Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






27.5.05 :::

Fluffy
Vigdís átti einu sinni bleikan bangsa sem hét Flöffí. Flöffí er frábært orð.
• Vá hvað þetta eru flöffí skór maður!
• Vá, ég er svo flöffí!
• (daginn eftir) Shit, ég er svo flöffí að höfuðið mitt er að klofna.
• Hann kom bara og sagði að ég væri ljót, hann er nú eitthvað flöffí sko.
• Heyrðu, kom hann ekki og bauð mér í glas. Hann er svo flöffffffííííí stelpur!!!
• Ekki vera svona flöffí, láttu eins og maður.
• Vertu stilltur og flöffí.
• (ef maður kann ekki textann) ...baby common yeh you're fluffy and the fluffy man...
• Oh, ég væri alveg til í eitthvað flöffí núna.

Stelpur sko... þær eru flöffí.
Já. Í dag var pöntuð pizza í hadeginu í Hlíðaskjóli. Tvær stúlkur, önnur vinnur í baðhúsinu líka og hin stundar það fengu sér grænmetispizzu. Sko. Dómínóspizza er óholl. Lyftiduftsgerloftbotn svo maður er uppþemdur fram eftir degi og svo er osturinn ekkert megrunarfæði. Sósan er svo líklega búin til úr einhverju amerísku dufti. Þær voru rosalega sáttar með sig að fá sér grænmetispizzu. Svo drukku þær kókakólalæt með. Svona stelpur... þær voru svo flöffí að ÉG var flöffí í samanburði við þær.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:48







Ég er að breytast í bíl; Hvar er samviskan?
Var að koma heim af dásamlegum tónleikum með Byltunni. Vigdísi fannst ég nörd að fara ein. "Já, en ég þekki suma í hljómsveitinni..." Nonni setti mig á gestalistann, og ég kom í dyrnar alveg: "Halló, ég er á listanum. Margrét."
"Hjá hverjum?"
"Byltunni? Nonna?"
"Já, uuu... Margrét.... uuuu.... Klo....????"
"Já, Margrét Klobbieman."
Það er sem sagt ég. Jæja.
Ég kom þegar Jan Mayen var að spila... Öll lögin voru eins. "Nú ætlum við að rokka þetta upp," sögðu .eir og spiluðu svo sama lagið. Fannst mér.
Svo byrjaði Byltan og það var ofsagaman, svo gaman að ég kallaði ÚR AÐ OFAN tvisvar. Í síðasta laginu birtist Hilmar Guðjónsson (a.k.a. Áki Egils) og bauð mér upp í dans. Ég var himinlifandi og við dönsuðum eins og vindurinn. Himmi rakst oft í mann við barinn og maðurinn varð óhress. En við dönsuðum bara. Það er ofsalega erfitt að dansa og tyggja tyggjó. Nonna fannst við mjög fyndin og sagðist hafa átt í erfiðleikum með að tromma.
Mig langar að eignast barn með öllum í Byltunni, nema Nonna. Hann er með svo skrýtið hár. Og þó, hann reddaði mér inn. Og skrifaði Margrét Klobbieman.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 01:17







25.5.05 :::

Metorðastiginn
Ég var kosin meðstjórnandi í Magadansfélaginu í gær.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:43







24.5.05 :::

Trallalalla, bing bong.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 17:15







Fashion Police
Maður veit að maður er að gera eitthvað rétt þegar sjö ára guttar segja að maður sé smart í dag.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:54







23.5.05 :::

Ó
Ef til væri gos með kirsuberjabragði, samt ekki of sætu, heldur frísklegu, þá væri það uppáhaldsdrykkurinn minn.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:36







21.5.05 :::

Júróvisjón
If I had your klof
I could live my dream
flying high above
everything
If I had your klof
you would light my world
that would be enough
if I had your klof

Og svona rétt í lokin í kjölfar umræðunnar sem var í gær: Ég held að búningurinn hafi ekki skipt máli. Mér fannst hann bara fínn í gær og hef enga trú á því að búningar ráði úrslitum. Þeir voru nokkrir svakalegir í gær. Ef að allir væru jafn gagnrýnir og við þá væri klárlega allt vitlaust í Noregi. Glam, söngvarinn þeirra, var í svo þröngum buxum að það var hægt að sjá hverrar trúar hann er! -Logi Bergmann

