Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
STELPUR Núna eru að hefjast byrjendanámskeið í Kramhúsinu í magadansi. Aldrei þessu vant eru mörg laus pláss. Ég veit að ég þarf ekki að tíunda hvað þetta hefur gert mér gott og hvað þetta er óendanlega gaman. Byrjendanámskeiðið hefst þriðjudagskvöld. Allar nánari upplýsingar eru á Kramhúsheimasíðunni
Gæfan Í gámi inni' í Sundahöfn er gæfa mín geymd, ég get ekki leyst hana út. Ég stend bara einn undir sturtunni og sting mér svo beint út í laug, já magnað er lífið hjá murtunni...
You were only waiting for this moment to be free Í garðinum mínum má gjarnan sjá svartþrastapar gæða sér á því sem móðir mín setur í garðinn. Mamma mín er mikill dýravinur, nema ekki katta. Hún hvæsir á kettina og skvettir á þá vatni, og pabbi minn er með plön um að setja minkagildrur í garðinn og drekkja síðan köttunum. Þeir eru nefnilega að veiða fuglana. Mamma mín gefur fuglunum t.d. epli og stundum fer hún í Ali og kaupir svínafitu, sem hún bræðir í potti og setur brauð og epli út í, og setur það síðan storknað í garðinn fyrir fuglana. Það finnst þeim gott, og okkur finnst gott að vakna við fuglasöng. Í Hrísey var kattahald lengi vel bannað til að vernda varpsvæði. Fyrir nokkrum árum fékkst undanþága fyrir einum ketti, þó með því skilyrði að honum væri ekki hleypt út nema í bandi. Ég gleymi því ekki þegar við mæðgurnar stóðum á verönd Siggínu með rúsínur í lófunum sem þrestirnir borðuðu. Það var svona Disneymóment.
Mig langar í ferðalög Mig langar til London að hitta Dísu og Hörð. Mig langar líka að fara á Wagamama og Belgo Centraal. Mig langar til Dnamerkur að hitta Jón Kristján og láta hann nudda úr mér vöðvabólguna. Mig langar líka að hitta hana Líf litlu. Mig langar til Svíþjóðar að hitta Ragga og Elínu (það er samt komið á dagskrána í maí). Mig langar til Unu til Minneapolis eftir áramótin. Mig langar til Suður-Ameríku haustið 2006 að hitta André, Lari, Matias, Vero, Rodrigo og Danielurnar tvær. Mest af öllu vil ég þó hitta Matias minn og klóra honum á bakinu.
Það virðist alltaf koma okkur Íslendingum á óvart þegar haustið og veturinn kemur. Ég er nú samt alveg handviss um að það hafi aldrei verið svona ofboðslega kalt hér. Í kvöld er Halloween-ball enskudeildar. Mér verður kalt í búningnum. Ég verð bara í kápu og gammó. Ég kvíði nú samt meira fyrir prófinu sem ég fer í á eftir. Ég sit í tímanum Holywood Musicals, sem er gaman. Við erum að horfa á Band Wagon. Mér finnst Fred Astaire, sem er nafn númer 1 á IMDB, lítill og væskilslegur.
Ástarfleyið Gaman að því hvað ljótt og leiðilegt fólk á oft ljóta og leiðilega vini. Ég er samt ábyggilega rosalegt krútt og skemmtileg og fyndin, því vinir mínir eru þannig.
TVÖ • Í gær kom það fyrir, í fyrsta sinn, að ég þurfti ekki að stafa nafnið mitt fyrir manneskju sem skrifaði það. Ég meina, hversu erfitt er þetta? Emm a err gé err é té? E err ell a? Emm a a sé ká? • Ég er með marblett aftan á kálfanum því ég moonwalkaði á stól í gær. Hann var úr pottjárni og negldur við gólfið. Áts.
1. Fara á White Stripes-tónleika. 2. Af því að fyrstu White Stripes-tónleikarnir voru svo góðir, þá ber manni skylda að fara á aðra. 3. Fara á White Stripes-tónleika, því tvennir eru ekki nóg. 4. Fara á White Stripes-tónleika, bara til að geta montað sig á þeim að þetta séu nú fjórðu tónleikarnir. 5. Sjá nr. 4. 6. Sjá Jack White á sviði. 7. Sjá Meg White á sviði. 8. Fara á White Stripes-tónleika. 9. Fara á White Stripes-tónleika. 10. Fara á White Stripes-tónleika.
Ekkert af þessu telst sem sami hluturinn. Búin með eina, fer á aðra 20. nóvember. Þá á ég bara átta eftir.
Já maður Ég er búin að ákveða búninginn. Ellen frænka ætlar að koma og mála mig ofsalega mikið. Dramatískur glamúr er lykilorðið. Svo treð ég bara upp á grímuballinu... og redda þannig ýmsum einkunnum (vonandi). Ásdís kom til mín í gærkvöldi og sagði mér sögur af sjálfri sér. Það var gaman.
