Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






31.3.07 :::

Note to self: Mímímí mímí mímímí mí.

Flokkar: ,



Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:21







30.3.07 :::

Vor í lofti
Sumarlag: Lollipop með Mika.
Jájá. Maður er bara í ísbíltúr og að fá sér bjór á fimmtudegi og hlæja en flissa samt meira. Og hóta stríðnispúkum limlestingum. Helvítis stríðnispúkar. Samt ekki. Eða jú. Samt.
Og hrista rassinn.
Og svona. Njóta vorsins bara ha.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:52







27.3.07 :::

Hah, töff
Ég er víst svo töff að ég er hetjan hennar Ásdísar. Það er gott. Því hún er mórölska hetja mín. Móralska heetjan mín, hvernig ertu í lit?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:23







Laugardagslög
Já ég veit. Það er þriðjudagur. Laugardagslög standa þó alltaf fyrir sínu. Sérstaklega þegar maður er að greiða sér. Reynið að nálgast þessi lög. Ef það er sjúkt erfitt get ég ímeilað þau áhugasömum.
Shambala með Three Dog Night.
Make me Smile (einnig þekkt sem Come up and see me (Make me Smile) ) með Steve Harley og Cockney Rebel.
Two Princes með Spin Doctors.
Karma Cameleon með Culture Club.
Freestyler með Boomfunk MC.
Hotel Song með Regina Spektor (og allt með henni).
Money með Bítlunum.
Daft Punk is playing at my house (... my housah) með LCD Soundsystem.
Insomnia með Faithless. Hvað? Finnið þið ekki REIVIÐ????
Your Woman með White Town.
Finnst ykkur þetta Holly Dolly song eitthvað gott? Það er ekki jafn gott og Cotten Eye Joe með Rednex.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:01







26.3.07 :::

Mamma og pabbi
Pabbi: Uuuu, Ragnheiður, hvað heitir síminn þinn?
Mamma: Hann heitir hérna.... uh, Nokia... Nokiason?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:52







Já, heimurinn snýst enn
  • Kristján Hreinsson rífur sig vegna Evrósýnar. Samúð mín liggur samt með honum, því hans texti er aðeins betri. Aðeins.

  • Paul MacCartney er búinn að semja við Starbux.

  • Ég er að smessa ýkt mikið. Ef ég var 17 ára síðasta sumar, þá er ég fokking 14 ára núna og því ekkert skrýtið að fólk ruglist á okkur systrunum.

  • Auðvitað vann systir mín og flokkurinn hennar Útivistarhelgi skátaflokka. Af 120 sem hófu ferðina, gáfust allir upp nema 11 manns.

  • Magadanssýning í Þjóðleikhúskjallaranum 13. apríl klukkan 9.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:12







25.3.07 :::

Pjetur og úlfurinn
Pabbi minn hefur enga samúð með mér yfir að enginn sé skotinn í mér.

P.S. Baráttan er vonlaus þegar miðin eru dauð...


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:35







24.3.07 :::



24. mars

Systir mín á afmæli í dag og er 14 ára. Ég vil nýta tækifærið og segja frá því að hún er ekki bara besta systir í heimi, heldur líka besti unglingur í heimi.
Hún er núna að þvælast með skátunum um Heiðmörk yfir svokallaða útilífshelgi, sem er svona amazing race milli skátaflokka. Jebb,í þessu veðri. Hún er með gemsann sinn, endilega sendið henni sms í síma 869 7242 og óskið henni til hamingju með daginn. Takk fyrir.

Já, ég veit, þessi mynd er besta mynd í heimi.

(Ég er að herma eftir Konna með þetta sms djók)


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:32







23.3.07 :::


Þið getið farið að búa til afsakanir fyrir því að komast ekki
Magadansfélagskapurinn sem ég er í stendur fyrir fjáröflunarsýningu 13. apríl klukkan 9 í Þjóðleikhúskjallaranum. Kostar bara 1000 kall inn. Ég er að dansa, Maher er að dansa, nemendurnir mínir dansa, magadansvinkonurnar dansa.
Mér þætti vænt um ef þú gætir komið.
Myndin er af Jesú, frænda mínum.

