Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Ís-Café Ég mæli með ísbúðinni Ís-Café á Suðurlandsbraut. Hún er "á móti" Laugardalshöllinni. Þarna vinnur ísgerðarkona sem er algjör listamaður, því þarna er besti ís á Íslandi. Hægt er að fá kúluís úr borðinu, úr vélinni og svo er hægt að kaupa ísbox úr frystinum. Úr borðinu mæli ég með exotic, kókosís með hindberjasósu, kiwi-, piparmyntu-, sítrónu- og hinum bláa sítrónu-myntuís. Allir þrír ísarnir úr vélinni eru æðislegir. Vanillan er á sínum stað, en í stað hins týpíska jarðaberja- og súkkulaðiíss eru hindberja- og piparmyntuís!!! Í kælinum eru allir ísarnir í borðinu til, auk fleiri bragða og þar eru á þriðja tug bragða!!! 0,3 lítrar af ís úr kælinum kosta 290. Það er ekki rassgat fyrir svona gourmetís. Úr kælinum mæli ég með pistasíu-, amaretto, lakkrís- og karamelluís með daim. Ísinn er alls ekki dýr og er víst helmingi fituminni en Emmessís og Kjörís, samkvæmt einhveri úttekt. Fyrir ísdýr eins og mig og Nonna er sniðugt að fá sér ísblóm, sem eru FIMM kúlur PLÚS vélaís, á aðeins 350 krónur. Sniðugt fyrir kærustupör líka. Ég fékk mér ógó gott í dag, en það var súkkulaðikúluís og piparmyntuvélaís. Það kostaði bara 250 krónur. Þarna er líka hægt að setjast niður og borða ísinn í ósjoppulegu umhverfi, kúltúr sem hefur lengi vantað á Íslandi!!! Tjékk it át.
Svo mæli ég með því að bjóða Nonna upp á ís í Ís-Café.
Ásdís Eir ég hlakka til að prófa að öskra "taxi!!!" í new york
Konráð hehe
Ásdís Eir held að það sé sport
Mangó Mokk ég hitti ömmu í bankanum í gær, var að skipta dollurum, og hún ætlar að gefa mér dollara EF ég fer í tiffany's og kaupi handa henni eitthvað ilmvatn EN ÞAR SKO KEYPTI TREY HRINGINN FYRIR CHARLOTTE
Ásdís Eir ómægoooood hvað svaraði hann aftur þegar hún spurði hann? ókelídókelí? nei, ok?
Mangó Mokk aaaaaalrighty
Ásdís Eir HAHAHAHA alveg rétt sjitt
Mangó Mokk Trey, we should get married aaaaaalrighty
Konráð jess, besta msn-samtal lífs míns
Mangó Mokk hahahahah
Ásdís Eir úúú, hestvagn um central park
Mangó Mokk Ú og svo tökum við jogginggallann með og skokkum eins og pheobe
Ásdís Eir HAHAHA JÁ!!! og svo tæmum við times square og hlaupum um eins og tom cruise í vanilla sky
Borgarnes Þetta sáum við Skúli í kaupfélaginu í Borgarnesi. Hvað ætli svona kosti? Datt engum í hug að prófarkarlesa? Sá enginn neitt athugavert við þetta? Auglýsingastofan, uppsetjarinn, prentarinn?
Mánaðarins Systurbangsinn minn hefur opnað nýja síðu og ætlar að vera mjög dugleg að halda henni við. Hægra megin á síðunni er hægt að ýta á Mánaðarins og ég er að gera allt þessa dagana sem í mínu valdi stendur til að vera tilnefnd í einhverju af eftirtöldu: • Skemmtilegust • Sætust • Töffarinn • Krúttið • Fyndnust • Manneskja mánaðarins
Ef ég þekki systur mína samt rétt á ég líklega meiri möguleika í þessum flokkum: • Átvaglið • Geðsjúklingurinn • Aulahúmor
Cute Baby Ég ætlaði að skrifa færslu um ungabörn. Ég vildi hafa mynd með af sætu ungabarni, svo ég googlaði cute baby. Ég fékk mestmegnis upp einhverjar krúsípungsa-dýramyndir og svo þessa mynd.
