Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Said, one, two princes kneel before you.... Áðan talaði ég við gæja með blómakrans um hálsinn. Í miðju samtali birtust ÞRÍR gæjar. Ég vissi ekki að þeir væru að reyna við mig fyrr en Raggi tók í hönd þeirra og þeir tóku mjög fast í hönd hans, svona typpa eitthvað. Ragnar sagði að þetta væri eitthvað strákakód, ég á sjéns ekki þú eitthvað. Heimsku gaurar. S.s. þrír gæjar í keppni um mig. Steikt. Ég hló úr mér lifrina þegar ég heyrði þetta frá Ragga, að þeir hefðu allir brotið í honum handbeinin, því sem næst. Oh, typpatrákar.
Margt skrýtið Sem ferðamaður á ég kannski ekki að gagnrýna neitt, en samt. Mjög vinsælt á barnum í Svíþjóð: Klaki, rósavín, fanta og einhver lauf í glasi. Rammt, vemmilegt, laufin verða sveitt. Ömurlegt: Hraðbankarnir eru stöðugt með eitthvað sambandsleysi. Gjörið svo vel og reynið síðar. Ég á sko nóg á kortinu mínu, það er bara sambandsleysi. Jæja, ég fer þá bara í bankann. Komst að því þar að bankar í Svíþjóð hafa ekki kortalesara og geta því ekki hjálpað ferðamönnum sem eru alloft í veseni með hraðbanka. Iss kúkapiss. Sprautufíklar eru út um allt. Fyrsta daginn minn gekk ég framhjá pari sem sprautaði sig í garði. 10 ára strákur hjólaði framhjá á meðan. Jahér. Það er nefnilega búið að loka almenningsklósettum vegna sprautufíklana, og þau sem eru enn opin eru með sérstöku ljósi þannig að það er ekki hægt að sjá æðar, þannig þeir verða bara að sprauta sig á almannafæri.
Gaming Flay Ég er farin að sakna systur minnar of mikið. Alls staðar sem ég fer er Vigdísarlegt dót eða skrýtið fólk eða nammi eða eitthvað. Mjög steikt. Sýningin í gær gekk vel, þrátt fyrir hárkolluvesen. Eftir sýninguna fórum við Særós, Erla og Valerie á geðveikan Khebab-stað. Ferskt og gott, stór matsalur og GOSBRUNNUR í honum miðjum. Namminamminammi. (Mjög erfitt að fara skemmtilegt út að borða án þess að Perli Nördi sé með)
Hrós 1. Ég var að skoða belti á magadansbasarnum og Sigga Nanna heyrir á tal sænskra stelpna. "Titta - Er Kirsten Dunst að dansa magadans?" Þær voru að tala um mig. 2. Vinur Gulla; "Ah ok. So are there any other dancers in your family besides you two?" 3. Ég verð í fremstu röð á sýningunni, Mahmoud Reda-megin. Hell yeah.
Svo rangt Í gær sýndi Gulli mér verk sem hann bjó til á workshoppi í Cullberg. Það snerist um mann sem er ekki til í alvöru, en algjöran snilling. Gulli tók síðan viðtöl við fjölskyldu sína og vini sem léku fólk sem þekkti danshöfundinn og sagði að hann væri stórkostlegur. Því varpaði hann á vegg á sviðinu og inn á milli viðtalana voru dönsuð verk "eftir" þennan mann. Eitt verkið, EVA BRAUN!!! var hreint út sagt æðislegt. Sýndur var tvídans milli Evu og Adolfs Hitlers. Á sama tíma, aftar á sviðinu dönsuðu saman maður í karekatjúrgyðingabúning við stúlku með borða sem á stóð Fraulein Deautchland. Frauleinin var alltaf að hníga í gólfið og þá hætti Adolf að dansa við Evu og reisti hana við á ný. Ég pissaði næstum í mig af hlátri.
