Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Ef einhvern langar að gera bíómynd um líf mitt, já eða sjónvarpsþátt, þá eru það vinsamleg tilmæli frá mér að nota þessi lög:
• Upphafslang, undir nöfnum á þeim sem leika í myndinni: Of Montreal - Wraith Pinned to the Mist and Other Games • Vaknað og burstað tennur og klætt í föt: The White Stripes - Jolene • Ofsalega sátt að ganga í skólann eða keyra einhvert skemmtilegt: Clinic – The Second Line • Dansað á nærfötunum: Supergrass - Grace • Falleg keleríissena: Stina Nordenstam - Purple Rain • Stefnumótasena: The White Stripes - I'm Finding It Harder To Be A Gentleman • Eftir rifrildissena: Bob Dylan - Don’t Think Twice, It’s all Right • Jarðarfararsena eða eitthvað mjög sorglegt, en samt gott: Nick Cave - Into my Arms • Dagur, fíflaríisgangur með homzunum: Ram Jam – Black Betty • Ofsalega skemmtilegur dagur þar sem allir eru ástfangnir: Nada Surf – The Way You Wear Your Head • Ofsalega cúlsena, þar sem ég er í nýju stígvélunum sem ég keypti mér: The Beatles – Money • Rólegheitabíltúr með homzunum: Will Oldham - Ain’t You Wealthy, Ain’t You Wise? • Dansað á húsþaki um miðja nótt: LCD Sound System – Daft Phunk is Playing at my House • Fallegur sumardagur: Dandy Warholes – Get Off • Ást við fyrstu sýn: Belle and Sebastian - If you find yourself caught in love • Kvöldstund með homzunum þar sem við erum að spjalla saman og borða ís: The Killers – Somebody Told Me • MInningar úr bernsku: White Stripes - We're gonna be friends • Ástarsena: Bob Dylan – You belong to me • Ein í bíltúr að átta mig á lífinu: Nada Surf – Blizzard of 77 • Hita upp og gera mig klára fyrir galeiðuna: Beck - Girl • Kynlífssena: Pixies - Hey • Pillowtalksena: The Beatles – Two of us • Sólin kemur upp og lífið er fallegt: Sufjan Stevens – Chicago • Flassbakk í eitthvað sem ég sé ofsalega eftir: Outkast – Miss Jackson • Sorgleg grátisena: Anthony and the Johnsons – Hope there's Someone • Margrét með brotið hjartasena: Emilíana Torrini – Tvær stjörnur • Ein, reið og bitur-sena: White Stripes – Same Boy you've always known • Ein að labba og jafna mig og átta mig á lífinu-sena: The Shins – Saint Simon • Snemma morguns, Margrét er ein í heiminum og hefur allan tíma sem hana lystir, til dæmis til að fara í fótabað: Yann Tiersen – Comptine D'un Autre Été: L'après Midi • Alein í heiminum: M. Ward – Sad, Sad Song • Allt fer til fjandans og ég fæ næstum taugaáfall: Belle and Sebastian – It could have been a Brilliant Career • Bíltúr með góðum og fyndnum vini: Outcast – Hey Ya • Langt í burtu, mikil heimþrá, eða þrá eftir einhverju fjarlægu: Jeff Buckley – Hallelujah • Lokalag: The Stranglers – Golden Brown
Samkynhneigt átak Nei, sameiginlegt átak. Gísli Einarsson verður að vera kosinn sjónvarpsmaður ársins á næsta ári. Sáuði hann með kirkjuklukkufréttina í kvöld?
Krúttíbumba Einu sinni var ég að labba með systur minni. Hún var fjögurra ára. Allt í einu sáum við ofsalega feita kisu. Vigdís: Vá, hvað þessi kisa er feit! Ég: Já, hún er kannski kettlingafull. Löngu síðar vorum við að borða og Vigdís var búin að borða ofsalega mikið. Allt í einu lyfir hún peysunni, svo bumban sést og hún belgir hana út og segir: Nú er ég alveg kettafull!
Ýkt ömurlegt Pabbi minn lærði ekki andasæringar í guðfræði. Ekki einu sinni sögu andasæringa.
Já, ég sá Emily Rose. Ég hef gaman að svona. Eins hafði ég gaman að þáttum Anthony Head um svona hindurvitni. Þættirnir hans um vampírur og andsetið fólk voru sérstaklega góðir. Mér finnst sterkasti þáttur myndarinnar vera sá að stúlkan sem leikur Emily er mjög ófríð. Leiðilegt að segja það. En þetta er samt skemmtileg mynd. Falleg á litinn.
