Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






28.10.04 :::

Góð
Í sjötta bekk tók ég einkaforpróf Gettu betur. Það fór fram á sal í hádegishléi og viðstaddir voru meðlimir liðsins. Prófið fór fram munnlega. Ein spurnigin hljómaði svo:
Nafnorðið sjampó er upprunalega dregið af sögn í indóevrópsku máli. Hvert er þetta mál, hvaða sagnhætti líkir orðmyndin sjampó eftir og hvernig er upprunalega sögnin í nafnhætti?
 Ég hallaði undir flatt, pírði augun og nagaði blýantinn. Sagði svo: "Skoooooooooo, þetta hlýtur að vera sanskrít, og svo er þetta -ó, það hlýtur nú eiginlega.................að..............vera........boðháttur held ég"
Þá um daginn inni í stofu var Atli búinn að gefa upp svarið við þessari spurningu, úr hvaða máli orðið sjampó væri komið og hvaða háttur það væri. Þetta var víst óborganleg blekking hjá mér. Ef Atli hefði ekki fattað þetta strax hefði ég kannski verið í liðinu!!!!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:19







26.10.04 :::

Deit
Spánveji talar íslensku við íslenska stelpu á kaffistofunni í Odda: "Má ég kannski fá heimasímann þinn, til að taka kaffi saman?"


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:27







Mokki litli og málvísindin
Í leit minni að heimildum fyrir málvísindaritgerðina mína rakst ég á tvo FRÁBÆRA linka um slang og undir rósar-tal. Þetta er allt saman svakalega hreinskilið og bendi ég á eftirfarandi:
"Put it up your rectum":
• "up yours" (a shortening of "(stick it) up your (ass)")
"Suck my sexual organ":
• "bite me" (this phrase has a very aggressive connotation, suggesting that the person offering to acceed to the request would be putting himself/herself at risk)

slóðirnar eru:
http://www.wordiq.com/definition/Slang
http://www.wordiq.com/definition/Euphemism


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:49







25.10.04 :::

I will survive
Lúsin lifir þrátt fyrir kennaraverkfallið. Ég þurfti að kemba mömmu í gær, því upp er komin lús í vinnunni hennar. Ég fann ekki neina lús í mömmu. Sjúff. Ég fékk einu sinni lús, þá var ég í 9. bekk. Hræðilegur aldur til að fá lús.

Túrbókennarinn
Síðasta mánudag sagði pabbi við mig að hann væri að deyja því hann saknaði svo vinnunnar sinnar og krakkanna. Eftir að hafa talað saman um stund, stakk ég upp á því að hann byði þeim í hádegismat. Pabbi bauð bekknum sínum í fajitas síðasta miðvikudag. Við fórum í Gripið og greitt. Vá hvað það er DÁSAMLEG búð. Maður er eins og puti í Gúllíverslandi.
Ég og Vigdís elduðum og það var rosalega skemmtilegt og við gerðum bæði kjúkling og nautahakk. Fullt af fólki mætti með blóm og meira að segja nokkrir strákar sameinuðust um blómvönd.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:32







23.10.04 :::

Baby common yeah lift your head and all the get yourself
Maybe you´re gone yeah but all I wanna do is get off, feel it, feel it feel the pain HÚHA

Mig langar í loðjakka sem hægt er að renna ermunum* af. Það er sneddí.
Var á Airwaves og það var klobbieman.

*Mig langaði að skrifa ermonum.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 02:48







22.10.04 :::

Hin verstu blöð
Átti orðlaus ekki að vera femínistablað?
Þar var prófið "Ert þú góð kærasta?" Eftir því sem maður fékk færri stig, var maður betri kærasta. Þar sem ég er naut og get verið óörugg með mig, tók ég prófið. Ég var ekki hin fullkomna kærasta, en samt ágæt. Spurningin sem felldi mig snerist um heimilisstörf. Hvað ætlastu til að kærastinn þinn geri mikið af heimilisstörfunum?
a. Ekkert (1)
b. 25% (2)
c. 50% (3)
d. 75% (4)
e. Öll (5)
Af þessu sést greinilegaað ef þú gerir jafnar kröfur til sjálfrar þín og kærastans ert bara miðlungsgóð kærasta. Jahérnahér. Ég gat svo sem sagt mér þetta sjálf, svo ég fór út í búð og keypti mér CK-nærur og D&G brjóstaRAhaldara.
Hitt tímaritið er VAMM. Hversu illa stafsett og illa uppsett getur eitt blað verið? Ég fæ barahausverk og byrja á breytingaskeiðinu. Ég nefni aðeins eitt dæmi um lélegheit blaðsins: "Þeir gera gæsalappir svona,,


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:05







17.10.04 :::

djammið
Í gær á Kaffibarnum (fór þangað því Ástrós var í röðinni, annars ven ég ekki komu mína þangað) var glasabarn með svona kannski um 20-30 glög milli handanna. Hann teygði hendurnar sem mest hann mátti. Svo datt hann niður bratta stigann þarna. Fólk hló. Ekki við Una samt, og fólk horfði á okkur eins og það væri sko ekki kjúl að hafa samúð með glasabörnum.
Við Una lentum í fáránlega hallærislegu áreiti í gær. Vá, hvað sumir menn eru ógeðslegir og leiðilegir. Í morgun sagði pabbi mér að einstaklega mikið hefði verið um áflogt og læti í bænum í nótt. Ég trúi því alveg miðað við að ég var aum í mittinu í morgun.
Mig langar að reykingabannið gangi í gegn. Vá, hvað ég mun venja komur mínar í bæinn ef það gerist. Allt frá því ég byrjaði að fara í bæinn hef ég óttast að ef ég yrði ólétt einn daginn, glti ég ekki farið á tónleika í 9 mánuði. Það er ekki gott.