Seinni kvöld Airwaves Á föstudaginn byrjaði ég snemma, um hálf 9 á Grandrokk og sá nokur lög með Ókind. Það var gaman að sjá hversu margir voru þarna. Síðan fór ég í vísindaferð í Skjal og var þar til svona 10-hálf 11. Þá fór ég niður í Hafnarhús og sá tvö lög með Juliette. Þau voru svipuð, en gaman að sjá hana á sviði engu að síður. Síðan ætlaði ég að sjá Architecture in Helsinki en missti af þeim, standandi í röð. Sko. Á næsta ári verð ég búin að stofna blað og verð með blaðamannapassa alls staðar. Það er eina ráðið. Allir í röðinni voru að bíða eftir Hjálmum, sem mig langaði ekkert að sjá. Ég fór og sá Ske í Þjóðleikhúskjallaranum og það var gaman. Síðan plataði Skúli mig niður á Pravda þar sem Donna Mess voru að spila og syngja. Þrjár stelpur sem óskuðu þess heitt að vera Peaches. Enginn stemming þrátt fyrir glimmer og þvingaðar stunur. Síðan endaði ég á Mama's Tacos, og hitti þar fyrir Jón Bjarna og frænda minn sem fannst við ekki vera svo skyld og bauð mér að koma heim til sín, í smá leikfimi. Ég sagði neitakk. Á laugardeginum var ég að vinna til hálf 11. Síðan fór ég í Hafnarhúsið og sá endann á Union of Knives, sem mér fannst ágæt, þar til ég upplifði sviðsframkomu The Zutons. Við Anna, Bestla, Iman og Marín dönsuðum á svölunum og var tekin mynd af Önnu, sem sprakk úr hlátri í kameruna. Nú langar mig að spila á saxafón eða bara eitthvað lúðurdýr og stofna hljómsveit. Fyrst ætla ég samt að læra að hekla og spila á trommur. Úr Hafnarhúsinu fór ég hinum megin við götuna og beið eftir Ensími með Nonna, sem var gríðarlega hress. Við náðum bara nokkrum lögum með Ensími, en náðum að troða okkur framarlega. Eftir að þeir voru búnir kallaði Nonni á KGB (eða USB eins og ég kalla hann) og bað hann um að kyssa mig, sem hann gerði með glöðu geði. Ég missti málið um stund. Dúddamía. Takk Nonni, þú reddaðir kvöldinu. Þaðan fórum við á Grandrokk og sáum Bootlegs. Þangað kom Skúli, þrátt fyrir að hann muni ekki eftir því, því hann er 14 ára landafylleríisunglingur. Bootlegs voru fínir, þrátt fyrir að þeir hefðu ekki tekið Matargat. Svo fór ég heim. Skúli lá í rúminu mínu búinn að setja salsasósu og flögur um allt, svo ég tók sængina mína og svaf bara í stofunni. Ég tek ekki þátt í svona vitleysu.
Grease is no longer the word Ég er búin að fá viðbjóð á þessari mynd núna. Ég var að enda við að skila 9 blaðsíðna ritgerð um útlitslega þætti myndarinnar. Ég vil ítreka það að ég valdi ekki myndina, heldur dró hana úr hönd kennarans. Ánægðust var ég með síðustu setninguna í þessu:
The Pink Ladies are distinguishable as they all have their thing; Frenchy is the beautician, Marty is the flirter, and Jan is the comic relief. The T-Birds, Doody, Sonny, and Putzie are very similar, and all serve the purpose as comic relief and pointing out how experienced and fashionable Danny and Kenickie are. The costumes emphasize this as well; The girls have all different costumes in bright colors and their hair and make up also helps telling them apart, but the boys are all dressed in dark leather jackets, with the T-bird logo on the back, which makes them the Huey, Dewey, and Louie of the movie.
Segið þetta oft og hratt. Huey, Dewey, and Louie of the movie. Huey, Dewey, and Louie of the movie. Huey, Dewey, and Louie of the movie.
Launamunur Til hamingju með daginn. Ég fór ekki í bæinn, vegna ritgerðar um hina últrafemínisku mynd Grease... eða hitt þó heldur. Enn vantar mig eina og hálfa blaðsíðu um exteríor þessarar myndar. En já. Dagurinn í dag. Við konur getum skrópað í vinnu og skóla, en ég held að ekkert gerist fyrr en einhver kona stígur á stokk og hvetur okkur konur til að hætta að leggjast með mönnunum okkar, þar til konur og karlar eru orðin jöfn að öllu leyti.
If you think that our kiss is all on the lips, C'mon you've got it all wrong man And if you think that our dance was all in the hips, Oh well, then do the twist.
Hann Jack minn er að koma til mín. Ég er að fara maður. Ég verð nefnilega að fara á að minnsta kosti 10 White Stripes-tónleika áður en ég dey. Nú er ég sveitt í lófunum. Og nú munu allar stúlkur Íslands skilja að kynþokkinn lekur af þessum manni. Just wait and see. Hann er svo óendanlega hæfileikaríkur og fyndinn, auk þess er hann með hjartað á bringunni og er einlægur samkvæmt því. Fyrir mér felst kynþokki fyrst og fremst í hæfileikum manna, það er hvað skilur þá frá öðrum. Tónleikarnir sem ég fór á á Coney Island í New York voru allra, allra bestu tónleikar sem ég hef upplifað. Mér er sama hvað kostar á þessa tónleika hér á Íslandi, ég skal fara. Ég hvet ykkur stelpur að setja ekki a ykkur maskara, heldur að lita frekar á ykkur augnhárin, því þið munuð gráta. Ég mæli einnig með hnéspelkum, því fólk á það til að kikna í hnjánum. Oh, ég vona að hann verði með hattinn.
