Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






30.4.07 :::

Bækur

Ég les ekki mikið af bókum fyrir utan skólabækur. Jújú, af og til glugga ég í matreiðslubækur og hafa slíkar bækur verið þær einu sem hafa fengið að lúra á náttborðinu mínu. Mér finnst samt ekkert asnalegt að lesa bækur, ég hef bara ekki gaman að því lengur. Áhugamál mín liggja annars staðar; Í mat, dansi, músík og faðmlögum.

Ég heyrði um daginn viðtal við Guðrúnu Helgadóttur í útvarpinu. Þar talaði hún um að allir væru "bara hættir að lesa" og að "ungt fólk vissi ekki neitt því það læsi ekki neitt." Ég veit nú um fullt af fólki sem les mikið en veit samt ekki neitt, t.d. þeir sem lásu allt Ísfólkið á einum mánuði, en það er nú önnur saga. Hún talaði um að í nútímasamfélagi væru börn og unglingar ekki hvattir til lesturs; "Hversu oft hefurðu séð spurninguna: Hvað ertu að lesa? í viðtali við til dæmis Eið Smára?" og síðan sagði hún að það væri nú kannski allt í lagi að sleppa því að mæta á eina og eina íþróttaæfingu til að vera heima og lesa, því að íþróttir "tækju svo mikinn frítíma af unga fólkinu." ÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖ. Ókei. Ég held að það séu sárafáir sem eru í íþróttum af einhverri kvöð svipaðri og þeirri að þurfa að vera í skóla. Ef maður mætir ekki á æfingar heldur þjálfarinn að maður sé metnaðarlaus. Auk þess gæti maður misst af mikilvægri lexíu eða eitthvað slíkt.

Mér fannst þetta virkilega skrýtið í ljósi þess að það er að koma sumar. Ég skil upp að vissu marki fullyrðinguna: "Unga fólkið les ekki, það horfir bara á sjónvarp og er í tölvunni." En ég skil ekki fullyrðinguna "Unga fólkið les ekki, það er bara alltaf í íþróttum." Í fyrsta lagi eru lestur, sjónvarp og tölvur svona huglæg áhugamál eða áhugasugur. Íþróttir eru líkamlegar og krefjast þess að maður haldi sér í góðu formi og sé ætíð viðbúinn. Æji, ég veit ekki alveg hvernig ég get lýst því af hverju mér finnst þetta skrýtið. Síðan er líka það að sama fólk tuðar líka yfir hreyfingarleysi barna. Ég sé ekki að það sé nein líkamleg hreyfing í bókalestri.

Heima hjá mér er ekki lesið mikið. Við finnum okkur kannski ekki tíma í það, gefum okkur ekki tíma. Við erum öll í öllu, systir mín er með prógram hvert einasta kvöld held ég, ég líka, og mamma OG pabbi minn. Ekkert okkar er "bara í skóla" eða "bara í vinnu" eða "bara í einni vinnu." Áhugasvið okkar liggur ekki í bókalestri. Við erum nú samt alveg ágætisfólk, og pabbi minn er meira að segja kennari sem ætti kannski samkvæmt formúlunni að lesa voða voða mikið. Honum finnst bara skemmtilegra að veiða, og laun kennara hefta hann að miklu leiti, hann þarf til dæmis að vinna öll sín frí í veiðibúð.

Áhugsavið okkar mæðgnanna byggjast að öllu leiti á samskiptum við annað fólk. Við verðum eirðarlausar einar, sama hvort við höfum bók að lesa eða ekki.

Systir mín á að lesa svo og svo margar blaðsíður í skólanum í bókasafnstímum, ekki til að læra eitthvað, neinei, eða gera grein fyrir því í ritgerð eða að einhverju leyti, nei, bara til að lesa. Bara til að geta sagt: Ég las 200 bls í þessum mánuði eða eitthvað. Hún er gríðarlega frústreruð yfir því að vera gert að lesa "eitthvað bull sem gerist í hausnum á Þorgrími Þráinssyni." Lesa bara til að lesa er rugl. Allt sem maður gerir sem heyrir til áhugamála eða áhugasuga ætti að miðast að því að auðga andann. Ég fer ekki í magadanstíma og segi: "Ég kann x marga dansa" eða "í dag gerði ég 50 hreyfingar" því að það er bara rugl!

