Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Jólin II Á jólunum fáum við alltaf skrýtin kort á pakkana frá Óla, Gulla, Esther og Ellen. Þau eru teiknuð af bræðrunum. Við höfum fengið nakinn Ésú með risastóran tilla krossfestan með jólasveinahúfu og dollaramerki í augunum, og ýmislegt fleira. Jæja. Hérna eru jólafetish gaurarnir! (Ýtið á þá til að sjá þær stærri)
Hugmyndir 1. Við Íslendingar verðum að hætta að gera svona mikið út á norðurljósin. 2. Viltu græða pening? Keyptu þér monstertrukk og farðu að gæda. Betra að hafa meirapróf í það. Mikilvægt: Hafðu túra í boði á aðfangadag og jóladag. 3. Opnaðu veitingastað í tvo daga: Aðfangadag og jóladag. Ekki vera of dýr. 4. Keyptu stórt baðkar og segðu að það sé thermal pool. Seldu inn á aðfangadag og jóladag.
Er að vinna. Mjög rólegt. Tjah, fyrir utan 10 mínúturnar sem ég þurfti að fara upp og kenna einum á símann. Þá fylltist allt.
Jólin voru góð. Við borðuðum besta mat í heimi. Í forrétt voru 4 gerðir humars: Humarsúpa, hvítlaukahumar, dúpsteiktur og humar með engifer, kóríander og lime. Í aðalrétt var nautalund með humri, rósmarín hrísgrjónum og rósapiparsveppapúrtvínsrauðvínshumarsósu. Í eftirrétt var kóngabrjóstskykurís og smákökuís sem mamma bjó til. Namminamminamminammi. Ég fékk alltof margar jólagjafir, eins og alltaf. Ég var búin að káfa á pökkunum, og var vonsvikin þegar mér fannst ég finna að Ásdís, Una, Atli og Snæbjörn voru ÖLL að gefa mér bækur. MÉR!!! ÞAU!!! Síðan kom í ljós að þetta voru allt matreiðslubækur. Hjúkket. Ég er byrjuð að lesa sushibókina frá Ásdísi, hún er mjög spennandi.
Jesús Ég sagði Tom að ég væri búin að breyta herberginu mínu. "Jesus can visit me now." Hann vissi ekki um hvað ég væri að tala. Jújú, sagði ég. Jesús heimsækir börnin á aðfangadag. Og þau knúsa hann og segja TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ JESÚS! og gefa honum gjafir, t.d. reykelsi. Mér finnst þetta skemmtileg hugmynd.
Jólagrínið Þorláksmessa: Vinna í Upplýsingamiðstöðinni 9-14. DJ-a á Kofanum hálf tólf-dagrenningar (næstum) Aðfangadagur: Vinna í Upplýsingamiðstöðinni 9-14
-drugs Ég er búin að finna besta blogg í heimi. Það tilheyrir þremur árgangssystrum systur minnar. Gjörið svo vel: blog.central.is/-drugs. Lykilorðið er vodka. Já, þær eru í 8. bekk. Þarna má finna sögur af Adda sem er alltaf að fara í sleik við alla auk stórbrotinna fylleríissagna.
Heiður Það er mér mikill heiður að þegar maður gúglar kirsiberja er bloggið mitt efst í þeirri leit. Segir maður kannski kirsuberja? Neeeeiiiiijjj. Kyssuber? Kyssiber? Kyssast ber? Í dag tók ég próf í þessum kalli. Hann er stundum fyndinn, en ekki alltaf. Hann er nú soldið sætur á þessari mynd ha. Mér gekk bara ágætlega. Sumar spurningarnar voru skrýtnar. Af hverju heldur þú að svona mikil áhersla sé lögð á staðsetningu húsgagna í Old Times? Ég hefði átti að skrifa "Because one of the original cast was blind." En ég gerði það ekki.
Við horfðum á Project Catwalk saman. Barbour-þáttinn. Oh man það var svo gaman.
Ég fékk að velja mér jólagjöf. Ekki var það hvolpur, eins og Ásdís hafði stungið upp á, og ekki var það kanína eins og mamma stakk upp á. Kanína. Piss. Allavega. Ég er ánægð með gjöfina, hún er praktísk, falleg og sýnir mér að það er framtíð í þessu sambandi okkar. Og að honum þykir vænt um mig og vill ekki að ég meiðist eða sé kalt. Annars má ég ekki vita hver gjöfin er.
Við fórum á Tate í stóru rennibrautirnar. Við fórum í allar stóru rennibrautirnar sama daginn. Það var brjálað. Tate rennibrautir: Vídjó eitt og vídjó tvö.
Þegar við komum út mættum við manni sem vildi endilega taka mynd af hjólinu. Síðan tók hann myndir í hálftíma. Hann var með tagl og eyrnalokk.
