Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Iceland Safari Við Skúli keyrðum Þjóðveg 1 í síðustu viku. Það var allt saman gott og gaman, heimsóttum frænku hans í Borgarfirði, ömmu hans og afa í Blöndudal og Mývatnssveitarfólkið sem var eftir. Einbreiðar brýr á rute 1 eru á 7. tug. Stór hluti er ómalbikaður.
Við fórum í marga bílaleiki og tókum þýskar skátastúlkur upp í frá Egilsstöðum að Höfn í Hornafirði. Þá óskaði ég þess að Atli væri með í för.
Á leiðinni upplifðum við dýralíf Íslands. Við sáum kindur, kýr og hesta en auk þess sáum við hálfstálpaðan ref hlaupa yfir veginn. Á Suðurlandi var mikið um hálffleygan fýl á veginum sem höfðu ekki alveg meikað að flúga úr björgunum og út að sjó. Þeir sátu pollrólegir og færðu sig örlítið til vinstri þegar þeir sáu mann í aðsigi, og var ég næstum búin að keyra á einn. Hann kippti sér ekki upp við það. Svo sáum við nokkra seli á/í/á/í???? Jökulsárlóni.
Reykjavík Safari Ég er byrjuð í meðskólavinnunni minni. Ég vinn 3x í viku á frístundaheimili í Hlíðaskóla. Það er afskaplegha skemmtilegt og ég fæ stundum að perla í vinnunni. Um 100 börn eru í gæslunni, og stundum koma þannig aðstæður upp að mann langi að vera til í mörgum eintökum og vera með 4 hendur. Furðulega mörg börn bera nöfn á borð við Gabríel Dagur, Mekkín, Eva Björk og Aron Elí.
Þau munu erfa landið. (Þau eru öll samt alveg yndisleg og ég valdi þau sem eru í sérstökum gæðaflokki hvað hegðun varðar)
Það er stelpa að vinna með mér sem er heyrnarlaus og hún les af vörum. Hún er svakalega fyndin og skemmtileg. Fyrsta daginn þekkti ég hana ekki mjög vel. Elísabet, sem er yfirkonan. var að tala við foreldri um starfsfólkið og var að tala um Hönnu Láru og segja að hún væri táknmálstúlkurinn okkar. Hún sneri baki við Hönnu Láru, svo hún vissi ekki hvað Elísabet væri að segja. "Hvað sagði hún?" Spurði hún mig. "Hún sagði að þú værir ljót." Hanna Lára horfði á mig og vissi ekki hvort ég væri að grínast. Við erum ágætisfélagar í dag.
Vandræðagemsi Muniði eftir frænku minni sem hélt partýið hér um árið? Síðustu eina og hálfa viku hef ég búið hjá henni að passa hana meðan foreldrar hennar voru á Grikklandi. Hún var að klára 10. bekk.
Þegar ég var svona að vega og meta hvernig ég ætti að móta framlag mitt til uppeldis hennar þurfti ég að staldra við. Ég hugsaði fyrst um hvernig ég var sumarið eftir 10. bekk. Ég ákvað að hlaupa af mér hornin í sveitinni og fór og vann 2 manuði í Mývatnssveit. Það var gaman og ég fékk mikinn pening, kynntist bjórnum og svona og baðaði mig nakin með krökkunum úr sveitinni. Mamma og pabbi held ég að hafi vitað það. Ég bjó hjá vinkonu minni og foreldrum hennar sem voru í sambandi við mömmu og pabba. Morguninn eftir fyrsta kvöldið mitt "að heiman" hringdi mamma og spurði hvar ég hefði verið. Ég sagði að ég hefði verið hjá dalvíkingnum og henni fannst gott hjá mér að segja sér það. Ég fór einn mánuð til Noregs að vinna sjálfboðavinnu á vegum Sameinuðu Þjóðanna. Svo byrjaði ég í Menntó og var bara nokkuð fullorðin.
Frænka mín HINS VEGAR.