Er nokkuð óeðlilegt við það að með meira framboði á dægradvöl minnki partur þeirrar sem var allsráðandi, það er bókalesturs? Er bókalestur göfugasta áhugamálið? Eiga allir að hafa sama áhugamál? Hvernig var það annars þegar Guðrún Helgadóttir var ung? Ef maður var inni að lesa allan daginn, var þá ekki tuðað yfir að maður ætti að vera úti að vinna eða gera eitthvað af viti? Ekki verður bókvitið í askana látið.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:20







26.4.07 :::


Peningar, frami og ameríski örninn,
en hvað með börnin?

Við mæðgurnar fórum á Leg síðasta föstudag. Þið sem þekkið mig vitið hversu hrifin ég er af Hugleik og ég fór með miklar væntingar í leikhúsið og bjóst við leikhúsupplifun lífs míns. Og leikritið stóðst væntingar mínar.
Leikritið er stórfurðulegt og skemmtilegt, og hentar leikritun Hugleiksbröndurum gríðarlega vel. Tónlistin er líka mjög mjög mjög góð og ég dýrkaði allar vísanirnar í henni í misgóða dægurlagatónlist. Systir mín keypti sér geisladiskinn og erum við búnar að velkjast um af hlátri yfir stórkostlegu rími;
Við vorum full, við vorum gröð, við vorum ung,
ég var með nýrakaðan pung
;
og fyndnum sitúasjónum, maður í stórum kanínubúning að syngja:
Mikki vill ekki lengur vera með þér
ekki ástfanginn er
og þess vegna er ég hér
ég er syngjandi uppsagnarbréf
.

Við erum mikið búnar að velta fyrir okkur samt þessu með ameríska örninn. Ég bjóst alltaf við því að það kæmi maður í arnarbúning því að það væri bara gríðarlega fyndið, en nei. Allt kom fyrir ekki. Ég skildi því eftir komment á myspace-i Hugleiks, þar sem ég spurði: Hvað er málið með ameríska örninn? Og ekki stóð á svari: Hann rímar við börnin.
Ég verð að sjá þetta leikrit aftur.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:10







23.4.07 :::

Íslenskt lauslæti er bara fyndnara
Run Around Sue er ekki jafn gott og þetta lag hér fyrir neðan, sem er uppáhaldslagið mtit þessa dagana. Ég veðja á að Fúsi Sigurleifs hafi verið pabbinn í alvöru. En passið ykkur - það er auðvelt að fá þetta á heilann, og það er pínlegt því það er svo erfitt að muna í hvaða röð mennirnir koma.

Séleg pía er Sigga Geira
og sexappíl hefur flestum meira
Hlýtt er og notalegt hennar ból
hverjum sem býður hún næturskjól

Það vita:
Kalli Jóns og Gústi læknisins og Nonni Sæmundar
og Halli rakarans og Fúsi Sigurleifs
og Palli á Goðanum
og Denni á Efstabæ - og einnig ég.

En ekki má yfir miklu hlakka,
í mars þá eignaðist Sigga krakka
Sagt var að prestinum brygði í brún
er barnsföður tilnefna skyldi hún

Hún nefndi:
Kalla Jóns og Gústa læknisins og Nonna Sæmundar
og Halla rakarans og Fúsa Sigurleifs
og Palla á Goðanum
og Denna á Efstabæ - og einnig mig.

Nú urðu yfirvöld úr að skera
því ei má fjölgetið barn neitt vera
Slíkt þykir óhæfa hér til lands
og hópnum stefnt var til sýslumanns

Þar mættu:
Kalli Jóns og Gústi læknisins og Nonni Sæmundar
og Halli rakarans og Fúsi Sigurleifs
og Palli á Goðanum
og Denni á Efstabæ - og einnig ég.

Þegar úrskurðinn upp lokst kvað hann
allir flýttu sér burtu þaðan
Skálkar sem sluppu með skrekkinn þar
skunduðu kátir á næsta bar

Þar hittust:
Kalli Jóns og Gústi læknisins og Nonni Sæmundar
og Halli rakarans og Fúsi Sigurleifs
og Palli á Goðanum
og Denni á Efstabæ - en ekki ég.