Undur og stórmerki hafa gerst hér í Kænugarði. Þetta er ótrúlegt. Keppnin á ekki eftir að vera söm! Söngvarinn frá Kýpur er EKKI í hvítum jakkafötum! Ég endurtek. Keppandinn frá Kýpur er ekki í hvítum jakkafötum. Má þetta? -Logi Bergmann

...Hann syngur manna mest og spilar á básúnu (held að þetta heiti básúna – stórt sem hann færir svona fram og aftur). -Logi Bergmann

Begmanninn sko.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:02







20.5.05 :::

Whaddafokka?
DHedie
Congratulations! You are Edie Britt, the serial
divorcee whose romantic conquests have everyone
buzzing.


Which Desperate Housewife are you?
brought to you by Quizilla


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:39







19.5.05 :::

Sumarið mitt
Til og með 31. maí verð ég að vinna í Hlíðaskóla, klára stuttmyndina mína og klippa hana til.
1. júní byrjar götuleikhúsið, þá þarf ég einnig að skila inn um 5000 möðkum til Veiðibúðarinnar við Lækinn, en þar er ég ormakona. Endilega skrifið í kommentin ef ég má koma að nóttu til í garðinn ykkar í sumar, helst þið í gömlu hverfunum. Býr einhvert ykkar í kringum gamla kirkjugarðinn? Ekki hafa áhyggjur, ég klára ekki maðkana í görðunum, góð ormakona tekur í mesta lagi 10% af möðkum garðsins yfir eitt sumar. Ég þarf að vera öflug því ormamaðurinn er í útlöndum til 4. júní.
17. júní verð ég í bænum í búning og fíflast eitthvað.
Um 20. júní byrja ég að grúppíast og búa til hummus fyrir gítarleikarann í Skunk Anansie.
25. júní fer ég til London.
26. júní á mamma afmæli.
2. júlí fer Vigdís til Egyptalands og kemur heim 31. júlí.
3. eða 4. júli kem ég heim frá London.
31. júlí er síðasti dagur Götuleikhússins.
Í ágúst verð ég bara að ormast. Ég verð að passa mig að fá ekki orm í rassinn.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:55







18.5.05 :::

Grasekkjan
Næstu 2 vikur + 3 daga verð ég grasekkja. Ég verð alein!!! Skúli fór með hinni kærustunni til San Francisco og New York. Þannig að ég er mikið til í vöffluboð og Barbíkjú. Einmanaleikann leysi ég þannig að ég ímynda mér að Skúli sé á hljómsveitaræfingu.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:18







17.5.05 :::

Gjöf sem gleður
Skúli er að fara í útskriftarveislu hjá Heiðu, systur Harðar Loga. Hún er að útskrifast úr Yale. Umræður hófust hér í Fífumýri um útskriftargjöf.
Helga: "EEEEEEEEEEN, bara svona egg?"
Allir: "?"
Helga: "Eins og ég á hérna niðri?"
Ég vissi ekki hvert ég átti að horfa. En hún meinti víst Egg snjófuglsins eftir Koggu.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:34







15.5.05 :::

Næsta magadansfestival í Svíþjóð verður 25.-28. maí 2006!!! Þannig að ég fer sko. Moðerfokking pottþétt. Og ég ætla að kaupa polkagrisar.

Afffff hverju er alltaf byrjað að sína lappirnar á konunum í Boston Legal og svo rennt upp eftir þeim? Svo er súmmað á rallann á þeim. Þetta væri kannski í lagi ef rassinn á William Shatner eða James Spiderman (bingbong) væru stundum í mynd.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:05







Moment of Truth
Ég se ekkert að því að kalla fólk sem ég á enga samleið með pakk. Jafnvel skítapakk ef það er leiðilegt í þokkabót.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:20







12.5.05 :::

SKO
GB = 1000 MB
< = > G = 1000 M

Þannig að í stað þess að skrifa Guðmundur, gæti ég skrifað gæti ég skrifað MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMuðmundur.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:49







