Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Wait till you see my dick! Já, ég og Kate erum að æfa þetta fyrir karaoke. Náið ykkur í besta versta lag í heimi, Wait með Ying Yang Twins. Við ætlum að alternata á Bam-unum. Djöfull verðum við madness hot.
Einn unga takk Þegar ég var í New York (ó mæ ég er New Yorkóð) þá kíktum við Ásdís í Old Navy. Ég fékk algjört krúttattack í búningadeild barna, en hrekkjavökubúningar voru komnir í hús. Einn búningurinn var svo magnaður að ég fékk egglos á staðnum. Svo ég keypti hann. Ég s.s. kjúklingabúning fyrir 2 ára barn. Ég hlakka til að klæða barnið mitt í hann og krútta með það. Endilega bjóðið okkur krakkanum í mat þegar búningurinn á við, eins og um páskana og eitthvað. Gefið mér svona 10 ár. Pabbi minn og Skúli eru mikið á móti því að ég klæði börnin mín í þetta. Það er bara af því þeir eru ekki með eggjastokka.
Pennavinkona Þegar ég kom heim frá New York fann ég Karaoke Killed the Cat á myspace (ok, here we go again). Ég addaði síðan öllum þeim sem ég kannaðist við andlitin á, eins og Matt og Chris. Á síðunni hans Matt var stelpa sem mér fannst ógeðslega fyndin og hress. Svo ég addaði henni. Hún heitir Devon Day. Ég sá fljótlega að hún hafði sama smekk og ég á crappy raunveruleikaþáttum og Lost, svo þegar hún bloggaði um stórbrotinn þátt sem nefndist Project Runway varð ég að downloada honum. OG HVÍLÍK SNILLD. Svo ég sendi henni message til að þakka henni fyrir ábendinguna. Uppfrá því hófust bréfaskriftir, við héldum með sama fólki og vildum að sama fólkið dytti út. Eins og Marla. Síðan byrjaði Americaca's Next Top Model. Þar sem hún þekkir Tyra Banks (kem nánar að því síðar) hafði hún mikið að segja um þetta allt saman og við skemmtum okkur konunglega yfir þessum þáttum, horfum á þá saman með msn opið. Við erum mjög góðar vinkonur gæti ég sagt. Skrýtið. Stórskrýtið. Við eigum fullt af sameiginlegum vinum, en höfum aldrei hist. Þegar Karaokemonsterin komu svo hingað var hún voðalega sorry yfir að komast ekki með. Hún var samt í stöðugu sambandi við mig og lét mig hafa allt slúðrið, svo ég var vel inni í öllum málunum þarna. Jájá, Devon var með Chris, Chris var með Kate og Matt var með Shandi, svo hætti Matt með Shandi og byrjar með Kate sem hann GIFTIST eftir 2 mánuði, eða kvænist, og Chris og Shandi eru alltaf að kela og Kareem er alltaf að ríða í eldhúsinu á Piano's. Jájájá. Allt kreisí. Við erum í mjög góðu bréfasambandi, í gegnum emilinn. Hún vinnur, eins og þau öll við það sem henni finnst skemmtilegt. Hún er freelance ljósmyndari en full time job er photo editor fyrir Victoria's Secret Catalogue. Hljómar voða fancy, bókar módel og ljósmyndara og passar að það sé til nægt kaffi. 90% af vinnutíma hennar fer þó í að passa að myndirnar séu birtingarhæfar, það er að photosjoppa allar geirvörtur sem kynnu að sjást á milli blúndna út. En hún fær 40% starfsmannaafslátt, svo hún lætur sig nú hafa ýmislegt. Já, og hún ætlar sko með mig í sjoppingleiðangur þegar ég fer í heimsókn í haust. Nammirassi. Skúli ætlar að gefa mér rauðan magadansbúning í afmælisgjöf, og þar sem karaokemonsterin sem voru á Íslandi hafa sent mér svo margt, var Devon sett í að taka við pakkanum og senda hann í gjafapappír til Íslands, sem afmælisgjöf. Þannig sleppur maður vil tollana sko. Hún póstlagði búninginn í dag, en stóðst ekki mátið að loka að sér í vinnunni og taka eina mynd. Stórkostlegt.
Stokkhólmur Count Down Get ekki beðið. Dúddamía. Jæja. Ég var að bóka mér farmiða frá Stokkhólmi til Gautaborgar eftir festivalið. Þegar ég gat merkt við svona spes þarfir var einn valmöguleiki sem hét: "Medtar djur i bur." Oh, sænska er svo kjánalegt mál. Djöfull langar mig að kaupa búr og taka með mér eitthvað mjúkdýr í búrið. úúúú. RAGNAR ÉG KEM KLUKKAN 6 29. MAÍ.