Hún fer á bakvið alla sem reyna að vera góðir við hana. Fullorðið fólk finnst henni vont, og umhyggja sem lýsir sér í áhyggjum yfir "hvar í andskotanum barnið sé" er nöldur. Hún slekkur á gsminum þegar hún fer út að djamma. Ég sagði við hana eitt föstudagskvöldið áður en hún fór út að ég vissi að hún drykki og ég gæti sótt hana. Hún átti annars að vera komin heim klukkan 3. Klukkan 4 hafði ekkert heyrst og eg AÐ DEYJA úr áhyggjum. Skúli sagði mér að fara bara að sofa klukkan 5, því að hún væri bara með slökkt á gemsanum hvort eð er. Hún kom heim daginn eftir klukkan 1.
Málið er að þetta hefði ekki verið neitt mál ef hún hefði hringt og látið vita. En hún er ormur. Þegar ég reyndi svo að segja henni að til að þetta gæti gengið yrði hún að vera hreinskilin horfði hún á mig eins og sumt fólk horfir á Götuleikhúsið.
Mér þykir svo óendanlega vænt um hana að ég vil ekki að hún sé að eyðileggja svona fyrir sér. Ég er samt algjörlega búin að missa alla þolinmæði gegnvart elsku stelpunni. Einu sinni var hún lítil og sleit vængi og lappir af flugum og sagði svo: "Breikflugan." Díses hvað mér er illt í hjartanu.
Oddur bjó til nýtt orð. framríðinn . Það þýðir að vera ákafur þegar á hólminn er komið, t.d. gleyma að fara úr sokkunum, og fá svo bráðasáðlát.
270902
Síðan fór ég í skemmtilegt fyrirpartý. Þar var fullt af frökkum. Tvær franskar stúlkur reyndu við Frank, vin minn, en gátu ekki sagt Frank. Þær sögðu bara "Furk."
221002
Þegar þetta er skrifað liggur skúli í hlýja og góða rúminu mínu og vill ekki vakna. Móðir mín er í stöðugu símasambandi því hún getur ekki vakið hann. Hún tók af honum koddann og stillti tónlist á hæsta. Þá umlaði Skúli með og hélt hann væri á tónleikum. Mamma náði smá sambandi við hann er hún hafði togað lengi í stórutánna á honum.
041102
Fótboltastrákarinir eru merkilegir karakterar. Hægt er að skemmta sér rækilega við að hlusta á tal þeirra. Einn þessara stráka kom með afskaplega skemmtilega líkingu, sem mun á endanum koma sér fyrir í málinu. Svo ég hafi orðrétt eftir: "Já, hann hatar ekki að vera, þú veist, málhaltari en skjaldbaka."
291102
Nokkrar stúlkur tóku sig til og flöðruðu upp up Jón fram eftir kvöldi, og að lokum gafst leikstjórinn upp og stakk tungu ofan í kok Jóns og gaf þá ástæðu að hann "vildi ekki verða síðastur til að kyssa hann."
Síðan samdi Ólafur lag um þetta athæfi sitt. Textinn var á þessa leið:
Ég var að kyssa Jón
samt erum við ekki hjón.
Hann tryllir marga menntaskólamær
ég verð alveg óður og ær.
170203
Í gær rifjuðum við Kristín María upp textann af "Ástin dugir" með Unun. Ég man hann ekki alveg en ég ætla að sýna fystu erindin.
Hún:
Snemma í morgun hringdi spákona,
það var sem hún læsi sálina-a-a.
Hún sá þig í bolla og las í spil;
þú ert enn sá eini sem ég vil...
Hann:
Ég vil ekki kjafta neitt við neinn.
Ég hringi og panta pizzu fyrir einn.
Þó ég reyni að gleyma, ég man og man
nú er aðeins eitt sem ég get sagt...
Þá benti Kristín María, hin fagra, á hversu skemmtileg pæling þetta væri:
Hann: "Hæ, ég ætla að fá ...litla pizzu með bara pepperóní..."
Afgeiðandi: "Eitthvað fleira?"
Hann: "Neitakk..."
Afgreiðandi: "Við sendum ekki undir 1300 krónum..."
240203
Besta svar keppninnar var þegar Tómas Pajdak steig í pontu eftir að fg-ingar höfðu hallmælt mömmu hans svo um munar og sagði: "Mamma mín er pólsk." Umræðuefnið var Íslendingurinn.
070303
Hvar varst þú 28. maí 1994?