Tvíbbar?
Umræðuefni í MSN samtali okkar Konráðs, í hverju ég nefndist Sakis Rouvas, var setning sem ég skrifaði í kommentakerfi Ásdísar; Ég vinn, ekki Konráð samt. Konni misskildi setninguna. Við grípum inn í mitt samtalið:

Konráð says:
hélt að ég væri gerandinn

Sakis Rouvas says:
já nafnið þitt er óheppilegt

Konráð says:
hehe

Konráð says:
best væri ef ég héti Hestur

Sakis Rouvas says:
þú ættir að heita hestur

Konráð says:
jááááá

Sakis Rouvas says:
HAHAHAHHAHAHHAHAAHHAHAHA

Að stinga upp á því samtímis, á sitthvorum staðnum að allra best væri að einhver nefndist Hestur, er ótrúleg tilviljun. Alveg ótrúleg. Næstum því jafn fyndið og þegar Regina Spector byrjaði að... gera... uuu... hljóðið sitt.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:27







Ahhhh...
Nú á ég ipod, og nú finnst mér gaman að labba. Ég labbaði heim úr vinnunni við OST-inn úr Amélie. Mér varð ljóst að ég hef ekki fengið að upplifa vorið að neinu ráði í svona 10 ár. Mikið afskaplega naut ég þess. Ég var svo létt á fæti. Bara á bolnum.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 19:52







11.5.05 :::

There is a man
A certain man
And for the poor
You may be sure
That he'll do all he can

Who is this one?
Whose favorite son?
Just by his action
Has the traction
Magnets on the run

Who likes to smoke
Enjoys a joke
And wouldn't get
a bit upset
if he were really broke

With wealth and fame
He's still the same
I'll bet you five
You're not alive
If you don't know his name.

Rokk maður.

Mig langar ofsamikið að fara í læðast-eina krónu á bókhlöðunni á prófatímanum. Ég fattaði þetta eiginlega sama dag og ég þreytti síðasta prófið mitt, eða í dag. JÍÍÍÍÍÍHA!!!
En já. Við þyrftum þá að hafa svona stórt blað límt einhvers staðar og svo er maður með tússpenna og hleypur og skrifar nafnið sitt á blaðið. En maður verður að læðast og passa sig að trufla engan. Þetta ætti að verða ógó pógó gaman.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:46







10.5.05 :::

...

Ég elska þennan mann. Hann er svo fyndinn. Það er eins og einhver hafi húkkað hann í vörina. Konurnar rifu sig einnig úr buxunum og voru í svona kögurnærum, sva það var eins og þeir væru með síð silfurskaparhár alveg að mjaðmabeinunum sem þær sveifluðu í takt við músíkina.
Update: Ég fann betri mynd af kögurbikiníunum, og textann við lagið. Nú vantar mig bara lagið á ipoddinn, EÐÐÐÐÐÐA myndbandið maður.
...
Everytime you wanna play
turn me on, all the way
come to me and take the ride
skin on skin, it’s pure delight
givin’ me the passion you’re burnin’ my heart
gonna rock you till you drop
baby you’re the reason I’m feelin’ so hot
want you now, I just can’t stop…
I would trade my life
for a night with you
driven by desire
make that move on me
it’s time for you to see
that my world’s on fire!!!!!!!
Shake, shake, shake, shake, shake it mi amor
Crazy for love
Give me some more (x 6)
Forever!!!!!!!
Everyday I can’t resist
need the taste of your lips
darlin’ it’s your body that drivin’ me nuts
let me in I’ve got to touch
I would trade my life
for a night with you
driven by desire
make that move on me
it’s time for you to see
that my world’s on fire!!!!!!!
Shake, shake, shake, shake, shake it mi amor
Crazy for love
Give me some more
Shake, shake, shake, shake, shake it mi amor
Crazy for love
Give me some more (x 4)
Forever!!!!!!!
Shake,shake,shake!!!