Miðnætursnarl Nammi. Ég fékk mér carpaccioafgang frá því í gærkvöldi með MIKLU balsamikediki. Það var samt ekki nóg. Nú er ég að borða upprúllaða parmaskinku með rucola og parmesanosti innan í. Var að koma af Aiwaves. Var að vinna til hálf 11. Fékk að vera í dyrunum. "Já, Óli Löve, tveir miðar." Svo var ég uppi að segja fólki hvar klóið var. Ég horfði á mestalla sýninguna. Alveg ágæt bara. Síðan fór ég í pæjuföt, stimplaði mig út og skottaðist niður í kjallara, gegnum eldhúsið. Engin déskotans röð. Sá og heyrði Pétur Ben, hann var mjög góður og ég ætla að fylgjast með honum. Hann var með hjartað á bringunni og vind í hárinu allan tímann og sleit tvo strengi. Síðan kom José Gonzalez. Hann var too good to be true. Við tengdamóðir mín vorum alveg með í hnjánum. Uppklappslagið hans var cover af Love will Tear us apart. Þegar hann gekk af sviðinu fengum við Helga eiginhandaráritanir frá honum í bæklinginn okkar. Síðan sá ég Eberg. Ekki gott. Hitti Iðunni spænskudrottningu. Það var gaman. Á meðan Ebert spilaði var blaðamaður að tala við mig. Hann veifaði blaðamannapassa (sem þýddi framfyrir röðina á Nasa þetta eina kvöld). Hann gaf mér blaðamannapassann og ég spurði hvort ég kæmist framfyrir einhverja röð. "Well, just to my hotel room, number (eitthvað númer) at Hotel Luna." Smooooooooooooooooth.
Airwaves Þetta er algjört æði maður. 4 kvöld í röð sem maður fær að klæða sig upp og vera pæja!!! Ég ætla að vera í hælaskóm öll kvöldin. Það er einhvern veginn staðfesting á því að kvöldið hafi verið gott þegar mann verkjar í fæturna daginn eftir. Skúli var svo lengi að gera sig til að ég hafði aðeins 45 mínútur til að gera mig til, baða mig og allt, og til að sækja Rachel sem var á gestalista þetta kvöld á Gauknum. En já. Ég náði að sjá í rófuna á Dimmu, sem gerðu Rachel hrædda í framan. Síðan kom Dikta. Þetta voru algjörlega skemmtilegustu, en jafnframt stystu tónleikar Diktu sem ég hef farið á. Ljósmyndarar voru hrifnir af okkur stelpunum (mér, Marín, Bestlu, Önnu og Arnari) sem kunnum öll lögin og vorum rokkpæjur. Dikta var útnefd hljómsveit kvöldsins á Aiwaves-síðunni, þrátt fyrir að spila sama kvöld og tjah, til dæmis Annie. Að Diktu lokinni ætlaði ég að ná í rassinn á Hermigervli (Sveinbjörn ef þú lest þetta viltu þá gera magadanslag fyrir mig?), en röðin var svo endalaus og við Skúli sæti, sem allir hrósuðu á leiðinni, fórum bara aftur á Giacomo og sáum Days of our Lives. Það var ágætt. Ég sá hina sænsku International Noise Conspiracy í fjöldanum og það var gaman. Svo sá ég mann úr haltri hóru (já með litlu). Hann var að dreifa flyerum og ég drap hann með augunum. Svo ætluðum við heim, gengum framhjá Nasa, sem var raðarlaus og náðum tveimur lögum með Annie. Hljómsveitin hennar hafði virkilega norska sviðsframkomu. Svo fór ég heim og í náttfötin og svaf. Það var rassagott.
Kærastinn minn er rokkstjarna Í dag er ég búin að heyra í þessari elsku 5 sinnum í útvarpinu. Eitt viðtal, 1 Breaking the Waves (sem er uppáhaldslagið mitt á nýju plötunni) og svo 3 Someone, Somewhere, þar af einu sinni á Rás 2. Ég hef séð typpið á honum.
No butcher, no baker, no candlestick maker and me with the look of a fine undertaker impressed her as a jester!? Grímuball enskudeildar, eða svokallað Halloween, er á næsta leiti. Á síðasta ári fór ég sem Bloody Mary, en enginn fattaði það og stelpa í stórum Bangsímon-búning vann besta búninginn. Hér er mynd af mér í fyrra. Valið í ár stendur milli margra búninga. Ég ætla að sjá hvað fólki finnst hér í cyberspace-inu.
Glynis Johns sem Captain Jean í bestu mynd í heimi; The Court Jester. Ég á antíkbleikan hrásilkikjól og korsett undir. Ég á líka svona trefilslá eins og hún er með í fyrsta atriðinu sem hún birtist, þegar hún sveiflar sér í gegnum skóginn. Meg White- því ég get fengið trommukjuða. Ég á svona hvítan blúndukjól og kann að túbera á mér hárið. Soheir Zaki, þá get ég troðið upp og reddað einkunninni í prófinu sem ég tek sama dag, það er ef Mister Gíslason mætir. Svo er líka hægt að vera með double act, ef Una kemur með, þá er hægt að vera Abba-konurnar.
Kollor í hair Mamma: Ég skil ekki af hverju hann er að lita á sér hárið svona... Margrét: Dóttir hans sagði mér að hann litaði líka typpahárin. Mamma: OOOOOOH, MARGRÉT!!!! Maður segir punghár.
Síðan er það þetta, sem mamma bannaði mér að setja á bloggið: Mamma mín segir oft "píkur og vín." Einu sinni sat fjölskyldan í Perlunni að fá sér ís og þá dettur eitthvað píkur og vín upp úr mömmu. Pabbi: Og hvernig segirðu það á ensku? Mamma: Wine and Vaginas. Pabbi: En á dönsku? Mamma: Et glas vin og en lille mus!!!
