Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






31.12.05 :::





Ó MÆ
Ég leit í kringum mig aftast í kirkjunni.
Ungur maður náði augnsambandi við mig.
Hann brosti.
Ég brosti.
Síðan fór ég í kerfi.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:15







30.12.05 :::

Áramótin
Skipti jólagjöfunum og fékk mér buxur, bol og eyrnalokka sem passa við áramótin. Mjög sátt. Mun vakna snemma... eða svona... og krulla á mér hárið. I love it.
Ég ætla í fjögur partý, en verð á bíl því þau eru svo víða um bæinn, eitt í Vesturbænum og þrjú í Garðabæ.
Áramótaheitið mitt er að gera mikið á þessu ári sem ég á eftir að geta sagt sögur af. Ég ætla að búa til sögur af sjálfri mér.
Segið mér eitt... hver borgar 2.900 krónur til að sjá Sálina hans Jóns míns á nýársnótt? Hvaða fólk á peninga til að eyða í svona vitleysu? Suss.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:34







Jólatónleikar MR-kórsins í kvöld í Kristskirkju klukkan átta. Kostar eitthvað inn? Nei, ekki neitt.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:02







29.12.05 :::

Þetta er spennandi.
Ég bíð spennt. Góð jólagjöf þetta.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:01







28.12.05 :::

South Park
Mér finnst South Park ekki mjög skemmtilegt, en mér fannst gaman að búa til fjölskylduna mína sem South Park karaktera. Hvað finnst ykkur?


Vigdís


Mamma


Pabbi


Skúli


og ég

Endilega prófið sjálf á þessari síðu


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:49







Hey Mickey
Loksins hef ég fundið draumahlutverkið. Mikki refur. Ef fólk hittir mig og ég er með refaskinnið sem Skúli gaf mér, þá skal ég taka fyrir ykkur Mikkalagið og þið munuð sjá að ég á fullt erindi í hlutverkið.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 02:30







25.12.05 :::

Var víst búin að lofa þessu
Já, mamma og pabbi voru mjög sátt með matinn. Við systurnar hengdum lak fyrir eldhúsdyraopið og þau máttu ekki koma inn.
Við byrjuðum á nautacarpaccio, ætluðum að hafa hreindýr en slíkt var aðeins hægt að fá í tröllapakkningum sem kostuðu an arm and a leg.
Þá vorum við með millibita sem var lax hjúpaður með brenndum kóríanderfræjum og svörtum pipar. Þegar við vorum að brenna þetta á pönnu hóstaði móðir mín út úr sér lungunum, en hún var uppi að þurrka af. Piparinn fer illa í öndunarfærin.
Þá var surf and wild turf, humar og dádýrasteik. Fyrst steiktum við á pönnu sveppi, skalottulauk, ferskt rósmarín og basilíku. Síðan vöfðum við dádýrasteikinni og þessu gumsi inn í parmaskinku. Humarinn var bara grillaður í ofni, með hvítlaukssmjöri með miklu gumsi. Gumsið var einn og hálfur skalottulaukur, heill hvítlaukur og basílíka og til að halda í hollustuna þá var 50% smjör og 50% ólífuolía. Meðlaætið var chayenne-hrísgrjón og léttsteikt hvítkál með basilíku, en það er það jólalegasta sem hægt er að borða. Með þessu var síðan sveppasósa. Við átum yfir okkur, við systurnar þruftum að losa korsiletturnar sem við vorum í og allt.

Ég fékk allt sem ég vildi í jólagjöf og meira til. Ég vil ekki monta mig hér. Ég er þakklát og auðmjúk.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:32







23.12.05 :::


Ég er svo fegin að vera búin í prófunum.
Ég hlakka svo til morgundagsins, að vakna og elda allan daginn. Við Vigdís gefum s.s. mömmu og pabba það í jólagjöf að elda á aðfangadagskvöld. Þau hafa ekki hugmynd um hvað er í matinn. Pabbi minn hefur áhyggjur af því hvað hann eigi eigilega að gera á aðfangadag fyrst hann má ekki vera í eldhúsinu. Hann ætlar samt líklega að taka baðherbergið rækilega í gegn.
Í gær fórum við að kaupa í jólamatinn, jækes. 2 pokar fyrir 11.000 kall. Það er samt lítið miðað við þennan veislumat fyrir 5 manns. Afi Óli (Ravióli) verður með okkur á aðfangadagskvöld. Það er spurning samt hvað hann gúdderar matinn, en það verður bara að hafa það.
Svo hittumst við í kvöld að dansa í kringum jólatréð á Ingólfstorgi. Sko, þið fenguð jólasnjóinn sem þið óskuðuð eftir.