Ég er mataróð Ég hlakka allra mest til þess að fara út að borða í New York, svona á eftir tónleikunum sjálfum. Internetið er stórkostlegur upplýsingamiðill, og þessa veitingastaði fann ég í gengum gourmetsíðu á netinu, sem segir þessa staði vera með þeim bestu í New York. Nú er bara spurning hvort samferðamenn mínir séu til í velkryddaðan austurlenskan mat, sem ég vil borða eins oft og mögulegt er. Ef ekki þá fer ég bara ein. Þessi ítalski hér er svona til málamiðlunar. Mér sýnist þessir vera góðir upp á stemminguna, því stemmingin er auðvitað stór hluti af upplifuninni, samanber bestu veitingastaði í heimi sem eru Wagamama og Belgo Centraal. Og litli indverski staðurinn sem ég fann með Ásu við Leicester Square.
Khyber Pass 34 Saint Mark’s Place (8th Street between Second and Third avenues) Telephone: 001 212 473 0989 Antique musical instruments, throw pillows and oriental rugs fill this small, cozy and inexpensive East Village Afghan restaurant. The air is filled with spices, and the exotic destination and dining experience is memorable. Try their Pamir Sabzu - a delicious salad of mint, watercress and feta cheese. Try entrees like Quorma Sabz (lamb and scallions sautéed with spinach and coriander), or chopped beef patties with basmati rice and lots of hot spices. Or sample the spicy sauté of spinach and lamb, homemade noodles topped with mildly spiced meat and lentils, or eggplant slices served over a layer of mint yogurt. Top your meal off with Turkish coffee and their outsatnding Baklava. Entrees range in price from $9.50-$13.95. The best Afghani food in the city. Very authentic, very novel, very tasty.
Poetessa (Formerly known as East Post) 92 Second Avenue (Between 5th and 6th Streets) Telephone: 001 212 387 0065 Pippa Calland, who used to cook at Le Madri, studied poetry in college and was the reason behind the restaurant name change. This reasonably priced East Village Italian secret is packed with an eclectic crowd of neighborhood types. The open front during the summer makes the quaint restaurant airy and roomy. Relax with a glass of wine and delicious eggplant caponata with crusty warm bread. Start with the lightly fried calamari or their caeser salad with anchovy dressing. For your entree, the Gnochetti with fresh peas, lamb ragu and pan roasted free range chicken are perennial favorites. Calland turns Italian cuisine into pure poetry. Their late-night hours (until midnight Sun. to Thurs., and 1 a.m. on Fri. and Sat.), affordable wines and European atmosphere makes Poetessa a popular spot. Entrees range in price from $10.00-$13.00.
Casa La Femme North 1076 First Avenue at 59th Street Telephone: (212) 505-0005 Gauzy white tents, belly dancers, exotic plants, leather ceiling lamps. Egypt? No, it’s Casa La Femme North, one of New York City’s few Egyptian restaurants. Dine in a romantic tent - where only a $55 tasting dinner is served – and you won’t be sorry. Everything is made fresh and from scratch so it may take 40 minutes or so for your main course to come, but what’s the rush? The belly dancer and exotic music will help pass the time while you sample delicious appetizers from Arab wheat bread to Crab Kofta. The entrees are indeed fresh and the menu completely authentic. For fish lovers try the whole fish or the wood-grilled red snapper for two. And don’t forget to top it off with Turkish coffee (the only coffee served) and their amazing Baklava. Price Range: Appetizers, $5.95 to $10.95; entrees, $16.50 to $22.50; desserts, $7.50. Five-course prix fixe in private tent, $55.
Ég veit, þessi síðasti svolítið "dýr," en váts hvað mig langar að upplifa hann...
Í þessu er maður í sjónvarpinu að segja að Davíð Oddsson sé á kókaíni. Þessi maður elti eitt sinn kunningjakonu mína um allan bæ á djamminu og tók myndir af brjóstum hennar, undir því yfirskini að vera að reyna við mömmu hennar, sem var með okkur. Já, það er margt skrýtið í heiminum.