Sveitti Brundur Mökmökmök Ég fór í leikhúsið í gær. Sá Forðist okkur með Ásdísi, Skúla og Vigdísi. Vigdís var aðalsprautan í því að ætla sko og verða sko að sjá þetta. Leikritið var strórkostlegt. Ótrúlega gaman að því hvað þetta var gróteskt en samt skemmtilegt. Mér fannst allir mjög góðir, fyrir utan kannski einn strák, en hann var líka óheppinn með stærsta hlutverkið sem hann lék. Hann var góður sem uppblásni kennarinn. Svona leikrit finnst mér skemmtileg. Mér finnst samtímaleikrit oft too much, og það er gert svo mikið í því að hneyksla eða vera frumlegur að það fer einhvern veginn allt framhjá manni, týnist í hvoru öðru. Þetta leikrit sló mig oft utanundir, án þess að ég missti athyglina eða ranghvolfdi augunum. Svo var þetta bara svo fyndið!!! Ég vona að sem flestir sjái þetta leikrit; Maggi, þú getur verið óhræddur, það er enginn dreginn upp á svið. Systir mín benti á skemmtilegan punkt í morgunmatnum: Að persónan Tinna hefði flúið land á sínum tíma og forðast ruglið þannig, á meðan hinir væru fastir í einhverjum viðbjóði. Þrátt fyrir að hún væri gift górillu var hún ábyggilega hamingjusömust og hann væri besti eiginmaðurinn í verkinu.
Jájá. Svo fór ég á opnum í Nýló, þar sem ég leik í pínulitlu verki á einum veggnum. Allir ungu grasrótarlistamenninrir voru mikið að reyna að vera spes, svo þegar upp var staðið voru allir alveg eins. Verkið hennar Doddu var voða fínt. Síðan voru bleikar myndir þarna með íkorna og apa og fugli og þær voru mjög flottar. Mig langar í myndina með apanum í glimmerjakkafötunum.
Síðan fór ég í magadanshitting hjá Rósalind, og það var gaman. Við horfðum á magadansvídjó, drukkum rauðvín og borðuðum hummus. Svo fór ég með Rachel niður í bæ, hvað við drukkum bjór og hittum alla sem ég hef kynnst í lífinu, eða svona næstum. Hún hélt ábyggilega að ég væri Carrie Bradshaw Reykjavíkur. Síðan kyssti ég Nonna á mallakútinn. Það var sko fyndið. Síðan fór ég heim og fékk mér malt. I klof malt.
Nef Ég ákvað að sitja á fremsta bekk í breskum bókmenntum II í dag, því kennarinn minn er með svo fallegt nef. A seat with a view. Nefið er mjög skakkt og ber þess merki að hafa brotnað einhvern tíma. Svo er hann með ör. Ég held að hann hafi verið að surfa í Ástralíu og hákarl hafi ráðist á hann. SKO!!! Núna er hann t.d. að tala um þegar hann var að surfa í Brisben og þar voru hákarlar, því þar búa litlir fiskar sem hákörlunum finnst góðir. "Deadly sharks, sharks that kill for a living." Ströndin var lokuð, en það var bara svo geggjað gott surf-veður. Hákarlar surfa. Þeir fleyta sér á öldunni til að nota hraðann til að borða ýmislegt, til dæmis fólk. Hann sagði okkur líka frá surfurum sem eru með eina hönd en vilja samt ekkert drepa hákarlana. "You know, they're nature, and I am nature. It's a cosmic thing, you know." Á myndinni er neflampi.
Það er að koma í mig kvef Mér er líka krónískt kalt á löppunum. Fjandinn að geta ekki hrakið út þennan skít með alvöru gufubaði eða með því að fara nakin í Gjána. Bót allra meina. Einu sinni var dauð kind í Gjánni. Það var svolítið ógeðslegt. Hún soðnaði samt í frumeindir á einhverjum tíma. Eða kannski var hún fjarlægð. Ég gæfi ýmislegt fyrir að troða marvaðann í Gjánni núna. Það er fyndið að troða marvaðann þegar maður er á rassinum.
Í rauninni er fyndið að gera allt ef maður er allsber. Nema kannski steikja beikon. Þá kvissast beikonfitan á mann allan og það er ekki mjög gott.
Merkikerti Ég fékk mér myspace bara til að geta sýnt einhverjum böndum að mér þætti þau skemmtileg. Ég gerði þau reginmistök fyrst að setja magadansmynd af mér á profile-ið fyrst. Egyptskur breakdansari varð ofsalega hrifinn af mér og hann er alltaf að senda mér ímeil. Ég á tíu vini. Þar á meðal eru Nada Surf, Dikta, Ace og Stop drop 'n Skank sem er skahljómsveit frá Kanada. Mér finnst þeir ekki góðir, en Gavin vinur minn er trommari, svo ég þarf að hafa þá þarna.
Margrét Mér þykir skemmtilegra að vera kölluð Margrét en Magga. Allra skemmtilegast er samt þegar fólk kallar mig Mokka. Ég set þetta samt ekkert fyrir mig, mér finnst skemmtilegt að fólk tali við mig yfir höfuð.