Sumar í skinnið Það eru ekki bara blómin sem vakna á vorin, heldur líka kvefpestar, flugur og ljótir menn. Til varnar öllu þrennu er til eitt töfra: Hvítlaukur. Það er ekki kjaftæði að blóðsugur forðist hvítlauk, moskítóflugur og slöngur FORÐAST hvítlaukslykt. Hér er því uppskrift að besta salati í heimi: Tveir tómatar hvítlaukur eftir smekk, pressaður Slurkur af ólífuolíu eða olía af fetaosti eða olíulegnum hvítlauk gróft salt frá Maldon, kúffull teskeið smá pipar Oreganó og steinselja Rifin fersk basilíka svona 3-4 lauf. Hrært saman, látið standa í svona 5-10 mín. Gott ofan á brauð og sem salat með grillkjöti. Líka gott ef maður sýður pasta og hrærir þetta samanvið. Gott nesti í sumarvinnuna. Grand á'ðí hugmyndir: Ef þú vilt vera grand á því þá er mjög gott að setja ferskt rósmarín og mossarellaost.
Síðan voru teknar myndir. Ragnheiður sætilíus tók þessa mynd hérna, hún hreyfist fallega. Þessi er helvíti góð, Guðmundur Ari tók hana. En hún er mun betri á hvolfi.
Frí er fyrir aumingja Kofaskemmtilegt með DJ Bangsa Bestaskinn á miðvikudagskvöldið, alveg þangað til fyrstasumarsólin rís. Magadansskemmtilegt með Raks Sharki-hópnum í Iðnó á föstudagskvöldið. Hristingurinn hefst klukkan 8 og Magda dansar sóló! YAY! Fullt af sólóum og hópadansar. Mjög skemmtileg sýning. Það kostar aðeins 1000 krónur inn. Ingi verður með ljósashow. Endilega styðjið við bakið á okkur. Háskólaneminn Margrét Erla á daginn, Magda og Bangsi Bestaskinn á kvöldin. Síðan spilar Dikta ásamt færeyskum vinum sínum á Nasa á laugardaginn. Síðan heyrði ég útundan mér að fram undan væru ritgerðarskil og próf.
Óskalög Um daginn var ég að keyra heim frá Ásdísi, prinsessuvinkonu minni sem býr í turni í Vesturbænum. Ég hlustaði á Rás 2 í bílnum þar sem Guðni Már Henningsson tók við óskalögum frá útúrdrukknu fólki. Maður hringdi inn og bað um "bara ukkað með Queen." Guðni Már spurði þá þennan einmana mann: "Já, ertu svona Queenmaður?" "Jahá," svaraði maðurinn, "ég á sko allar plöturnar." Bíddu nú við, hugsaði ég. Ef hann á allar Queenplöturnar, af hverju í fjandanum er hann þá að hringja í óskalög áfengissjúklinga? Getur hann ekki bara skellt einni plötu á fóninn og dansað nakinn? Oft er þetta svipað á Kofanum. Það er erfitt að breyta um stemmingu frá sitja og drekka kaffi yfir í mega kreisí stuð. Þegar það tekst samt, þá vil ég ekki spilla dansistuðinu með því að spila einhverjar ömurlegar ballöður sem enginn þekkir. Sing along-og vangaballöður á borð við tótal eclipse og what's going on eru annars eðlis en t.d. In the Morning of the Magicians. Þú getur bara hlustað á þannig heima hjá þér. Og þrátt fyrir að leiðbeiningarnar sem ég fékk upphaflega séu að spila kjánaleg singalonglög, þá er það bara þannig að fólk gengur út í Bad Touch eða öðrum OF ömurlegum lögum. Og síðan get ég ekki dregið fólk með í Killersstuð ef það er á annaðborð komið í Spice Girls-, Hanson- og Abbastuð Hins vegar tjillaði ég á óskalögum í gær, margir báðu um lög sem ég hafði ekki heyrt áður og vissi því ekki hvernig ég gæti raðað inn í prógrammið. Og hver var niðurstaðan? Geðveikt að gera, löng röð og dancing in the street. Með lögunum sem ég valdi. Ég er nefnilega að dja þarna, ekki gellan sem biður alltaf um Sveitaheimilið Alabama.
Bacardi 151 Er hægt að fá svona á Íslandi? Á einhver svona flösku sem ég má kaupa lögg af? Ég þarf þetta til að spúa eldi, þar sem lampaolían fær mig til að kasta upp, sem er ekki mjög kvenlegt. Annars gæti ég gert þetta með Stro... á einhver þannig flösku sm ég má kaupa lögg af? Ég þarf bara svona 4-5 sopa.