Ég var að koma úr sumarbústað í Blöndudal. Ég var þar með Skúla, mömmu hans og pabba og ömmu og afa. Við spiluðum Kínaskák langt fram á nætur. Það er svo skemmtilegt spil að 75 ára amma og 79 ára afi fóru aldrei fyrr að sofa en 4. Verð að kenna vinahópnum þetta spil. Það er alveg á hreinu. Við kíktum einnig á net sem lögð voru í Friðmundarvötn. Ekki internet sko. Þessi kynslóð sko veit ekki hvað net er nema internet!!! Þar veiddu þau fullt af bleikju og einn grimman urriða. Þetta var svo verkað á allan mögulegan hátt og allt var lostæti sem ég smakkaði úr þeirri verkun. Við erum að tala um sumarbústað með reykofni. Ég stjórnaði heiminum utan sveitarinnar í gengum gsm-tækið, og var með Konna í beinni í langan tíma að fylgjast með uppboði á Ebay. Já, og ég vann skal ég segja ykkur.
Rigning maður Þessi útlandarigning var nú köld haaaaa.... Ég verð nú samt að segja að það var nú gott á fíflaunglingana í bænum að það fór að rigna. Hahahahaha vá hvað ég er glöð að hafa ekki verið landaunglingur.
Bergþór Bergþór Pálsson á þakinu. Bergþór Langsokkur. Bergþór Pálsson og úlfurinn. Bergþór Pálsson in Love. Bergþór Pálsson in Seattle. Ágætis Bergþór Pálsson. Bergþór Pálsson Superstar. Bróðir minn, Bergþór Pálsson. Stg. Pepper's Lonely Heart's Club Bergþór Pálsson. Oft kemur Bergþór Pálsson þá um er rætt. When Harry met Bergþór Pálsson.
Framtíðin Ég er týnd. Þrátt fyrir það hef ég keypt æði mikið af barnadóti undanfarið. Bara svona ef... eitthvað... einhvern tíma. Svo er ég líka búin að vera ofsalega mikið að fá GEÐVEIKAR hugmyndir fyrir látlaust brúðkaup. Látlaust en bjútífúl. Svo enda ég ein. Sextug, barnlaus og enn ekki búin að ákveða hvað ég vil verða þegar ég verð stór. Fastagestur í inntökuprófið í Leikó.
Hröð þróun Í gær fék ég sms frá 12 ára systur minni sem spurði mig hvar sléttujárnið mitt væri og hvort hún mætti nota það. Ég leyfði henni það en hugsaði innan í mér: Guð minn góður, nú er hún byrjuð á gelgjunni. Ekki stóð gelgjan lengi yfir, því í dag sótti ég hana í pössunardjobbið og skutlaði henni í afmæli vinkonu sinnar sem var haldið á Café Óperu. Einn daginn gelgja, þann næsta sextug kona.
Við dönsum ekki á Nasa. Fjandans. Nasa ákvað án þess að láta okkur vita að við yrðum upphitunaratriði fyrir Sálarball sem kostar 1900 kall inn á. Glætan. Ég dansa ekki fyrir fólk sem er komið að sjá Sálina hans Jóns míns. Við erum að skoða hvort við getum dansað frítt annars staðar, því við verðum að vera sýnilegar á menningarnótt. KúkaNasa.
Nú styttist í Menningarnótt. Ég vil bara benda fólki á eftirfarandi sem veit að ókeypis er allt það sem er best: - Frá 4-6 verður Götuleikhúsið framan Hins hússins með skemmtilega stemmingu. - Frá 6-8 verður dansmadness í Kramhúsinu, svona greatest hits dálítið... - Frá 8-10 verður sígaunatepartý í Feng Shui-húsinu við Frakkastíg. Það verður gaman. Þar verða magadansgyðjur á kortérs fresti með sólódansa. Ég dansa einu sinni ein en veit ekki klukkan hvað. Auk þess er boðið upp á töfradrykki og lófalestur. - Klukkan hálf tólf hefst magadanssýning á Nasa, þar eru margir geggjaðir hópdansar og mikið fjör.
Ef fólk ætlar bara að mæta á annan magadansviðburðinn er sá seinni meira grand en teboðið. Stemmingin er þó alls ekki sú sama á þessum stöðum, í Feng Shui-húsinu verður sígaunastemming, en á Nasa verður Austurlandastemming, og svo kíkir líka einhver freestyle-hópur, sem er spennandi. Annars þætti mér bara gott ef einhver vill koma að sjá mig. Spáin fyrir Menningarnótt er ekki mjög góð og þessar magadanssýningar eru fínar fyrir innirottur. Ég hlakka allavega til Menningarnætur. Ég verð í svo fínum fötum þá.