Ferðaferðaferðalag Snemma snemma snemma í fyrramálið held ég alein til Stokkhólms. Ég hlakka til því ég bæði elska að ferðast ein og amma Erla segir að Stokkhólmur sé mjög falleg á vorin. Magadanshópurinn minn, Sakis Rouvas, nei ég meina Shams El Amar er að fara að taka þátt í Stockholm's Bellydance Festival, sem er stærsta magadansfestival í Evrópu. Sá sem getur giskað á hvað Shams El Amar þýðir, vinnur. Við dönsum tvo dansa á lokasýningunni á laugardagskvöldinu. Þeir eru geðveikt flottir báðir tveir, og loksins erum við að dansa í viðeigandi búningum, ekki þessum týpísku búningum sem allir búast við að maður klæðist þegar maður dansar magadans. ÁFRAM ÍSLENSKU POKADÝRIN!!!
Hátíðin er frá fimmtudegi til sunnudags, en ég fer á morgun, 3 dögum á undan stöllum mínum. Ég ætla nefnilega að eyða tíma með Gulla frænda mínum, því mér finnst hann svo skemmtilegur. Ég hef lítið hitt Gulla undanfarin ár, hann flutti frá Íslandi 17 ára gamall til að dansa frá sér allt vit. Síðan þá hefur hann dansað líka í Kanada og Sviss. Síðan fór hann aftur "heim" til Svíþjóðar. Hann hefur ekki komið heim mikið síðan, nema um jól og einstaka páska. Síðustu jól lenti hann á aðfangadag og flaug heim annan í jólum. Greyið. Hann er yngsti dansarinn í sögu Konuglegu óperunnar til að hljóta æviráðningu. Ég fæ að horfa á æfingu. Hlakka mega mega til. Síðan ætlar hann frændi minn sæti að sýna mér Stokkhólm og búðir og Gamla Stan og kannski fara með mér á lífið ef ég verð þæg. Hann ætlar líka að lána mér sæng og handklæði. BESTI FRÆNDI Í ÚTLÖNDUM Í HEIMI!!!
Eftir festivalið kíkí ég til Ragga í Gautaborg. Við ætlum að hlæja og drekka saman rauðvín. Ég sé dvöl mína hjá honum sem eitt rauðvínsnáttfatapartý. Við ætlum líka að kíkja í LISEBERG. Það verður geðveikt. Síðast þegar ég var þar fór ég 9 sinnum í rússíbanann. Ég byrjaði líka á blæðingum, þann 25. júlí 1997. Eitt skemmtilegt: Ég verð á blæðingum þegar ég fer í Liseberg. Viðeigandi. Ég sé ykkur seinna, skypeið mitt er mokkilitli. Yess.
Bakvið böndin Ég hef ákveðið að fordæma þennan þátt. Ástæðan er sú að comic sans letrið er notað aðeins of óspart. Svo eru stelpurnar bara ekki nógu sneddí, mér líður eins og ég sé viðstödd lélegt J17-viðtal. Nýja klippingin hans Heimis, sem er peysuvinur minn, er ekki nógu góð.
Systir mín fór í Silvíu-partý í gær. Ég og mamma stíluðum hana. Ýtið á myndina til að stækka hana.
Vinna yes Er búin að vera á milljón síðan á mánudag, í öllum vinnunum eigilega. Síðan er ég líka að klára verkefni og svona. Þetta gengur ekki vel. Annars er ég að fara til Stokkhólms á mánudag. Ég hlakka of mikið til. Illt í maganum hlakka til.
FRÁBÆRAR FRÉTTIR!!! Vissuði að stangarstökkvarinn, Evrósýnarstjarnan og sjarmörinn Sakis Rouvas verður kynnir á Evrósýn í ár? Er ég að elska það? Já. Ég mæli með því að gúgla myndum af stjörnunni. Sá sem finnur hversdagslegustu myndina vinnur. Þess má geta að Sakis hefur verið Myspacevinur minn í nokkra mánuði. P.S. Hann þvertekur fyrir það að vera samkynhneigður. *hjúkket*
Ég fann Shake it myndbandið, eða s.s. live performans. Takið eftir því þegar gellurnar rífa sig úr drögtunum, þá eru þær í kögurbikiníum. Ég hef bloggað um þetta áður, en það er eins og þær séu með píkuhár alveg upp að mjaðmabeinunum, geðveikt löng píkuhár sem þær sveifla út um allt. Stórkostlegt.