Við fórum tvisvar á uppáhaldsísstaðinn okkar. Namminamminammi. Í hvorugt skiptið áttu þau þó peruísinn fræga... sem er samt allt í lagi, því þá þurfum við að fara þangað aftur og aftur.
Matthew vildi ólmur fara á Belgo, svo við fórum þangað. Ég fékk mér það sem ég hef alltaf fengið mér, hvítlaukssmjörskrækling. Síðan fékk ég mér kirsiberjabjór, sem er góður, og kókosbjór, sem mér fannst góður. Matthew sagði: "This is what you imagine a hairdresser's smell to taste like" og maðurinn á næsta borði frussaði úr hlátri og þýddi síðan brandarann yfir á spænsku fyrir kærustuna sína, sem hló aðeins.
Ó men. Síðasta kvöldið mitt vildum við bæði indverskan mat vegna þess að that's how we roll. Viti menn, við fundum dásamlegan stað rétt hjá Putney með hræðilegum skreytingum sem bauð upp á alla uppáhaldsréttina okkar – Já, krakkar mínir. Dosa. Það má segja að ég hafi overdósað. Ég borðaði 85% af dósunni minni, sem er mikið! Hún var sko fyllt með kartöfludóti og síðan borðaði ég fullt af chutney með. Tom var ánægður með matinn sinn líka.
Ég keypti mér silfurlitaðan skvísukjól. Tom var hræddur við hann. En vó hvað ég er mikil silfurskvísa í honum. Ég er eins og sportbíll í honum.
Þegar ég kom heim þá sá ég að pabbi og Vigdís voru búin að skreyta tréð. Pabbi sagði að þau hefðu gert þetta á versta tíma, þegar það var verið að sækja krakka á leikskólann á móti. "SJÁÐU MAMMA! EPLATRÉ!!!" (segist með frekjukrakkaröddinni hans pabba míns)
Að lokum: Vigdís og Brynja prófa hinn nýuppgötvaða fídus á myndavélinni minni sem kallast "KIDS AND PETS" og er fyrir einstaklinga sem hreyfast ófyrirsjáanlega.
Tekinn Ég hvet fólk eindregið til að horfa á Tekinn á mánudaginn, þar sem systir mín mun leika aðalböggarann. Bó Hall varð fyrir svívirðingum hennar og almennu böggi. Félagsmiðstöðin hennar ætlar að hafa sérstakt Vigdísarkvöld á mánudaginn, þar sem horft verður á Tekinn og borðað popp og kók. Ekki var ég svona cúl í 8. bekk. Söss.
Kolkrabbi. Ok. Ekki mjög skrýtinn kannski, en þetta er nú skrýtin mynd samt. Ég ætla samt að segja að ég hafi étið sæskrímsl í staðinn fyrir kolkrabba.
Kengúra. Sjávarkjallarinn bauð upp á kengúrusalat síðasta sumar. It was very very nammigottí. Mæli með þessu. Næsta dýr er skemmtilegasta dýrið og ég held að ég sé eini Íslendingurinn sem hefur smakkað slíkt dýr.
Þetta er KÚDÚ. Ég smakkaði kúdústeik á suður-afrískum veitingastað hér í Putney. Mjög meirt og gott. Ég pantaði réttinn samt einungis vegna þess að mér fannst kúdú skemmtilegt orð. Þeir buðu líka upp á kúdúcarpaccio!
Hversdagslífið Ég nenni ekki í búðina. Hún er stutt frá, en my oh my pokarnir í Englandi eru svo ömurlegir að þeir rifna alltaf á leiðinni heim og það er mega pínlegt. Ég held að það sé vegna þess að það eru svo fá pokadýr í Englandi. Það er merkilegt að eiga tvö hversdagslíf. Eitt á Íslandi og annað hér. Hey já, ég sá ref í garðinum í dag þegar ég hengdi upp tauið. "Stop rolling your R's" Margrét rúllar sér fram og til baka í myrkrinu og Tom veit ekki alveg hvað er í gangi. "What are you doing?" "Rolling my arse?" Guess you had to be there kannski.
She's me woife! Helvítis hjartarannsóknir. Ég er svo svöng! Tom ætlaði að koma með eitthvað að borða. Er að ímynda mér hvernig hann getur haldið á mat og keyrt hjólið... Ég er að horfa á Eastenders. Það er það eða Big Brother, Sterkasti maður heims, einhver plöntuþáttur eða þáttur um garðhönnun fyrir gamalt fólk. Rock and Roll.
Ég verð að hrósa sjálfri mér fyrir brandara sem ég sagði í dag:
konni nei, ég er bara að fara í próf kl 9 í fyrramálið
Mokki - Angleterre aaaah þess vegna þurr á manninn ég trufla þá ekki meira brjóttu fót tjah