Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






31.1.07 :::


Það skemmtilegasta við þetta er það að ég bað ekki um "Allir fara úr að ofan." Eyþór, grafíski hönnuðurinn okkar skynjaði þetta bara. Svona gengur samstarfið vel. Endilega kíkið á okkur Inga vera cúl og töff að mixitrixa.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:40







Handbolti
Getum við núna hætt þessu???


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:02







30.1.07 :::

Símaskráin
Síðasti dagur til að breyta skráningunni sinni á morgun. Ég þarf að breyta númerinu mínu, því að númer systur minnar er búið að vera símaskrárnúmerið mitt of lengi.
Nú er hægt að hafa alls kyns starfsheiti við nafnið sitt. Nú finnst mér plötusnúður helst til "full of myself" þar sem ég er ekki plötusnúður, heldur bý bara til playlista og ýti á play.
Þá er það hitt.
Nú fæ ég fínan pening út úr magadansgiggum, hvort sem ég er fengin til að dansa úti í bæ eða fengin til að kenna. Nú er freistandi að setja "magadansmær" aftan við nafnið mitt, en ég held að það bjóði upp á mörg pervertasímtöl. Sömuleiðis dansa ég ekki í steggjapartýum, og það er alltaf hætta á að fólk spyrji um slíkt... En mig vantar peninginn...


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:02







29.1.07 :::

Skemmtileg lög
M. Ward - Sad song
Ég var svolítið móðguð að hann skyldi ekki hafa tekið þetta á Coney Island á sínum tíma. Mjög gott lag, skemmtileg trix í því.
Sting & Cheb Mami – Desert Rose
Ef þér finnst arabísk tónlist hallærisleg hlustaðu á þetta lag og þegiðu svo. Sting er veiki hlekkurinn í laginu.
Shiny Toy Guns – Le Disko
Þetta er ógeðslega töff stelpu lagið. Heyrði það í L Word, svo ég gæti breyst í lesbíu ef ég hlusta of mikið á það. Hello little boys little toys.
All Saints – Never Ever
Stórkostlegt lag.
Mathieu Chedid – Onde Sensuelle
Ég veit ekki hvort mér finnst lagið gott eða minningarnar um Jeremie að dansa við það.
Vincent Vincent and the Villains - Johnny Two Bands
Húrra fyrir góðum lögum undir 3 mínútum. Ótrúlega Bítlalegt að gera stutt góð lög. Þetta lag er frábært skemmtilag. Eru nýkomnir með megadíl við EMI.
Vinir vors og blóma – Frjáls
Já ég biþþi núh föröm saman tvö verum frjáls…

Maniggi meir.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:55







28.1.07 :::

Oh Mokki give me one more chance
01:15
Jájá. Betri stemming en í gær. Tímabilið milli 12 og 2 er alltaf óþolandi millibil einhver veginn, að skipta úr rólegheitum yfir í "ljóta fólkið höstlar við asnalega músík." Oldies eru best fyrir þetta, sérstaklega karaókílög og softies, en eighties er líka gott, þá Pixies og Smiths og svona. Núna er ég að spila Steve Harley, og í næsta lagi verða ljósin slökkt. Johnny Two bands með Vincent Vincent and The Villains. Sá ðá í London, þeir voru góðir góðir. Og sætir. Nema einn.

01:21
Ég hata mæspeis prófíla með lögum á.

01:49
Jón dyravörður fór heim í gær með stelpu sem heitir Lóa. Sem er æði. Tjah, nema lannski vegna þess að hún er fyrrverandi kærasta bróður hans. Og að hún bjó inni á familíunni í 4 ár. Vinir hans komu með disk hérna áðan; Spilaðu idda. Þetta er "Lóa Lóa Lóa" með Megasi. Æðislegt.

02:04
Vá það er maður hér sem er eins og Kevin Jesus Meyers. Hann er meira að segja gaygay. ÞAÐ VAR MAÐUR MEÐ HATT AÐ LABBA INN. Næsta lag er Baby got Back með Sir Mixalot. Ég myndi setja það sem myspace lagið mitt ef mér þætti það í lagi að hafa prófæl lag.