Varst þú kannski að halda upp a ad R- listinn vann borgina, hittir drukkna stúlku sem lenti í því að detta og fá skurð á augabrún, fylgdir henni heim, svafst hjá henni en fórst ádur en hán vaknaði? Úr þessu varð barn sem langar að vita hver pabbi þess er. Ef þú lest þetta og vilt gefa þig fram, sendu þá tölvupóst á Dimma_00@yahoo.com
100303
Við vorum að fá uppkast af latínublaðinu í hendurnar. Fyndnasta setningin í blaðinu hljóðar svo: Opus: Quod fieri non potest
230303
Þau eru haldin heima hjá Snæbirni og Sverri. Sverrir var húsmóðurlegur og bakaði pizzu og gef þeimsem höfðu áhuga á. Æ, hann er svo mikil dúlla. Oddur var með falið klám í beinni útsendingu. Við sáum það á upptökunni. Oddur fær því hér með viðurnefnið meiri kallinn . Atli varð aggressívari með kvöldinu. Hilmir og Frank tóku STÓRAN HRING og það var mjög skemmtilegt. Sömuleiðis sannfærði Hilmir landsfræga tónlistarmenn á að búa til þemalag fyrir Blúndukappann. Una var sérstaklega eggjandi þetta kvöld. Jón Eðvald var eins og snyrtilegur mormóni. Helgi Hrafn kvaðst myndu vilja taka í ********u. Þroskahefti Japaninn sem selur stundum bíla kom með Hilmi. Ji, hann er svo skemmtilegur. Skúli skildi ekki alveg hvað var í gangi. Þura var með krot á kinnunum.
290303
Frank ætlar í íslensku fyrir erlenda stúdenta í Háskólanum. Hann ætlar að þykjast vera vatíkanskur.
080403
Á laugardaginn kom Ellen frænka í heimsókn með kvikmyndina "Klofmaðurinn snýr aftur" sem við gerðum fyrir fimm árum. Þetta var alveg stórskemmtilegt, Ellen lék bæjarstjórann, Klofmanninn og Ólaf Smjör. Ég lék Platmanninn, sem var kona sem tældi bæjarstjórann og fréttakonu. Ellen lék margar senur þar sem hún var ein að leika bæjarstjórann og Klofmanninn og þurfti þá að skipta um búning með ógnarhraða. Síðan drap Ellen mig með því að henda í mig dömubindum og klósettrúllum, en það eru vopn Klofmannsins.
061003
“Leikhópurinn er afar vel skipulagður þó fjölmennur sé og margir glansa. Hilmir Jensson og Sigurður Arent Jónsson eru hreint afbragð sem leikararnir tveir og Sunna María Schram dýrðleg í hlutverki stórstjörnunnar. Aðrir sem lifa í minninu eru Margrét Erla Mack sem leiklistarkennari frá helvíti og ofdekruð prinsessa frá sömu slóðum. Þá var Ásgeir Pétur Þorvaldsson öflugur sem yfirþjónn með kvalalosta.”
Morgunblaðið, 21. mars, bls. 34.
210304
Systir mín fær afmælisveislu að hætti víkinga, þ.e. margra daga hátíðahöld. Á morgun verður ömmum og öfum boðið upp á danskt skinkusteikdæmi (veit ekki hvað það heitir, borða ekki). Á fimmtudaginn liggur Perlan á meltunni og slakar á því á föstudaginn verður fajitas-partý fyrir stelpurnar úr bekknum. Á laugardaginn verður svo rjómatertuboð fyrir vinafólk. Díses kræst segi ég nú bara. Ég spurði mömmu af hverju skipulagið væri svona og fékk svarið: “Til að minnka álagið á mér.” Jæja.
230304
Bæði skemmtilegt og fyndið
það sem þarf: Ástfangna manneskju og nærbuxur (þurfa ekki að vera hreinar)
Stillið ykkur upp með stút á munninum og haldið nærbuxunum fyrir aftan bak. Ef allt er eins og það á að vera kemur ástfangna manneskjan hlaupandi. Þegar hún setur stút á munninn lokast augun líklega og þá veiðið þið hana í nærurnar áður en hún nær að kyssa ykkur. Þá er hún með nærur á höfðinu.
060404
SÆKÓ.