Byrjað að rúlla SKO. Shandi og Chris og Matt og documentary gaurinn ætla að koma til Íslands. Við erum bara að bíða eftir góðu tilboði á flugi. Að flytja þau inn er dýrt. Hverjir hafa áhuga á að koma og borga 500-1200 kall inn??? Karaoke killed the Cat er skemmtilegt. Shandi er besti 80's DJ í New York, samkvæmt einhverri grein sem ég fann einhversstaðar. Þetta verður líklegast á Gauknum í júlí. Who's with me? Ekki verða þetta bara ég og Ásdís og Markús og Einar Steinn? Það þarf svo sem ekki fleiri í gott partý...
Hress Ég er orðin háð Myspace. Eða var. Ég var orðin háð Myspace. Núna áðan fékk ég skilaboð frá manni sem vildi verða vinur minn og tala við mig á MSN. Jamm. Hann sendi mér síðan link á myndaalbúmið sitt. Þarna eru myndir af hljómsveitinni hans og græjunum hans... ekki misskilja, fjarstýringum og svona. Jájá, alveg ábyggilega skemmtilegur strákur, en bara óður með græjurnar. Í alvöru, skoðunar vert.
SKO Ég er í tíma sem heitir Hollywood Musicals. Á föstudögum horfum við á mynd. Í dag fékk ég skilaboð frá samnemanda mínum, sem var rödd kennarans því hann er að halda erindi á Hugvísindaþinginu. Skilaboðin voru á þá leið að ég mætti ekki pikka á tölvuna á meðan myndinni stæði, það truflaði. Það truflaði stelpurnar sem sitja alltaf fremst og flissa. Ég pikka á tölvuna til að skoða myndina á IMDB. Eða til að sjá hvort einhver annar í heiminum hefur tekið eftir mistökunum sem ég sé eða til að sjáhvort ég hef rétt fyrir mér með danshöfund. Eða bara til að glósa. Þær glósa alveg jafn mikið, bara á blað. Auk þess reyni ég að pikka í músík-atriðunum. Dísús Frísús.
Ég er búin að vera í sambandi við Chris í KKtC og hann er spenntur að koma og halda karaoke-kvöld á Íslandi. Já, karaoke sem er rokk og skemmtilegt með stage-diving. Ég fór óvart að sjá þetta í New York, á góða góða góða staðnum Piano's. Þetta var svo ótrúlegt fjör. Ég á engin orð til að lýsa skemmtilegheitunum. Hefur þig langað að vera rokkstjarna? Þó ekki væri nema eitt lag? Og ef þú ert ekki karaoke-týpan, þá er svo gaman að fylgjast með þessu! Og að upplifa Matt og Chris syngja Total Eclipse of the Heart ert ótrúlega skemmtilegt. Það er eitt af mínum uppáhaldslögum í dag. Að öllum líkindum mun Shandi koma með og DJ-a fyrir eða eftir. Me and Shandi, LIKE THIS. Já, Shandi sem var í módel. Ef þau koma, þá koma þau í júní/júlí, svo fólk eigi pening til að borga sig inn, það myndi kosta svona 500/1000 kjell inn til að covera einhverja flugmiða. Hefur fólk áhuga? EHAGGI? P.S. Þeir eru allir ógisla sætir og búast við að fá smá action hér. Nema Matt, því hann er kærastinn hennar Shandi. Getiði ekki hjálpað mér með það?
I hope you know a strong man who can lend you a hand lowering my casket. Mikið ofsalega hefur Jack White lent oft í ástarsorg. Svo er hann líka svo góður í því. Ég er mikið spennt fyrir tónleikunum. Mikið mikið mikið spennt. Fyrst er samt Akureyrarferð með Þrándarmúsunum. Ég hlakka mikið til, því þetta er svo fyndið fólk. Ég er hlakkdýrið þessa dagana. Svo fer allt að gerast, próf og jólakökubakstur og svona.
Til hamingju með afmælið Kisi. Ég hef ekki hugmynd um af hverju ég man hvenær Leonardo DiCaprio á afmæli. Kannski því það er daginn eftir brúðkaupsafmæli mömmu og pabba. Eða kannski af því ég er fanatík. Eða var. Ég man eftir plakötum sem fylgdu með J17 sem kom á bókasafnið í Austó. Síðan slógumst við stelpurnar um þetta. Ég hengdi 3 í herbergið mitt, en mamma var ekki sátt. Við komumst þó að samkomulagi um að ramma þau inn, þá leit þetta betur út.
