Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Húmorblogg • Úr nýja leikritinu hans Konráðs: Ungur maður með míkrófón: Jahá. Og hvað gerir þú Gunnar? Gunnar: Ég er Bergþór Pálsson-eftirherma. Kannski er ástin eins og sæluhús?
• Það er gaman að spila Catan og vera sá sem syngur þemalögin. Dæmi: Pabbi: Vigdís, áttu múrstein? Margrét: Trallallalalala another brick in the wall.... Vigdís: Ég á bara korn. Margrét: Will you stay with me? Will you be my looove among the fields of barley? IN HIS ARMS.... Pabbi: Ok, ég á svona grjóthöfn... Margrét: Rock around the clock tonight we're gonna rock.... Mamma: Uss, Margrét, þegiðu. Margrét: It's a kind of hush, HUSSSSSH, all over the world tonight...
• Einu sinni var aður sem ætlaði að kaupa sér agúrku, en það var ekki til nein agúrka. Þá fór hann til málningasalarans [sic] og keypti sér græna málningu. Svo fóru þeir til læknisins og létu skera typpið af máningasalaranum [sic] og létu mála það grænt. Svo settu þeir það í búð. Svo kom kona sem var að kaupa í matinn handa forsetanum, og hún keypti typpið af málningarsalaranum.[sic] Svo var forsetinn að borða og sagði: "Namm, namm, hvað þetta er góð agúrka." Þá kom málningasalarinn [sic] hlaupandi og sagði: NEI! NEI! ÞETTA ER TYPPIÐ AF MÉR! ÞETTA ER TYPPIÐ AF MÉR!!!!
• Þetta er töff merki sem selur íþróttavörur. Je déteste le sport. J'aime le jazz...
Innlit/útlit Mikið svakalega eru allir umsjónarmennirnir þvingaðir. Ég elska samt auglýsinguna fyrir innlit/útlit. Þegar finnska konan segir Humyndi fyi heimili langar mig að leggjast niður og hlæja mig máttlausa. Þegar þessi kona birtist á skjánum fer systir mín alltaf að hlæja og stundum fær hún tár í augun. Segir oft: ó, Gvvvvuð, ég ellllska þessa konu. Svo er mámímókonan alveg rosalega kókuð í augunum eitthvað. Ég held að almennt sé íslenskt dagskárgerðarfólk á Skjá einum eitthvað crooked sko. (Crooked er orð sem gott er að nota í pikköpplínu á t.d. Kaffibarnum).
Mennt er mátturAllar myndir í færslunni eru íslenskt download Í dag voru læti í skólaskjólinu. Ameríska stúlkan með segulstálspidermanninn var upp um alla veggi, Lína vældi og vældi því hún nennti ekki að perla sjálf, Hjalti var búinn að brjótast inn í geymsluna með smjörhníf og búinn ræna þaðan bolta sem hann sparkaði um allt og Birta, sem er nýflutt heim frá Danmörku kom til min reið og sagði: "FORTÆL DEM AT HOLD KJÆFT!" (Við tölum saman dönsku.) Ég náði í tölvuna mína og hóf myndasýningu úr National Geographic myndasafninu mínu. Og allir krakkarnir þögðu, nema þeir hefðu eitthvað merkilegt að segja. Við settumst í eina kös og nutum sýningarinnar.
Ugla: AH!!! Þetta er í Danmörku!!! Birta: Nei, það getur ekki verið, það eru engin svona fjöll i Danmörku. Kannski er þetta í Skotlandi.
Bryndís: Þetta er ábyggilega á Hawaii. Margrét: Af hverju heldurðu það? Bryndís: OOOOH, GRANDMOTHER BÝR Á HAWAII!!!
Aron Elí: Hey, þessi er bara eins og gaurinn í myndinni áðan. (Hann átti við Salómon í Stellu í orlofi)
Þórey: HAHAHAHA!!!!! Hann er allur útí sykri!!! Ugla: Þórey, þetta er felubúingur, hann býr ábyggilega í sandi eða eitthvað.
Margrét: Þetta er Titanic. Hjalti Sveinn: Er það sönn saga? Margrét: Nei, ekki ástarsagan kannski, en það var samt til skip sem hét Titanic og klessti á ísjaka og sökk. Ugla: Já, ég las það í Alfræði barnanna. Birta: Ég líka.