Í gær fór ég á msn. Þar rakst ég á Laurent, franskan strákmann sem var með mér í Noregi á vegum CISV. Mig langaði í sakleysi mínu að æfa frönskuna svona rétt fyrir stúdentspróf. En Jesús minn…
Þetta byrjaði allt mjög sakleysislega. Hann spurði hvort ég kæmi einhvern tímann til Frakklands. Ekkert óeðlileg spurning. Ég sagði að ég væri í skóla og ætti ekki peninga strax.. Þá bauðst hann til að bjóða mér. Ég alveg: “Non… mais merci…” en sá auðvitað að þetta stefndi í eitthvað skrýtið.
Þá vildi hann ólmur koma til Íslands. Svar mitt við því var “Non.. j’a un petit ami!”
Og þá byrjaði dramatíkin.
“Nonnnnnnnn” svaraði Laurent. “Moi qui croiait…” og á eftir því kom “Je t’aime…”
Auk þess endurtók hann svona 8000 sinnum “Alors, rien n’est possible entre nous?” (Er þá ekkert mögulegt á milli okkar?)
Ég var orðlaus um stund en svaraði svo: “Il n’est pas possible d’aime une personne que on ne connais pas!” (það er ekki hægt að elska fólk sem maður þekkir ekki). Og síðan: “Il était QUATTRE ANS!!!!” (Það eru FJÖGUR ÁR síðan!!)
Síðan hætti ég að skrifa. Hann útlisti tilfinningar sínar rækilega. Síðan blokkaði ég hann.
150404
Í gær fór ég í ísbúðina í Kringlunni og keypti okkur Vigdísi ís. Ég pantaði mér slömm með ýmsu í, þar á meðal kiwi (berist fram kíúí). Já já. Stúlkan sem afgreiddi mig var ekki upp á marga fiska, kannski svona 2. Hún setti melónur og jarðaber í slömmið, en sneri sér svo að samstarfskonu sinni: “Arna, þetta græna, er það ekki kíví?”
060504
Ég ber krans á 17. júní. Fékk símtalið í dag. Ji hvað ég er spennt!!!
040604
David Er búin að vera á David Attenbborough-fylleríi frá heimkomunni. ég keypti mér Life of mammals seríuna. Rétt hjá manninum sem skrifaði: One of the greatest living mammals of them all - David Attenborough. Uppáhaldið mitt í seríunni eru sœotrarnir sem blása lofti í feldinn sinn til að einangra sig og berja skeljum við stein á bumbunni sinni til að brjóta skeljarnar. Eg gœti étið otrana. Og David.
Fœrslan er skrifuð á vél sem ég veit ekki hvar íslenskt thorn og ø eru. Gekk ágœtlega.
London very nice. You like Beatles? I love Beatles. Hin fínasta borg. Underground er svo sniðugt og ódýrt. Ég fór á elsta Hard Rockið í heimi. Þar var bleikur jakki í kassa. Á kassanum stóð að John Lennon hefði skartað honum á Sgt. Pepper.... Bíddu bíddu.. halló halló... hann var í grænum fötum!!!
Ég borðaði góðan góðan mat á Wagamama og Belgókræklingamadnessstaðnum. Og í Harrodds mættum við Mohammed Al Fayed. Ég þekkti hann ekki, en Skúli var stjarfur í tvo daga á eftir. Við lentum í hitabylgju og vorum í herbergi án loftræstingar og kælis. Ég brá á það ráð að sofa nakin með blautt handklæði á mér. Við fengum þrumuveður og hálf underground lokaðist. Maður dó því hann fékk eldingu í sig. HAHAHA.
Á lestarstöðinni sagði maður í kallkerfið "Please help us keep the station clean by taking the garbage home with you."
Ég keypti mér Bítlanestisbox með Revolver coverinu á. Og fullt af skóm. Og Nakhilakol!!! Og bol á mömmu til að fara í á Vínbarinn.
Iceland Express er ömurlega félagið og eyðilagði ferðina aðeins.
P.S. Ég er fegin að vera ekki fædd í múslimafjölskyldu það sem konurnar þurfa að vera í svortum kuflum og sést bara í augun. Ef ég væri með mömmu í búð og myndi týna henni þá gæti ég ekki fundið hana.