P.S. Ég fékk mér páskaegg í dag. Sagði við Vigdísi áður en ég opnaði það að málshátturinn ætti að segja mér hvort ég myndi ná mér í mann um helgina. Það er það sem ég svara þegar hún spyr mig hvað ég sé að fara að gera um helgina; Ná mér í mann. Já. Málshátturinn var á þessa leið: Barnalán er betra en fé. Ég á s.s. að fara varlega bara.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:04







22.3.07 :::

Lúxus problem
Leiðilegt þegar áhugavert fólk er ekki með myspace... Ég þarf að komast að ýmsu. Ásdís Geir er samt búin að vera hjálplegri en allt í þessu öllu, og fann ca 300 myndir. Ég þarf samt að fá að vita svona músík og bíómyndainterest, og hvort viðkomandi er týpan sem er með Jennu Jameson í topp 8. Ha.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:03







21.3.07 :::

Kæru nowgrannar
Já þá er systir mín að fara að fermast. Mikið var hugsa þeir sem halda að við séum tvíburar eða að hún sé byrjuð í MR, en hún er nú bara í 8. bekk svo þetta er allt á réttum tíma. Við vorum að klára fermingarkortin. Aftan á stendur eitthvað bíbíbí ég er að fara að fermast mímímí síðan er veisla heima. Dinner & Jokes.
Framan á kortinu er þetta:

Voðagaman.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:39







20.3.07 :::

Til þeirra sem vita hverjir þeir eru
Æji í gvuðanna bænum farið að blogga um eitthvað annað en Moggafréttir og þjóðfélagsmein.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:05







18.3.07 :::


Ungleg
Í dag héldu þrír aðilar að ég væri 13 ára gömul systir mín.
Það væri kannski allt í lagi og svaka fyndið ef að þetta hefðu ekki verið amma, afi og föðursystir mín. Ekkert hinum megin við götuna, heldur bara sitjandi við eldhúsborðið heima.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:29







Í vinnunni

  • Japanskt par: We want to go ski. Now.

  • Ég hlakka til að vinna 1. apríl. SEGI SONNA.

  • Ég er fyndnasta manneskja í heimi samkvæmt Konna. Sjá komment við færsluna.
    Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég reyndi að skrifa marga brandara í þessari færslu málinu til stuðnings, en það var best fyrir alla að vera ekkert að rembast. Þið verðið bara að fylgjast með.

  • Senn líður að sumri, og ég er með nokkur plön í gangi. Eitt planið er samt 100x skemmtilegra en öll hin, en ég kæmi nú ekkert út í plús neitt...

  • En áður en sumarið kemur, fáum við vor. Þá á ég afmæli. Mig langar í gong, falleg heyrnatól svona eins og í Rock DJ myndbandinu með Robbie og sápukúluvél sem fæst í Íhlutum, bestu búð í heimi, Skipholti.

  • Ég og Ingi pungbjörn spiluðum á árshátíð eðlis-, efna-, stærð- og matvælafræðinema í gær. Það var frábært en vá hvað fólk getur verið félaxlega þroskaheft. Það er eitt að bögga DJ-ana, en að hanga yfir þeim, vera stórhættulegur í sambandi við bjórniðurhellingar og snúrerí, þá er voðinn vís skvís.

  • Ingi er búinn að finna handa mér mann sem er víst svipað skrýtinn og ég. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að taka því. Þetta er ennþá allt á svona "hey, vinkona mín er svaka sæt og fyndin"-sms-stiginu. Annars vil ég þakka google gott samtarf. Snæbirni finnst ég kjáni að vera að gúgla svona mikið.

  • Ég get ekki sent gmail því ég er víst búin með sendingarkvótann minn. Rugl. Skömmtunarmiðapóstforrit.

  • Hey vúhú bllllindfullur pólskur verkamaður vill eiga mig fyrir konu. Spurði hvort ég kynni ekki að elda. Það er nú meiri sénsinn sem maður á. Peh-jásan.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:43







15.3.07 :::

Gjuðvuk luksunung
Ég fór að sjá Herranótt í kvöld. Já, hvað er að mér, ég veit, kona sem grætur yfir Gettu betur ætti kannski ekki að fara á sýningu með gamla menntóleikfélaginu sínu en ég bara varð.
Við lásum Lilliom á sínum tíma og kom það sterklega til greina, en Óli vildi fínisera það betur. Þar að auki var bara enginn nógu hot í skólanum til að geta leikið titilhlutverkið.
Þessi sýning er frábær. Leikararnir eru fáránlega góðir og músíkin er brillíant (töff að heyra elektrómúsík "live"). Leikmyndin er svakalega sneddí, og í hvert skipti sem skipt var um senu var ég svakalega spennt að sjá hvað kæmi næst. Ekkert smá cúl og töff.
Nú, fyrir ykkur sem eruð ekki enn búin að sannfærast þá vil ég benda á að í sýningunni birtast margir rassar. Bara ein sýning eftir, næsta laugardagskvöld í Loftkastalanum. Kostar bara 1000 kall sem er ekkert.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:58