Pæling Mig langar nú svolítið að fara til Cairo. Vigdís talar mikið um mánuðinn sem hún átti þarna. Þannig er nú það, að í Tékklandi kynntist ég stelpu sem heitir Affaf og er kölluð Foufa. Hún er algjört æði. Í mars 2004 fék ég ímeil frá henni, þar sem hú bauð mér í brúðkaupið sitt sem var sama dag og stúdentsprófið í enskum stíl. Hún var tilbúin að borga flugið frá London fyrir mig, og hótelið og allt. Maðurinn hennar var í einhverri olíufamilíu skyldist mér á öllu. Ég fór ekki í brúðkaupið. Fyrir átta mánuðum eignaðist Foufa barn og hætti í vinnunni sinni. Barneignarleyfið notaði hún til að standsetja gallabuxnaverslun, sem selur alls kyns merki á 20$, því margar tegundir eru búnar til í Egyptalandi. Hún hlær þegar hún sér evrópsku verðin á buxunum. Svo sagði hún mér að hún vissi um geggjaða magadansbúð sem hún yrði að fara með mér í þegar ég kæmi til Egyptalands. Þar kosta belti og brjóstahaldarasett um 40$ þessi allra fínustu. Ég gæti farið og keypt og selt síðan stelpunum hér heima og á Ebay og komið út í plús sko. Hún sagði að ef ég, "ljóshærði Evrópubúinn" kæmi inn í búðina myndu þeir selja allt á 200$, svo hún sagðist ætla að koma með mér og fá þetta á réttu verði. Flug frá London kostar um 260$. Ég gæti flogið að morgni, farið á Wagamama í hádegismat og farið á safn og síðan á Belgo um kvöldið og síðan í flug, því ég fann eitt flug sem fer klukkan tvö um nóttina til Egyptalands og lendir í Cairo klukkan átta að morgni. Ætti maður að eyða áramótunum 2006-7 í Egyptalandi? Er það ekki ofsalega brjálað? Ég væri að borga fyrir flug, en fengi að gista í gestaherberginu hjá Foufu. Ferðin myndi kosta mig svona 80.000 kall með öllu, í heila viku í Egyptalandi. Inni í verðinu eru magadansbúningarnir.
En þetta er bara pæling. Næst á dagskrá er samt Visareikningurinn minn.
• Ég misreiknaði mig aðeins í morgun. Ég taldi að það væri jafn kalt og í gær og fór því í stóra stóra dúnkápu og mokkavettlinga og trebba. The works. Nú er ég eins og mörgæs.
• Mamma mín fór út í garð í gær. Hún var með hvítan og silfraðan spreymálningarbrúsa og fór að spreyja greinar og visnuð blóm. Fyrst taldi ég að hún hefði heillast af sviðsmyndinni á tónleikamyndunum hennar Ásdísar, en sú var ekki raunin. Hún ætlar að klippa þær af og búa til skreytingar til að selja í Oddfellow.
• Ég sagði mömmu hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór og hún hristi hausinn og hló. Aftur á byrjunarreit þá. Andskotinn. Ég var orðin svo spennt. Oh. Fjandinn hafi það.
• Ég á besta mann í heimi. Honum finnst Ben and Jerry's-ís góður og finnst gaman að America's Next Top Model. Hann á samt ábyggilega eftir að kyrkja mig fyrir að setja þessar upplýsingar á netið. Hann hló heldur ekki að framtíðarplönunum.
Ég held að ég sé búin að ákveða hvað ég vil verða þegar ég verð stór. Fyrst ætla ég nú samt að klára enskuna, því hún á eftir að hjálpa mér í náminu sem tekur síðan við. Vona að ég fái að vinna við þetta, að þetta verði ekki allt komið í tölvur. Þetta er samt enn bara draumur, sjáum til. Með því að taka árs frí milli enskunnar og þessa náms (einingis til að safna peningum til að fjármagna námið), og með því að taka enskuna á 3,5 árum (því ég ætla út með Aisec til framandi lands að vinna eitthvað enskutengt eða góðgerðarstarf), verð ég orðin eitthvað um 26 ára aldurinn. Ekki ganga samt á mig strax, þetta er allt í vinnslu. Ég þarf að afla mér upplýsinga og svona. Og sannfæra familíuna að þetta sé eitthvað fyrir mig. Þetta er svona temmilega fjölskylduvænt starf, skemmtilegt vinnuumhverfi og eitthvað sem ég hef gríðarlegan áhuga á. Sumarfríið er mjög gott og þá getur maður leikið sér innan geirans eða farið bara til Kanarí. Auk þess fæ ég að vera með puttana í ÖLLU og stjórna fólki. Já. Ég ætla að sofa á þessu.
Kool-Aid Ég ætla með Kool-Aid í Aisec ferðina og kaupa mér þannig vini. Gerði frábært Kool-Aid, galdradrykk. GREEN powder which turns BLUE, but tastes like CHERRY! Þetta eru auðvitað ekkert nema galdrar. Mér er samt illt í eyranu. Það getur jafnað sig síðar. Við Ásdís þurfum að sigra heiminn fyrst.
Lífið er fallegt og gott Ég samt get ekki annað en látið eftirfanandi fara í taugarnar á mér:
• S-in hans Guðmundar Steingrímssonar.
• Ég er með aukaspik á maganum. What is that?
• Egils-Kristal-auglýsinguna þar sem einhver lúsablesi horfir á fólk í gegnum flösku. Mín kenning er sú að hann hafi fengið sér smá sveppi á umferðareyju. Svo kemur einhver afskaplega skýr stúlka sem segir: Það sést hverjir drekka kristahhhhhhl. Er hún að meina íþróttabjánana sem maðurinn horfir á í gegnum flöskuna? Eða sveppalúsablesann? Ég vil hvorki vera íþróttabjáni né sveppalúsablesi.
• Ef svengd í ruslmeti eða ís grípur mig um miðnætti, þá bara verð ég að engjast alla nóttina. Reykjavík er sko ekki nein New York hvað þetta varðar.
