í háaloft og ég var glöð að gista langt í burtu því að mórallinn sem myndaðist á milli íslenska hópsins og einnar konu í þeim danska varð hræðilegur. Ég vissi ekki af þessu fyrr en síðar og var fegin að hafa bara skellt mér í H og M. Við æfðum mikið á laugardeginum, enda vorum við að sýna þá um kvöldið. Vinkonur mínar voru illa særðar, svo ég drap hana með augunum þar sem eftir lifði hátíðarinnar.
Ég keypti mér sushi og borðaði það í magadansbúning og vá hvað það er leiðilegt að það sé ekki til mynd af því, þar sem þetta tvennt er alveg svakalegt. Margrét í hnotskurn.
Hérna er mynd af plakatinu fyrir sýninguna. Stóru nöfnin fengu svona mynd af sér, þarna eru Tito og Nawal og Virginia og Maher Kishk & Shams El Amar (Egypt/Iceland/Denmark)
Sýningin gekk vel og fólk var ánægt, þrátt fyrir að sumir hefðu víst hneykslast á því af hverju það voru betri dansarar í öftustu röð en flestir í miðjuröðinni. Oh well.
Síðan var stórt dansipartý, þar sem hann Jamal söng. Það var líka frekar furðulegt.

Á sunnudeginum var ég svakalega þreytt í öllum líkamanum. Ég fór snemma út að reyna að finan silfurstrigaskó fyrir mömmu, fann bara einhverhar amöbur og íþróttainnyflaskó. Ég keypti mér samt hvíta rokkstrigaskó, sem ég passa ekki í í dag því ég er svo bólgin á löppunum. Töff.
Ég fékk mér að sjálfsögðu sushi í hádegismat og fór síðan í Pop Shabi tíma til Tito. Hann vildi ekki segja okkur hvað lagið þýddi, en eftir smá stund kom Magdy El Leisy inn og þýddi það fyrir okkur. Línur eins og Ameríkanar hugsa bara um peninga og ættu frekar að kunna að njóta lífsins eins og við Arabarnir, og ef þú lifir ekki fullnægjandi lífi ætti Allah að kippa þér úr sambandi voru alls ráðandi, og orsökuðu mikið tíst hjá okkur stelpunum. Ein rússnesk var alltaf geðveikt að reyna við Tito og ég myrti hana með augunum. JEIJ.
Þá um kvöldið fór ég með Gulla og Jeanette kærustunni hans út að borða á indverskan veitingastað þar sem ég brann í munninum en hélt áfram að borða. Ég er hetja ég veit. Maturinn kom í svona skemmtilegum flugvélabökkum.
Ég sofnaði snemma og vaknaði um 4 til að taka leigubíl niður að bátnum þar sem stelpurnar gistu, og síðan fórum við á flugvöllinn og misstum næstum af flugvélinni vegna þessarar biðraðamenningar í Svíþjóð.
Við komumst þá heim heilu og höldnu en lentum í snjókomu og síðar hagli. Hvað er að???

Svíar eru rosalega mikil biðraðaþjóð. Það vantar allt þetta "gera græja redda" í þá. Konurnar í H og M og starfsmenn Mcdonalds vinna á sama hraða hvort sem það er enginn að bíða eða 30. Hins vegar eru þeir algjörlega búnir að mastera rennilásapælinguna hans Önundar.
Og hér er mynd fyrir Ásdísi:


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:10







20.5.07 :::

Ég er í Stokkhólmi
Þetta er búið að vera stórkostlegt og dásamlegt og ég blogga um þetta allt þegar ég fæ myndir og vídjó... ég á nefnilega dansipartývídjó af Aida Nour að dansa við Tito, og Fridu Fahmy að dansa við Mahmoud Reda. Hér er allavega vídjó fyrir ykkur sem vitið ekki hver Farida Fahmy og Mahmoud Reda eru. Þau eru dásamleg.

Næsta ár vil ég fara til Faridu Fahmy, mig langar líka að fara í tablatíma hjá Ahmed Fehkry (að læra að spila á tablatrommu, mismunandi hrynjandi og svona) auk þess sem ég ætla aftur til Yousry Sharif, ef ég fæ ekki ógeð á honum í sumar. Mig langar líka að taka stuttan Bollywoodtíma... en ég veit ekki.
Síðan er búið að bjóða mér á Mahmoud Reda workshop í haust í Kaupmannahöfn yfir eina helgi. Ég sagði játakk við því.
Annars eru arabarnir alltaf að öfundast út í Maher því hann er með sætustu stelpurnar í sínum hópi. Ousama Emam er víst alveg veikur fyrir okkur. Sem er frábært því hann er án efa flottasti maður sem ég hef séð beran að ofan. ÁN EFA. Síðan talar hann með dýpstu bassarödd sem ég hef heyrt.
Vá hvað þetta var leiðilegt namedropblogg og þið fattið ekkert hvað þetta eru sjúk namedrop sko.
Ok.
Ef ég væri á tónlistarfestivali væri þetta svona:
Aida Nour - Madonna
Tito - Jack White
Farida Fahmy - Maria Callas
Mahmoud Reda - John Lennon
Síðan söng Jamal live í patýinu eftir sýninguna í gær.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:02