Sími Sími Sími
... eins og útlenska kona Simma ömmubróður míns sagði alltaf þegar þau voru að gera það.
Ég er komin með síma loksins. Hann er bleikur antík sími. Voða sætur.
Endilega sms-ið mér svo ég geti fengið númerið ykkar, eða setjið númerið ykkar í komment, ég er með sama númer og alltaf. Ekkert svona "kann hún ekki númerið mitt utanað?" því að það geri ég ekki. Kann bara heimanúmerið, mömmu-, pabba-, Vigdísar- og Ununúmer.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:47







13.3.07 :::


Nostalgía
Til að jafna mig á þessari those were the days-pælingu sem ég er búin að vera í undanfarnar vikur ákvað ég að horfa á Gettu betur á netur nei netinu. Jesús minn almáttugur. Ég sat með tárin í augunum og söng með og stökk upp með öllum JAAAAÚÚ-um sem áttu sér stað.
Ég man eftir að hafa hoft á Gettu betur með pabba mínum sæta á sínum tíma... og ég ákvað að fara í MR því að eitt árið unnu þeir Gettu betur og söngkeppni framhaldsskólanna (svakasæt stelpa sögn Dimmar rósir) og gott ef MR komst ekki langt í MORFÍS líka. Ég var algjörlega yfir mig skotin í Viðari Páls og Arnari einhverjum á gelgjunni og lærði Gaudeamus til að geta fagnað með.
Síðan fór ég í MR og mætti alltaf á Gettu betur fyrsta árið mitt, og fékk hjartaáfall (næstum) í fagott-óbó-fóbó-keppninni. Jesús minn. Árið eftir var ég svo heppin að vera boðin í Gettu Betur partý hjá Snæbirni þar sem áðurnefndur Arnar missti algjörlega cúlið í áfengisæði þar sem hann reyndi af veikum mætti að heilla mig með frönsku. Það var svakalegt faux pas. Aðrar skemmtilegar minningar eru skilti sem ég held að Hallgrímur hafi búið til, sem á stóð: LOGI BERGMANN KÚKAÐI Á BÍLINN MINN sem hann sveiflði í sjónvarpinu, sagan um að sami Logi hafi gubbað í GB-partýi, þegar ég og Frank vorum skemmtiatriði og allir sætu eldri strákarnir í Róðrarliðinu görguðu: MAGGA! MAGGA! MAGGA! Og ég dó. Síðan er auðvitað minning úr 3. bekk sem á ekki við hér því að pabbi les bloggið mitt. Sérstaklega þessa færslu þar sem hún er um MR og Gettu betur.
En já. Í 6. bekk duttum við út, sem var kannski gott, gerði það auðveldara að kveðja skólann, að því leyti að ég gerði mér grein fyrir að þetta væri endir á merkilegu tímabili. MR að tapa Gettu Betur, ég að hætta í MR.
En núna er það svo að Sverrir Guðmunds og þessi Viðar Páls eru að þjálfa ví. Sko. Sverrir á afmæli sama dag og ég og ég var skotin í Viðari á gelgjunni. Þetta þýðir bara eitt: Heimsendir er í nánd.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:50







11.3.07 :::

Besta mynd Íslands

Gentlemen Prefer Blondes.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 02:22







10.3.07 :::

Fyrirpartý.

maggi and mokki on Vimeo
It's fine. Ég vann hann í splittkeppni síðar.
Hin fightin eru á youtube hér.
(Annars er vimeo mun betra en youtube, mæli með því...)


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:05







9.3.07 :::

Hugh



Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:13







8.3.07 :::

Djöfull er ég mikil dúlla
Nýr búningur... jájájá. Ég veit. En ég er búin að vera svo dugleg að vinna og skóla og kenna og spila ha...
Þetta er svona módern búningur. Þá er dingalingið ekki á sér belti, heldur á pilsinu sjálfu, sumir búningar eru meira að segja með ekkert að hrista þarna, bara skraut. En ég er nú ekki nógu shakealicious ennþá fyrir svo mikla áskorun. Síðan er sniðið á pilsinu voða mikið inn núna, svona hafmeyjusnið. Jájá, það er tíska í þessu eins og öllu öðru. Klikkið á myndirnar til að sjá þær stærri. Erann ekki fínn???


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:00







7.3.07 :::

Gefins BÍBÍ!
Hún systir mín hefur átt gára í 3 ár og nú er svo komið að við getum ekki haft hann lengur. Sumarið er rétt handan við hornið með miklum ferðalögum fjölskyldunnar og vinnu hist og her, og við viljum finna einhvern sem vill eiga bíbíinn.

