Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Það eru allir svo pólitískir á bloggunum sínum En ekki ég. Mikið svakalega eru allir feitir í þættinum Trading Spouses. Ha. Þetta er allt svona lower-middle class, gríðarlega ómenntað og óheflað allt saman, en hafa samt alveg efni á því að "fara út að borða" á KFC og Magga dóna. En ég meina, sums staðar er talið fallegt að vera svona, eins og í Afríku. Sáuð þið viðtalið við prinsessuna frá Ghana í blaðinu? Mamma hennar var alveg flaberghasted að hún væri ekki orðin feit og falleg í þessu landi velmegunar. Jájá. Ég var að skoða vídjó af okkur frá Vetrarhátíðinni á youtube. Ég er þessi þarna í miðjunni á chorusnum. Þegar ég sá þetta vídjó sagði ég eitthvað á þessa leið: DÍSÚS FOKK ÉG ER LJÓSGRÆN Á LITINN! og vildi fara að fara í ljós, allavega áður en ég fer að dansa hálf nakin í Stokkhólmi. Rósalind sagði þá að Maher vildi hafa okkur svona hvítar, því að Aröbunum þætti það svo fallegt og exotic. Jæja. Þá verð ég bara í Pete Doherty-pakkanum.
Næstum jafn gott og indverskur matur. Burkni frændi sýndi mér þetta fyrir einhverju síðan, og ég sýndi Chris það. Hann er búinn að vera með það á myspace-prófílnum sínum síðan þá undir Who I'd like to meet: þar sem stendur: If you aren't into this, We probably won't get along. Seriously, this video is what i base the choreography of my life after. Get used to it, it's never coming off my profile.
Danserí á næstunni Á fimmtudaginn er dansveisla á Nösu í tilefni vetrarhátíðar. Ókeypis inn. Kramhúsið kynnir starfsemina sína og hvað er í boði, þannig að þetta er ekki bara magadans. Ef þig langar að byrja að æfa einhvers konar danso er sneddí að koma og kynna sér hvað er í boði. Ég dansa tvo mjög skemmtilega dansa. Annar þeirra er stafadans þar sem ég dansa með risastórt prik sem er í alvörunni afsagað kústskaft. Ég er svolítið eins og magadansturtles þegar ég sveifla því um. Síðan er magadansturtles í stórum stórum kjól með miklu gulli. Ótrúlega skemmtilegt. EH NÚH. Seinni dansinn sem ég dansa er fáránlega töff hip hop magadans. Beat that. Ég er í svokölluðum chorus, Rósalind og Maher dansa dúett og við erum þrjár sem erum svona bakraddir. Voða mikið Evrósýn, en meira samt arabískt MTV. Ég mana fólk í að koma. Nasa. Fimmtudagur. Húsið opnar hálf 9, sýning byrjar 9. Síðustu ár hafa færri komist að en vildu.
OG! Ég er að fara að kenna ný 5 vikna námskeið fyrir byrjendur, 1x og 2x í viku í Kramhúsinu. Þú koma dansa já!
Mennirnir í lífi mínu Pabbi minn er besti pabbi í heiminum. Ég held í alvöru stundum að allir menn séu kjánar nema pabbi minn. Í dag er konudagurinn og hann er að elda uppáhaldsmatinn hennar mömmu. Ef ég eignast einhvern tímann mann sem er svona góður við mig og börnin sín og mín og okkar (já í nútíma fjölskyldudæmi haa) þá verð ég glöð. Hann Atli minn sem er svo klár og fyndinn og brátt höj og slank. Atli er alltaf til í eitthvað skemmtilegt, hvort sem það er að borða, besserwisserast eða skoða gamla kjóla. Já eða vera í hárgreiðsluleik. Sushi-maðurinn les bloggið mitt, eftir að ég pantaði einu sinni sushi fyrir stelpurnar hjá honum. Jú, því að fóturinn á ímeilinu mínu er alls kyns kontakt info, t.d. bloggið mitt. Hann gerir frábært sushi og býr alltaf til sérbakka fyrir mig ekki með majósushi. Snæbjörn af því að hann kyssir mann alltaf í framan þegar maður hittir hann og kveður eins og hann kunni að meta að maður sé á staðnum. Síðan er hann fyndinn og börn eru mjög hrifin af honum. Þjónn sem vinnur aðra hvora helgi á Thorvaldsen, þ.e. sömu helgar og ég er í uppló. Í dag þegar ég gekk inn byrjaði hann að gera stóra kók fyrir mig. Viltu ekki sashimi? Öööö jútakk sagði ég. Vissi ekki hvort ég ætti að skammast mín eða hvað... Síðan þegar ég fór sagði hann: "Sjáumst eftir tvær vikur!" Maher sem er frábær. Hann er magadanskennari og kennir á dönsku. Frrrrábært. Í dansinum sem við lærðum í dag er svona kyrkihreyfing, svona eins og þegar maður er að snúa fiðurfé úr hálsliðnum. Hann er kallar það "Thomas"-sporið eftir eitthvað djók eftir tímann í dag. Konni skilur mig. Alltaf.