Margrét: Þetta er ábyggilega á Kúbu. Þar er svo mikið af svona gömlum bílum... Það er nefnilega bannað að... versla við Kúbu, svo það er... mjög erfitt að kaupa nýjan bíl. Ugla: Já!!! Bandaríkjamenn settu viðskiptabann á Kúbu. Margrét: Alveg rétt. Ugla: Ég heyrði það í fréttunum.
Spurningakeppni fjölmiðlanna Ég er að verða geðsjúk. Af hverju segja þeir ekki bara rétt og rangt í stað þess að nota helvítis dyrabjölluna og skrímslaöndina? Ég hata þettaþ Oj, hvað þetta er hallærislegt.
BRJÓSTIN MÍN Valur vinur Konráðs hringdi í hann í gær, þegar Konni var í heimsókn hjá mér. Valur spurði Konna hvar hann væri. "Hjá Margréti Mokk." Ekki virtist Valur kveikja á því. "Vinkonu Nönnu?" Nanna er kærasta Vals, en hann kveikti ekki. "Sem var í MR?" Ekkert. Þá stakk ég upp á því að Konráð segði: Þessi með stóru brjóstin. "Þessi með stóru brjóstin?" Og viti menn, Valur kveikti.
MAMMA AMMA DJAMMA Þær fóru á Stuðmenn í London. Hringdi í mömmu í gær, ráma á Savoy og hún tilkynnti mér stolt að hún hefði farið í þrjú eftripartý kvöldið áður, og þurft að draga ömmu heim rétt fyrir fimm (amma vildi vera lengur). Þessar konur eldast aftur á bak. Hér er mynd af ömmu og Ragnhildi sem er tekin um 4 um nóttina.
Fyrrverandi kærasta fyrrverandi kærastans míns, er trúulofuð strák sem ég var gríðarega skotin í á gelgjunni. Þeir eru samt langt í frá líkar týpur. Jú, báðir notuðu gleraugu þegar þeir voru þreyttir í augunum. Ég er semsagt með nákvæmlega sama smekk og einhver gella úti í bæ.
Templeitið Ég er svo helvíti sátt við þetta flamingóatempleit.Við skoðun síðunnar dettur mér aldrei að ég þurfi nú að skipta um. Þvert á móti þá horfi ég á hana dáleidd, eins og ég horfi á litarefnanammi sem ég tími ekki að borða. Templeitaaumingjahrollur heyrir sögunni til. Oj muniði þegar ég var með steingrýlutempleitið... það var nú ljótt. Ég elska þetta templeit, svo bleikt og fallegt. Takk Snæbjörn aftur.
Fermingarveisla Ég fór í fermingarveislu hjá stúlku sem ég þekki ekki mikið. Fjölskylda mín þekkir hana þó ágætlega. Hún kemur oft upp í sumó, en þar sem ég er enn með unglingaveikina þá þekkti ég hana varla. Hún var í gallabuxum. Hún gat ekki sagt gjöriði svo vel, heldur stóð eins og kúkur við hlið móður sinnar, með RASSINN í gestina. Svo var hún hokin og og og og ... Þarna sannaðist það sem ég hef stundum haldið fram: Feimni er oft ekkert nema afsökun fyrir ókurteisi. Fermingarbarnið talaði ekki einu sinni við gestina. Það skemmtilegasta í veislunni var brandari sem pabbi sagði. Veislan var haldin í Gúttó í Hafnarfirði. Pabbi: "Margrét, þú veist hvað I.O.G.T. þýðir?" Margrét: "UUUU.... International Order of... Good Templars??? Pabbi: "NEINEINEINEINEI.... Íslenskir ofdrykkjumenn, gamlir tugthúsmeðlimir." Við fórum snemma heim og kvöddum fermingarbarnið þar sem það var í óðaönn að opna pakkana. Við gáfum henni Oxford English Dictionary. Ég skil ekki að fólk skuli ekki reyna að gera fermingarveislur skemmtilegar. Þetta er eitt af örfáum tækifærum til að halda veislu, í sumum til fellum stórveislu. Af hverju ekki að nýta það í botn?