Staðreyndavilla á imdb Ég hef einhvern Aparassgats-Íslending grunaðan um að kunna ekki enskuna nógu vel og segja Óla frænda vera Uncle of director Hrafn Gunnlaugsson.
Auk þess er ég sár að þurfa að borga fyrir það ef ég vil að mynd af mér birtist ef fólk er að leita að mér þarna. Svo er heldur ekki mynd af Jen þarna, en hún er sápuóperustjarna í Kanada.
Hótel Ég var að skoða gamlar árbækur áðan því ég tók til í skrifborðinu mínu. Í þriðjubekkjarárbókinni er komment eftir Garðar Snæbjörnsson um að það sem hafi staðið upp úr þann veturinn hefði verið spilið Hótel heima hjá Markúsi. Þarna vorum við Garðar, Markús auvitað, Steinþór, gott ef ekki Hlín og Jens. Kannski Biggi P. líka. Ég var alveg búinn að gleyma þessu spili... en vá hvað þetta var ótrúlega gaman!!! Ég ætla að reyna að finna þetta spil einhversstaðar okaupaða.
Í kvöld borðaði ég skyr með krækiberjum. Það var mjög gott.
Ærast segi ég Mér finnst Sigurrósartónlist fín sem leikhúsmúsikk, eða samin í samhengi við dansverk. Sigurrósartónlist er líka stórkostleg í kvikmyndum. Myndböndin eru líka fín (þá er ég að tala um samspil myndar og tónlistar). En sem tónlist finnst mér hún ekki standa ein og sér. Ég er að ærast á manninum í læknum.
Danskir dagar Götuleikur á Dönskum dögum í Stykkishólmi. Fullir menn sem potuðu í brjóst og gripu í rass og klof. Börn sem hræktu á mann, köstuðu í mann steinum, hrntu manni og klæddu mann úr skóm. Maður sem setti YEPPYEPPhundinn sinn framan í mig. Voffinn sleikti mig í framan um stund og rústaði meiköppinu. Fólk sem reynir að fá mann til að hlæja með því að leika spastískt fólk. (Hahaha, sjónlínan mín er laaaangt í burtu, ég sé ekki hvað þú gerir og þú ert fullur og auk þess asni) Og fólk sem reynir að segja manni brandara til að fá mann til að hlæja. Tómatabrandarinn er vinsæll í Stykkishólmi. Jámm. En meiri hluti fólks var jákvæður og böggaði mann ekki.
FRÍTT Það er frítt inn á tónleikana! Nú er ENGIN ástæða til að mæta ekki. Auk þess hefur þriðja hljómsveitin bæst við, Telepathetics.
Svo er annað frítt á Menningarnótt, en ég er líka að dansa í Feng Shui-húsinu á Frakkastíg. Þar er dansað á kortérs fresti milli 8 og 10. Og Dikta spilar líka frítt á bakvið Dillon.
Magadanskonan Já, þetta var ég með myndavélina ofan í mér að dansa magadans þegar stafirnir rúlluðu yfir skjáinn að loknum fréttum. Magadanslopasöngkrúttið.
Svo er ég að minna fólk á að ég verð í eftirmiðdaginn að götuleika mér á Menningarnótt og líka á Nasa seint um kvöldið með magadanspæjunum. Magadansprógrammið hefst klukkan hálf tólf. Ég dansa í tveimur dönsum, og þarf að skipta um búning á milli. Það verður fjör. Alltaf gaman að svona búningadrama. Fyrri búningurinn er stórbrotinn, hann er svo sjúklega flottur að ég er búin að horfa á hann alveg mikið. Guðrún Ágústa lánaði mér hann því hún getur ekki dansað með okkur. Hann er rauður og gullitaður og ég er eins og eldprinsessa í honum. Það finnst mér. Ég er í miðjunni fremst í síðasta dansinum. Ég er mjög montin með það. Aldrei fékk ég að vera fremst í miðjunni í balletinum, ónei. Litli ljóti andarunginn.