02:12
Feitu stelpurnar og samkynhneigðu mennirnir fíla Sir Mixalot.

02:31
Ógeðslegur maður borar í eyrað á mér. Eyrað þar sem hljómhimnan er í rugli. Við skulum bara segja að hann sé ekkert að fara að bora í konur á næstunni.

03:04
Ómar var svo góður að senda mér Jet Black Joe. Staðurinn er fullur. Þetta erður eitthvað. Tjah, ef þau fíla All that she wants ætti þetta ekki að vera vesen.

3:29
Frændi Inga spyr hvort ég sé DJ Rachel. Ég svara játandi og hann fríkar út af gleði.
Maður með sjóræningjalepp bíður fyrir utan.

3:55
Never Ever með All Saints er tólallý klukkan 4 lagið. Allir eru að syngja með. Þetta er of gott.

4:00
Einhver bóndi í ljótum tweed fötum segist vera á hóteli í Reykjavík og vill fá mig með sér, því að þar sé stuðið. Hann dansaði eins og Spaugstofan að þykjast vera unglingar við All Saints. Grunaði ekki einu sinni að það væri djók. "Jaaaá, ég er sko að vinna fram undir morgun..." sagði ég. Ef hann verður eitthvað meira angrandi segi ég honum að kærastinn minn sé hjartalæknir. Eða læt henda honum út. Hann er svona 40 ára. Alveg á Kofanum. Ýkt hress.

4:18
Ok, ég er farin að halda að ég sé í Tekinn hérna, það eru svo margir að reyna við mig.

4:19
Bóndinn býður mér peninga. Maður gæti kannski farið að græða á þessu ha. En svona í alvöru. "Jæja krakkar, síðasta lag, ég er að fara að selja mig fyrir betri hátölurum"

4:31
Hjalti kemur til bjargar og býðst til að þykjast vera kærastinn minn ef kallinn kemur aftur. Hjalti er í hljómsveit og spilaði í brúðkaupinu hans Burkna.

4:33
Maður kemur og segir mér að ég sé besti DJ á Íslandi. Hann var að koma inn. Jææææja.

5:09 Bóndinn dauður í sófanum. Æji, dúllinn. Honum var hjálpað út af sætu dyravörðunum Nonna og Freysa, sem þurftu að setja aftur á hann gervifótinn.

5:47
Búið að loka. Vangaði við Hjalta í síðasa dansinum. Takk Hjalti.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 05:51







26.1.07 :::

Allir elllska lambakjöt
Þetta er ósatt.
Mér finnst heldur ekki skemmtilegast að versla í Hagkaup. Frekar versla ég í asísku búðinni við Hlemm og Urban Outfitters.
Goði alltaf góður? Líka eftir síðasta söludag? Ærónþinksóó...

Meikiddiggi sko.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:32







25.1.07 :::

Tvífarar

Gizmo og MáMíMó-konan.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:00







23.1.07 :::

Hver er nr. 100.000?
Teljarinn er kominn í lag.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:16







21.1.07 :::

Þrennt

Jájá. Teljarinn kominn upp í 99 þúsund og eitthvað og þá deyr hann. Jájá. Storí of mæ læf.

Berriman, Biering og Jónsson hittust í London í dag. Ég setti Berriman vel inn í Byrgismálið, svo hann væri með á nótunum í heitum umræðuefnum Íslendinga. Ég er megaspennt að vita hvað kom út úr þessu.

Skemmtilegar fréttir: Ég og Ingi guðfaðir minn sem kenndi mér að spila músík og hvað maður á að gera við snúrurnar, vorum að stofna DJ dúó. Hann heitir DJ Ross & Rachel. Fyrsta giggið er í mars, en við verðum með eitthvað míní skirt á milli á skemmtistöðum bæjarins. Hægt að fylgjast með myspace síðunni og gerast vinur okkar. Þá verðum við F•R•I•E•N•D•S !!!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:27







20.1.07 :::

Vídjó
And now the SS on my jacket stands for Super Smooth


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:44







19.1.07 :::

Kæró læró
Jæja. Kærastinn lék í auglýsingu um daginn með Richard vini sínum. Hana má sjá hér.
Rétt eftir að koddinn flýgur, sést maður í slopp sem flagsast, dökkgrænum bol, náttbuxum og með koddaver um hausinn, hlaupa í átt að myndavélinni. Hann er að vanda sig að hlaupa, svo hann bítur mjög fast í neðri vörina.
Jájá.