Fermingarveislan mín Ég fermdist í brúðarkjól mömmu minnar. Góð lausn. Greiðsluna fann ég í gömlu blaði, svo þetta var allt klassískt og ég efa það að þetta verði jafn hallærislegt og velúrkínakjólar og vöfflur í hárinu. Ég hélt ræðu í veislunni, og gekk á milli borða til að spjalla við fólkið. Ég fékk nefnilega að ráða gestunum, og bauð bara þeim sem ég umgengst að ráði. Ég bauð 93, en 96 mættu... Ég samdi dans fyrir Vigdísi, þá 5 ára og Ellen, þá 10 ára, sem þær dönsuðu. Óli frændi flutti ræðu um það hvað ég væri sniðug og skemmtileg, ekki leiðilegt að fá svoleiðis frá manneskjunni sem ég lít mest upp til. Svo hafði pabbi planað leynigest, og ég átti að giska með bundið fyrir augun. Fermingargreiðslan eyðilagðist, en það var allt í lagi. Þetta var bakaradrengurinn sem afgreiddi mig í Bernhöftsbakaríi á hverjum degi. Í þá daga opnaði bakaríið ekki fyrr en upp úr 8, svo ég fékk alltaf að skottast bakvið og velja mér eitthvað skemmtilegt. Veislan stóð í 9 tíma. Gott partý. Við gerðum matinn sjálf, og það var óeðlilega gaman. Ó, svo gaman að elda. Ég vildi ekki eitthvað krasakökugerpi, heldur marengstertuna hennar mömmu. Á henni sat Barbie í svipuðum kjól og ég, með sálmabók. Ég vil muna eftir veislum sem ég fer í. Það er bara ég. En fólk er ennþá að tala um að þetta hafi verið skemmtilegasta fermingarveisla sem það hafi farið í.
Brúðkaupsblaðið Þessi kona... hún kemst ekki yfir þennan dag í lífi sínu. Danska bakaríið auglýsir: Når man skal gifte sig. Hvaða augýsingagerðarskrýpi stendur á bak við þetta? Þetta á að vera Når man skal giftes. Það lærði ég í grunnskóla. Ég ætla ekki að gifta mig með slör. Bara með blóm í hárinu.
Phylan Beta rokk er á fremsta bekk. Hún er með skrýtið hár. Hún spyr oft og kemur með skrýtnar dæmisögur máli sínu til stuðnings. Þýskt par á öðrum bekk. Hann er gríðarsköllóttur eftst á höfðinu, en með svart þykkt há neðarlega á höfðinu. Konan er með ljótustu klippingu í öllum heimi. Hárið hennar er eins og Davie Crocket húfa, búin til úr óskilgreindu road kill-dýri. Á þriðja bekk er stelpa í fallegum pels. Á fjórða bekk er stúlka í táknmálsfræði. Hún er alltaf að greiða sér í tíma. Á fimmta bekk eru samviskusamar stelpur sem glósa í gríð og erg. Á sjötta bekk sitja Una, Maggi og Margrét. Magnús er í flauelsjakkanum sínum, því ermin rifnaði endanlega af leðurjakkanum í morgun. Magnús lyktar vel í dag. Nefið mitt er ánægt með hann. Á sjöunda bekk er enginn að fylgjast með. Á áttunda bekk situr stelpa sem er í blárri úlpu sem er alveg eins og bláa úlpan mín. Andskotans fjöldaframleiðsla. Á níunda bekk eru tvær stelpur. Ein skoðar á sér hendurnar og hin setur á sig varasalva. Á tíunda bekk sitja margir sem eru með gleraugu. Líka gaurinn með krullurnar í skyttunum. Atli mætir aldrei í tíma. Þarna labbaði kennarinn framhjá skjátjaldinu. Staðnæmdist á stað svo framan í honum stóð UGLA::
Kvennakvöld Raks Sharki Hvar: Chef's, Grensásvegi (það sem Bóhem var) Hvenær: Föstudag, 18. mars, húsið opnar klukkan 8 Hvað? Kvennakvöld, tyrkneskur matur, tvíréttað, dans (já, ég er meðal annars að dansa) og fjör. Hvað kostar? 1750 með mat, annars 1250. Innifalið í verði er einn bjór. ATH Þetta er kvennakvöld, karlar ekki leyfðir. Látið mig vita stelpur, í síðasta lagi á fimmtudag ef þið viljið koma, því það þarf að panta mat.
