Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






28.2.06 :::

Já, ég er í plöggi og prófalestri.
Ef þið vitið ekki hvað ég er að tala um þegar ég tala um plögg þá eruði ekki með eyru eða augu. Eða haus.
Gaukurinn - á laugardaginn. Allt of gaman.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:38







27.2.06 :::

María Tamimi
Hvað kostar að koma í bikinívax hjá þér?
María: "1900 kall. Þú færð samt afslátt ef hún er sæt."


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:22







25.2.06 :::

ÓMÆGATÓMÆGATÓMÆGAT
Sean er á Íslandi.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:40







24.2.06 :::

Já, það var sem mig grunaði
Mamma, pabbi og Vigdís komu á sýninguna. Enginn vina minna. Nú er ég hætt að segja ykkur frá þessu. Þið getið bara bitið í punginn á ykkur.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:09







21.2.06 :::

Ert þú vinur minn í alvörunni?
Fimtudagskvöldið 23. febrúar mun Kramhúsið í samvinnu við Vetrarhátíð Reykjavíkur standa fyrir fjölþjóðlegri dansveislu á Nasa, Austurvelli. Þar verður afró, funk jazz með street ívafi, magadans, Bollywood og flamenco svo eitthvað sé nefnt. Sérstakir gestir kvöldsins eru dansarinn Guyom frá Frakklandi og magadansmærin Sabah frá Chicago. Pörupiltar munu sýna sig og sjá um kynningu. Að sýningu lokinni verður opið dansgólf. Sýningin hefst kl. 20.30, frítt inn.
P.S. Já, þetta er bumbið mitt.

Auk þess ætla ég að taka þátt í bloggleik sem ég sá á síðu Steindórs, sem nefnist Blauta tuskan. Settu nafnið þitt í kommentakerfið og ég segi þér þrjá neikvæða hluti um þig.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:33







19.2.06 :::

TYPPALEIKURINN
Komum í typpaleikinn. Má nota bíómyndir og sjónvarpsþætti.
Ég skal byrja.

Harry Potter and the Sorcerer's Penis
Harry Potter and the Penis of Secrets / Harry Potter and the Chamber of Penises
Harry Potter and the Penis of Azkaban / Harry Potter and the Prisonner of Penis
Harry Potter and the Penis of Fire
Harry Potter and the Order of the Penis
Harry Potter and the Half-Blood Penis UPDATE!! Harry Potter and the Half-Penis Prince


Passið ykkur á Konna, hann er ýkt góður í þessum leik.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:09







16.2.06 :::


Which My So-Called Life Character Are You? Find out @ She's Crafty

Ó mæ.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:02








Fyndið
Um daginn sat ég með hópi stúlkna og tveimur fylgifiskum og horfði á sjónvarp sem sýndi tónlistarmyndbönd. Eitt myndbandið var með Robbie Williams þar sem hann er Elvis-stílaður fram úr hófi, bæði hvað varðar hár og gullsamfesting. Auk þess leikur hann sér með gítar sem hann spilar varla á, heldur sveiflar mjöðmunum á bakvið. Allt saman kreisí Elvislegt. Þá segir ein stelpan: "Bíddö... hver er hann að þykjast vera? Djonní KEIS?"
Ég sprakk úr hlátri svona innan í mér þar sem ég þekkti stelpuna ekki mikið.

Og vá hvað er til mikið af typpamyndum af Robbie á netinu.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:39







14.2.06 :::

Næld/"égveitekkihvað"-uð
... af Rósalind og Ásdísi. Þetta gekk líka á MySpace, og þar voru mun fleiri hlutir til að gera.

So here it goes:

Fjögur störf sem ég hef unnið yfir ævina:
• Götuleikhúspjása
• Aðstoðarleikstjóri
• Leikkona í bíómynd
• Magadanskennari

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
• The Court Jester
• Bridget Jones' Diary
• Napoleon Dynamite
• Spinal Tap

Fjórir uppáhaldsveitingastaðir:
• Wagamama
• Austur-Indíafjelagið
• Belgo Centraal
• Austurlandahraðlestin

Fjórir staðir sem ég hef búið á: (þetta þarf ég að teygja, svo staðir sem ég hef búið á í 3 vikur eða lengur)
• Bergstaðastræti 59
• Sandy Springs, Columbia
• Stenbacka við Svansö í Birkiskógi í Smálöndum
• Maniánska, Tékklandi

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
• PROJECT RUNWAY
• Project Catwalk (the UK version)
• America's Next Top Model
• Little Britain

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
• New York sept. 2005 (besta ferð í heimi)
• London, síðast í júní/júlí 2005
• Kaupmannahöfn, nóvember 2004 að hitta Snæbjörn
• Krít ágúst 2003. Ekki jafn gaman og ég hefði vonast eftir, of mikið af fólki sem mér fannst ekki skemmtilegt.

Fjórar bækur sem ég get lesið oft:
• Elías
• Sjálfstæði Íslendinga 3 (hún var erfið)
• Gallastríðið
• Elías kemur heim

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
• New York, Piano's, mánudagskvöld.
• Ítalíu
• Prag
• London

FJórar plötur sem ég get hlustað á aftur og aftur:
Revolver með Bítlunum
White Blood Cells með White Stripes
Get Behind Me Satan með White Stripes
Elephant með White Stripes

Fjórar heimasíður sem ég heimsæki daglega:
Ugla.hi.is
þessi
myspace.com
blogjob.com

Fjórir hlutir sem ég hlakka til:
• Að höndin verði ok
• Að fara í magadansferð til Svíþjóðar
• Að fara heim og fá mér að borða
• ... og þetta:



Fjórir sem þurfa að gera þetta líka:
• Konni
• Atli haha
• Vigdís
• Pabbi (hér í kommentakerfinu)


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:18







onjack
You are on-stage Jack! You know how to please a

crowd and wow the audience. You are outgoing, boisterous, and sometimes even childish at

times. You are prone to throwing tantrums and then going back to being an angel. You don't

mind sharing the spotlight, but you also can't help but end up in the middle of it.