Því þarna urðu mér örlög ráðin,
mér einum var sem sé dæmdur snáðinn
Hvenær sem lít ég það litla skinn,
læðist þó efi í huga minn

Hann líkist:
Kalla Jóns og Gústa læknisins og Nonna Sæmundar
og Halla rakarans og Fúsa Sigurleifs
og Palla á Goðanum
og Denna á Efstabæ - en ekki mér.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:05







21.4.07 :::

Ég er að safna peningum
Ef þig vantar einhvern til að elda fyrir matarboðið þitt og vaska upp þá er ég boðin og búin til þess fyrir peninga. Get eldað indverskt, ítalskt, sushi og svona smáréttaborð ef þú ert með saumó. Ég geri líka góðar humar-, gúllas-, tómatsúpur. Og góðan sjeik. Ég get auðveldlega eldað mat fyrir allt að 30 manns.
Auk þess tek ég að mér að dansa magadans og kenna hópum í heimahúsum, tilvalið fyrir einmitt saumóinn eða gæsapartý.
Síðan erum við Ingi gríðarlega góðir DJ-ar og erum tilvalin í próflokadjömm ýmiskonar og afmæli.
Síðan er ég að selja tvo af búningunum mínum, silfurlitaða með svarta pilsinu og rauða. Silfur og svarti kostar 20.000 en rauði 25.000. Mig langar ekki að selja rauða, en hann er of lítill og ég get ekki fyrir mitt litla líf stækkað hann fallega.
Einnig til sölu: Kvenmótorhjólajakki, ekki leður, heldur eitthvað nýtt cúl efni. Innan í honum er vattjakki sem er hægt að hneppa úr. Hann er líka með vörn á olnbogum, öxlum og herðablöðum. Hann nær svona að enda rasskinna og það er hægt að smella honum í alls kyns mótorhjólabuxur. Hann kostaði 350 pund, sem eru um 44.000, en ég ætla að selja hann á 34.000. Hann hefur aldrei verið notaður.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:10










Mamma mín

... er besta mamman. Við Vigdís og mamma vorum að keyra heim af Leg (sem er best, sjáið það NÚNA) og fórum á Aktu taktu. Okkur mömmu langaði í franskar. Vigdís vildi bara ís. Beran í brauðformi. Við rúllum upp að sjoppunni og ungur drengur enn í mútum spyr hvort hann geti aðstoðað. Já, sagði mamma, ég ætla að fá miðskammt af frönskum og einn barnaís, (hér kímir hún) beran í brundformi. Strákurinn fattaði ekkert, en við grétum allar úr hlátri. Og hann hélt að við værum að hlæja að sér og fór í svakalegan mínus og við gátum ekki hætt að hlæja.

Og -

Það var ógeðslega fyndið.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:26







20.4.07 :::

Þoliddiggi
Ég get ekki fyrir mitt litla líf þolað orðið bumbubúi.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:07







17.4.07 :::

Heitustu fréttir frá Amsterdam
Ingvari E. Sigurðssyni, sem mér finnst svaka töff og frábær, finnst ég víst vera gyðja og þreytist ekki á að tala um guðdómleika minn. Ég þekki hann samt ekki neitt, hann sá mig bara dansa í frumsýningarpartýi á laugardaginn.
Liggafokkinglái aftur.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:54







14.4.07 :::