Hvernig er nýja útgáfan af bakgrunninum að leggjast í fólk?
Eridda ókei?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:07







18.1.07 :::


Leg
1. Legígræðslan minnir mig of mikið á Hundshjartað, þar sem mannsheili, mannshjarta og mannseistu voru grædd í hund. Mikasskoti vorum við á undan okkar samtíð. Og öllum fannst við bara artífartí.

2. Ég bíð spennt eftir songleiknum Leg eftir Hugleik Daxon sem verður sýndur í Þjóðleikhúsinu.

3. Legið mitt er hresst þessa dagana.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:36







14.1.07 :::

Mig vantar lag!
Það heitir Cry Baby og er með dúettinum Jemini.
Já, lagið sem fékk 0 stig í Evrósýn 2003.

Vinsamlega sendið á maggamaack gémeil.com

Update:
Búin að fá lagið frá tveimur heiðursmönnum, Kalla og Gunna Ben.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 05:06







12.1.07 :::

Vigdís mín
... er dásamleg. Um daginn var mamma mín að snyrta einhverja frumskógarplöntu og Vigfús Perli átti að fara með laufin út í rusl. Neinei. Hún elti mig um allt með þetta og sagði að ég væri með "egóistískt sólarofnæmi, svona eins og Micael Jackson."

Síðan breytti hún sér í fugl. Ruglfugl.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:19







11.1.07 :::

Besti milkshake í heimi
1/2 cherry jello (sem ég keypti birgðir af í Ameríku)
1/2 vanilluís
nokkrir ísmolar

Hef ekki prófað hann, það eru 4 tímar þar til hlaupið er til. En ég get ekki einbeitt mér að neinu...
Á morgun kemur systir mín heim úr prófi og fær sushi að borða og cherry milk shake í eftirrétt.

Ég vil opna sushi / milk shake stað. Í litla rýminu beint á móti MR. Eða í Hallahúsnæðinu.
Ég býð ekki upp á súkkulaði eða jarðaberjasjeik, heldur oreo, kirsiberja, hvítt toblerone, bounty, snickers, fersk minta og fersk jarðaber, og súkkulaðibitaköku. Jájájá.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:19







9.1.07 :::

Sushi
Síðasta sumar lærði ég að borða sushi. Hér kemur smá uppbyggileg gagnrýni

Ósushi, Iðu
Þjónustan er mjög góð. Bitarnir eru helst til stórir, og þau geta verið mjög majónesóð. Samt ekkert mál að biðja um það sem maður vill. Engiferið er oft skemmt, vegna þess að þau geyma áltöng ofan í því. Þau bjóða upp á hvalasashimi. Ég þori ekki að smakka það. Mikið af Sex and the City wannabes þarna. Helst til dýrt.

Sushismiðjan, niðri á höfn
Þarna bjó ég eigilega í ágúst. Ódýrt og gott sushi, þar til þau byrjuðu að setja majónes á ALLT. ALLT! Hef ekki farið þarna mikið síðan. Leiðilegt.

Maru
Dýrasta sushiið í bænum. Selja nigiri-ið stakt!! EKKI Í PÖRUM!!! Verðið í engu samræmi við gæði eða magn. Mjög léleg þjónusta.

Nings
Alversta sushi-ið. Þurrt og gamalt. Litlir bitar, lítill fiskur. Notast einungis við lax, svo ég viti.

Thorvaldsen
Sunnudagar eru sushi-dagar á Thorvaldsen. Setja majónes á sumt, og KÓRÍANDER á sumt. Samt sem áður hið besta sushi, eins og allt á þeim veitingastað.