Ung móðir í Piparsveininum talar svona um barnið sitt, sem hún kallar hinn helminginn af sjálfri sér: Hún er nottla so lítil aðún veitiggi neitt. Ég ætla að vera hlýlegri en þetta í garð barnanna minna ef ég fæ að eignast börn. Síðan ætla ég að setja þau í kjúklingabúninginn sem ég keypti í Ömmu ríku.
Á neðstu hæð Árnagarðs Hér eru sagnfærðinemar að ræða tónlist. Sá talar hæst sem veit minnst. En hvað það er týpískt. Auk þess hefur hann mikinn áhuga á hverjir eru ljótir og hverjir eru ekki ljótir. En ég meina, kommon. Þessi dúddi vissi ekki hver Sjostakovich var, það er áður en þeir byrjuðu að tala um popp/rokktónlist. Hann þekkir heldur ekki nafnið Dr. Hook. Meira ruglið.
AAAAAAH.... Hann er utanbæjar. Hann vissi ekki staðsetningu Kaffi Austurstrætis. Þrátt fyrir að vera utanbæjar, þá skilur hann ekki sveitaböll, enda hefur hann aldrei farið á slíkt.
Margt hefur gerst á skömmum tíma. Nenni ekki að skrifa um það. Ég er bara að deyja úr spenningi vegna tónleikanna. Ekki búast við að hitta mig, ég verð nefnilega alvegt fremst, hendandi 13 ára unglingum í burtu. Ég er byrjuð að massa mig upp fyrir átökin. Naaaah... Hvern á maður að tala við ef maður vill bara taka í hendur þeirra tveggja? Ekki Bjössa, allavega. HANN VEIT EKKI NEITT.
Vatnspungur
Sko. Nú veit ég að það þýðir að vera ófrjór að vera með vatnspung. En er maður með eistu ef maður er vatnspungur? Eða er maður bara með vatn í sekkjum? Eða einhvern annan vökva? Svona sogæðavökva? Ég skil þetta ekki. Er þetta orð komið vegna einhvers læknisfræðilegs eða er þetta slangur? Hjálpið mér, kæru læknanemar.
Bleik Ég ákvað að fara í ljós í dag með mömmu. Ástæðan var sú að ég var orðin ljósgræn á litinn. Hræðilegur litur. Ég brann alveg rosalega mikið. Eins gott að ég slökkti á andlitsljósunum, ég er alveg nógu freknótt eftir þessar 3 mínútur með andlitsljós. Mamma mín slökkti ekki á þeim og er sem taska. Falleg taska. Ég brann samt á bumbunni. Ég get ekki lært yfir helgina. Ég brann svo illa á lærunum. Prumpupiss.
Tekið af heimasíðu Mr. Destiny The ticket sale for The Whites Stripes concert in Reykjavik starts Friday November 3rd. Tickets will be sold in the Skifan record shops (Laugavegur, Kringlan and Smáralind) and online through Midi.is. The White Stripes concert takes place in Laugardalshöll sporth hall November 20th.
The White Stripes recently released their fifth studio album, Get Behind Me Satan, that includes the storming singles "Blue Orchild" and "My Doorbell". The albums third single "The Denial Twist" will be released a week before the bands arrival to Iceland.
Þeir hefðu nú átt að hringja í eins og einn enskunema til að skrifa þetta, eða lesa yfir, eða láta Word tjekka á stafsetningunni!! Þetta eru þvílík setningarskrípi!!! Ég hefði bara beðið um að spyrja Jack einnar spurningar að launum. Fyrsta setningin er hroðaleg. Hroðaleg. Sömuleiðis fyrsta setning í annari grein. Dúddddddamía.
En ef, bara ef einhver sem vinnur þarna les þessa síðu, þá vil ég benda á þetta: The Whites Stripes concert á að vera The White Stripes' concert, allt í lagi ef þetta væri ein innsláttarvilla, en tvær? COMMON!!! sporth hall á að vera sports hall. "Blue Orchild" heitir Blue Orchid. Orchild? Er það orkabarn í LOTR? Ærónó. The albums third single á að vera the album's third single The bands arrival á sömuleiðis að vera the band's arrival.
Hljómsveit eins og The White Stripes ber að sýna meiri virðingu en þetta.
Finnska Kokko, kokoo kokoon koko kokko. Koko kokkoko kokoon? Koko kokko kokoon. kokoon kokoon. Þetta þýðir: Herra Kokko, vinsamlega settu saman Jónsmessunæturbálköstinn. Á ég að setja hann allan saman? Já, allan saman. Allt í lagi, ég geri það.