• Lagið King of the Dance Floor af plötunni Love me like you elskar mig með Haltri hóru, eða Limping Hooker Hóra. Þessi maður sem syngur... argan gargan hvað hann fer í taugarnar á mér. Hann leikarasyngur lagið, svona höktir og hækkar bara róminn í stað þess að hækka tóntegundina. Og þessi plata fékk góða dóma!!! Samt heyrist bara þetta hroðalega lag í útvarpinu. Auk þess finnst mér að lag með svona nafn ætti að vera danslag. En nei.
• Ég læt feður sem segjast vera að passa sín eigin börn fara óskaplega í taugarnar á mér.
Ég labbaði heim úr skólanum í gær með Fagra, litla diskógrís í eyrunum. Þegar ég er í þann mund að stíga inn í Hljómskálagarðinn, byrjar lagið sem Triumph syngur. Ég labba alla leiðina heim í algjöru hláturskasti, fólki til mikillar skelfingar. Triumphinn sem ég gaf Skúla syngur einmitt brot úr þessu lagi. En Jesús minn hvað þetta er ofsalega fyndið. Ég veit að fólk nennir ekki að lesa allan textann svo ég boldaði það sem ég hló að í Hljómaranum í dag.
I thought my CD was done, But that's not what they say Do an insult track, We need it for radio play
American Idol, that's what I look for, In the poop section of my local record store. Ruben or Clay, oh which one should I pick, It's like choosing which puddle of vomit to lick. And when I want something even more fruity and fit, I look up N for NSYNC or T for Timberlake. So many skills Justin's making a buck at, Does he rap, does he sing, he doesn't know what to suck at! Now as for the bitches, lets give Britney thanks, For the face that launched a million preteen skanks. You were a virgin, that had to be hard, You had more bones in your mouth than a St. Bernard.
I Keed, I Keed He's just making little jokes, I joke with you, Little dog, Little jokes, I Keed, I Keed, He's just making little jokes, and your a good actress too.
Now lets go to Walmart, Where they won't sell me CD, Those company's nuts are in a jar in aisle three. But you can see Christina in all her sluthood It's like watching porn but the music's not as good. I want to stuff my TV's crotch with a dollar Still I would hump you if I could wear my flea collar. You're looser than my poop after eating honeydew, Only 50 cents can flunk more than you! And yet you're too old for Fred Durst to desire, He's checking out the cast of Lizzie McGuire Soon Fred will try to get Mandy Moore, To open for him and I don't mean on tour!
You're not the first person for R Kelly His video's premiere in the LAPD. I believe they set up an innocent guy. You know what else? I believe I can fly
Now look how frickin cool those guys from the Strokes are Their rifts are three times as old as my jokes are The White Stripes guy, is that your wife or your sister Shouldn't you be playing country music mister? Hey Coldplay, maybe you should be Coldsore. Back when you were U2, I liked you so much more. Somehow your song yellow reminds me of pee I think that when it's over, it's a big relief to me Yo Pink, is that your hair or a tattoo? I didn't know Supercuts had a drive through Yo Nelly, what the hell kinda name is that? That's about as gangster as an Easter Bonnet hat. And Snoop says he clean, well you make the call The guy's higher than Billy Joel's cholesterol, Snoop there's only room for one dog putz, And I can rap, can you lick your own nuts? Poop Diddy, are you in show business still? I didn't know wearing a suit was a skill. J.Lo, J.Lo the giant tail-o For a doggie's nose, that's the holy grail-o Shakira's butt's fine, but it won't hold still. I sniffed Elton John's tush just for all the history I sniffed J.Lo's ass and got too touchy feely She let loose a bomb that was bigger than Gigli.
Avril Lavinge, punk queen, now there's a kidder, Go back up north, Celine needs a baby-sitter Philip Glass, atonal ass, you're not immune Write a song with a f****** tune And on the list of pooches, don't leave off MTV, I scared Emineminem, so they gave the hook to me. Slim Shady, why do you find me scary? We are just two regular dudes who banged Mariah Carey. Wipe off that frown, just do without it Hey my mom was a bitch too, but I don't go writing songs about it.
Líf Dagsdóttir komin í heiminn Og það meðan ég var í New York. Til hamingju Unnur og Dagur, og svei þér Skúli fyrir að hafa aldrei misst þetta út úr þér. Sjáið hvað hún er mikil múlla.
Klukk, greinilega Já, ég hef verið tvíklukkuð, af Vigdísi og Einari Steini.
1. Ég borða ekki allt. Ég borða ekki majónes, sýrðan rjóma, rjóma, banana, lambakjöt, avocado, ost nema bráðnaðan, pepperóní, kartöflur, sinnep, remúlaði, puslur, bjúgu, slátur og annan innmat, svínakjöt nema að það sé ekkert svínabragð af því, grænar baunir, rauðkál og eggjarauðu, svo fátt eitt sé nefnt. Ég drekk heldur ekki mjólk. Ef mennirnir ættu að drekka mjólk væru þeir lengur á brjósti right? Þetta háir mér samt ekki neitt, til dæmis ef mér er boðið í mat, ef ég fæ bara að velja sjálf á diskinn. Mér er illa við það þegar fólk skiptir sér af því sem ég borða. Látið mig vera, mér gengur ágætlega og er ábygglega að borða mun hollara en viðkomandi dags daglega.
2. Ég var ekki í leikfimi í 7.-10. bekk, en var fengin til að mæta á danstímabilinu til að sýna með Tóta leikfimikennara, þar sem kvenleikfimikennarinn var taktlaus íþróttabrussa.
3. Mig langar mest af öllu í heiminum að verða sendiherra. Fast á hæla þess kemur eitthvað leikhústengt, hvort sem það er leikari, leikstjóri eða sýningarstjóri. Ég væri góður sýningarstjóri.