Þar sem Ásdís og Margrét sýna listir sínar
Já, við kunnum að búa til sushi! Og Hanna líka! Við gerum besta sushi í heimi. Við rokkum. FEITT. Besta og ódýrasta hráefnið (fyrir utan fiskinn sjálfan) er að fá í sælkerabúðinni á Suðurlandsbraut. Tips: Skerið rúllurnar með blautum hníf. Meira segi ég ekki. Hráefni í Sushi fyrir ca 5 kostar um 4000 krónur.

Ichiban, Brixton
Mjög góður og ódýr. Alltaf þétt setinn. Góð þjónusta og gott sushi.

Gili Gulu
All you can eat sushi-belti í miðbæ Lundúna. Aðeins 13.95 pund á manninn. Mjög gaman að fara í keppni um hver getur borðað mest.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:15







6.1.07 :::

2006
Janúar

Árið byrjaði eins og lélegt sitcom.
Ég var aðstoðarstúlka töframanns í Kastljósinu, þar sem ég var söguð í sundur.
15. janúar var Karaoke Killed the Cat giggið neglt niður, með tilheyrandi spenningi.
Ásdís Eir og Guðrún Helga sáu um frábæra AIDS-viku, sem um það bil 20 manns fannst áhugaverð.
Maher kenndi okkur á þessum tíma, og það var ógeðslega gaman, og ég byrjaði líka að kenna einn tíma á viku.
Þann 19. Lék ég í Jeff Who myndbandinu við Barfly, með þeim afleiðingum sem sjást hér til hliðar.
Þökk sé Devon Day, datt ég inn í Project Runway. Tim Gunn! Tim Gunn! If he calls your name your gone!
Undir lok Janúar fór Una að sigra heiminn. Það var erfitt fyrir mig, en gaman fyrir hana. Prímadonnuvinkona.
30. des var mér boðið að kenna freestyle í félagsmiðstöð í Breiðholti. Ég sagði jább, en fattaði síðan að ég var í gifsi. Megagaman.


Febrúar

23. febrúar var danseisla á Nasa sem heppnaðist svakalega vel. Rachel kenndi okkur magadans í febrúar og hjálpaði okkur gríðarlega mikið.
Samt var maður aðallega í prófalestri og almennu plöggi.


Mars

Ó, mars 2006.
3. mars lentu MattCoats, KateCoats, Chris, Joel, Kelly Kelly, Kevin, Kareem, Young-Ho, Matt Salacuse og Shandi á Íslandi. Við vorum dugleg að plögga þetta. Við fylltum Gaukinn, ó já, var boðið í sjóstangaveiði, fórum Golden Circle með Pabba sem var besti túrgæd í heimi, spiluðum, borðuðum ís og sungum. Vikan var fullkomin.
"Fólk reif sig úr fötunum á sviðinu og allt. Þau sögðu sjálf að þetta væri með betri giggunum sínum. Ég fékk að syngja með í Tótal Eclipse of the Heart og við Ásdís gógódönsuðum við Get Low. Ég á engin orð til að lýsa kvöldinu. Þið sem voruð þarna vitið hversu gaman þetta var. Kevin var næstum hent út því dyraverðirnir töldu hann vera beran að neðan. Hann var í mjög stuttum cut offs."
Í lok mars spilaði ég í fyrsta sinn á Kofanum, það tókst mjög vel og ég varð síðan fasta DJ. Takk Ingi.


Apríl

Burkni frændi og Unnur giftu sig 1. apríl. Það var fallegt brúðkaup.
Ég fékk pakka frá New York með stelpudóti og KoolAid.
21. apríl var magadassýning í Iðnó. Hún tókst mjög vel.
Ég varð 22. ára 25. apríl. úffípúffí.
Ég og Devon urðum pennavinkonur.
Ég dansaði á árshátíð þjóðleikhússins 30. apríl.


Maí

Ég byrjaði að vinna í Upplýsingamiðstöð ferðamanna strax að loknum prófum. Það var gaman, ótrúlega mikið að gera og frábært samstarfsfólk.
Júróvisjón stjórnaði lífinu heima svolítið. Sakis Rouvas var kynnir og Vigdís fór í Silvía Night-þemapartý.
22. maí hélt ég til Stokkhólms, á undan stelpunum því ég var að fara í heimsókn til Gulla frænda.
Magadasfestivalið var brjálað. BRJÁLAÐ. Það er ekkert annað sem getur lýst því.
Þaðan hélt ég til Gautaborgar að hitta hann Ragga. Það var sjúklega gaman.


