Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Söss 18 dagar. Bara átján dagar. Ég get varla beðið. Ég var heima í dag með hita. Hann er að lækka. Mér líður ekki vel. Ég held að þetta sé New York spenningurinn. Púff, sú vika verður skemmtileg og viðburðarrík. Ég hlakka til að hitta þau öll. Jill og John líka. Allamalla. Túristarnir eru hressir. Við og við fæ ég boð um að koma með þeim í Bláa lónið. Það er samt alltaf vínlykt af þeim sem bjóða mér það. Það er alltaf nóg að gera og stundum kemst ég ekki að pissa í svona tvo klukkutíma. Sumir standa mikið í kúlunni minni, en oftast er fólk þakklátt og kurteist. 500 kall á að Magni detti út i einum af fyrstu 4 þáttum súpernóvu.
My grandma said to your grandma: I'm gonna set your flag on fire. Er að taka massíva vinnutörn núna, 8 daga í röð. Búin með einn. Er strax að deyja, ekki úr líkamlegri þreytu, heldur andlegri. Það tekur á að gefa af sér endalaust. Þetta er nú samt þess virði. Eftir 7 daga kemur tveggja daga frí. Síðan styttist í New York ferðina miklu. Það er einhver óléttupest að ganga í vinnunni minni. Ein nýkomin úr barneignarfríi, ein í barneignarfríi og tvær óléttar. Maður þarf að passa sig.
Þar sem Matt Coats hatar Dentist verð ég að velja annað lag. Hvað á ég að syngja? Endilega gerið grein fyrir svari yðar. Takið með í reikninginn að ég verð í mjög stuttum stuttbuxum, svokölluðum hot pants, annað er óásættanlegt í bootyoke.
Stundum kemur fólk hingað inn sem er bara einmana og talar og talar og talar. Það er erfitt. Sérstaklega ef svona 10 manns bíða. 25 dagar í Nevjork. Oh my gosh. - Afmæli Devon Day - Horfa á Project Runway með Devon Day - Karaoke Killed the Cat, sem verður sérstakt bootyoke mér til heiðurs, það er allir í mjög stuttum stuttbuxum að hrista á sér rallann. Þetta er einn af viðburðum ársins sem Matt Coats sýnir öllum pungsann sinn. - Ég er að fara á mitt fyrsta deit. Það er allt saman liður í því að gera mig að Ameríkana. Mér er boðið á egyptskan veitingastað með magadansara. - DANG! DJ sett Shandi og Jesse, einu sinni í viku. Hlakka mikið til. Þar er víst stripparastöng og mikil gleði sem fylgir því að horfa á mjög ósexý og útúrdrukknar stelpur "working it." - Pikknikk og crocket á sunnudeginum. Þeim fannst það fyndið. Jejeje.
Örlagadagurinn Mánudagurinn 26. september 2005 er dagurinn sem breytti lífi mínu. Þá labbaði ég óvart upp á efri hæð Piano's. Síðan þá hefur allt gerst. Allt.
Kofinn í kvöld!!!!!!!!! Ég verð mest töff DJ aldarinnar. Komið með myndavél, lofa að vera sæt og í góðu góðu stuði. Var að magadansa á Ingólfstorgi áðan. Gekk vel, þrátt fyrir að mér hefði þótt sem beltið mitt væri að leka af mér. I want to be the mountain woman someday.
Heim Já, komin heim. Dikta fyllti staðinn og ég fyllti magann. Ferðin var í flesta staði mjög góð. Ég fór líka til Cambridge. Ég sá fullt af hundum, keypti mér samfesting og sá David Kidson. Hann var frábær. Gerði mig að fífli á Belgo, en það var gaman.
Bress bress Eins og kóresk kona sagði við mig í fyrradag. Fékk mér besta hádegismat í heimi á Sjávarkjallaranum. Nammigottí. Þar inni voru líka þrjár vinkonur í geðveikum Sex and the City fíling að ræða um djús og sýrustig magans. Einnig átti sér stað viðskiptafundur. Hópur Íslendinga í stökum jökkum frá Dressman, rjóðir af hvítvíninu og síðan var þarna snyrtilegt par frá Kóreu. Eitt get ég sagt, að fyrirtækið sem planaði þennan fund sárvantar prótókolmeistara. Dónaskapurinn sem þetta aumingja par varð fyrir var til háborinnar skammar. Við erum að tala um dúdda í Dressmanjökkum að hlæja með ginið opið með hálftugginn mat, þeir brustu út í einkadjók á íslensku og gátu ekki einu sinni reynt að borða með prjónum. Þeir voru svo sveitó að mér fannst ég vera sigld.
Misheyrn Mamma: Björney? Björney? Hafið þið heyrt það nafn áður? Björney? Ég: Já, það var stelpa í MR sem hét Björney, hún átti kærasta sem hét Bjarni. Það fannst okkur Unu fyndið. Mamma: HA? BJARNDÝR? Ég: Nei, Bjarniiiiiiiii Mamma: Mér fannst hitt betra.
Ég er til sölu Ég kosta 20.000 út úr búð, en Perli nördi vann mig í Pepsi-leik. Hún hefur aldrei tekið mig úr kassanum. Ég kosta bara 16.000 ef þú kaupir mig hjá henni. Hafðu samband í s. 663 2548.
I just like how he's always leaning. Against stuff. He leans great. Jared Leto er víst ekki mjög góður í samvinnu. Nicole vinkona mín var að vinna við kvikmynd þar sem hann lék Mark Chapman, þann sem skaut John Lennon. Í fyrsta lagi vildi Jared Leto aldrei ganga neitt nema í mynd, þar sem hann vær hræddur um að eyðileggja göngulagið sem hann hafði skapað til að vera Chapman. Hann kom mjög illa fram við samstarfsfólk sitt. Hann hafði aðstoðarmann, sem hann sendi í langa ferð til að finna elgspiss í flösku. Pissið ætlaði hann að setja á sig, til að lykta illa. Þá átti fólk semsagt að hunsa hann eða vera leiðilegt við hannþ. Þannig myndi hann skynja það að fólki væri illa við hann. Málið var að hann þurfti ekkert piss. Hann var alveg nógu óþolandi. Þetta kallaði hann method acting. Við leiklistaráhugáfólkið vorum sammála um að þetta væri svindl. Ekki leikur.
Kæru Ásdís, Konni og Skúli Ég get svo svarið það, Cody Kasch er hér. Dirty weekend in Reykjavik. Annað: Meðan kærastinn minn er að spila fyrir smápíkur í Europe á vegum Eurovision, þá eru sætir Skotar að kaupa handa mér drykki. You'rrrrre a prrrrrrett parrrrrty girrrrl. Ég er einmana. I'm not a party girl. I'm lonely (but I ain't that lonely yet). Hér er líka ungur drengur sem er gaming flay. Hann bað um Macarena. Verð að spila það, hann er svoooo gaming flay.
Sex and the City segir að ég eigi að vera í tilfinningakrísu Fyrrverandi giftir sig í Finnlandi í sumar. í sama partýi sem ég komst að þessu var finnskur strákur sem var elaveg eins í framan og annar fyrrverandi. Hann var að kyssa svona milljón manns.