Dikta spilar á Grandaranum á laugardagskvöldið og Days of our Lives hitar upp. 500 kall inn sem rennur óskiptur til listamannanna. Ég mæli því með þessu plani á laugardagskvöldið: 1. Fara í hraðbankann og taka út krónur. 2. Fara á Grandrokk, borga aðeins 500 krónur í aðgangseyri til að sjá tvær góðar hljómsveitir og mjög sæta stráka. Auk þess spila ég í einu lagi Diktu. Hjálpa Nonna á trommunum. Wait and see. (jájá, Jeanine Pettibone) 3. Kaupa sér Erdinger í fínu glasi. Ég leyfi mér að minna á að Erdinger kostar aðeins 600 krónur á Grandaranum.
AFMÆLI Skúli átti afmæli. Ég ákvað að fara með hann í óvissuferð og hann vissi af henni með tveggja vikna fyrirvara. NÚH ég var búin að plana og plana og plana. Það var góðaveðursplan, og vondaveðursplan. Vonda veðurs planið var að fara með hann í GÓKART. En Skúli kallinn skellti sér daginn fyrir óvissuferðina með strákunum í gókart. Obbobobb, hugsaði ég og vonaði að veðrið yrði gott svo ég gæti haldið mig við plan A. Kvöldið fyrir óvissuferðina var keðjupartý hjá Ragga og allir áttu að vera með keðju. Nei djók. Kveðjupartý. NÚH Skúli ákvað að detta hressilega í það, vitandi af óvissuferðinni daginn eftir. Hann sagði mig leiðilega þegar ég minnti hann á að það væri kannski betra að vera hress daginn eftir. Ég var mjög hress þetta kvöld, og var þunn til hálf 11 morguninn sem óvissuferðin var. En nei. Svo var vont veður. Skúli var grautþunnur. Mamma gerði gúllassúpu og bakaði köku fyrir okkur í morgunhádegismat. Skúli gat ekki horft á matinn heldur fór inn í rúm. Við borðuðum afmælismatinn og skipulögðum óvissuferðina, og jújú. Ekki jafn GRAND plan og hið fyrsta, en fínt. Planið var að fara á Listasafn Einars Jónssonar sem Garðabæjarhænsnið hafði aldrei skoðað. Síðan var það Húsdýragarðurinn með leiktækjum. Þá var það madness-tónlistar- og myndbandamarkaður hvar Skúli mátti velja sér eins mikið dót og hann vildi. Svo var það humar á Stokkseyri. Jú, og haldiði að ég hafi ekki náð honum fram úr rúminu og allir tilbúnir klukkan 3. Við fylgdum planinu. Mér fannst mjög gaman. Parísarhjólið var reyndar lokað vegna veðurs, líka Vísindaveröldin og Ærslabelgurinn var óuppblásinn. Ég sá villt hænsn sem var ekki inni í girðingunni. Og seli. I klof them sko. Þynnkan hans Skúla fór að miklu leyti í Fallturninum. Við vorum ein í garðinum. Á Stokkseyri lentum við í fyndnasta þjóni Íslands. Konan var mjóróma, hokin og klaufaleg. Ofan á þetta allt bættist að hún var nýbyrjuð og nervöööös eftir því. Hún tók upp hvítvínsflösku á borðinu við hliðina á okkur og bifaðist mjög, því hún fattaði ekki að tilta skaftinu á upptakaranum og nota hakið til að hjálpa með að ná tappanum úr flöskunni. Fattar fólk þetta? Konan sem pantað hafði flöskuna þurfti því að hjálpa henni. Það fannst okkur gaman. Svo fengum við reikninginn. Ég setti kortið mitt inn í leðurpjötluna og hún tók við henni. Síðan kom hún með kortið til að láta skrifa undir posamiðann og setti kortið með myndina upp á borðið og posamiðinn sneri að Skúla sem hún rétti pennann. Væri ekki betra að leyfa henni að skrifa undir? sagði Skúli sem var allur að koma til. Konan fór í köku. Það tíðkast víst ekki á þessum slóðum að konur borgi. Konan gekk í burtu og ég sprakk úr hlátri. NÚH. Síðan fórum við heim til mín og horfðum á mynd sem ég keypti mér, stórmyndina Atlantis eftir Luc Besson. Hún er madness góð. Maður situr bara með ginið opið. Ég og mamma sögðum einhvern gin og tónikk brandara áðan. Man hann ekki, en við vorum mjög fyndnar. Svo fórum við í gamla kirkjugarðinn og í Konnagarð og ormuðum. Það var mjög fínt. Ekki mikið líf en einhver hundruð eru í leið í sölu á morgun.