Ég gerði mér grein fyrir í gær að ég mun aldrei líta út eins og djammdrottning. Demit.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:10







15.10.04 :::

Þegarég var lítið barn
og sá unglingakærustupar þá fannst mér óendanlega kúl þegar það var með hendurnar ofan í rassvasa hins. Í seinni tíð finnst mér þetta óendanlega hallærislegt. Ég hugsaði þegar ég var lítl "SVONA ætla ég að gera með kærastanum mínum einhvern tíma."


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:46







12.10.04 :::

Mig langar:
• í iPod
• í nuddtíma
• í fótsnyrtingu
• í nýjar nærbuxur (búin að fá leið á naríunum mínum)
• að það hætti nú að rigna
• í svona killer-flensulyf
• í barn sem er í moonboots á veturna
• að derhúfur verði bannaðar með lögum og teljist meiri sjónmengun en Kárahnjúkavirkjun
• að fólk taki mark á mér og taki það sem ég bið fallega um til greina. Sérstaklega ef ég er búin að vera á hnjánum í hálft ár, leiðileg í annað hálft og ICY í ár í viðbót. HÆTTU AÐ GANGA MEÐ DERHÚFU.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:37







11.10.04 :::

Málfarið
Ölöglegar myndir af netinu er þjófnaður.
1. Frumlagið er í fleritölu. Þarna skyldi vera eru.
2. Þjófnaður nei. Þýfi. Það er það sem er stolið. Að hlaða niður myndum af netinu, ólöglega, er þjófnaður.
3. LAS ENGINN YFIR???? ER FÓLK Á FYLLERÍI Í VINNUNNI????


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:11







8.10.04 :::

Lokastígur 7
Nú rétt í þessu fékk ég sms sent af simanum.is. Þar var mér boðið í pulsur og bjór í kvöld kl. 8 að Lokastíg 7, risi. "Be there or be lúði."
Engin undirskrift. Ég fór og fletti þessu upp á ntinu. Á Lokastíg 7 búa: Einar Jónsson, Vigdís Ólafsdóttir og Ása Kolka Haraldsdóttir Ég þekki ekkert þeirra. Á ég að fara? Er sá eða sú sem bauð mér ekki búin(n) að láta símaskrá vita af flutningunum? Una fékk ekki svona sms, svo þetta er ekki sameiginlegur kunningi. Er þetta kannski surprise partý fyrir mig?
Hvað á ég að gera?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 15:57







4.10.04 :::

Bridge
Á föstudagskvöldið kíktum við Skúli á Grandrokk. Þar lærðum við Bridge. OG BRIDGE ER EINS OG KANI. Ég hélt alltaf að þetta væri voðalega flókið en nei. Svo heyrir maður í fréttunum að þessi sé Bridge-félagi Davíðs og eitthvað og það er bara EKKERT merkilegt.
Þegar fólk er að fárast yfir ráðningu Jóns Steinars segi ég alltaf að hann eigi fín börn og það segi meira um hann en margt annað. Þá verður fólk kjaftstopp því það heldur að hann sé frændi minn.

XL
Óli frændi um samstarfskonu sína: "Hún er með stærsta rass í heimi!!!"
Margrét: "Stærri rass en ég?"
Óli: "... ... ... nei ..."
Ég fór og keypti mér AFTUR gallabuxur þar sem hinar eru dálítið of stórar og hanga á mér (fínar í vetur samt með gammó undir). Ég fór í 5 búðir og hvergi kom ég stærstu gallabuxunum upp fyrir mið læri. Svo kíkti ég í VILA í Náralind. Loksins fann ég buxur í XL sem pössuðu og ég komst í L. En vá.... Á hverjum degi sé ég konur og stelpur sem eru með stærri rass en ég. Langflest gallabuxnasnið eru of lítil á mig í XL. Ég er samt í kjörþyngd og telst ekki vera hvalur. Þótt rassinn á mér mætti vera minni er hann ekki eins og Rússland. Hvar kaupa þær sem eruu stærri en ég fötin sín? Sauma þær þau sjálf?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:58







1.10.04 :::

Málstol
Í vinnunni minni er 9 ára gömul stúlka. Hún á afskaplega erfitt með samskipti, bæði við fullorðna og önnur börn. Það er vegna þess að hún á bæði erfitt með að vinna úr töluðum upplýsingum og að koma þeim frá sér. Hún fæddist með heilaskaða í vinstra heilahveli. Hún á mjög erfitt með að skilja 3 orða setningar, svo samskipti við hana eru mjög höst. "Hætta, koma, borða, ekki." Hún tjáir sig með óskiljanlegum orðum.
Litla stúlkan er því bæði með Broca- og Wernickemálstol.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:12