JÁ Ég á miða á tónleikana. Þetta verður nú gahahahahahaman. Tilhlökkunarlisti nóvembermánaðar er svona: • 4. nóv Balletreunion • 8. nóv Skúli kemur heim frá London. • 18. nóv Akureyrarferð með Þrándarliðinu til að sjá Fullkomið brúðkaup. • 20. nóv WHITE STRIPES TÓNLEIKAR. Maginn minn hoppar þegar ég hugsa um þá.
Þetta er eitthvað svona láttu ganga helvíti. Ef ég geri þetta ekki enda ég ein með kött. 7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey: 1. Fara á að minnsta kosti 10 White-Stripes-tónleika. 2. Eignast barn/börn, fer eftir því ´hversu vel það fyrsta heppnast. 3. Búa í útlöndum. 4. Læra á trommur 5. Fara sem fararstjóri með CISV 6. Halda risastórt grímuball og bjóða öllum sem mér finnst skemmtilegir. 7. Vinna verðlaun, bara einhver verðlaun.
7 hlutir sem ég get gert 1. Beyglað tunguna, þarf að sýna, ekki hægt að lýsa. Bara ég og Vigdís getum þetta. 2. Farið í handahlaup og splitt, jafnvel spíkat ef ég er virkilega vel upp hituð. 3. Gert mig árshátíðartilbúna á 20 mínútum, með sturtu. 4. Ferðast ein og finnst það mjög gott. 5. Gert mikið í einu, borðað, lesið og hlustað á útvarpið; shimmyað og gert mjaðmaáttur, hreyft hendurnar og slegið annan takt með fingrasymbölum. 6. Verið ÓGEÐSLEGA FYNDIN. 7. Eldað mat.
7 hlutir sem ég get ekki gert 1. Horft á fótbolta, spilað fótbolta, hugsað um fótbolta, eða nokkra aðra boltaíþrótt. 2. Haft þolinmæði gagnvart fólki sem segir mér hlakkar til. 3. Haft þolinmæði gagnvart félagslega vanhæfu fólki. 4. Dansað á táskóm. 5. Bakkað í stæði meðan það er verið að gera lítið úr mér. 6. Sofið í svefnpoka. 7. Borðað hangikjöt.
7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið 1. Hæfileikar, það sem gerir fólk einstakt. 2. Bros og tennur. 3. Verður að vera dökkhærður. 4. Hærri en ég og grannvaxinn. 5. Húmor fyrir sjálfum sér. 6. Typpi. Verður að hafa typpi. 7. Verður að vera ástleitinn.
7.Frægir karlmenn sem heilla mig. 1. Skúli Gestsson 2. Jack White 3. Stephen Dorff 4. Nikolaj Lie Kaas 5. Jim Carrey 6. John Malkovich 7. KGB
7 orð sem ég segji oftast 1. Klobbieman 2. Klofmaðurinn 3. Klobbiemankonan 4. Játakk. 5. Mjúkki 6. Typpakall 7. Bless.
7 manneskjur sem ég "þokkalega" ætla að kitla 1. Vigdís Perli 2. Una Sighvatsdóttir 3. Skúli, bara kitla hann með höndunum. 4. Ásdís Eir. 5. Konni typpakall, hann má samt segja frægar konur sem honum finnst sætar. 6. Erna Sif svo hún byrji að blogga aftur 7. Nanna Gunnarsdóttir.
Ég settist bara hjá honum á píasnóstólinn og svo grínuðumst við aðeins. Svo sagði ég bara: "Well, I think you should call it the Denial Twist." I kid, I kid. Hver er með mér í því að vakna snemma á föstudagsmorgun og bíða í röð?
Very funny Það þarf hljóð, Konni. En já. Ég veit ekki hvort þetta er grín eða ekki. Ef þetta er grín, þá er það fyndið. Ef ekki, þá er það líka fyndið. Pabbi, þetta er næstum jafngott og UMSTÚKUMÁL.
Api: "Finnst þér ekki skrýtið að við erum systur...? Eða þú veist... Að við eigum sömu mömmu og pabba?" Ég: "Þú veist að það er alltaf hægt að athuga það..." Api: "Jááá... fara í svona... hvað heitir það? Download?"
Api: "Og hvað sagði kennarinn þegar þú skilaðir ritgerðinni? Sagði hún: Fínt hjá þér Margrét mín?" Ég: "Ég efast nú um að hún viti hvað ég heiti..." Api: "OJ!!! Er þetta svona kærulaust í háskólanum?"