Rifrildi Dramatískasta rifrildi sem ég hef lent í átti sér stað á Mánadeild á leikskólanum Grænuborg seint á níunda áratugnum. Við vorum mikið í tónmennt (namedrop; hjá Andreu Gylfa sem mér fannst hafa gríðaræegar tennur) og sungum alls kyns lög. Textinn að laginu sem varð uppspretta rifrildisins er á þessa leið:
Ef að nú hjá pabba einn fimmeyring ég fengi, fjarskalega hrifin og glöð ég yrði þá. Ég klappa skyldi pabba og kyssa vel og lengi og kaupa síðan allt sem mig langar til að fá.
Fyrst kaupi ég mér brúðu sem leggur aftur augun og armbandsúrið fína af fallegustu gerð. Og af því hvað hún mamma er orðin þreytt á taugum þá ætla ég að kaupa bíl í hverja sendiferð.
Hjólhest og járnbraut ég ætla að gefa Geira, gríðarstóra flugvél ég kaupi fyrir Finn. Svo kaupi ég mér döðlur og súkkulaði’ og fleira og síðan skal ég gefa pabba allan afganginn.
Rifrildið snerist um bílaviðskiptin. Var þetta einn bíll sem móðirin gat notað í allar sendiferðir eða var þetta nýr og nýr bíll í hvert skipti? Ég var í þeim hópi sem hélt fram því síðara. Ástæðan var sú að Andrea hafði útskýrt fyrir okkur að einu sinni hefði fimmeyringur verið mjög mikill peningur. Alveg rosalega mikill. Auðvitað gerði ég ráð fyrir að hún gæti því keypt nokkra bíla handa mömmu sinni. Stúlkan gat keypt allt þetta dót og ábyggilega nokkra bíla, og ætlaði svo að gefa pabba sínum ALLAN afganginn. Rifrildið varð frekar blóðugt. "Ég er hætt að vera vinkona þín" og "Þér er ekki boðið í afmælið mitt" voru setningar sem fengu sko að fjúka. Æskan maður.
Tucci Ég hef verið að horfa á spennuþættina Murder One sem Skúli keypti í Ameríkunni á DVD. Þar á Stanley Tucci stjörnuleik, hann er hreint og beint ÓTRÚLEGUR. Hann leikur vonda manninn sem er kannski ekki vondi maðurinn, heldur bara mjög kinky. Á meðan allir aðrir leikarar eru að standa sig svakalega vel þá ber hann höfuð og herðar yfir þá því hann leikur á smáatriðunum. Pínulítið glott og augngotur sem eru svo öguð en jafnframt tilgerðarlaus segja eigilega allt, en aldrei of mikið. Ég get horft á þáttinn með öðru auganu mestallan tímann, til dæmis verið að brjóta upp tau eða festa tölur á föt, en um leið og Tucci birtist þarf ég á allri athyglinni að halda, því það er sko ekki nóg að hlusta á það sem hann er að segja. Mér finnst skrýtið að Stanley sé ekki stórstjarna á borð við Robert De Niro eftir að hafa séð hann í þessum þáttum.
Tutti Frutti Ég keypti mér brjóstarararararahaldara um daginn. Það er nú svo sem ekkert merkilegt, nema fyrir það að hann er númer 36D. Það er skrýtið í ljósi þess að þegar ég byrjaði með Skúla notaði ég 36B og þótti mikið til koma þegar ég skyndilega varð C. Ég hef samt aðeins þyngst um 7 kíló á þessum tíma, svo ég fatta þetta ekki alveg.
Tutti minutti Eftir tuttugu mínútur leik ég í auglýsingu fyrir Þjóðleikhúsið. Ég verð gellan í eldhúsinu í ógeðslega sæta hvíta og rauða kjólnum. Sama kjól og ég verð í á White Stripes tónleikunum 25. september. Jájá, það er litaþema.