4. Ég er kuldaskræfa og klæðist gammósíum innanundir buxunum frá miðjum september og fram í mars/apríl. Aftur á móti er ég algjör ísbjörn í útlöndum og er út úr heiminum í miklum hita. Ég ætti að eiga heima í tempraða beltinu.
5. Sá sem hefur valdið mér mestri ástarsorg, og ég held að það hafi einungis verið vegna gríðarlegrar hormónastarfsemi á seinni árum gelgjunnar, var strákurinn sem lét tattúvera Snoop á rassinn á sér.
Þar sem mér finnst leiðilegt að vera hann og lék mig iðulega stórslasaða í barnaskóla þegar ég var klukkuð ætla ég að byrja á því að haltra, síðan koma tár og svo fell ég í gólfið, haldandi um hnéð á mér. Síðan segi ég "Má ég setjast niður í smá stund?" og því slepp ég við að klukka aðra.
Uppfært: Þar sem ég var tvíklukkuð, eða brunnklukkuð, þá eiga að koma 5 í viðbót. Hmm... ég þreytist aldrei að tala um sjálfa mig, hef gert það í mörg ár hér á opinberum vettvangi svo hérna:
6. Ég var ofsalega smámælt þegar ég var lítil. Svo vaknaði ég einn daginn og þá var það horfið.
7. Ég fótbrotnaði þegar ég var lítil með ömmu og afa í sumarbústað, en þau trúðu mér ekki og var ég því með brotinn fót í þrjá sólarhringa þar til mamma sótti mig, gráa í framan og emjandi.
8. Mér finnst blæðingar ekki svo slæmar, gefa manni ágætis ástæðu til að kúpla sig aðeins niður og kúra sér. Verkirnir eru slæmir í einn dag svo er það búið. Líkaminn er bara að segja mér að ég sé heilbrigð og að ég sé ekki með barni ennþá. Annars læt ég blæðingar lítið stoppa mig, nema ef væri til að mæta ekki í grunnskólasund.
9. Mamma mín vann meira en pabbi minn þegar ég var lítil þannig að pabbi var mest með mig. Pabbi var með það á hreinu að þegar ég grét, þá væri ég bara svöng. Þess vegna varð ég ofsalega feit og byrjaði seint að labba, því ég gat ekki staðið upp. Þegar egyptsku múslimastelpurnar i Tékklandi komust að því að pabbi minn hefði verið meira með mig en mamma mín hváðu þær og áttu ekki til orð. Vinnutarnir mömmu voru allra mestar í desember, og því jólaskreyttum við heima um miðjan nóvember. Við höldum enn í þá hefð vegna þess að annars verðum við systurnar skammdegisþunglyndar.
10. Sú vinkona sem hefur reynst mér allra, allra best að öðrum ólöstuðum er Þuríður Pétursdóttir. Hún hefur einhvern veginn alltaf akkúrat verið við hliðina á mér á tár, bros og takkaskór-mómentunum.
Fyrsta heila daginn fórum við á Natural History Museum. Það safn ættu allir að fara á einu sinni á ævinni. Nú er ég mjög fróð um allt í heiminum. Ásdís keypti sér lotukerfisbol á safninu. Það er mjög sniðugt að fá sér hádegismat á safninu, því kaffiterían þar er mjög grand og allir geta fundið sér eitthvað. Ég fékk mér djúpsteiktan ost og chicken quesadilla sem var BETRA EN Á MAMA'S TACOS! Með þessi drakk ég mjög gott gos sem var með pink lemonade-bragði. Það var ofsalega gott. Einnig er stór salatbar þarna niðri og ísbar, og fínasta kaffi.
Toys R Us á Times Square er falleg búð. Innan í henni er tveggja hæða hús einungis með Barbievarningi og Parísarhjól. Þar keypti ég sápukúlur til að borða sem eru með kirsiberjabragði. Það er hægt að fá allt með slíku bragði í Ameríku, kók, flökurveikistöflur og sleipiefni. You name it, það er til með cherry.
Náði í magadansbúninginn til Heiðu. Afskaplega fagur.
Við náðum í Konna á JFK. Við bjuggum til spjald sem á stóð Connie Hjukket-Pungsimon Grammer. Þegar við komum heim á hótelið sagði maðurinn í lobbýinu, með þvílíkum tilþrifum double take og allt: Are you Kelsey Grammer's son? Seinna, þegar ég fékk sendann pakka með skólabókum frá Barnes and Noble, og sagði nafnið mitt, sagði sami lobbýmaðurinn: Are you Margareth Tatcher's daughter?
Kyber Pass var ofsalega góður afganskur veitingastaður í East Village, það voru samt mýs þar. KGB er skemmtilegur pöbb í nágrenninu.
Zara er dýr í New York.
Subwayinn er sniðugur, nema stundum kemur maður upp á einhverju No Place.
Mæli með því að fara í skoðunarferðina sem er í boði um NBC-studios. Skoðuðum meðal annars upptökustað SNL og fræddumst um sögu fyrirtækisins. Við Egill keyptum okkur Triumph sem talar. Hann segir meðal annars: A Triumph dog. Oh, yes. How much did you pay for this piece of crap?
Ég fór í Tiffany's fyrir ömmu og keypti ilmvatn. Á móti var þessi auglýsing sem við Ásdís fífluðumst með. Tveir menn föttuðu brandarann. Hér er mynd af þeim.