Update 2: Ég var að tala við Burkna frænda á Adium. Sakis Rouvas (þessi maður) er fyrrverandi stangarstökkvari.
Svo ég vitni í samtalið:

hann var síðastur á svið á lokaathöfn ólympiuleikanna

og maður bara: "HVER ANNAR"

Ég held að þessi maður Klobbieman.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:43







Eftir á-svekkelsi
Rósalind, magadanskennarinn minn kom frá Stokkhólmi í gær. Ég alveg: "HA? Var þetta ekki til ellefta?" Onei, þetta var 5. -9. maí. Ég hafði bara bitið hitt í mig. Ég hefði getað farið með í magadansferðina til Stokkhólms, því ég var í prófi 3. maí og svo ekkert aftur fyrr en 11. maí. Jæja, þýðir ekki að gráta það núna, ég fer bara næst.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:21







9.5.05 :::

Hugleiðingar
• Ég var hjá tannlækninum í morgun. Hann slípaði af mér tannstein og sagði að tennurnar mínar væru A-OK. Ég hélt að það myndi ekki vera þannig, ég borða svo mikið nammi og drekk ekki mjólk. Nú er rosalegt bil á milli tannanna og ég get gert mikið af skrýtnum hljóðum. Ég horfði á bavíanaþátt á Animal Planet.

• Afffff hverju líður ekki sá dagur að ég sjái ekki Eika bleika? Ég er ekki að elta hann... Svo hann hlýtur að vera að elta mig. Hann var úti að reykja í rigningunni áðan. Pant ekki þefa af honum.

• Ég er með möppu í stíl við peysuna mína. Það er Barbie.

• Oj hvað er mikil lauklykt af mér.

• Fólk með eyrnatappa/heyrnatól á bókó er hávært, það brussast um og heldur að það heyri enginn, því þau heyra ekki í sér. Hér er t.d. franskur maður á msn með heyrnatól og hann er alltaf að skella upp úr.

Íris Björk þreytti samræmda prófið í íslensku í dag.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:38







... og svo spýta
Á morgun fer ég til tannlæknis (þoli ekki fólk sem segir "fara til tannsa"). Ég hlakka virkilega til. Ég hef ekki farið til tannlæknis í þrjú ár... úbbossí. Familían er komin til nýs tannlæknis. Hann er vinur pabba þessi. Hann heitir Villi (TILLI!!!) og það er sjónvarp í loftinu svo maður getur bara horft á Animal planet hjá honum. Pabbi fer alltaf til hans á miðvikudögum því þá er einhver spennandi spæjaraþáttur.

Ipod
Haldiði að pabbi minn og mamma séu ekki að breyta mér í dekurdís. Ég fékk Ipod, bláan mini. Hann er afskaplega mikið krútt. Ég setti könnun hér til hliðar í örskotsstund um nafnið á honum. Valmöguleikarnir voru:
• Klobbieman
• Íglan
• Rottíhvelí
• Fagri litli diskógrís
• Jack
• Walt Whitman
• Engilbert Jensen
En könnunin var eitthvað erfið og skildi ekki íslenska stafi og svona... þannig ég tók hana út. Svo skírði ég hann bara Fagra litla diskógrís... Já, Ásdís, ég veit að Jack er mjög töff því það hefur mikla skírskotun (White, Bauer, Lost, Lemmon) en ég er með svo mikið með White Stripes inni á honum að það yrði eitthvað svona víddadæmi sko. Þú mátt skíra þinn Jack, Ásdís mín.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:43







8.5.05 :::

Fyrst er hitti ég Frank Mills,
þá var fimmtándi september,
ég hitti hann einmitt hér.
Hann sagði mér hvar hann býr *bling*
svo gleymdi ég því.
Síðan hef ég ekki séð hann aftur
honum svipar í sjón til George Harrisonar
nema hárið á honum er alltaf greitt aftur í tagl.

Mikið afskaplega er langt síðan ég tók góðan vangadans. Jú, jú, maður hefur alvegt vangað í eldhúsinu og svona... en það er t.d. aldrei boðið upp á vangalög á djamminu. Það væri nú gaman. Annars var ég ekki mikill vangari í Austó, vangaferill minn var aðallega erlendis á vegum CISV. Ég var nefnilega ekki ein af kúlfólkinu í Austó. Ég vangaði bara tvisvar held ég ef undanskildir eru skylduvangadansarnir á deitballinu. Ég vangaði við Benna í 7. bekk, en svo vangaði ég ekki á þeim vettvangi aftur fyrr en í 10. bekk. Það var á busaballi, og það var skylda fyrir "busana" að bjóða sér eldra fólki upp. Strákurinn sem bauð mér upp þá hélt að hann ætti geðveikan séns í mig og var alltaf að tala eitthvað við mig í frímó og mér þótti það ógó asnalegt. Um vorið fór hann að tala um hvað hann myndi sakna mín og spurði í hvaða skóla ég ætlaði að fara. Ég sagði MH. "Ég líka," sagði hann. Hann fór í MH.
Það var bara til eitt vangalag í Austurbæjarskóla. Það var Stand by me. Þegar ég heyri þetta lag í dag fæ ég sömu tilfinninguna og ég fékk í Austó. Stanslaus bið. Vonandi að einhver bjóði mér upp... en svo gerist ekkert og ég upplifi mig sem ósýnilega. Þetta er afskaplega erfið tilfinning.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:31







