Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Gips Byrja að skrifa: 21:15 Sl. fimmtudag hringir Dísa í mig dauðskelkuð og segist ekki þora að fara ein í upptökur á myndbandi fyrir Jeff Who. Mokki samþykkir að fara með sem creature comfort, en er brátt settur í búning og málaður. Var í línudansarabúning og með skinn á höfði og niður á bak, sem póníhestur. Var barþjónn og fékk að brjóta flösku á höfði ungs manns. Hollywoodflösku úr sykri. Jájájá. Fyrir síðustu tökuna varð slys, á mig datt glerhilla og fór inn i handarbakið eins og geimfar fer inn í ósónlagið, húðin flettist upp og ég sá beinin mín. Þau eru skjannahvít og fín. Fór upp á slysó um 12 með Sindra Kjartans, sem ég hélt að væri leiðilegur en var skemmtilegur. NB var í línudansarabúningum og netsokkabuxunum ennþá. Fólkuið á biðstofunni hló og kváði. Ég er með 3 skaddaðar sinar, 5 spor í þeim, 14 á handarbakinu sjálfu, hægri hönd. Komin heim og upp í rúm klukkan hálf sex, mætt í skólann að stjórna umræðum klukkan hálf 10. Tobbi sýndi mig á tónleikum á föstudagskvöld eins og sirkusdýr, Hössa ú Quarashi fannst ég cúl... eða ekki. Elli búinn að vera í sambó, Jeff Who borgar öll lyf og læknatreatment. Meika varla að tala við hann,. var svo skotin í honum þegar ég var 15-16. Gat varla þjónað í sextugsafmæli pabba hans fyrir einhverjum árum síðan. Vei. bæbb
búin að krifa klukkan 21:31, nokkuð gott, reyni að glósa í skólanum.
Update on Life Guðrún Helga er búin að vera kreisí mófó dugleg að plögga HIV-verkefnið. Mjög spennó fyrirlestrar. Mér þykir það ógeðslega leiðó, en ég þarf að draga mig út úr AIESEC í svona mánuð vegna ýmsra verkefna. Fyrir það fyrsta er ég að taka mjög djúsí kúrsa sem krefjast lesturs margra stórra bóka (það er hægt að spara peninga með því að nota google, flestar klassískar bækur eru á netformi, mæli með því), en svo er magadansinn farinn að spila mjög stóra rullu í lífi mínu. Ég ætlaði mér að vera með í súdentaleikhúsinu en Maher (flugvélagæjinn) er að koma í byrjun febrúar sem er krúsjal tími í The Stud Theatre, en ég ætla mér að mæta í tímana hans upp á danslærdóm fyrir Svíðjóðarferð í maí. Ég fékk líka svo fína kvöldvinnu sem passar vel með Þjóðleikhúsvinnunni, ég er farin að kenna magadans í Kramhúsinu. Það er ógeðslega gaman. Ég kenni 40+ hópnum, sem eru um það bil 15 konur sem eru ótrúlega hressar og jákvæðar. Ég er bæði að græða pening og dansfærni. Ekki slæmt. Og dáleiðingagaurinn var í alvöru prófessor og eitthvað, en hann var samt pervert. Vei, pervert. Svo er maður líka að plögga giggið 4. mars. Það verður stuð. Ég er svo spennt að ég þarf alltaf að pissa þegar ég hugsa um það. Jibbí. Á föstudagskvöld eru brjálaðir tónleikar á Gauksanum (it's THA PLACE), Dikta, Jeff Who? (Goldblum klárlega) og Mammút. Eða Mamút. Eða Mammút. Eða Mamút.
Hvar eruð þið núna sem vilduð fá þennan snjó? Hættiði svo að hneykslast á mér þegar ég segist ekki vilja þetta. Maður festist, getur ekki labbað því það er búið að moka yfir allar gangstéttar og verður herra Pirripú. Og já, Shandi og Karaoke Killed the Cat eru að koma til Íslands. Húllið verður á Gauk á Stöng, laugardaginn 4. mars. Vííííí. 500-1000 kall inn, fer eftir ýmsu. Hér er mynd af Gio að syngja karaoke: Ef þú vilt vera svona cúl, komdu þá. OG taktu vini þína með, svo einhver klappi.
I wanna hypnotize you baby on the telephone Jámm. Meira myspacegaman. Í gær breytti ég prófælmyndinni minni þar í þessa sem er hér til hliðar. 10 mínútum síðar fékk ég þetta ímeil:
Subject: modeling question Body: Mokki,
Great pics. Hope you can forgive this intrusion. Also hope you don't get a ton of bizarre, random emails....because I fear I may be adding to your pile! But I thought it wouldn't hurt to ask...do you ever consider freelance modeling/acting jobs at all? I am a 25 yr old teacher here in NYC who is also a Doctorate student in St. John's Clinical Child Psyche/School Psyche program.