Do Hwa er ruglaður kóreskur staður að hluta til í eigu Quentin Tarantino. Hann er í Greenwich Village. Konni og Egill fengu sér sjávarréttamadness, en þorðu ekki að borða með prjónum. ÉG hins vegar, tók prjónana mína og setti í töskuna og ætla að vera með þá hárinu einhvern tíma.
Comedy klúbbar eru skemmtilegir, þrátt fyrir að brandararnir séu voða mikið eins. Einn maður talaði um að fyrrverandi kærastan hans hefði verið léleg að totta. Auðvitað var hún það fyrst að hann sagði ekki neitt við hana eða leiðbeindi henni. Fæðast konur sem sogvélar? Maður spyr sig. Eitt er samt blóðugt, og það er að þegar kostar kannski 15 dollara inn þá er skylda að kaupa 2 drykki aukalega. Kókið kostar milljón kall, svo þetta er fljótt að fara upp í stóra peninga. Comedy Cellar í Greenwich Village er ef til vill sá besti, maður þarf að fara á barinn og panta sér pláss svona 2 tímum fyrir show. Það er samt allt í lagi, því í millitíðinni fer maður á Hookah-barinn á móti, sem heitir Luxor. Mæli með piña colada-inu þar.
Fórum á Pizzastað í gamalli kirkju. Töff. John's Pizzeria, á móti staðnum sem við fórum í leikhús.
Fórum á Spamalot, Monthy Python söngleikinn. Það var sko gaman. Tim Curry og David Hyde-Pierce voru mjög fyndnir og David er lipur dansari. Þurftum aðeins að bíða í kortér eftir miðum, því ég er svo sjarmerandi.
Svo fórum við á Sushistað. Við Ásdís borðuðum nákvæmlega sama matinn þennan dag en ég fékk magakveisu um kvöldið og gat varla labbað. Við keyptum handa mér kirsiberjatöflur við mallaveikinni. Daginn eftir var allt gott, þrátt fyrir að ég væri með samviskubit yfir að hafa dregið alla snemma heim á laugardagskvöldi.
Hér erum við Ásdís spenntar í lestinni. Takið eftir kjólnum sem ég er í.
Við fórum í Aquarium og rússíbana á Coney Island meðan við biðum eftir tónleikunum. Það var gaman. Sáum sæotur. Svo bjuggum við Ásdís til ofsalega töff skilti sem öðrum megin stóð: We flew all the way from Iceland to be here og hinum megin stóð: ÚR AÐ OFAN! sem var töff. Fengum enga smá athygli út á þetta skilti á tónleikunum, okkur var boðinn bjór af miðaldra Ameríkönum sem voru æðislegir. Þau voru kjútípæ. Við kynntumst dönskum manni sem leit út eins og maðurinn í Út og suður.
White Stripes tónleikarnir voru geðveikir. Ég á engin orð til að lýsa þeim. Engin. Jú, Rokk og sexý og hann horfði í augun á mér og brosti til mín. Það var stór stund og líf mitt mun aldrei verða samt. Meg var ólýsanlega töff. Og Jack líka í hvítum og rauðum jakkafötum. Já, við vorum í stíl. Þau voru með polaroid myndavél á sviðinu og tóku við og við myndir af sér og fleygðu út í sal. Það var sko rokk. Leikmynd og allt, og rótarar í jakkafötum með hatta. Ég grét af hamingju og gleði. Tárin streymdu niður kinnarnar í hamslausri kæti.
Fórum í þyrluferð um neðrihluta Manhattan og váts það var töff.
Síðasta kvöldið í borginni fórum viðað skoða Ground Zero. Þegar við Ásdís spurðum til vegar varð maðurinn sem við spurðum móðgaður: "You reallly wanna go there?" Svo fórum við á Salaam Bombay. Fínn indverskur matur, samt ekki alveg nógu sterkur fyrir mig.
Svo byrjaði að rigna svo Konni fór heim að kúra. Við hin fórum fyrst á Lit, hefði frekar viljað fara þangað á föstudags- eða laugarsdagskvöldi. Það var samt gaman þar. Svo fórum við á Piano's við Ludlow Street. Þar var Karókístemming á efri hæðinni, en alltaf á mánudögum er Karaoke Killed the Cat-kvöld. Myndirnar á heimasíðunni tala sínu máli, sjá gallery 1. Egill fór snemma heim, en við Ásdís hittum Shandi sem var í America's Next Top Model. Hún var þarna með kærastanum sínum sem hún hélt framhjá í beinni. Þau eru ennþá saman og syngja bæði mjög vel, hann tók Total Eclipse of the Heart og saman tóku þau, ásamt gulltenntum manni, Bohemian Rapsody.
Svo verslaði maður. Uppáhaldið mitt voru tvímælalaust Urban Outfitters og Pinklínan í Victoria's Secret. Nú er ég nammirass.
Mæli líka með White Moccha Frappuchino á Starbucks. Ég keypti líka 36 pakka af Kool-Aid. Þar á meðal 8 pakka af grænu dufti sem verður blátt en smakkast samt eins og kirsiber. Nammigottí.
Ég kann ofsalega vel við New York. Fólkið þar er gríðarlega almennilegt. Löggurnar á götuhornunum pirruðu mig ekkert, ein þeirra sem við töluðum við (því löggurnar notðuðum við Ásdís til að vísa okkur veginn) var með sólsting eða eitthvað. Skrýtinn skrýtinn sko.
Kaup ferðarinnar voru svartar rokkarabuxur, hvít peysa með blómum og fuglum (ekki eins What not to Wear og hún hljómar), svartur Sherlock-jakki, rauður tónleikabolur og bronslitaðir Steve Madden-skór.