Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Ég er farin aftur Ég ætla að læra mikið og borða meira. Ég er búin að pakka jólagjöfunum, þetta er tryllt! Hálf taska af jólagjöfum. Mér finnst gaman að ferðast ein. Enginn að vitleysast að taka ranga lest, pönkarar hjálpa mér með töskuna, ég fæ tíma til að átta mig. Enginn rekur á eftir mér, ég get bara farið á mínum hraða (undanskilið: flugvél fer á ákveðnum tíma). Í þetta sinn fæ ég að velja jólagjöfina mína, þurfum samt að fara út fyrir London til að kaupa hana. Spennó glennó. Ég fæ líka að fara á brjálaðasta milkshakestað í heimi. Já, ég má fá 3 ef ég get ekki ákveðið mig. Og nei, það er aldrei of kalt fyrir ís. Síðan ætlum við aftur á Tate í rennibrautirnar. Ég er skíthrædd um að chillisultukrukkan springi á leiðinni út. Það væri megabömmer. Jæja pæjur. Bið að heilsa Íslandi.
Saga af sjálfri mér Einu sinni, þegar ég var svolítið lítil, en samt dálítið stór (aldursbilið tveggja og hálfs til fjögurra ára) var mér boðið í afmæli til dóttur vinkonu mömmu. Þær bjuggu í Mosfellsbæ og stelpan hét Hera Brá. Móðir mín var búin að tala um þetta þann daginn, að "við værum að fara í afmæli til Heru Brár, sem byggi eiginlega uppi í sveit." Þegar leið á daginn var ég orðin eitthvað óþolinmóð, mamma með gesti sem endranær, og að krulla á sér hárið og gera sig til. Óþolinmæðin náði hámarki þegar ég sagði við mömmu: "Oh!! Hvenær förum við að heimsækja Peru Geit uppí sveit?"
Kitlikitl Þetta er skemmtileg planta sem vð Tom fundum í grasagarðinum í Cambridge. Ef maður kitlar hana, þá lokar hún laufunum, því hún verður feimin. Vona að þetta sjáist nógu vel í youtube-gæðum. Takið vel eftir Þjóðverjunum sem endurtaka nafn plöntunnar í sífellu. Annars er vídjóið skólahæft, það stendur alveg fyrir sínu án hljóðs.
Gleðin - Rétt fyrir ofan Birmingham, laust eldingu beint fyrir utan gluggann minn. Með látum. Ég dó aðeins. Að þessu tilefni sagði bossinn minn mér að einu sinni hefði Ólafur Ragnar verið að fljúga til Rússlands, og eldingu hefði lostið í gegnum vélina. Eftir það var hann kallaður Grís Lightning. - Að útskýra þennan brandara fyrir Tom seinna sama dag var virkilega skemmtilegt. - Ég sá hund sem var með hártopp. Eða svona eins og hann væri með tupée. Hann var með sætar loppur. Ég rændi honum næstum því. - "This is T. Berriman..." vá hvað það væri fyndið að skíra barnið sitt Tea. Eins og te. Það væri gay. - Geðveikt mikið sushi. JÁ FRANK ICHIBAN!!!!! - Tveggja sekúndna myndbrot úr Court Jester í eina skemmtilega vídjóverkinu sem ég hef séð á ævinni á Tate Modern. Og fullt af öðrum sketsum með Danny Kaye voru notaðir. - Ótrúlegt dádýracarpaccio á Tate. Svo mjúúúúúkt. - Intrusive r's. Skemmtilegast í heimi. Eins og þegar ég er nýkomin úr sturtu. Þá er ég með panda-R-eyes. Þegar ég hló geðveikt að því, ekki til að sýna að það væri asnalegt að setja r svona á milli orða, heldur skemmtilegt, brást útlendingurinn hinn versti við og sagði: IT'S EITHER THAT OR A GLOTTAL STOP. NOW, WHAT DO YOU WANT? Og ég dó úr hlátri. - Koma heim í fallega jólaskreytt hús. Þegar ég hélt að skammdegið væri að ganga frá mér, þá skreytir mamma.