Hann heitir Kári og er fallega ljósblár á litinn, eigilega hvítur og örlítið minni er gárar eru venjulega. Með honum fylgir gullbúr (úr alvöru gulli) (nei djók) og alls kyns páfagaukadót, speglar, boltar, vatnsdæmi, stigar, you name it.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:28







Á næstunni
Próf.
Klipping og strípur... spennó glennó...
Árshátíð. Í hverju á ég að vera? fokk fokk fokk
DJ-a á laugardagskvöldið. Fólk er hvatt til að koma og heilsa upp á mig.
Annað próf.
Fyrirlestur um dót sem ég skil ekki. Ecocritics.
Finna vinnu fyrir sumarið... Vil vinna niðri í bæ svo að ég geti borðað sushi í hádegismat. What?
Margar magadansæfingar. Eftir því sem ég læri meira því erfiðara finnst mér að kenna, vil kenna allt sem ég kann.
Í apríl verður stór magadanssýning sem kostar eitthvað lítið inn á. Ég vil að fólk komi og sjái mig og stelpurnar!!! Þetta er fjáröflunarsýning til að halda úti heimasíðunni okkar, sem er núna í höndum Konráðs.
Meiri próf.
Stockholm's Bellydance Festival í maí. Ég er búin að kaupa flugið. Nú þarf ég bara að sannfæra Gulla um að ég sé í alvöru frábær og að hann verði að fá mig í heimsókn.

Ég verð að fara að hugsa um sjálfa mig í jarðfræðilegu samhengi. Ég skipti voða litlu máli, þannig lagað. Ég þarf að byrja að hugsa um sjálfa mig sem kennitölu, ekki einhverja konu sem allir eru tilbúnir að vorkenna.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:27







6.3.07 :::

Seg mér eitthvað sem ég ekki veit
Skari búgí þú ert númer 1.
Ég er búin að finna fríðasta son þessarar þjóðar. Check it. Þetta er rosalega fallegur maður.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:52







4.3.07 :::

Fanidda á myspace
Open iTunes. Shuffle. Tell us a memory about 20 songs. If you haven't got a memory about a song, don't include it.

1. Abba - Gimme gimme gimme
Kevin rokkaði þetta á Gauknum fyrir nákvæmlega ári síðan. í dag. Eitt ár. Úff. Hann var í svo stuttum cut offs að jakkinn náði yfir þær, og honum var næstum því hent út fyrir að vera ber að neðan.
Þetta lag minnir mig líka svolítið á sjálfa mig. Stundum. Ekki oft.

2. Los Del Rio - Macarena
Ég lærði Macarenu í CISV búðum, löngu áður en dansinn náði til Íslands. Heeeeey Margrét Erla. Breyttist síðan í HEY MOZZARELLA! Því að heimski strákurinn frá Frakklandi mundi aldrei hvað Lorenzo hét. Mundi samt að það var Z í því. Mozzarella. Jájá.

3. Cowcube - Grooved for Extra flava
Þetta er lélegt lag og minnir mig á Tom. Hann elskar kjánaleg elektrólög. Eins og dópistar. Hann gaf mér þennan disk, sem hann átti. Hann er lélegur. "Ég fíla ekki svona músík Tom." Plísplís, viltu eiga þennan disk? Ég ætla að senda hann til London bráðlega. Ásamt húfunni sem hann gleymdi hérna. Ég er að pæla í að vera líka svolítið krípí og senda lestarmiðana til Montauk, leikhúsmiðana á Birthday Party og fleira.

4. Steve Miller Band - Space Cowboy
Mamma mín syngur þetta lag oft. Hún kann ekki textann. Það fer stundum alveg sjúkt í taugarnar á mér.

5. Proclaimers - 500 miles
Martin og Kolbeinn í skotapilsum að syngja þetta á söngkeppni MR í gamla daga.

6. Daddy Yankee - Gasolina
JAÁÁ! Ég ætlaði alltaf að kíkja í reggaetontíma hjá Rossie! Fer á fimmtudaginn.

7. Cold War Kids - Hang me up to dry
Þetta lag minnir mig á svakalega sætan strák sem bað um það síðustu helgi.

8. Regina Spektor - Somedays
Ég var heima hjá Ásdísi og Regina söng þetta í jay Leno. Ég kynnti mér hana betur og sé ekki eftir því. Mér fannst hún samt skrýtin þarna þetta kvöld. I'm in love with your daughter - I wanna have her baby.