Mokki í nýrri bíómynd haaaa Í þetta sinn er ég í bíómynd með fólki sem ég dýrka út af lífinu, og dái og langar að vera eins og. Þessi mynd verður frábær. Í þessum treiler tala ég um hestasvipu. Jájá. Það er ég. Ég sést í vídjóinu, ómáluð með blue lagoon hár á flugvellinum að knúsa fólk, inni í bíl sem snýst hratt á Gullfossplaninu, og... kálfarnir á mér, lærin og rauðu stúdentsskórnir, og Chris liggur í gólfinu og dáist að mér að rappa The Whisper Song með Ying Yang Twins. Ó vá. Besta kvótið: Matt Coats: "OK, I am ready for it, I am ready to do it. I am ready for Mr. Roboto." Trailer Deux
Spassinn minn Fólk er í alvöru farið að segja: "Nei þúst, ég veit það ekkert, ég er ekkert að fara að breyta statusnum mínum á myspace" á kaffihúsum bæjarins. Ekki ég samt, en ég skal breyta statusnum mínum um leið og eitthvað gerist, ok? Hver spurði eftir mér á Kofanum milli 4 og 5 á laugardagsnóttina? Einhver sætur strákur með fallegt hár... haaa...
P.S. Viku eftir að ég má leika lausum hala lendir Jude Law á Íslandi.
Það eru litlu hlutirnir Mamma sæta mjúka skutlaði mér í skólann í morgun. Ég sat í framsætinu og var að dansa við eitthvað lag, en dúddi í bíl á móti hélt að ég væri að vinka honum. Síðan fattaði hann að ég var ekkert að vinka og klóraði sér í hausnum. Síðan langar mig að koppípeista heilt msn samtal við Dodda um unga drengi og gamlar dónakellingar, en það væri ósanngjarnt.
Það verður allt í lagi með mig, en það er vont að tala núna. Fyndið hvað síðustu fjögur ár hefur febrúar alltaf frekar lásíman glásí. Fyrst fékk ég heilahimnubólgu. Árið eftir hættum við Skúli saman og ég grét í tímum, en það lagaðist. Í fyrra var ég í gifsi, en það lagaðist. Núna er ég í lausu lofti og þarf að átta mig, en samkvæmt munstrinu mun það lagast líka. Ég er ekki sú eina í mínu nánasta umhverfi sem er að ganga í gegnum eitthvað mega skringilegt, svo við erum margar að veita hvor annari stuðning. Sama hvað ég og þær allar ganga í gegnum, mun ég þó aldrei aldrei skilja textann í Total Eclipse. Elskar hún hann? Eða ekki? Er hún að tala við son sinn? Er hún/hann í hjólastól? Þá er nú erfitt að turn around ha. Þeir sem telja sig vita um hvað lagið er, endilega kommenta bara.
Menn sem ég þarf að vanga við áður en ég dey. Bergur Ebbi. Mér fannst hann meira að segja sætur þegar hann aflitaði á sér hárið fyrir Verslóball MH 2000. Elli í Jeff Who og Ghostigital Nikolaj Lie Kaas sem sést hér til vinstri að syngja með Mads Mikkelsen (vonda kallinum í Casino Royal). Nikolaj, vil du være så venlig að danse med mig til "Want you back for good" av Take That?