I love your look for something I am doing, which is basically an instructional video for how-to-hypnotize (yes, it involves being hypnotized and yes you can bring people with you and yes it is impossible to do ANTHING you wouldn't normally do when you're hypnotized).
Fun job, very generous payrate (50 dollars an hour) plus perks.
Anyway, I've either freaked you out already or intrigued you. Let me know if you'd be at all interested.
Thanks, Mike P.S. I am in your area somewhat frequently due to family that's relocated down there, so don't worry about traveling!
Lífið er of stutt til að ... borða vondan mat. Nammi nammi. Matur hjá tengdó, öðuskel, hreindýr (clean animal), og konfektís. Hvítt, rautt, SAMBVCA. Var í myndatöku í dag. Rósí tók myndir af okkur stelpunum í magadansbúning. Hlakka til að smella myndunum hér... eða eitthvað. Kannski verð ég eins og selur í búning. Ég verð samt ábyggilega aldrei jafn ... uuu... ómyndarleg og Raqia Hassan og pípureykingadansararnir hennar... SÖSS.
Is someone kidding me now? Ég er að hlusta á plötu með Belle and Sebastian sem heitir If you're feeling sinister – Live at the Barbican. Platan er ágæt, en lag númer tvö, Seeing other People, er að pirra mig svolítið. Þarna reynir Sebastian að vera eins og Jack White. Ég veit ekki samt hvort hann er að reyna það. Ég meina... textinn og honkítonkið? Er einhver sammála mér?
(Hann er kannski ekki að herma beint, þar sem platan er frá 1996... en þetta pirrar mig samt. Veit Jack af þessu lagi eða ekki?) (og já, ég hvet fólk til að skoða bloggið hans Jack)
2005 Janúar Skólinn vék fyrir hinum stórgóða Civilization III sem Óli lét mig fá og Predator Week á National Geographic stöðinni. Skólaleiði helltist yfir mig um miðjan mánuðinn, og tók ég á honum með því að búa mér til svakalega gott nesti, grænmetislasanja og svoleiðis gúmmelaði. Minkurinn fór í sumarbústaðaferð sem heppnaðist mjög vel. Í lok mánaðarins skellti ég mér til Akureyrar að sjá Óla frænda og Esther í stórgóðri uppfærslu á Óliver Twist. Það var góð ferð.
Febrúar Þann 7. febrúar byrjaði ég í magadansi. Ég heillaðist strax í fyrsta tímanum og er enn að. Um svipað leyti átti sér stað stórt rifrildi milli okkar Skúla og sambandið hékk á bláþræði. En það lagaðist. Ég fór með AIESEC í ferð í Þjórsárver. Þar lærði ég dansinn við Dragonstea din Tei. Eftir tvo tíma í magadansi var ég færð upp um flokk, úr byrjendahóp og í sýningarhóp, það væri best fyrir alla, þar sem stelpurnar í hópnum hermdu bara eftir mér. Mér leið loksins vel í dansi, og brjóstin og stóru mjaðmirnar voru ekki fyrir. 17. febrúar dansaði ég síðan fremst í flokki á danssýningu í Iðnó... 10 dögum eftir fyrsta magadanstímann. Í febrúar var afskaplega fallegt veður í Reykjavík, svona Lundúnaleikhúsþoka. Í lok mánaðarins horfði ég á Óskarinn og langaði að drepa Ívar Guðmundsson.
Mars 6. mars fór ég á árshátíð enskudeildar. Bing mætti í gallabuxum og gallaskyrtu, og ég vissi af hverju. Hann misskildi ábyggilega hugtakið galaklæðnaður. 15. mars var kvennakvöld hjá Raks Sharqi, og það var ofboðslega gaman. Ég fór í leiðilega fermingarveislu, þar sem fermingarstúlkan sem ég þekkti ekki neitt klæddist diesel gallabuxum. Við gáfum henni Oxford English Dictionary. Góð gjöf. Ég komst að því að ég er með sama smekk og einhevr gella úti í bæ. Fyrrverandi kærasta fyrrverandi kærastans míns, er trúulofuð strák sem ég var gríðarega skotin í á gelgjunni. Auk þess er Renée Zellweger með sama smekk og ég (fyrir utan þann sem hún var með síðast)... ég meina kommon, með Jim Carrey OG seinna Jack White? Söss. Mamma og Amma fóru til London að djamma í Royal Albert Hall. Ég og Hlíðaskólakrakkarnir byrjuðum að taka upp myndina sem við gerðum.
Apríl Aprílgabbið heppnaðist vel, en ég setti sónarmynd Hildigunnar Einarsdóttur á bloggið mitt. Ásdís missti sig. Í byrjum apríl fórum við Ásdís að tala um að fara til New York. Við Götuleikhúspjásur vorum í Stundinni okkar. Ég varð 21 árs og upplifði tilvistarkreppu, fékk skemmtilegt símtal á afmælisdaginn, þess efnis að í lok júní væri mér og 3 öðrum boðið til London á vegum Utanríkisráðuneytis Bretlands. Yessss. Skúli eignaðist litla sæta frænku.