9. The White Stripes - The Big Three Killed my Baby
Tónleikarnir hér þar sem ENGINN þekkti þetta lag. ENGINN. Asnar.

10. Uriah Heap - Easy Livin
Ég er stundum að reyna að syngja þetta fyrir pabba ef að mér finnst að það þurfi að hressa hann við. Virkar stundum. Síðast bara á föstudag. Við vorum að gera chilli sultu.

11. Babylon Zoo - Spaceman
Ellen frænka mín átti Superhits of the nineties sem keypt var í sjónvarpsmarkaðnum. Hún dansaði skemmtilega við þetta lag. P.S. Djöfull er þetta kjánalegt lag.

12. Three Dog Night - Shambala
Þetta lag minnir mig bara á Lost og alla sexí mennina í Lost.

13. Jeff Who - Barfly
Ofspilaðasta lag Íslands? Ég held það. Handarslys. Jájá.

14. Einhver trommukall - Ulla's Trommesolo
Dansaði við þetta í afmæli Devon Day. Fokking shit það var skemmtilegt afmæli. Og vika. Á einni viku fór ég í 3 afmæli. Devon átti þau öll.

15. Pixies - Hey
Þetta lag minnir mig á Braga Pál, sem er ötull talsmaður þess að þetta lag sé besta samfaralag allra tíma.

16. Johnny Cash - I walk the line
Eiður Smári og Auðunn Blöndal biðja alltaf um þetta lag þegar þeir koma á Kofann. Síðan labba þeir um allt hjólbeinóttir þegar ég spila það.

17. Dave Matthews Band - Lie In Our Graves
ó, Tékkland 2001. Þetta var mikið spilað í gítara og sungið. Elsku Jems og Avi sperm.

18. Dave Clark Five - Glad All Over
Þetta er pabbalagið. Ég og pabbi að stússa í gamla daga í bjéppanum. Og þetta minnir mig líka á heimsku stelpuna á Kofanum sem hélt að þetta væri með Bítlunum!

19. Árni, Friðrik og bakraddir - Sorastrákur
Þetta söng ég fyrir rektor og fleiri í Háskólabíói á hátíðardagskrá Framtíðarinnar þegar ég var í 4. bekk.
Draumastúlkan mín er slík
getur leikið liðið lík
tekur ekki neitt fyrir að ríða
svo finnst henni líka gott
að gefa fullum strákum tott
og lætur þannig tímann okkar líða.
Sorrý, ég samdi ekki textann. Össsssss.

20. Land og synir - Terlín
Ég fékk bestu 15 ára gjöf í heimi frá balletstelpunum. Ég fékk svona GK bakpoka sem er sjúkttöff og ég á hann ennþá, með einu skábandi. Og í honum var þessi góði geisladiskur með Landi og sonum.

Nú þið. GO!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:14







3.3.07 :::

Turtle Power


Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:00







2.3.07 :::


Áfram pabbi minn!
Allir að hlusta á pabba minn á morgun í Orð skulu standa.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:44







1.3.07 :::


Æi oh
Mig langar svo oft að kommenta á Moggabloggin, en það er svo fáránlega mikið vesen að ég nenni því ekki.
Annars er ég bara veik í lestrarvikunni, svaf í svona 3 sólarhringa með um og yfir 40 stiga hita. Hitinn er á niðurleið í dag, eða um 39°, en þá er komin gubbupest með. Það gat ekki verið að febrúar yrði bara eitt break up - nei, febrúar varð að toppa sig enn einu sinni í leiðindum og viðbjóði.
Ég myndi biðja fólk að kíkja á mig ef að það væri ekki þessi smithætta. Ég kíkti til læknis í dag, en fékk engar töfrapillur. Pabbi borgaði 1700 og eitthvað kall fyrir 4 mínútna viðtal og káf. Síðan stóð á glerbúrinu frammi: Vinsamlega reiknið ekki með meira en 10 mínútna viðtölum. Já, sæll. Monní honní.
Annars vil ég mæla með þessum febrúarmegrunarkúr. Í fyrsta lagi færðu kærastann þinn til að segja þér upp. Það verður samt að koma svakalega á óvart, svo að þú borðir ekkert í svona viku. Í beinu framhaldi af uppsögninni hættir maður að nota getnaðarvarnarpillur. Ég veit ekki hvort er betri getnaðarvörn, hormónarnir í þeim, eða það að maður er feitur og með enga kynhvöt. Allavega. Síðan er gott að ná sér í fáránlegar pestir, 2 eða fleiri í einu. Til að halda geðheilsunni er gott að fara í fáránlega krefjandi magadanstíma, í tvo til tvo og hálfan tíma í senn. Good luck peeps.
Og váts hvað ég hata pepperóní-auglýsinguna.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:15