Á ţetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um ţađ sem henni finnst skemmtilegt, leiđinlegt, sniđugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verđur skilyrđislaust eytt.
Jólajóla Ég elska jólin. Ég get ekki hugsađ mér skammdegiđ án ţess ađ fá jólaljós í augun í ţví miđju. Ţess vegna skil ég ekki fólk sem fárast yfir jólaskreytingum sem birtast um miđjan nóvember. Ţetta er ađeins til ţess ađ viđ verđum ekki öll skammdegisţunglynd. Auk ţess fárast sama fólk yfir ţví ađ jólahátíđin sé lengd svona í annan endann. Ţegar nćr dregur jólum fer ţetta sama fólk yfir um vegna jólastresss fólks í kringum sig. Mér finnst allt í lagi ađ ţetta fólk sé minnt á jólin í tíma, ţví ţađ er til ţess ađ ţađ byrji nú snemma í ár og sleppi ţessu stressi. En nei, fólk vill greinilega vera á síđustu stundu. Alltaf.
Fyrr skal ég dauđ liggja en ađ fá mér sjónvarp í eldhúsiđ á framtíđarheimili mínu. Dauđ segi ég.
Nýaldarnöfn Andreas Máni
Aron Elí
Aron Ísak
Dagbjört Lilja
Dagur Steinn (prófiđ ađ beygja í öllum föllum... mjög skrýtiđ)
Kristófer Máni
Lína Rós
Lóa Yona Zoe (Oodles and oodles of O's you know) (hún er reyndar hálf frönsk)
Róbert Snćr
Salka Ósk
Anastasía Ísey
Breskar bókmenntir og Bridget Bridget Jones hjálpar mér oft í tímum, ţótt ţeir séu skemmtilegir, er oft erfitt ađ vera 100% vakandi. Viđ lesum fullt af ljóđum og ţar á međal: "Season of mist and... mellow fruitlessness...." Ţá hringir strax bjöllum í höfđinu mínu: "Fuck me, I love Keats!"
Í dag vitnađi kennarinn í F.R. Leavis... Thank you for calling, Professor Leavis.
Daniel Cleaver: Was that... F.R. Leavis?
Bridget Jones: Mm-hmm.
Daniel Cleaver: Wow. Huh. The F.R. Leavis who wrote Mass Civilization and Minority Culture?
Bridget Jones: Mm-hmm.
Daniel Cleaver: The F.R. Leavis who died in 1978?
Svo var einhvertíma minnst á Salman Rushdie. "Except for your books Mr. Rushdie."
Ég man ekki meira í augnablikinu, en svona ađra hvora viku kemur eitthvađ sem minnir á ţessa mynd. Ég sé framhaldiđ nćsta föstudag.
Miđaldra Ég skrapp til Danmerkur í smá verslunaferđ... Nei. Ég fór ađ hitta Snćbjörn síđasta ţriđjudag og kom heim á laugardaginn. Ég keypti mér og öđrum margt fallegt. Ég keypti mér t.d. túrkísbláa skó og rauđa stórfallega peysu á Skúla. Keypti jólagjöf handa mömmu og fékk 20% afslátt ţví manninum fannst ég svo smuk.
Ég hitti Sissel og Christian og ţau voru hress (báđu ađ heilsa ţeim sem kannast viđ ţau). Svo hitti ég indverskan mann í strćtó sem hélt ađ ég vćri dönsk. Viđ Snćbjörn töluđum alltaf dönsku ef Íslendingar voru í nánd og einu sinni kom íslensk kona og spurđi okkur á afkáralegri dönsku hvar Hovedbanegĺrden vćri. Viđ leiđbeindum henni á dönsku. Ţegar viđ fórum á veitingastađ var okkur réttur danskur matseđill. Ţađ var ruglađ góđur veitingastađur, risastór forréttur fyrir tvo međ sýnishorni af öllum forréttum, pizza međ carpaccio, hálfmáni og rauđvínsflaska á 530 dkr. Vesuvio viđ Ráđhústorgiđ.
Tívolíiđ var fallegt og afskaplega jólalegt. Viđ fórum í gamla rússíbanann, rólurnar og mongólest.
Svo fórum viđ í bíó og sáum The Incredibles. Hún var fín bara.
Svo má ekki gleyma danska bakaríinu sem er rétt hjá Snćbirni. Ég fékk mér massíva bombupistasíuköku. Pistasíufylling, súkkulađismjörkrem, kókoskrem og allt saman húđađ međ súkkulađi.
Í gćr fórum viđ Una á Beach Boys. Ţeir gerđu grín ađ hljómsveit sem hét eitthvađ "...and the Teenagers" og sögđu ađ ţeir vćru nú ekki teenagers lengur. ATH hljómsveitin Beach Boys. Einn ţeirra var í tígrisdýraskóm. Svo drógu ţeir stelpur upp á sviđ sem voru svona 16 ára og kunnu ekki textann viđ Barbara Ann. (Bababababarbara Ann). Ágćtis tónlekar, ţótt ég hefđi viljađ sjá ţekktu og góđu lögin meira dreifđ um prógrammiđ.