Ógleðin - Fólk var byrjað að detta í það í vélinni, þau sem sátu fyrir aftan mig voru hræðileg. Ég reyndi að sofa, en þau voru í einhverju píkuhláturskasti. Konan fyrir aftan mig drakk svo mikinn bjór og G og T að hún fór fimm sinnum að pissa, og í hvert einasta sinn sem hún stóð upp sló hún mig í hausinn. - Blindfullir Íslendingar á Tate. - Eins og hálfstíma seinkun á flugvélinni heim. - Fótboltatrúnó ALLS STAÐAR í vélinni heim. Ok, en hvernig myndirðu stilla upp draumaliðinu þínu? Oj men! GIVE ME FIVE!!!!!!!!!! - AÐ LENDA Á NORÐURPÓLNUM.
Here I go again Systir mín fór á Basshunter í gær. Þegar hún var komin í bol af mér, peysu af mér, ég var búin að mála hana (besta leiðin til að passa að litlu systur máli sig ekki of mikið – mála þær sjálfur) og var að greiða henni sagði hún: Maaaaanstu hvað við vorum flottar þegar við fórum á White Stripes? Já, ég man það sko. Good times.
Annars er systir mín með sama systrasyndrome og ég. Hún talar víst stöðugt um mig. Hún tók þátt í Skrekk síðasta mánudag, og einhvern veginn allt gaf tilefni til að tala um mig. Já, ég þekkti kynnana, ég hafði tekið þátt í Skrekk, og setið í dómnenfd og þekkti annanhvern sem talað var um. Systir mín var því á Margrétatrippi. Jæja, gott að það verður eitthvað sameiginlegt á Faunumyndinni okkar.
Annars er ég á leið til London á morgun. Ég elska vinnuna mína. ÖÖÖ... og kærastann minn sæta.
Gekk vel En komst ekki í sæti. Fyrsta sætið kom mér ekki á óvart, ég var búin að setja Helenu í efstu 3. Vala sæta var í öðru sæti, en 3. sætið kom mér á óvart. Síðan fannst mér leiðilegt að áhorfendaverðlaunin voru ekki veitt, því margar stelpur höfðu safnað liði og áhorfendur voru frekar bummed að það var ekki minnst á þau verðlaun. Ég líka þú veist. Er fólk samt að grínast með versta kynni Íslands? Hefði það drepið Magadanshúsið að fá kynni sem kann íslensku? Og vissi eitthvað um magadans? Og segir ekki mér hlakkar til? Og henni langar að? Bara að einhver sé gaming flay þýðir ekki að hann sé fyndinn eða skemmtilegur eða original.
Hvaða búðingur??? Jæja. Senn líður að 10. nóv. Magadanskeppninni ógurlegu. Það ætla víst allir að koma, nema Gunni Ben. Lisa frá New York ætlar meira að segja að koma! Eeeeeen. Í hvorum búningnum á ég að vera? Plísplísplís segið skoðun ykkar. Ef þið viljið sjá díteilin á búningunum, ýtið á myndirnar, þá koma þær stærri.
Dúllinn 2006 Borat-auglýsingin er í sjónvarpinu. Pabbi: "Ragnheiður, viltu koma og sjá þessa mynd með mér?" Mamma vildi ekki sjá hana. "Við getum farið saman, en ég ætla að fara á einhverja aðra mynd." Pabbi: "Það er ekki að fara saman í bíó."
1. Mig sárvatnar lagið Funheitur með Pláhnetunni. Ég heyrði það í UnuÖnnabíl um daginn og Ásdís varð svo brjáluð að ég verð að prófa það á Kofi Annan. 2. Tip frá mér: EKKI fara heim eða taka undir viðreynslu þeirra sem eru taktlausir. Mér finnst það allavega turnoff. Ég held að taktleysi beri vott um taktleysi í öllum samskiptum. Og í rúminu. There. I said it. 3. Keppnin fer fram föstudaginn 10. nóvember í Ýmishúsinu. Húsið opnar klukkan 8. Það kostar 1800 kall við dyrnar, en ég er að selja miða fyrir 1500 kall. Miklu betri díll. Ef þú kemur ekki þá hætti ég að vera vinur þinn.