Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






28.6.04 :::

AAAAAHHHHH FÍBBL!!!
Á vegum Hins hússins starfar sumarhópurinn Vinir Kela sem eru frábærir djasslistamenn. Í dag spiluðu þeir á Laugaveginum og það var rosalega fínt hjá þeim og vegfarendur nutu tónlistarinnar. SVo kom löggi. "Eruði með leyfi????"*
Drengirnir reyndu að útskýra stöðuna en lögreglið skellti skollaeyrum við (?) og bað um leyfi. Steinunn Knúts Götuleikhússtjóri reyndi að hjálpa til en lögreglan varð reið og rak Vini Kela í burtu.
Sko:
1. Þeir voru ekki með magnara svo þetta var ok.
2. Þeir voru ekki að betla svo þetta var ok.
3. Reykjavíkurborg skaffar drengjunum laun svo þetta er ok.
4. Öllum vegfarendum fannst þetta gaman. Ef þeim fannst það ekki, gátu þeir labbað í burtu, svo þetta var ok.

Svo ætlaði lögreglan líka að atast í okkur götuleikhúsfólki, en Steinunn dílaði við lögregluna einhvern veginn.

*Kannski var hann að leita að Leifi stórglæpamanni, en ég held ekki.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:23







21.6.04 :::

Bestu myndir sem ég hef séð: (í stafrófsröð)
12 Monkees
Adaptation
American Graffiti
Being John Malkovich
Big Trouble in Little China (var átta ára)
Clueless
The Court jester
Delicatessen
Eternal Sunshine of the Spotless Mind
Léon
Les Fabuleux destin d'Amélie Poulain
Lion King
Lord of the rings myndirnar, sérstaklega sú þriðja
Fight Club
Finding Nemo
Hable Con Ella
Harvey
In America
Kill Billarnir 2
Natural Born killers
One Flew over the Cookoos Nest
Primal fear
Se7en
Shrek
The Usual Suspects
La Vita è bella

Man ekki fleiri, bæti fleirum við þegar fram líða stundir.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:51







Allur líkaminn fagnar
Ég fagna því að sælkeraverslun verður opnuð hér á landi. Þetta verður verslun með alls kyns krydd og exótískan mat. Mér hefur lengi þótt vöntun á slíkri búð hér á landi. Ég vona að rekstraraðilar flytji eitthvað inn frá Oil and Vinegar. Tekin verða fyrir lönd og matarmenning svo að það verður örugglega æðislegt að skoða þarna og smakka og kaupa og elda og líða vel. Ég vona að þessi búð eigi eftir að ganga vel. Kannski að maður reyni að fá vinnu með skólanum þarna???


Slegið inn af Mokki litli klukkan 20:28







20.6.04 :::

Djammið í Reykjavík
******: "Heyrðu, rosalega ertu með flottan rass!"
Ég: "Takk... Heitirðu ekki ******?"
******: (veður flóttalegur) "Ha? Jú...."
Ég: "Þú ert frændi minn. Pabbi minn skírði barnið þitt."
******: "Uuuu... já... haha.... sjáumst..."
Og síðan sneri hans sér við og talaði við einhvern Mínusgaur.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:37







18.6.04 :::

17. júní í ár var Margrétardagurinn. Ég byrjaði á því að bera krans. Það var dálítið eins og að giftast Atla. Allir að horfa á mann og svona "Aaaah, framtíðin og unga fólkið..."
Dagur sæti í borgarstjórninni sagði að við Atli værum glæsilegir fulltrúar ungu kynslóðarinnar. Mér finnst hann samt með skrýtið hár. Samt dálítil svona Darcy-pæling...
Þaðan labbaði ég í skrúðgöngu við hlið borgarstjórans og einhvers manns sem Atla fannst ótrúlega merkilegur.
Við Atli fylgdumst með Austurvallasveinunum og vorum ósammála fatavali stúlkunnar, sem minnti óneitanlega á stóra stóra karamellu. Og þau komu kransinu fyrir Á SKÁ. HEELO Ó-PRÓ!!!!
Þaðan fór ég í vinnuna og var gæsileg um bæinn, meðal annars á hestvagni að senda fólki fingurkossa. Stærsta giggið sem ég hef tekið þátt í. 60.000 manna áhorfendaskari. Síðan birtist ég í fréttunum með lögregluhúfu. Svo var vinnupartý hjá mér. Það var gaman. Og klukkan 11 var Ungfrúin góða og húsið sýnd í Ríkissjónvarpinu.
Það besta við daginn var samt að fá poppkorn og sofna í rúmi með fjórar sængur.