6.5.05 :::

Ég las það í Samúel
Úr Fréttablaðinu í dag:

Skemmtilegur spjallþráður er um [Trabant] á heimasíðunni Justusboys.com en síðan gefur sig út fyrir að vera einungis fyrir homma. Þráðurinn ber titilinn „Amazing New Gay Icelandic Band“ og er það íslenskur strákur sem stofnaði þráðinn með það í huga að kynna hljómsveitina fyrir gestum síðunnar.

Ég hef Björn grunaðan.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:10







5.5.05 :::

Yes, I love technology,
Not as much as you, you see,
But I still love technology,
Always and forever.
Always and forever.

Þegar maður fer inn á síðu sem lætur manni torrenta í té, virðist síðan halda að ég sé að ná mér í þetta af því ég sé svo afskaplega einmana. Ég fæ alltaf þennan ljóta popupglugga, og það kannski á Bókhlöðunni og þá halda allir að ég sé einmana og hlæja að mér.
...


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:34







The Weakest Link
Ég fór á síðu Einars. Hann linkar á Jón. Jón linkar á Katrínu. Katrín linkar á þetta.

Mæli með síðasta linknum í þessaari keðju. Sérstaklega þeim hluta bloggsins undir $Pomes$ á valröndinni. Skemmtið ykkur vel. Samkvæmt Darwin er hún betri en við eldra fólkið.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:48







Megrun
Þessum tíma, prófatímanum, fylgir alltaf megrun. Þegar byrjar að hlýna í veðri þarf ég ekki á jafn miklum mat að halda og í vetrarkuldanum. Ég drekk samt alveg rosalega mikið vatn, og verð aktívari í alla staði. Það gæti verið vegna þess að ég er tilbúin að gera nær allt annað en að lesa, til dæmis að gera magaæfingar eða fara í göngutúr.
Auk þess er ég alltaf þyrst. Ég drekk núna ca þrjá lítra af vatni á dagæ. Það byrjaði sem "átak" í byrjun prófalesturs en nú er ég orðin húkkt. Ég þarf að pissa að minnsta kost einu sinni á klukkutíma, og það gefur manni ágætis tækifæri á að standa upp og teygja úr sér.
Svo er ég líka loksins byrjuð að hreyfa mig reglulega. Og ég tek ekki eftir einhverri brennslu, því það er svo gaman í dansinum. Maður heldur bara áfram og gleymir hlaupastingnum.
Ég er búin að grennast um tvö göt á beltinu (þori ekki að vigta mig þar sem vöðvar sem voru ekki fyrir eru þyngri en fita). Ég held ótrauð áfram í þessari skemmtilegu megrun sem ég átta mig varla á að sé til staðar. Megri megri megr.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:36







4.5.05 :::

Það er svo algerlega ótækt
að fá lag á heilann. Venjulega, þegar ég fæ lag á heilann, get ég leyst það með því að googla því bara og fá allan textann á hreint. Ég fékk til dæmis um daginn, hálftíma fyrir próf, lag með REM á heilann. Það söng í höfðinu allt prófið: Kommentjameika Kommetjameika.... Svo kom ég heim, spurði Skúla hvað lagið héti og googlaði textanum. Lagið hefur ekki ert mig síðan. En hoobíið, sem gegnsýrir líf mitt sér mér fyrir nógu heilafæði. Nú fæ ég lög á heilann og það er ekki sjéns að gúggla textanum, þar sem hann er á arabísku sem er ekki skrifuð með s v o n a s t ö f u m. Ég get ekki heldur vitað um hvað ég er að syngja, og hef ekki hugmynd um hvar eitt orð endar og annað byrjar.
Þess vegna hef ég búið til fullt af textum. Nú erum við til dæmis að læra dans við lag hvers texti hljómar svona:
Elimigahalabelí Hú Rottíhvelí
Þetta lag hljómar svona þegar ég syng það í bílnum:
Elli minn er halabelja og rottuhveli
Það er fyndið að gera hreyfingu og ímynda sér að maður sé að tákna halabelju eða rottuhveli. Það eru ábyggilega skemmtileg dýr. Þokkafull, ekki spurning.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:48