Oh yes Ég tek við óskalögum hér í sæberspeisinu fyrir miðvikudagskvöldið 12. apríl. Lögin verða spiluð meðan viðkomandi er á staðnum. Ég tek við þeim hér til að eiga þau tilbúin í tölvunni þegar þið komið. Þetta er þó með þeim fyrirvara að mér finnist lögin leiðileg eða þau henti ekki stemmingunni hverju sinni. Fái ég 0 komment verð ég gríðarlega sár. Ef þú ert ekki með óskalag máttu skrifa typpi eða eitthvað.
One zero zero zero zero zero zero cruel Jájá. Maður er að læra með lærunum. Helvítis vitleysa. Af hverju er allt svona leiðilegt? Ekki leiðilegt: Annað kvöld á Kofanum verður svaka dansmadness. Fólk er hvatt til að fletta sig klæðum.
Ég er að fara í atvinnuviðtal á mánudag. Ég hef aldrei farið í atvinnuviðtal án þess að fá djobbið, en er samt fáránlega stressuð. Í hverju á maður að vera? Maður verður að vera snyrtilegur og ábyrgðarfullur, þó ekki þannig að maður virki leiðilegur. Svo verð ég að passa mig að tala um kosti mína, án þess að vera sjálfumglöð. Og passa að láta loft leika um lófana til að vera ekki sveitt í þeim þegar ég tek í hönd mannsins í lok viðtalsins. Og ég verð að muna að vera ekki með tyggjó.
Í dag fékk ég pakka Í honum var stór kass sem var á stærð við einn og hálfan skókassa. Ofan í þessum kassa voru ilmjurtir, en við nánari athugun var falið á milli þeirra Kool Aid, froðubað, sjampó, líkamsolía og boddílosjonn. Allt nema hið síðarnefnda frá Kiehl's. Og bréf til mín. Og fullt, fullt af ást. Ég sé þau Kate, Chris og Kelly Kelly velja þetta handa mér. Þau sögðu í bréfinu að þau hefðu farið í lítinn leiðangur. Matt var með í anda. Ég er orðlaus. Ég er þakklát. Ég sakna þeirra. Ég fór í besta bað lífs míns áðan og baðaði mig upp úr ást þeirra og vináttu.
Helgi Helgin mín var viðburðarrík. Á föstudagskvöldinu vann ég í Þjóðleikhúsinu á frumsýningu á Átta konum. Maður þarf að tékka á þessu stykki, það var svo mikið hlegið og klappað. Í hléinu sá ég um Björgólf, sem er mjög hress. Hæ Björgólfur!!! (Hann les bloggið mitt) Að Þjóðleikhúsvinnu lokinni fór ég í hina vinnuna mína. Hún er ný. Ég á þrjár vinnur, allar mjög cúl. Ég var s.s. í prufusnúðeríi á Kofanum. Það var voðalega gaman. Liðið kunni vel að meta mig, og allir sungu með Mmmbop. Ég fékk nokkur "Ertu með einhverjum?" eitt í Mmmbop og nokkur eftir það. Þannig að Mmmbop er boy magnet sko. Ég mun taka við þessu snúðeríi af Inga, aðra hvora helgi. Sem er gott og gaman. Ég er hvort eð er mikið á Kofanum, og svona fæ ég að ráða músíkinni, eða svonnnna. Sumt fólk er leiðilegt í óskalagavali... sérstaklega þeir sem biðja um svona 10 lög. Og þeir sem biðja um einhver vangalög. Það er of steikt sko. Já. Ég var komin heim í dögun, klukkan sex, horfði á einn Top Model þátt og svaf síðan. Svaf samt ekki lengi, því Burkni frændi minn gifti sig í gær. Eða kvæntist, það er víst réttara. Athöfnin var voða fín og kjóllinn var fokkingmadnesstöff. Veislan var töff, maturinn var æðislegur og sorbetið var það flottasta sem ég hef á ævi minni séð. Ég skrapp til vinnu en var umsvifalaust rekin í burtu af samstarfsfólki mínu. Við Skúli sátum til borðs með stelpu sem var alltaf að hvísla að kærastanum sínum og benda á Skúla. Erfitt líf að vera rokkstjarna, jebb. Ég hitti líka strák, meira samt svona mann, sem las bloggið mitt stundum. Vandærðalegt að hitta fólk sem þekkir mann ekki neitt sem les bloggið manns. Svona af því ég er alltaf að skrifa um brjóstin á mér og eitthvað. Ég dansaði magadans og það var fínt, þar til fullu menn frænkna minna hófu að leika senur úr Bridget Jones. Ég hafði lítinn húmor fyrir því. Ólafur Margeirsson og einhver strákur sem var hinn besti dansari (enda Fiðluballsmenntaður) björguðu mér um stundarkorn eftir að Skúli þurfti að fara að vinna. Menn á mínum aldri eru mun meiri sjentilmenn en eldri kynslóðin. Í dag svaf ég og svaf og svaf og fór svo á magadansæfingu. Við erum að æfa fyrir Stokkhólmsförina. Dsís, það verður svo gaman.