Túrist informasjonn Við erum að uppfæra ýmsar upplýsingar á heimasíðunni okkar. So far hef ég séð svona milljón villur, en þetta eru þær bestu: Seefood menu Muscel relaxing hotpots
Já Í dag fékk ég sms frá Séð og heyrt. Séð og heyrt vildi tala við mig vegna þess hvað ég væri dugleg, að vera í svona mörgum vinnum og skóla og magadansi. Ég sagði neitakk, vegna þess að mér finnst það of mikið Ásdís Rán eitthvað. Talandi um Ásdísi Rán. Hún er fyrir ofan Ásdísi White í símanum mínum, og ég er alltaf óvart að senda Ásdísi Rán sms sem eru eitthvað: HÆ ÉG ER Á TYPPINU EN ÞÚ? og eitthvað. Hresst. Af hverju er ég með símann hjá Ásdísi Rán? Hún bauð mér og Shandi með sér og bikinístelpunum í stripparalimmóinn. True story. Þegar Shandi síðan kom inn í bílinn sagði hún fullum hálsi: Hér er Shandi úr NEXT AMERICA'S TOP MODEL. Hahahahahahaha. Vá hvað þetta var plebbaleg færsla. Skotveiðileyfi á mig. Like núna þú veist.
Geðveikt Um daginn fór ég á Hamborgarabúlluna með Skúla. Allt starfsfólkið var með derhúfu sem á stóð: Búllan. Ef ég væri að vinna á þessum stað myndi ég heimta að fá derhúfu sem á stæði Dúllan.
Pirripú Í vinnunni minni, sem lofar mjög góðu, eru aðeins PC tölvur. Mér finnst þetta mjög óþægilegt. Þetta er ekki mjög ólíkt því þegar ég var með hægri í fatla, ég kunni alveg að klæða mig, en það tók bara ofsalegan tíma og var suddalegt vesen. Ég er að vinna með mjög hressum stelpum. Í gær spurði mig breskur maður hvort hann mætti gera mig ólétta. Stelpunum fannst það fyndið, en ég hafði heyrt þetta svo oft áður.
Dúllurassakrúttkrútt Hverjir? Dyraverðirnir á Kofanum. Síðast þegar ég var hérna var ég að væla yfir að ég hataði óskalögin, þau eyðileggðu allt, en ég spilaði þau sem beðið væri um svona 5 sinnum. Ég fór að tala um gróðaáætlun mína, að byrja að selja bara óskalögin. Human Jukebox. Myndi selja þau á 500 kall, og gæti spilað mjög slæm lög með góðri samvisku. Þegar þeir mættu í vinnuna gáfu þeir mér gjöf. Þeir höfðu búið til límmiða fyrir mig í tölvunni sem á stóð: ÓSKALAG: 500 KALL.
Í vinnslu Þetta er allt í vinnslu. Skólaferill minn er einnig í vinnslu. Ég sagði við Unu um daginn að mér væri ekki að ganga nógu vel og hún sagði að það væri nú bara klassískt minni á þessum tíma árs. Þá var ég ennþá fyndnari og sagði að í raun væri skólaferill minn klassískt háð. Ég er mjög stolt af dansinum hér að neðan, ekki kóreógrafíunni, því hún er engin, heldur að hafa dansað fyrir allt þetta fólk sem mér er búið að finnast cúl frá því ég var stelpuskott. Eh, frá upphafi stelpuskottsára minna. Því ég er stelpuskott. Ég er líka þreytt. Thank you for me. Bæbæ.
So you think you can dance? Var að koma heim af árshátíð Þjóðleikhússins. Það var gaman. Grænmetislasanjað var ágætt, ég þorði ekki í kirsuberjaöndina með mangóchtney eða eitthvað. Ég var með skemmtiatriði. Það gekk vel, þrátt fyrir annað magadansskemmtiatriði fyrr um kvöldið. Það var allt í lagi, ólíkir dansar, og hún var í bleiku, en ég í bláu. Tótallí different sko. Ýttu hér til að sjá