Híhíhí motherfokkingvissi það





You Belong in London


A little old fashioned, and a little modern.
A little traditional, and a little bit punk rock.
A unique woman like you needs a city that offers everything.
No wonder you and London will get along so well.

What City Do You Belong in? Take This Quiz :-)





Slegið inn af Mokki litli klukkan 00:06







3.5.05 :::

Jeg er så glad i dag,
jeg er så glad i dag.
Jeg har fået min medicin;
jeg er så glad i dag.

Við Konni ætlum á vortónleika Bergþórs á morgun. Það verður mikið djamm.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:50







1.5.05 :::

Family Tree
Ég er að læra enska málssögu. Hún er ógó skemmtileg. Ég er heppin að tala íslensku að móðurmáli þegar ég læri þetta. Jæja. Ég fór á síðu sem Pétur Knútsson kennarinn minn benti á í gegnum kennslusíðu sína um indóevrópska tungumálafjölskyldutréð. Efst á þessai síðuy gefur að líta auglýsingu frá málspeking þeim sem sér um síðuna. Er hún svohljóðandi:

**Lost Cousin Alert***

I would like to locate my long-lost cousins Steve Short and Dale Short. If you know Steve Short or Dale Short (age: mid-50s), ask him to send me a message at the e-mail address below.


Ég óska Dan Short velgengni með að finna þá Steve og Dale.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:45







Allt í genunum
• Um daginn fengum við mamma okkur rauðvín. Ég á það til að verða öll flekkótt á bringunni við rauðvínsdrykkju og mamma á við sama vandamál að stríða. Mamma mín tjáði mér þá að oft hefði hún efast um að ég væri rétt barn af fæðingardeildinni, en nú væri hún alveg viss um að ég væri dóttir hennar, og benti á bringuna á mér.


• Mamma mín er góður kokkur en skeptísk á hæfileika sína. Við þurfum báðar að fá rosalega mikið feedback við öllum eldhúskúnstum. Það er ekki nóg að segja: Voðalega er þetta gott! Við spyrjum í gríð og erg alla við borðið: Finnst þér þetta vont? Jafnvel eftir að Skúli er farinn heim úr matarboði á mamma það til að spyrja mig hvort honum hafi þótt þetta vont. Við erum alveg eins að þessu leyti. Þurfum ossamikið feedback.

• Þegar ég var lítið barn var ég mikið greppitrýn. Ef ég fékk hlátur eða önnur viðbrögð frá fólki við grettunum þá hélt ég svipnum þar til ég komst í næsta spegil til að sjá hversu fyndin ég væri nú í þetta sinn. Bróðir pabba mín stundaði hið sama í æsku.

• Á bloggi Snæbjarnar talaði hann eitt sinn um brundfyllisgremju. Frank bað um útskýringu á hugtakinu, auk dæmis um þrjá sem þjáðust af brundfyllisgremju. Snæbjörn svaraði engu í nokkra daga, svo ég tók af skarið og svaraði í kommentakerfinu:
Brundfyllisgremja er ekki varanlegt ástand, svo að nefna
þrjá er hægara sagt en gert. Þetta er sú frústrasjón sem
byggist upp í mönnum sem eru ekki búnir að fá það lengi.
Vandamálið er auðvelt að leysa; fara í sturtu og þvo typpið
hratt og vel.

Atli Freyr, húsmóðir á Álftanesi, kallaði mig rudda. Ég var að segja familíunni frá þessu atviki og pabbi hváði eitthvað. Við systurnar brugðumst við með því að segja samstundis: Já, en, já en... hún/ég var bara að svara spurningunni!!!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:03