Just make sure you don't wear your other friends out!!!


Which Member of the White Stripes are You Most Like?
brought to you by Quizilla

Sorry. Ég ætlaði að hætta að pósta quiz results, en bara gat ekki leppt því að segja fólki að í alvöru er ég Jack White.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:53







13.2.06 :::



Þetta er mynd af pabbanum mínum með krullur og eyrnalokka
Hér er glas, hér er glas, hér er glas glas glas.

P.S. Djöfull er David Attenborough alltaf sexý.
P.P.S. Þeir sem föttuðu ekki froskagrínið eru ekki sexí.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:21







12.2.06 :::


Did somebody step on a frog?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:32








Ég elska þennan mann. Hann er svo mikill teiknimyndahommi að það er stórkostlegt. Hann sefur með slæðu og þegar hann er að sauma og preppa fyrir tískusýninguna, þá er hann með rúllur í hárinu. Svo er hann voða mikið krútt og dramadrottning.
Jebb. Project Runway SERÍA 1!!!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:05







Djammregla
• Að koma heim jafn fínn og maður fór að heiman.
Mikið afskaplega er þetta góð og sólíd regla.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 02:39







6.2.06 :::

Nú fór ég út að borða á sunnudaginn
Og sá þroskaheftan homma.
Hvort er betra orð yfir þroskaheftan homma; þrommi eða hossi?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:52







5.2.06 :::

Habibi, Mahmoud!
Í lok maí höldum við nokkrar úr Raqs Sharki dansfélaginu til Stokkhólms að læra meiri magadans og taka þátt í sýningum. Þetta verður ruglað gaman, því þarna getur maður tekið workshop hjá stórum magadansnöfnum, svo sem Aida Nour og Mahmoud Reda. Mahmoud Reda er mentor Maher sem kennir mér núna, og Maher er mikið í mun að Mahmoud heillist af okkur og dönsunum hans Mahers. Alltaf þegar sagt er Habibi (ástið mitt) í textanum segir Maher: HABIBI MAHMOUD!!! eða OG SÅ SMILE TIL MAHMOUD!!
Þetta væri kannski ekki svona fyndið nema fyrir þær sakir að Mahmoud Reda er alveg Jesús Kristur óríental dansins, svona svipað eins og að dansa ballet og brosa til Barishnikovs eða dansa jazzballet og reyna að heilla Bob Fosse.
Við erum að læra tvo dansa, einn Felahi/Beladi sem er svona... uuu... sveitabónda/konudans. Hann er dansaður í alveg eins kjól og þessum (dsís, svo fyndið myndband). Hún tók fyrstu taktana úr Notwist lagi. Kjólarnir eru núna kallaðir Nancy Ajram kjólar, eftir að hún var í svona í þessu myndbandi. Síðan dönsum við faraóadans, sem er dansaður í Kleópötrubúning með hárkollu og allt. Hann byggist á morgum svona walk like an egyptian-sporum. Mér finnst hann ótrúlega skemmtilegur og töff.

P.S. Þessi færsla var tileinkuð Konna. Og Bergþóri Páls.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:55







4.2.06 :::

TIL HAMINGJU ÍSLAND!!!
Frk. Sylvía Night var í línudansarabúningnum sem ég var í í Jeff Who-myndbandinu. Nema ég var ekki með hann svona uppi í rallanum. Þau hafa bara náð að þrífa mesta blóðið úr tjullermunum. Vonum að hún hafi ekki slasað sig i honum.
Og eitt enn: Bein útsending MY ASS!!! Bjartmar Guðlaugs.... nei ég meina Þórðarson var nefnilega að leika í Túskildingsóperunni í kvöld, og hann var mættur í smink og upphitun klukkan 7.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:55







3.2.06 :::

Inside information
Lagið My Favourite Friend fjallar um Joey Tribbiani.

Auk þess ætla ég að sýna ykkur kweisí tilboð:

ÉG er snyrtifræðingur starfandi sjálfstætt á snyrtistofunni Helenu fögru, og
hef verið þar um tíma.
Ég hef ákveðið að fjárfesta ekki í auglýsingu fyrir starfsemina mína, heldur
láta núverandi og tilvonandi viðskiptavini njóta betri kjara í staðinn.

Í FEBRÚAR mun ég vera með eftirfarandi tilboð:

Með öllum ANDLITSBÖÐUM (Hreinsun, djúphreinsun, andlitsnudd) fygir litun,
plokkun, og fótanudd.

Með FÓTSNYRTINGU fygir french manicure gel ásetning á táneglur (sem
fyrirbyggir fótasvepp, og lagfærir afskræmdar neglur útlitslega séð)

Með öllum GELNÖGLUM fygir handmaski, og 15 mín slökun í hvíldarherbergi.

Ef að þið viljið panta tíma þá er símin 5613060, og mikilvægt er að panta
tíma hjá Maríu Björg til þess að tilboðin gilda.

Endilega sendið þennan póst áfram á alla þá sem að þið teljið hafa áhuga á
meðferðum. OG einnig til þess að styðja þetta framtak hjá mér;)

Kær Kveðja Maria Björg Tamimi, snyrti-förðunar og naglafræðingur
Vinnusími 5613060
Gsm 6623992


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:34







2.2.06 :::

All together now
Allir að kjósa Diktu til tónlistarverðlauna Xfm á xfm.is. Tilnefndir í þremur flokkum.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:14