Fall is here, hear the yell Back to school, ring the bell Brand new shoes, walking blues Climb the fence, books and pens I can tell that we are gonna be friends I can tell that we are gonna be friends
Walk with me Suzie Lee Through the park and by the tree We will rest upon the ground And look at all the bugs we found Safely walk to school without a sound Safely walk to school without a sound
Here we are, no one else We walked to school all by ourselves There's dirt on our uniforms From chasing all the ants and worms We clean up and now it's time to learn We clean up and now it's time to learn
Numbers, letters, learn to spell Nouns and books and show and tell Playtime we will throw the ball Back to class through the hall Teacher marks our height against the wall Teacher marks our height against the wall
And we don't notice any time pass We don't notice anything We sit side by side in every class Teacher thinks that I sound funny But she likes the way you sing
Tonight I'll dream while I'm in bed When silly thoughts go through my head Bout the bugs and alphabet When I wake tomorrow I'll bet That you and I will walk together again I can tell that we are gonna be friends Yes, I can tell that we are gonna be friends
ó hvað ég elska þetta lag. Ég verð samt alltaf að horfa á Napoleon Dynamite ef ég vil hlusta á það. Frábær mynd. Hefur einhver séð hana annar en þeir sem ég hef horft á hana með?
Morfís... Fór á MR-FB. FB vann og það vel. Mér fannst ræðurnar þeirra mjög skemmtilegar, þó svo ég saknaði Jesú þarna. Ræður MR fannst mér of oft fara bara út í móa... því miður. Auk þess er FB-liðið svo myndarlegt. Ég hvet fólk til að fara á úrslitin og styðja FB-liðið. Enginn í FB mætir á þær keppnir sem þeir taka þátt í, nema svona þeirra nánasta klíka. Þetta varð til þess að stuðningliðið þeirra var mjóróma og kraftlítið. Það er nú ekki gott að svona gott lið hafi ekkert á bakvið sig. Ég ætla að mæta. Þeir eru líka að keppa á móti versló, og það er svo öflugt stuðningslið að þeir þurfa nú smá styrk frá okkur hinum ha?
Ólafur Á leið úr Garðabæ og í áttina ekki miðsvæðis, heldur það sem Reykjavíkurbúar halda að sé miðsvæðis, var ég í samfloti með herra Ólafi Ragnari, fagra litla forsetagrís. Skúli keyrði mig og ég sat frammí. Einhver maður keyrði hann, en hann sat aftur í. Skrýtið. Nú heimtar maður alltaf shot gun því það er svo þægilegt að vera frammí, og maður verður síður bílveikur. Sem forseti verður maður að sitja aftur í, með fæturna í klemmu. Æðarhnútar eru tákn valdsins. Ef ég horfði til hægri, sá ég Skúla, en ef ég horfði til vinstri sá ég Ólaf Ragnar. Hann var að lesa DV. Kræst.
Árshátíð Ég fór á árshátíð enskudeildar. Það var gríðargaman. Ég náði Magnúsi út á gólfið sem var frábært, því þá hafði ég ekki séð hann dansa í ár. Við vorum algjör dansfífl. Merkilegt, ég sá myndina Hitch og í henni er ljótudanskeppni og þar voru öll múvin okkar Magga. Hápunktur kvöldins var samt þegar mér datt í hug af hverju hann Bing var í gallabuxum og gallaskyrtu, innan um allt fólkið í sínu fínasta. Hann misskildi greinilega konseptið galaklæðnaður. Það er samt bara ágiskun.
Vínmenning Auðvitað felst viss hagræðing í því að geta keypt camenbertinn og rauðvínið í sömu búð. Mér finnst það samt vera hluti af stemmingunni að fara i vínbúðina. Auk þess held ég að úrvalið minnki snarlega ef fólk getur nálgast vín í Hagkaup og Bónus. Ódýr vín verða alltaf til, en ef maður vill eitthvað virkilega skemmtilegt þá held ég að leitin verði erfið. Að sjálfsögðu er alltaf sá möguleiki að "sælkerabúðir" með vín opni, svipað og Ostabúðin. En þá er fyrir hendi möguleikinn á að þar verði verð góðu vínanna uppsprengt. Ég er svo gríðarlega hrædd um að allt fari til fjandans ef útsala áfengis verður rýmkuð. Ég var til dæmis skíthrædd við róna þegar ég var lítil. Mér fannst nú erfitt þegar ég mætti þeim að kaupa sér dropa. Hvað þá þegar þeir fylla búðirnar og kaupa sér vodka!!! Það er ágætt að hafa svona "rón-free-zone." Auk þess þarf vissan aldur til að afgreiða áfengi. Þar með missa margir nemendur vinnu sína í stórmörkuðum... eða að sú löggjöf verði einnig rýmkuð. En þá er alltaf hætta á að fólk leyfi vinum sínum, undir aldri, að kaupa. Hræðilega er ég hrædd við þetta.