Júní

Upplýsingamiðstöðin var bissí. Vinnudagarnir lengdust, en það var frábært því ég var að vinna með Soffíu og Sonju. Við vorum með afslátt á flestum veitingastöðum bæjarins og það bjargaði oft deginum að fá sér góðan og hollan hádegismat fyrri sama verð og prumpfæðið á subway.
Um miðjan mánuðinn fór ég til London til að bjarga sambandinu mínu. Það mistókst, en ég fékk nýtt.
17. júní DJ-aði ég í upphlut.


Júlí

19. júlí hélt ég til New York. Það var brjálað. Jú know it.




Ágúst

Tom fór til Marokkó í byrjun Ágúst og var out of reach lengur en ég kærði mig um.
Hann kom síðan til Íslands í lok mánaðarins og við gerðum ÍSLAND Á FJÓRUM DÖGUM-túrinn. Það var stíft.


September

Skólinn hófst í September eins og alltaf. Leiðilegt að það eina fasta í lífinu skuli ekki veita manni mikla gleði.
11. september hjálpaði ég pabba og Óla að gera rifsberjahlaup.
Ég gædaði Paul O'Grady Show um Reykjavík. Ég var mjög sjokkeruð yfir ófagmennsku starfsfólksins.
í lok sept fór ég til London í afmæli Tómasar. Við fórum í Kristís að skoða uppboð á barbídúkkum, borðuðum 9 rétta indverska máltíð, og fórum í Pennies up your Butt.
Á sama tíma fékk ég vinnu hjá Iceland Express við að skrifa hérna.


Október

Í byrjun okt bauð Atli mér í leikhús í Borgarfirði. Það var dásamlegt og við skemmtum okkur sem aldrei fyrr.
Í upplestrarfríinu las ég í London. Síðan fór ég í roadtrip til Oxford og Bristol, fór á árlega epladaginn í Cambridge.

Við borðuðum of mikið sushi á all you can eat sushibeltinu á Gili Gulu sem Frank hafði mælt með. Þar var mikið af skrýtnu fólki. Síðan hneyksluðum Ameríkana á Phoenix tónleikum.

Ég eignaðist litla frænku 23. okt.


Nóvember

Ég tók þátt í Íslandsmeistarakeppninni í magadansi. Það gekk bara vel. Tek aftur þátt á næsta ári.
Vigdís lék í Tekinn.
Ég fór til London og át rosalega mikið.


Desember

Maður fór í próf og skilaði milljón verkefnum. Það var hresst í skammdeginu. Ég vann milli prófa og jóla, og það var mjög skemmtilegt og gefandi. Já.
Síðan komu jólin með miklum humar og viðeigandi mat og fjölskylduhitting.
Hann Tómas minn kom 28. og var hjá mér fram yfir nýársdag. Hann nýtti tímann vel til að læra íslensku, og hann er fáránlega góður. Miklu betri en ég. Nei, ok, ekki alveg.
Við fórum í Húsdýragarðinn, í bekkjarpartý 6.A, í sund, borðuðum mikið og vel, skutum upp flugeldum, fórum á 90s partýið á Nasa, upp á úlfarsfell með mömmu og pabba, sáum brjáluð græn og bleik norðurljós í Hvalfirði og hlógum og kysstumst.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:27







4.1.07 :::

Cleese
Auðvitað er siðlaust að hirða mikla vexti af fólki, segja að það sé nauðsynlegt og borga erlendum leikara milljón trilljón fyrir að vera fyndinn í sjómmanum.
Það er samt siðlausara að þýða This is silly, I don't want to do this sem Þetta er kjánalegt, ég vill ekki gera þetta.
Svona fyrst maður er að eyða svona miklum peningum í þetta.

Og kúdos til foreldra ofbeldismannanna!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:14