Hver heldurðu að þú sért?
Afsakið, en ég verð að fá smá útrás.
Ég er að vinna hérna í Upplýsingamiðstöðinni og er logguð inn á msn svona til að létta mér lífið ef það er lítið að gera. Maðurinn frá landinu sem var einu sinni heimsveldi og býður upp á fisk og franskar er búinn að hegða sér undarlega síðan hann sleit þessu sambandi sem við vorum í, sem honum fannst víst sjúkt að því leytinu til að þetta var víst lítið annað en "endalaus og endurtekin sumarfríis-skot."
Hann er svakalega mikið að segja mér frá hljómsveitum sem hann er búinn að finna á myspace (vá til hamingju), youtube sketsa og svakamikið að tjékka á hvort ég sé eitthvað foj. Ég reyni að svara bara mjög hlutlaust og er ekkert að koma með eitthvað brjálað á móti, þó að ég missi mig stundum í þessu "none of your business."
Mér brá í brún þegar hann spurði mig hvort ég væri búinn að sofa hjá eftir að við hættum saman, um mánuði eftir að hann sleit þessu. 1. Hvað meinar hann? Ha? Sofa hjá? 2. Hvað ef ég væri að deita einhvern? Skiptir það minna máli? Strákar sko. Ha. Ég spurði hann af hverju í fjandanum hann vildi vita það. "Bara."
Fyrir svona 10 dögum síðan sagði hann mér síðan að hann væri búinn að kaupa hús. Og að það væri rétt sem ég hefði alltaf sagt, að maður ætti að velja hús út frá eldhúsinu. Húsið var einnig með garði "eins og ég vildi alltaf." Ég sagði bara "til hamingju". Húsið er samt skuggalega (og eiginlega sjúklega) nálægt uppáhalds-sushistað okkar Franks. Og hann benti á það í samtalinu.
Nú rétt í þessu þá kom hann á msn. Samtalið byrjaði svona eins og þau öll, hann sendi mér youtube link á smack the pony skets. Góðan skets, jájá, en kommon. Hann hélt síðan áfram að tala og hrósaði mér fyrir skemmtilegt headline á myspace-inu mínu. Síðan sagði hann: Og ég sá að þú er fráskilin! Já, sagði ég, það er fyndið og gefur utanaðkomandi ekkert of miklar upplýsingar. 3. Hverju átti ég að svara? 4. Hvað í andskotanum vill hann vita? 5. Og hvað kemur þetta honum við??? 6. Og af hverju lætur hann eins og þetta eigi að koma honum við? 7. Og af hverju er hann að minna mig á að hann sé að stalka mig í gegnum myspace?
8. Vill einhver segja mér af hverju honum finnst í lagi að vera svona sjúklega kammó við mig? Pabbi minn sagði við systur mína að honum fyndist hann ómennskur. Og það er alveg rétt að ýmsu leyti. Auk þess meika ég ekki að hann sé að stalka mig í gegnum myspace (sem hann hætti á um leið og hann hætti með mér). Ég nýt þess samt svolítið, vitandi að hann fylgist grannt með, að gefa tvíræð svör við survey-spurningum og þannig... en það er auðvitað sjúkt af mér. Ég hefði kannski getað gert mér þetta í hugarlund, hafandi lent í afbrýðissemi systur hans. Það vantar kannski eitthvað upp á uppeldið.
Vonum síðan bara að hann sé búinn að gleyma mestu íslenskunni. Ha.
Nú er ég búin að skrifa þetta hér og get hætt að velta mér upp úr þessu.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:06







13.4.07 :::

Í KVÖLD!
Ég dansa mikið mikið, og danski arabinn sem ykkur fannst svo fyndinn að leika flugvél verður þarna líka, Við dönsum meira að segja dúett. Síðan er það auðvitað turtles dansinn og "haltu kjaftu þú talar svo mikið ég fæ höfuðverk og langar að kyrkja þig"-dansinn (í alvöru, það er það sem hún segir í textanum). Síðan er Siggi Arent kynnir, svo að ef þið kæmuð að sjá okkur vinina væri það gotterí.
Nánari upplýsíngar á plakatinu!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:10







9.4.07 :::

Aumingja litlu túristarnir
Það er eitthvað skemmtilega dásamlegt við það að ferðast í gegum miðbæ Reykjavíkur að morgni á frídögum og sjá engan annan Íslending, bara túrista í 66 gráður norður / North Face / Cintamani úlpum. Alveg lost í öllu miðbæjardraslinu.

Ég var að vinna í uppló á föstudaginn langa. Ég hjálpaði manni sem var alveg: And one more question og samtals spurði hann 38 spurningA. Það hefði kannski verið í lagi ef það hefði ekki verið full miðstöð af fólki. Seinna þann dag var ég að spila á kofanum sem var gríðargaman utan smá tæknilegra örðuleika. Hann kom þangað aleinn. Hann var alveg í Dirty Weekend-fílingnum og dansaði við ungar ljóshærðar stelpur eins og í A Night at the Roxbury. Síðan tók hann hálft tóbasskot og yggldi sig mikinn. Síðan hélt hann áfram að dansa og flörta aðeins. Ég var glöð þegar ég sá hann fara einan heim, því að hann gisti á Hjálpræðishernum. Æjæ.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:54







3.4.07 :::



It's up to you...