Viggó frændi: Ég sá einu sinni hund í fötum. Garmur má ekki vera í fötum.
Margrét: Af því hann er svo stór og loðinn og myndi kafna úr hita???
Viggó frændi: Nei, hann myndi bara borða þau.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:48







16.6.04 :::

Við Atli verðum í kirkjugarðinum. Ekki svo slæmt. Kolbrún latínukennari ætlart víst að kíkja á giggið.

Svo var ég að kjánast í eidolonmyndbandi áðan. KB var hress, mundi þó ekki eftir hvað idol væri á forngrísku, en mundi nákvæmlega útskýringu orðsins. Hann sagðist hafa haft mikið gaman að drengnum sem sagði honum frá þessu. Kom til mín áðan og bað að heilsa "gríska guttanum."
Svo Atli minn: Kalli Bjarni sendir koss.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 23:51







15.6.04 :::

Elsku Una vinkona mín er örvhent. Það þýðir að að í staðinn fyrir hendur er hún með örvar (gravida sagittis... nei djók). Þetta lýsir sér meðal annars í því að hún gerir öfuga broskalla í emilum og sms-skeytum. Í staðinn fyrir að gera :) gerir hún (:
Það er gaman og fyndið. Alls engin fötlun, bara gaman. Og fyndið.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:23







14.6.04 :::

Semantics
SEMANTICS: You are semantics. Be true to your
field, but remember: debating the meaning of
the word
"Supercalifragilisticexpealidocious"
never got Mary Poppins anywhere.


What's Your Linguistic Sub-Discipline?
brought to you by Quizilla

Takk Atli, you made my day.
Getur annars einhver svarað því hvað Noam Chomsky er menntaður??? Hann er prófessor í nákvæmlega hverju? Mig minnir að hann hafi nefnilega verið æði menntaður, maðurinn, og allsvakalega þverfaglegur.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:23







13.6.04 :::

Mávar eru rottur með vængi. Fólk í Kringlunni er rottur með... þumalputta.

Ég tapaði kúlinu í dag. Akkúrat þennan dag ákvað hópur tjah... dalvíkinga (avec une d petite) að skella sér í Kringluna. Ef allt hefur gengið samkvæmt áætlun ættu allir sem lögðu leið sína í Kringluna í dag að vera komnir með klammara.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 21:57







11.6.04 :::

Laugavegurinn
Verkefni dagsnins var að fara niður laugaveginn með ástarljóðum og kossum. Það var gaman. Ég ákvað að flytja ástarljóðin mín til Einars sem var ógeðslegur Rússi. Ég notaði heilabankann og blandaði saman línum úr Nallanum. Það var fyndið. Að strjúka ljósastaurum og segja "Mwi nash, mwi novi mwi pastroím...da asnavanja a satjem..."
Svo vorum við með "ástardans" hér og þar um bæinn og Breti sagði: "It's filthy, that's what it is. Wouldn't want to be their parents." Svona er þetta.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 16:51







6.6.04 :::

Yfirvinna
Ég var að trúða í dag. Það var stórkostlegt. Ég var trúðakallinn og Lára var trúðakonan. Við fórum um svæðið þar sem fjölskylduhátíð Toyota var haldin og spurðum fólk hvort við mættum fá lánuð börnin þeirra, því við gleymdum okkar heima. Ég gerði mér ekki grein fyrir hvort var hræddara, foreldrið eða barnið. Svo tók ég brjálaða rokkútgáfu af laginu í grænni lautu sem var mjög sniðugt hjá mér. Og í 1,2,3,4,5 DIMMALIMM gekk ég alltaf í vitlausa átt. Mér finnst ég fyndin.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:32







4.6.04 :::

Ég ber krans á 17. júní. Fékk símtalið í dag. Ji hvað ég er spennt!!!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 18:02







2.6.04 :::

9-5 vinna
Ég vaknaði í morgun og horfði á Skúla borða hafragraut. Ég mætti í vinnuna klukkan 9 og stimplaði mig inn. Ég byrjaði vinnudaginn á því að skokka. Síðan lærði ég að spúa eldi. Ég fór í mat frá 12 til 1. Eftir mat útfærði ég með vinnufélugum eldspúiæfingar, t.d. að fara í handahlaup með eldinn og spúa.
Svo fór ég í kaffi. Eftir kaffið gerði ég ástarengladans. Ég stimplaði mig út klukkan 5 og gekk heim.

P.S. Fólkið sem kenndi mér að spúa eldi kunni ekki að beygja sögnina að spúa og notaði oft sagnmyndir sagnarinnar að spýja


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:14