15.5.07 :::

Á morgun
Held ég í gleðiferðalag til Stokkhólms. Enn á ný heldur hópurinn minn, Shams El Amar, á Stockholm's Bellydance Festival, stærsta magadansfestival í Evrópu. Í þetta sinn fara margar grúppíur með, og þetta er allt saman gríðarlega skemmtilegt og spennandi. Ég gisti sem fyrr hjá Gulla frænda mínum, sem glöggir sáu kannski í fréttunum í gær í einhverju boði hjá forsetanum með Helga Tómassyni. Hann er balletrassi í konunglegu óperunni. Þegar Gulli var nýbyrjaður í ballet leiddist Óla athyglin sem hann fékk og sagði pabba mínum, í mikilli heift: "Ég skil þetta ekki. Hann labbar bara með klemmdan rassinn í klukkutíma."
Ég ætla hins vegar ekki að klemma rassinn heldur slaka á honum og hrista hann mjög hratt. Ég ætla að taka tíma hjá Yousry Sharif og Tito og kannski að ég skelli mér á eitthvað annað ef tími og nenna og peningar leyfa. Eða eitthvað. Efast samt um að 10 dansklukkutímar séu of lítið yfir svona stuttan tíma, þar sem allur aukatími færi líklega í að æfa atriðin okkar. Við dönsum þrjá dansa, enginn þeirra er "týpískur" eða svona það sem ykkur heimska fólkinu dettur í hug þegar þið hugsið um magadans. Hehe. Wink wink. Fyrst er það hinn sívinsæli turtlesdans, þar sem vð dönsum í kjólum úr alvöru gulli og með stafi. Þið hafið séð myndir af mér dansa hann og þið sem eruð vinir mínir í alvöru hafið séð mig dansa hann á sviði.
Síðan dönsum við Melaya, sem er dansaðir í knallstuttum kjólum og með dúska á höfðinu og risastóra pallíettuslæðu. Svakalega krúttilegt. Minn kjóll er samt svolítið ódýr og ég er ekki mikið krútt í honum, en ég læt mig hafa það. Ha. Ég er meiri big mac-bolla í honum en krútt.

Og síðan baladi, sem er dansaðir í heilum búningum, helst svona fínum eins og þessum:

Ég hlakka til. Taskan er tilbúin, fötin sem ég ætla að fljúga í eru að þorna, og stafurinn er tylltur upp við töskuna. Ef ég gleymi honum þá er ég dauðans matur.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:45







13.5.07 :::

Mögulega besta mynd internetsins


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:52







12.5.07 :::

Gott plan!
Ég er að spila í kvöld á Kofanum, ef þú ert búin í prófum kíktu á mig því að tjah með því að fylla staðinn af góðu fólki þá er leiðilega fólkinu ekki hleypt inn. Vúbbídei!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:27







11.5.07 :::

Snúður
Ég er í rauninni voðalega lélegur plötusnúður. Ég er samt að læra á traktor svo ég er að verða betri. Ég held að hluti þess hvað ég er léleg er hvað ég spila mikið á sama staðnum fyrir sama fólkið. Kannski var það cúl og edgy að biðja um Bonnie Tyler eða Queen í ELLLLDGAMLA DAGA, en gvuð minn almáttugur hvað fólk getur oft verið frekt og leiðilegt. Ég spila ekki Total Eclipse tvisvar sama kvöldið, og ef þú misstir af því í fyrsta sinn ætla ég ekki að gera starfsfólkinu það að spila það aftur. Sömuleiðis vill fólk ekki fá "nei." Mér finnst betra að segja nei ég vil ekki spila þetta heldur en já og spila það ekki. Fólk kann ekki að meta þessa hreinskilni. Skemmtilegar líka stelpurnar sem biðja um lag, sem maður spilar, og síðan segja þær um leið og það er búið: VILTU SPILA ÞAÐ AFTUR???
Ég nota alltaf tölvuna mína til að spila. Á meðan ég er að spila er ég með alls kyns dót opið, er til dæmis að taka til í myndunum mínum eða hreinlega tala við vini um trúnaðarmál á msn... en stundum þarf ég að hlaupa inn í eldhús til að stilla hljóð eða fara frá til að pissa. Fólk á það til að FARA Í TÖLVUNA MÍNA Á MEÐAN. Ég reyni alltaf að fá dyraverði til að koma og standa við tölvuna mína, en stundum reynir maður að bíða eftir þeim í klukkutíma og síðan þarf maður að pissa ýkt mikið. En að stelast í tölvuna... Hvað er það? Sömuleiðis treður fólk sér alltaf inn á mitt svæði og vill sjá hvað er næst, sem er fáránlegt, þar sem ég raða lögunum as they come into my head.
En þegar það er gaman, þá er sko gaman. Þá er þetta skemmtilegasta vinna í heimi. Sömuleiðis er þetta besta afvötnun í heimi - að horfa á drukkið fólk meðan maður er bláedrú sjálfur. Og maður er auðvitað með smávegis cúlstatus á meðan á öllu stendur.
En ég hata samt Queen og Michael Jackson og mest allt eighties.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:22