Útvarp Reykjavík, útvarp Reykjavík; kuntusafi.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:45







21.12.05 :::

FOKK MIG LANGAR SVO AÐ FARA Í KLIPPINGU


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:35







20.12.05 :::

GAMLÁSS
Fólk er farið að slást um að hafa mig með sér/hjá sér á gamlárskvöld. Gamlaárskvöld? Gamlárskvöld? Whatever. 31. des bara.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:01







19.12.05 :::

Færsla um allt
Ég hlakka svo til að klára prófin.
Ég ætla að:
1. Taka til í herberginu mínu og setja strujuð rúmföt utan um sæng og kodda og dýnu. I LOVE IT.
2. Kaupa jólagjafir
3. Skrifa jólakort
4. Pakka inn
5. Kaupa í jólamatinn
6. Hitta loksins 6.A
7. Dansa í kringum jólatréð á Austurvelli klukkan 00 á Þorláksmessu

8. Nota heilan dag í að preppa og elda
9. Vera fín
10. Hitta fjölskyldurnar allar
11. Fara á kóræfingar (já mín er í kór bara haaa... ég var að syngja La Bamba í partýi og var boðið að koma í kór og var mætt á æfingu daginn eftir)
12. Syngja á kórtónleikum 30. des. Ókeypis inn, man ekki hvar. Við syngjum Home Alone-lagið.

Í tilefni af því að ég er að fara að hitta besta bekk í heimi 22. þá kemur hér smá tilvitnun í mann sem skilur mig með hjartanu:
Fall is here, hear the yell
back to school, ring the bell
brand new shoes, walking blues
climb the fence, books and pens
I can tell that we're going to be friends


Ég spilaði á flautu á plötu sem fékk 5 stjörnur af 5 í Mogganum í síðustu viku. Auk þess geri ég trommutrikk á henni og eldaði mat fyrir hljómsveitarmeðlimi og upptökustjóra.

Síðan mæli ég með þessu andlitsdæmi. Ég gerði þetta til að sjá hvort ég væri í alvöru eins og Kirsten Dunst, en ég fékk þetta:
74% Jennifer Lopez (WHAT?)
72% Grace Kelly,
72% Scarlett Johanson,
69% Prianka Chobra (YESSS!!! BOLLYWOOD HERE I COME!),
67% Lindsey Lohan,
66% Elisha Cuthbert.
Það sem er svo merkilegt er að mamma fék einnig Grace Kelly, en amma og Egill mömmubróðir fengu Isabellu Rossilini, sem er dóttir hennar. Þannig að það er einhver family resemblance með okkur haaa.
Uppfært: Ég er með hristibúðing í hausnum, Isabella er dóttir Ingridar Bergman. Demit.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:12







15.12.05 :::

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og..
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
4. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.

Kannski móðga ég einhvern. Þetta er spennó.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:31







Laukhringir
Stundum hellist yfir mig ofsaleg löngun að fá mér laukhringi. Þetta er hvimleitt af ýmsum ástæðum:
1. Laukhringir sem hægt er að kaupa frosna í búð eru með asnalegum hjúpi með einhvejum dómínóskornum utan um sig, sem er vont. Auk þess eru þeir svo grófir að þeir verða voðalega leiðilegir undir tönn.
2. Ég kann ekki að búa til nógu gott orly sjálf utan um laukhringina sem ég reyni að gera hérna heima, svo það verður bara eitthvað grín.
3. Svo er hætt að selja laukhringi um bæinn í svona take away, nema á kjúklingastaðnum í Stigahlíð, en þar fást bestu laukhringir heims.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:18







Að fornensku prófi því sem Atli beilaði á loknu
Mér finnst málfræði leiðileg, en mér finnst setningarfræði skemmtileg. Ég er kjáni.
Mér gekk samt vel í prófinu, setti mig í Lord of the Rings gírinn bara.
Jarðstappi (eorthstapan eða eitthvað þannig úr The Wanderer (yeah the wanderer and around around around)) er fallegt orð yfir ferðamann og ég ætla að nota það í staðinn fyrir orðskrípið túristi.
Millanga jól núna.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:47







14.12.05 :::


Ég er ekki typpakall,
typpakall,
typpakall,
ég er ekki typpakall;
þú ert typpakall.