Nýi borgarstjórinn (Takk Frankur)
Einu sinni átti ég lítinn pening, en vantađi hann afskaplega, vegna ţess ađ mig langađi ađ gefa kćrastanum mínum almennilega stúdentsgjöf. Mér bauđst ađ klćđa mig í grćnan drekabúning međ 2 metra hala á vegum Sjálfstćđisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2002. Ég átti ađ labba í einhverri borgargöngu R-listans. Steinunn Valdís var ein ţeirra sem stóđ á halanum. Svo hrinti hún mér oft og ég fékk fullt af marblettum. Međ mér var ungur Heimdellingur, mér til varnar. Viđ bjuggumst samt ekki viđ ţví ađ viđ ţyrftum ađ stugga fólki frá, auđvitađ héldum viđ ađ flestir hefđu húmor fyrir ţessu (D.B.E. hló til dćmis). En Tobbi ţurfti ađ segja viđ ţessa konu: "Jćja, eigum viđ ekki ađ láta ţetta dýr eiga sig?" Hún hlustađi ekki, en hélt áfram ađ hrinda mér. Hún hrćkti líka ađ mér. Viđ flúđum á endanum.
Til hamingju međ nýja borgarstjórann. Shit happens.
One fine day 1. Ég klárađi ritgerđina mína.
2. Tók til passann og flugmiđann til Danmerkur (fer ţriđjudaginn í nćstu viku).
3. Fór í bađ og hlustađi á Rás tvö. Var dregin út og vann 2 Beach boys miđa og geisladisk.
4. Ég er ađ fara í vísindaferđ í kanadíska sendiráđiđ.
Er ţađ furđa ađ mađur sé móđgidýriđ? Sumariđ 2003 ađstođarleikstýrđi ég, skriftađi, greiddi hár, bjó til blómaskreytingu og bjargađi senu frá glötun (ţví öllu crewinu hafđi yfirsést ađ gera ráđ fyrir einni senu í tökuplaninu og voru búnir ađ skála fyrir tökulokum ţegar ég benti á ţessi mistök) í lítilli sjónvarpsmynd. Nú er svo komiđ ađ ţessi litla mynd er tilnefnd til Edduverđlaunanna í ár. Mér hefur ekki borist bođskort á hátíđina. (Endilega kjósiđ samt Mynd fyrir Afa eftir Tinnu Gunnlaugs* á Vísi. Auk ţess er ég móđguđ ađ teljast ekki til ţessarar Akademíu, búin ađ ađstođarleikstýra ofangreindu, leika í Ungfrúnni og dansa í Regínu. Ég segi bara Pfiff.
*Skyndilega finnst mér nafniđ Tinna Gunnlaugs eins og klippt út úr íslenskri ţýđingu á barnaefni á borđ viđ Turtles.
Skrýtna fólkiđ í enskunni Á leiđinni í skólann í dag tók ég eftir samnemanda sem gekk á eftir mér í Hljómskálagarđinum. Ég ákvađ ađ hćgja ađeins á mér til ađ vera kannski samferđa, og reyndi ađ brosa og brosa og brosa. Hún var međ vasadiskó. Kannski er hún ein af ţessum sem eru međ andlitsmeinloku. Ég gekk viđ hliđina á henni allan garđinn, en hún var í eigin heimi. Hún er finnsk/skosk/amerísk/hallćrisleg. Ég get ekki ímyndađ mér hvar hún kaupir fötin sín. Hún er alltaf međ spöng og í mongólítaskóm.
Ég ákvađ bara ađ hćtta ađ reyna ađ brosa og tók fram úr henni.
Svo er hann Bing. Hann er Kínverji. Hann er rosalega hress en gríđarfeiminn. Einu sinni sat ég viđ hliđina á honum í Ritţjálfun. Viđ áttum ađ skrifa stutta kynningu, og síđan ađ lesa fyrir manneskjuna vi hliđina á okkur. Ég leit á Bing og hann hrifsađi af mér blađiđ mitt og rétti mér sitt. Allir voru ađ tala saman nema viđ Bing. Hann er vinur stúlkunnar í mongólítaskónum.
Svo er ţađ grćnlenska konan. Ég gleymi alltaf ađ fara međ myndavél í skólann til ađ taka mynd af henni. Hún er rosalega hávaxin og ţétt á velli. Hreimurinn hennar er rosalega skrýtinn og kennarinn skilur hana aldrei. Ef hann skilur hvađ hún er ađ segja, er spurningin svo út i hött ađ hún er ósvaranleg.
Einu sinni hringdi síminn hennar í tíma og hún panikkađi gjörsamlega, var rosalega klaufaleg og var lengi ađ finna hann, fann hann svo og hljóp út til ađ svara. Svo kom hún aftur, međ skottiđ milli lappana og tárin í augunum. Eftir ţađ sat hún bogin í baki restina af tímanum.
Hún gerir lífiđ skemmtilegt.
Ég get samt ímyndađ mér ađ hún sé Sigga Jó Grćnlands.