Maí Við Konni fórum ásamt tjah, nokkrum eldri borgurum á vortónleika Bergþórs Pálssonar. Ég fór í mörg próf. Sum gengu vel, önnur ekki. Skúli fór með hinni kærustunni til San Francisco og New York. Ég vann eftir próf í Hlíðaskjólinu að klára stuttmyndina.
Júní 1. júní byrjaði ég í Götuleikhúsinu og frumsýndi Svarthvíti. Ég fór með Magnúsi SIgurðssyni í leikhús á Rambó 7. Ég fór líka á Circus Cirkör og skemmti mér konunglega. Við Ásdís sáum dagsetningu fyrir tónleika White Stripes á CONEY ISLAND. 25. júní fór ég til London. Dikta tók upp plötu.
Júlí Jón átti það til að leika blindan mann í gríni. Eitt sinn, framan við London Eye, tók hann léttan blindraleik og missti peysuna sína, við hin stóðum álengdar og hlógum. Kom þá maður þar að, virikilega áhyggjufullur, og spurði hvort ekki væri allt í lagi. Jújú, sagði Jón. Maðurinn stóð álengdar og skimaði um, hvort einhver væri með aumingja manninum, eða hvort voffinn hans hefði hlaupið í burtu. Jón stefndi óðfluga á pulsuvagn. Maðurinn var tilbúinn að hlaupa og stoppa hann af, þegar Jón snappaði út úr karakter og kom til okkar hlæjandi. Aumingja maðurinn, hann og konan hans urðu miiiiiiður sín. Sjitt, það var svo gaman í London. Maður sem ég kannast við fékk sér Snoop Dog-tattú á rallann. Við Ásdís, Konni og Egill keyptum okkur miða á White Stripes, og mér varð ilt í mallakútnum af spenningi. Ég aukalék í stuttmyndinni Family Reunion. Vigdís eyddi öllum mánuðinum í Egyptalandi í sumarbúðum á vegnum Sameinuðu þjóðanna.
Ágúst Skúli átti afmæli 7. ágúst og ég fór með hann í óvissuferð í hroðalegu veðri. Götuleikhúsið kom mikið fram í ágúst. Á Menningarnótt götuleikhúsaði ég og magadansaði. Ég fór í sumarbústað í Blöndudal og keypti magadansbúning með hjálp Konráðs. Jóhanna Lind var skírð.
September Álfheiður í New York fékk búinginn sendan. Skólinn byrjaði og ég fékk vinnu með skólanum í Þjóðleikhúsinu. Þrándur hittist í matarboði og ákvað Akureyrarferð. Mamma og amma fóru að djamma í Feneyjum með Stuðmönnum. Ég fór til New York. Þar sá ég White Stripes, sæotur, Shandi, Karaoke Killed the Cat, Spam Alot, risaeðlubein, Toy's R Us, Frelsisstyttuna og Manhattan úr þyrlu. Ég borðaði góðan mat og drakk mikið Starbucks. Meðan ég var í New York fæddist þeim Unni Maríu og Degi lítil stúlka, Líf Dagsdóttir.
Október Við Ásdís fórum í AIESEC-ferð, og lærðum að dansa Tunaq-tunaq dansinn. Ég fór að sjá Forðist okkur og það var mjög skemmtilegt. Halloween enskudeildar var steikt. Airwaves var gaman. Ég keypti miða á White Stripes á Íslandi.
Nóvember Balletreunion.... vá hvað það var gaman. Við erum allar svo sætar og skemmtilegar. Skúli fór að hitta Hödda í London. Ég fór með Þrándarliðinu til Akureyrar að sjá Fullkomið brúðkaup og var sú ferð alveg frábær. Mamma og pabbi áttu 26 ára brúðkaupsafmæli. Dikta hélt góða útgáfutónleika. Ég var drum tech. White Stripes tónleikarnir voru ekki jafn góðir og þeir á Coney Island, ég held að það sé að mestu vegna þess að þarna var fólk sem var þarna ekki af heilum hug. Mæli með því að fara á tónleika erlendis, þar kann fólk þetta.
Desember Ég dansaði á jólasýningu Kramhússins. Það var gaman. Ég tók jólapróf, það var ekki gaman. Ég hitti 6.A og það var gaman. Jólin voru æðisleg og sömuleiðis kórtónleikarnir. Áramótin og allt jájá.
Ég er að enduruppgötva Backstreet Boys. Svo kjánalegt að það verður gott. Tell me why... ain't nothing but a heart ache... tell me why... ain't nothing but a mistake... tell me why... I never wanna hear you say... I want it that way.