10.5.07 :::

Mér finnst að Grikkland ætti alltaf að senda Sakis Rouvas í Júróvisjón.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:51







Lífið er svo flókið
Að ég þarf að setja þetta upp í excel.
Dísús fokk.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:16







9.5.07 :::

Svíar
Ég fæ svo mikinn aulahroll yfir sænskum hreim á ensku. Frekar vil ég mögla á skandinavísku en að tala ensku við þetta fólk. Nú heitir hljómsveitin sem spilar fyrir Sverige í Evrósýn The Ark. Og ég spái þeim sigri. EN. Hljómsveitarmeðlimir bera nafnið fram sem "The Arkj." Arrrrrgh.
Takk.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:24







7.5.07 :::

Oh, Darcy
"It is a truth universally acknowledged, that a single man in possesion of a good fortune, must be in want of a wife."
Þessa dagana sofna ég út frá DVD-disknum Pride and Prejudice, BBC þáttunum, sem systir mín á. Pabbinn er dásamlegur, "An unhappy alternative lies before you. Your mother will never see you again if you do *not* marry Mr Collins, and *I* will never see you again if you *do*." Síðan er hann alltaf að segja hvað dætur sínar séu vitlausar sem er gríðarlega fyndið. Og mér finnst Lizzy miklu sætari en Jane, sem á víst að vera sæta systirin.
Ég er bara búin með 2 þætti, og Darcy er ennþá algjör kúkalabbi... en hann var svo sætur að dansa svona sætan samkvæmisdans að ég veinaði JESÚS ÍSLANDS oft. Ég er samt alveg á því að þessi hártíska komi aftur hjá karlmönnum, og helst bara allt lúkkið. Játakk.

(Colin Firth fær mig til að skrifa samhengislaust)
(Ég vil vanga við hann)


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:30







6.5.07 :::

Voodoo Child
Fyrst ég kann hvorki vúdú né svarta galdur verð ég að beyta hinni margfrægu: Ég þekki þig ekki og er því mjög kurteis og köld-aðferðinni.
Alexöndru Kjeld eru veittar þakkir fyrir hugmyndir og andlegan stuðning.
Ég er samt megaforvitin að vita hvað er í pakkanum sem verður aldrei opnaður. Kannski að hann verði brotinn með hamri. Hver veit?

Ef þú þekkir mig ekki neitt meikar þessi færsla ekki sens. Sorrí.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:18







5.5.07 :::

Önnuformið
Próf: 2 af 4 búin.
Sumarvinna: Það vita það allir. Hey: Ég fæ að skrifa áfram fyrir express, það er komið á hreint og ég er MEGAGLÖÐ.
Mataræði prófatarnar: Gott. Mikið sushi því að ég segi sjálfri mér að það sé hollt fyrir heilann. Mikill ís líka, vegna kalksins. Já maður.
Misskilningur prófatarnar: Erfiðasi hluti semantics prófsins prentaðist ekki á blaðið! Miskilningur milli Matthews og prentfólksins. Æðislegt. Ég held að ég fái hæstu einkunn háskólaferilsins í þessu fagi.
Félagslíf: Lítið afmæli í byrjun, er samt alveg búin að skella mér í bíó og dansa mikið. Vinnurnar mínar passa að ég einangrist ekki.
Félagslíf framundan: Eurovision hjá Rósalind, Stokkhólmur og allt.
Kosningar: Hugsa að ég kjósi Svíþjóð.
Sumartilhlakkanir: Stokkhólmur og New York maður. Og að koma heim aftur.
Draumfarir: Litlar.
Prófaheilinn: Hress bara.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:52







4.5.07 :::

Jöfnum launamun kynjanna
... stendur á nokkrum strætóskýlum í bænum með voða sætri mynd af Össuri og Ingibjörgu. Neinei, engar áhyggjur, ég ætla ekkert að vera pólitísk hérna. EN! Þetta er svo röng setning að ég veit ekki hvar á að byrja. Ég geri líklega ráð fyrir því að þau vilji að kynin séu jöfn að launum, og þá ætti frekar að standa: Útrýmum launamun kynjanna. Að jafna muninn er frekar fáránlegt, það er ekkert til sem heitir jafn munur nema í samanburði á tveimur mismunum, eins og 2-1=3-2.
Nema auðvitað að það sé verið að meina að munur á launum kvenna og karla eigi að vera jafn í öllum sveitarfélögum eða í öllum stéttum. Or somefink.
Er ég kannski bara með skrýtna máltilfinningu?

P.S. Mikið er alltaf gaman að sjá hvað hárið og tennurnar á Ingibjörgu lagast í kringum kosningar.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:10







Ice, Ice, Baby





Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:11







2.5.07 :::

Nýtt barn
Það er til eitthvað í magadansheiminum sem heitir að vera costume addict.

Ég náði að selja nýja bláa og rauða búninginn minn í gær, fyrir samtals mikla peninga, og keypti þennan á ekki svo mikla peninga. Hann er megatöff. Nú á ég 3 - Hvíta, túrkís og þennan.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:55