Af ţví ađ mađur er nú ekki lengur í MR... Viđ Una skrifuđum lista međ árshátíđarţemum einu sinni. Hér eru nokkur ţeirra:
Ćvintýri Ćvintýraskógurinn, sćlgćtishúsiđ (spons frá sćlgćtisframleiđanda), hús dverganna 7. Árshátíđin sjálf vćri Öskubuskudansleikur. Allir fengju bođskort ţar sem talađ vćri um ađ prinsinn vćri ađ leita sér ađ kvonfangi.
Biblíusögur Nemendur ganga í gegnum Rauđahafiđ á leiđinni niđur í Cösu (loksins fengi stiginn tilgang). Fjárhúsiđ, Golgata, síđasta kvöldmáltíđin, Getsemane, Brúđkaupiđ í Ghana (pabbi segir ađ ţađ hafi veriđ í Ghana). Möguleikarnir eru nćr endalausir.
Prógramm árshátíđarviku vćri skemmtilegt, hćgt ađ skeggrćđa Biblíuna og fá fyrirlesara og hafa međ og á móti. Hver er Jesú Scholae?
Óskarsverđlaunin Rauđir dreglar og flass. Frćgt fólk og Joan Rivers.
Sveitasćlan Kindur úr pappamassa og fjallasýn. Sveitaballastemmingin.
Ég fór á kosningavöku í Listasafni Reykjavíkur í gćr. Ţađ var fínt mađur. Gat logiđ ţví ađ ég vćri ţarna vegna diplómatatengsla.
Lán í óláni Ég er sátt út af einum hlut sem gerđist ţegar flugvélunum var flogiđ á Twin Towers á sínu tíma. Ég geri mér auđvitađ grein fyrir ađ margir dóu og ađ ţetta gaf George Bush tilefni til stríđs. Ég var bara farin ađ halda ađ okkar kynslóđ fengi ekkert svona Kennedy-móment. Ég sat á Prikinu ađ drekka kakó og lćra ţegar Una kom hlaupandi neđan af Nelly´s, móđ og másandi og sagđi: "Veistu hvađ hefur gerst?"
SNĆBJÖRN GUĐMUNDSSON Ég er búin ađ reyna ná sambandi viđ ţig í svona viku, búin ađ senda sms og allt. Ţú ert aldrei á msn. Emilinn ţinn er eitthvađ óskiljanlegt orđarugl sem ég finn hvergi. Skilabođin sem ég ţarf ađ koma á framfćri eru eftirfarandi:
Opinber heimsókn Margrét I, af Guđs náđ drottning Ísalands og Fćreyja, hertogaynja af Ţingholtum, keisaraynja af Akureyri, markgreifynja af Kópavogi og ćđstastýra annarra landa og svćđa, Samveldishöfđingi, trúarriddari sem himnarnir lúta og fćra stjörnur sínar í kórónu*, sćkir Snćbjörn Guđmundsson, grálúsugan rembingsbauna, andstyggilegan hveitisullsokrara, illskeytta ţýskmengađa blók og hor- og kokmćltan slefbera** í Danmörku, heim, 16. til 20. nóvember. Hvađ ber hennar hátign ađ taka međ sér? Fer hennar hátign í lest ellegar kemur hestvagn ađ sćkja hennar hátign á flugvöllinn?
Kćrastinn hennar ömmu minnar var sjómađur og mikiđ ameríkaníserađur. Ţegar amma og afi skildu, kom hann međ rosalega margar spólur í búiđ. Ţar á međal var Gremlings. Ţetta var algjör eđalmynd. Ţađ var lítiđ dýr sem hét Gismó og hann var vođalega sćtur og góđur. Hann var međ stór augu og sagđi svona "Bíbúbúbíbó." Vođa krúttimús. En.... ţegar hann blotnađi ţá komu ógeđsleg skrímsl út úr bakinu á honum sem hétu Gremlings. Ţeir voru alltaf ađ reyna ađ drepa Gismó og kvelja hann. Honum fannst nú nógu vont ţegar ţađ sauđ á bakinu á honum og skrímslin poppuđu ţađan. Hann emjađi eins og stunginn grís. Ţađ náđist samt alltaf ađ bjarga Gismó... ţví Gremlings voru alltaf svo lengi ađ drepa hann hćgt og rólega. Svo reyndu ţeir víst ađ taka yfir heiminn og borđuđu heila úr fólki. Ţeir ţoldu ekki sólarljós og svo fattađi einhver ađ skella ţeim í ljósritunarvélina. Gott plott.
Ţegar ég ermi eftir Gismó ţá fć ég illt í hjartađ ţví ég finn svo til međ honum. Skúli kom samt međ ţá ógeđfelldu og afleitu hugmynd ađ drepa bara Gismó, ţar međ er allt vandamáliđ leyst. Ég átti Gismó bangsa ţegar ég var lítil. Hann hét Gremlings. Ćtli mamma hafi ekki selt hann í Kolaportinu?
Nú eru einhverjir sem halda ţví fram ađ myndin heiti Gremlins. Ţađ hef ég ekki hugmynd um, Gremlings er mikiđ flottara.