Ég man óljóst eftir því þegar ég og Ásdís sögðum við hvor aðra: Við skulum fara á White Stripes tónleika einhvern tíma. Og það gerðum við. Við fórum til New York með Konna og Agli, og þegar ég kom heim þá hugsaði ég með mér að New York væri borg sem ég þyrfti að fara til gríðarlega oft áður en ég myndi deyja (já pabbi, ég er lúxudrusla).
Við Ásdís (og Egill í smá stund) fórum óvart á Karaoke Killed the Cat og yada yada yada... þau til Íslands yada yada ég óg Tom blabla. Síðasta sumar fór ég síðan aftur til New York, og hitti alla vini mína þar sem fögnuðu mér innilega, og það var erfitt að fara þaðan. Við höldum samt gríðarlega góðu sambandi tölvuleiðis.


Nú í febrúar hætti kærastinn með mér, og eyðilagði svolítið planið sem við vorum búin að gera. Eftir of mikið ísát og alltof mikið af "hvað er eiginlega að þessum dramatíska hjartalækni??" ákvað ég að búa bara til nýtt plan. Það gerði mér gott á sínum tíma að vinna úti á landi, svo að ég ákvað að skipta aðeins um umhverfi. Þar sem ég er í 4 vinnum með skóla, þá finnst mér ég eiga skilið að taka eitt sumar þar sem ég kem út á núlli. Það er líka stutt í að ég verði út i á vinnumarkaðnum, að minnsta kosti í takmarkaðan tíma.


Ég var 80% komin með hálfa íbúð, á móti Kevin Meyers í Upper West Side, en síðan ákvað vinur hans sem átti herbergið að leigja einhverjum hommavini sínum það. Hello, hvað er það? Svo ég sendi út message á Myspace í dag og bað karaoke-krakkana um að áframsenda. Bara í dag eru 20 manns búnir að svara. En! Devon þarf að losa herbergið sitt akkúrat þennan tíma sem ég var að tala um, og hún kemur til með að búa bara hinum megin við götuna! Auk þess sem crewið býr þarna allt í kring, þannig að þetta verður stuð. Þetta er meðleigjandi minn, hann Adam. Ég mun búa í Brooklyn rétt hjá honum Heath. Já, Brooklyn, eins og Frank Mills, þó ekki með hjálm á hausnum, en kannski í gatslitnum gallabuxum. Kannski.


Ég mun taka að mér ýmis "vinna heiman frá mér" verkefni, en ætla aðallega að taka magadanstíma hjá Yousri, Tito og fleirum. Auk þess ætlum við Shandi að taka nokkur DJ gigg saman, sem verður líklega gríðarbrjálað með endemum.


Þannig að í sumar verð ég að skrifa á Makkanum mínum, alveg eins og hún þarna krullubínan, síðan fer ég í laundromatið og þvæ af mér. Síðan hlusta ég á Hot Town, Summer in the City í fagra litla diskógrís á meðan ég bruna yfir Brooklynbrúna. Annars verð ég bara í þessu:


Ligga-fokking-lái.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:09







2.4.07 :::

Góður dagur
Brunch: Mangó, maísstöngull, brauð, sniglar.
Eftirmiðdagssnarl: Laxa og túnfisk nigiri sem ég bjó til sjálf.
Kvöldmatur: Lasanja sem ég er að fara að gera núna.
Bæbæ.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:15







1.4.07 :::

Gamalt samtal í kommentaþræðinum
Þetta er ekkert grín með suður-evrópska karlmenn og trú því alveg að hann hafi ekki verið að grínast. Þeir segja "I love you" eftir fyrsta koss og fylgja því eftir með línum eins og "our love is so beautiful and pure" til þess að geta riðið manni. Eða konu þ.e.
Una | Homepage | 04.18.04 - 11:48 pm | #

stundum manni...
Frank | 04.19.04 - 12:14 am | #

Oftast konu...
Ásdís Eir | 04.19.04 - 3:27 pm | #

Maður að ríða manni?

I don't get it!
margrét maack | Homepage | 04.19.04 - 10:49 pm | #

já þeir gera það víst, það heitir að vera samkynjahniginn
Frank | 04.19.04 - 11:22 pm | #


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:43








Bred for its magical skills?
While male ligers are sterile, female ligers are fertile, and they can reproduce. If a liger were to reproduce with a tiger, it would be called a ti-liger, and if it were to reproduce with a lion, it would be called a li-liger.
Meira um ligers á wikipediu


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:41