Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Sag es mit Bären Ég var að tala við Atla á msn. Hann langar í svona í gjöf einhverntíma. Djöfull eru þetta skrýtnir bangsar!!!
(P.S. Ég veit um hvað ég tala, ég átti nú 84 tuskudýr þegar ég var upp á mitt besta.)
Það er gaman að: - Pakka ofan í töskur áður en haldið er í ferðalag.
- Fara í froðubað.
- Kúra í vonda veðrinu.
- Skrúbba líkamann með boddískrúbb með kökudeigslykt og bera á sig hnetuboddíbútter
- Bíta fólk í rassinn, það verður svo hvumsa.
Ég hvet fólk til að sniðganga sýningar á borð við Hárið og Fame, en hvet fólk til að næra andann á Krádplíser og Dýrðlegu fjöldasjálfsmorði (takk Una, ég hefði verið drepin). Tvö leikverk sem sanna það að ungt leiklistarfólk hugsar ekki bara um að græða á börnum með fílapensla.
Sígósvess Reykingafólk er misjafnt. Ég hef oft á tíðum unnið með reykingafólki sem kann sig ekki, þ.e. vondu reykingafólki. Rykingafólk sem segir "Ok, værir þú ekki til í að gera þetta? Ég verð að fara í sígópásu." einu sinni á klukkutíma. Á tólf tíma vakt tók það semsagt 12x5 mínótna pásu. Klukkutími. Þennan klukkutíma fengu þau borgaðan. Svo varð allt vitlaust þegar ég tilkynnti einn daginn "Ég verð að fara í íspásu" og settist niður með ís í hönd.
Ég fékk jafnmarga tíma útborgaða og þetta fólk. Samt voru alveg svona 20 klukkutímar á mánuði sem þau unnu ekki.
Hamingjan Í dag fekk ég vínberjakoolaid.
Það eru komnar 2 nýjar fantagerðir. Tropical fruit og með berjabragði.
OG SÍÐAN ER BYRJAÐ AÐ SELJA CHERRY-COKE Í HAGKAUP.
1. Ég fór að veiða í gær.
2. Ég brann og er eins og lax er innan í sér, framan í mér.
3. Ég söng Gaudann í jarðarför. Mjög hreinskilið að syngja "moldin eignast okkur" fyrir gesti jarðarfararinnar. (pæliði í því ef ég skrollaði á r-unum)
4. Ég hélt að það væru takmörk fyrir því hversu neikvætt fólk gæti orðið. En nei. Það er hægt að vera svo neikvæður að maður snýst næstum við þannig að beinin eru utan á og húðin innan í.... (ekki enda á í, þá lemur Una* mig) ... manni.
5. Ég hélt líka að það væru takmörk fyrir því hversu latt fólk getur verið. Ég hef um ævina kynnst fólki sem er svo latt að ég furða mig á að það skuli nenna að anda og blikka augunum.
6. Mig langar að læra magadans. Þá breytist ég í konu.
7. Fólki sem er að læra íslensku finnst orðið "hugmynd" dásamlega skemmtilega myndað.
*Una er ekki neikvæð. Setningargerðin kallaði Unu fram í hugskot mitt.
Litlu drengirnir mínir Í júlí fara fram CISV-búðir uppi á Kjalarnesi. Í miðjum búðum fara krakkarnir saman, 2 og 2, til fjölskyldna í landinu yfir eina helgi, til að kynnast menningunni og fjölskyldulífinu í landinu sem þau heimsækja.
Ég er með 2 stráka yfir þessa helgi, Leo frá Austurríki og Salah frá Jórdaníu. Salah er múslimi og má ekki borða svínakjöt. Ég spurði hann hvort mamma hans gengi með slæðu. Hann sagði að svo væri ekki, og að það gengju sárafáar múslimakonur með svoleiðis. Það vissi ég ekki. Leo kemur frá Týrol. Mamma jóðlaði fyrir hann.
Þeir eru alveg rosalega kurteisir. Þeir eru alltaf að segja thank you. Meira að segja þegar maður stöðvar bílinn segja þeir thank you. Svo vilja þeir vaska up og svona.
Vá hvað er sjúkt dýrt í Húsdýragarðinn!!!!! 450 FYRIR BARNIÐ!!! 550 FYRIR FULLORÐINN!!!!
OG SVO ÞARF AÐ BORGA AUKALEGA Í ÖLL TÆKI!!!!!!!!
Kántrýbær Ég leit við í Kántrýbæ um helgina. Ég held að ritkunnáttu kúrekans sé ábótavant. Yfir barnum stendur:
Kántrý Bjórinn er Okkar Stolt Hefurðu Prufað Hann.
Við hreindýrshorn er afkáralegt clipart-stoppmerki og þar stendur:
Ekki snerta mig, ég er aðeins til sínis.
Og svo eru gamlar Marlborroaugýsingar á veggjunum, en búið að líma Kántrýbæjarlógó yfir Marlboromerkið.
Skúli: Er allt til á matseðli?
Afgr.stúlka: Já, nema pítsur, þær verða til síðdegis. (ath, klukkan var 4)
Margrét: Þá ætlum við að fá laukhringi.
Afgr.stúlka: Nei, þeir eru búnir.
Ég hvet alla sem leið eiga um Skagaströnd að líta við. Barinn er opin til klukkan 3.
Staður og stund Hvað sá ég? 13-14 ára gamlan strák.
Hvar? Í gluggakistu í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Hvenær? Í kvöld á uppskeruhátíð sumarhópa Hins Hússins.
Hvað var hann að gera? Fróa sér.
Feltmarskal Kammerherr von Steenthorsen says: (7:56:01 PM)
fyrst kemur svona dapurleg fiðlutónlist, síðan myrkvast stúdíóið og bangsinn lítur hægt upp eftir að hafa horft í gaupnir sér
Mokki litli HVAR ER TILFINNINGABANGHLINN?!?!?!?!? says: (7:56:16 PM)
Það elu ekki allil einl heppnil og þið klakkal. Ekki ég til dæmil. Móðil mín dlaplt í hlyðjuvelki í Tvíbulatulnunum og mél val lænt af geimvelum
Í dag var ég styttudýr. Einar átti okkur Salóme. Ég sá vinkonu mömmu sitja á bekk ásamt manniu sínum. "Hey.... stríðum þeim...."
Einar: "Þessi dýr geta giskað hvað þið heitið!"
Hörður: "Nújá.... og hvað heitum við?"
Einar: "Hvað heitir hann?"
Salóme: "Hörður!"
Einar: "Og hvað heitir hún?"
Margrét: "Guðrún!"
Hjónin urðu agndofa. Við skoppuðum í burtu.
Svo sá ég Jónsa í Sigurrós. Hann var mikið að fylgjast með okkur, svo ég klifraði í fangið á honum. Hann klappaði mér á kollinn.