Já, það er komið að því. Typpahátíðin er gengin í garð.
Óskað er eftir skemmtilegum nöfnum á typpi. Mamma mín er komin með Þorvaldur víðförli. Mitt framlag til þessarar hátíðar er Melkólfur í miðjunni.
Komaso. Gaman í prófunum.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:36







12.12.05 :::


Ég er í Mogganum í dag
Eins og hvítur og gylltur magadans-jólaengill.
Ég er að reyna að hafa upp á vídjói af dansinum, til að þeir sem fóru á Antony og voru heima að lesa geti séð þetta. Þetta er ofsalegur dans.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:12







11.12.05 :::

Steinunn og Einar
Ég hef alltaf jafn gaman að umræðum um pólítík í Kastljósinu og svipuðum þáttum. Ekki af ég hafi áhuga á þessu, heldur vegna þess að í þessum umræðum er það nákvæmlega sama uppi á teningnum og í ræðukeppnunum í gamla daga; það er ekki hægt að finna sameiginlega útgangspunkt, þannig að umræðurnar eru engar. Þetta er bara eitthvað endalaust pex.

Heyrðu nú mig. Hann Daníel Ágúst er að púlla eitthvað Jack Sparrow-lúkk.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:36







10.12.05 :::




Jájájájájá.


Var að laga búnigninn minn, þann sem ég fékk á ebay. Nú passar hann mér fullkomlega, og ég er meistari í að sauma pallíettur og perlur á teygjuefni. Ég er eins og sírena í honum, óendanlega sæt og kvenleg. Ég þurfti að færa tvær efstu peningaraðirnar neðst, til að rassinn væri ekki eins og geimskip. Auk þess passa brjóstin í hann og það er sko eitthvað annað en á hinum búningnum mínum, en honum virðist vera illa við þau og vill helst henda þeim framan í áhorfendur. Eða að gerivörturnar mínar séu sviðsgraðar.

Síðast þegar dansaði í Borgarleikhúsinu (þá í Steps in the Street eftir Martha Graham), pommsaði ég á rallann. Skaust síðan strax upp aftur og kláraði mitt, en svo bara grét ég og grét baksviðs. Ég þurfti samt að taka á honum stóra mínum, því eftir hlé var ég nornin í Þyrnirósu og fékk að vera með DRAKÚLAskykkju og hlæja mjög hátt. MÚHAHAHAHAHA!!! Það var erfitt, hafandi pommsað svona á rassinn.
Cameron, besti danskennari í heimi, sagði samt við stelpurnar, með mig í fanginu: "Girls, if you don't fall on your ass, you're just not trying hard enough." Ég held að þetta gæti nú verið lífsmottóið mitt.
Svo er það stóra spurningin: Pommsa ég á rallann á morgun?



(Mér fannst myndin af þessum "magadansbúningi" fyndin)


Slegið inn af Mokki litli klukkan 02:03







9.12.05 :::

Magabelti
Mig langar í magabelti (e. girtle) í jólagjöf. Nú gæti fólk spurt sig: "Whaddafokk, af hverju fer rostungurinn ekki bara í megrun?" Það er nú bara þannig að í magadansinum er betra að hafa eitthvað að hrista. Ég grenntist um daginn en þá hristist ég ekki neitt, svo ég tróð smákökum í bumbuna og le Coca Cola og nú er ég goooood. En það er ekki alltaf fallegt að vera svona mjúk. Ég á marga kjóla og boli sem ég er alveg hræðileg í vegna þess að bumban lekur út fyrir buxurnar, þá sérstaklega til hliðana svo ég verð eins og snjókall í laginu... svona:
(____) Brjóst
_)__(_ mitti
(____) bumba sem er svona vegna buxnastrengs
(____) Mjaðmir.
Fólk hlýtur að sjá að þetta er algjörlega ótækt. Ég verð að fá mér magabelti, eða bumbustrekkjara eins og mambi kallar það.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:00







8.12.05 :::

8. des

Síðastliðin 12 ár hef ég klæðst ég svörtu 8. des. Hvet fólk til að fara heim og skipta um föt.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:47







4.12.05 :::

HCA
Á afmælisári HáCés fá ljótu leikararnir í Danmörku loksins nóg að gera.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:35







1.12.05 :::

Pungfrú Ísland
Frábært nafn á fegurðasamkeppni klæðskiptinga.
Ofsalega er ég sniðug og fyndin.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:04







Back to the future
Heim á fornar slóðir...
Mokki dansar í Borgarleikhúsinu þann 10. des. Kostar 1800 inn, eða 1600 ef þú kaupir miða í forsölu Kramhússins út þessa viku. Þarna kennir ýmissa grasa, magadans, afró, flamenco, tangó, hip hop, funk, jazzballet, karabískur dans, þjóðdansar frá Balkanskaga... ef þú hefur áhuga á að dansa af þér spikið eftir jól, komdu og kynntu þér hvað er í boði og óskaðu þér síðan dansnámskeiðs í jólagjöf.
Sýningin hefst klukkan hálf 9.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:03







50.000?
Ha? Þú?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:44