Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Besti brandari í heimi Verið var að rífa gamalt hús í bænum. Innan í einum vegg fannst beinagrind með medalíu um hálsinn. Á henni stóð: “Íslandsmeistarinn í feluleik 1969”
(Hilmir sagði mér þennan brandara fyrir svona tveimur árum síðan)
Draumur í dóþ Mig langar til Cannes á kvikmyndahátíðina. Almodovar er víst að frumsýna nýju myndina sína þar. Mamma mín fór einu sinni á þessa hátíð og þóttist vera fræg. Það var víst voða skemmtilegt.
Í síðasta sinn hefur hlýr ljósgeisli listagyðjunnar leikið um líkama minn. Í síðasta sinn hef ég miðlað óupplifðum atburðum út í eiífðina og tómið. Ég lék mér í fangi Skraparots um árabil, en hef nú kvatt hann sjálfan hinsta kossi, sem verður ekki endurtekinn. Ég leik ekki á Herranótt framar.
Frábært Við Sigurjón ákváðum að stympast aðeins fyrir latínuprófið í dag. Það var gaman og upppeppandi í alla staði, þar til Atli Freyr vildi vera með. Þá færðist allmikill hasar í leikinn og heift, sem urðu til þess að ég flaug utan í vegg og meiddi mig. Þá varð ég æf og dýfði mér á nýjaleik í stympingarnar en Atli felldi mig með vinstri ipponi og ég féll í gólfið. Prófið hófst, og ég var niðurbrotin framan af, þar til að ég sá að stíllinn innihélt prðið blindur. Þá hugsaði ég með mér: "Jess, CAECUS!!! Vá, mér er að ganga svo vel..."
Þá rétti einhver upp hönd og spurði hvað blindur væri á latínu... og Kolbrún gaf okkur öllum orðið. Demit. Common, þetta var í latínublaðinu.
Stymingarnar virkuðu ekki vel á Atla, sem þurfti að spyrja um hvernig ástæða væri á latínu.
Aeneas caecus erat amore...
Ástkær systir mín verður 11 ára á morgun. Af því tilefni eltir móðir mín hana um allt og reynir að kreista fílapenslana hennar. Eltingaleikurinn er æsispennandi og ég skil sumpart þá sem horfa á íþróttir af miklum áhuga þegar kappleikurinn á sér stað. Systir mín heldur eftir 5 penslum. Staðan er því fimm núll fyrir Vigdísi.
En ef ég reyni að taka ?átt í leiknum sem íþróttafréttamaður eða hindrun á veginum (leo in via) eða jafnvel lukkudýr hætta þær leiknum. Mamma mín því hún hlær svo mikið og systir mín til að reyna að sannfæra mig um að ég sé geðveik, rugluð eða með agavandamál.
En að því sem ég ætlaði að tala um upphaflega... Systir mín fær afmælisveislu að hætti víkinga, þ.e. margra daga hátíðahöld. Á morgun verður ömmum og öfum boðið upp á danskt skinkusteikdæmi (veit ekki hvað það heitir, borða ekki). Á fimmtudaginn liggur Perlan á meltunni og slakar á því á föstudaginn verður fajitas-partý fyrir stelpurnar úr bekknum. Á laugardaginn verður svo rjómatertuboð fyrir vinafólk. Díses kræst segi ég nú bara. Ég spurði mömmu af hverju skipulagið væri svona og fékk svarið: “Til að minnka álagið á mér.” Jæja.
“Leikhópurinn er afar vel skipulagður þó fjölmennur sé og margir glansa. Hilmir Jensson og Sigurður Arent Jónsson eru hreint afbragð sem leikararnir tveir og Sunna María Schram dýrðleg í hlutverki stórstjörnunnar. Aðrir sem lifa í minninu eru Margrét Erla Mack sem leiklistarkennari frá helvíti og ofdekruð prinsessa frá sömu slóðum. Þá var Ásgeir Pétur Þorvaldsson öflugur sem yfirþjónn með kvalalosta.”
Morgunblaðið, 21. mars, bls. 34.
Djöfullinn sjálfur: "Now then, forsaken soul - open thine ears and slake thy thirst on the music that can force kings to their knees and ocean's to boil! Behold the song that'll take you to the top of the charts:
There's a guy named Fred and he's got a pair of slacks
Ooooh, Fred's got slacks.
Really quite sharp, but they're tight in the waste
Ooooh, Fred's got slacks on the boulevard. Hold on a second, I think it's out of tune."
Garth Brooks: "Man, I don't want to myth you...but that sucked."
Djöfullin sjálfur: "I SAID THE GUITAR...IS OUT OF TUNE! IT WASN'T MY FAULT! 'FRED'S SLACKS' IS A WINNER!"
PlebbaMargrét Hvað ertu með í vösunum?
Ég er nú bara ennþá í náttfötunum og er því vasalaus
Er mjólkurglasið hálftómt eða hálffullt?
Ég drekk ekki mjólk svo mér er nokk sama.
Ef þú værir ekki nemi hvað vildirðu þá helst vera?
Leikari eða leikstjóri eða að vinna á kvikmyndasetti. Eða kannski eitthvað dýr. Til dæmis ljón.
Hefurðu tárast í bíói?
Jahá. Síðast á Love actually... nei American Splendor. Ég tárast yfir Velvakanda svo ég tárast mjög oft.
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem þú fórst á?
Minningartónleikarnir um Karl Sighvatsson í Þjóðleikhúsinu. Var of lítil til að kunna að meta það.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér?
Ryan Phillippé.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Ég er óþolinmóð og sjálfhverf frekjubolla.
Finndu fimm orð sem lýsa þér vel.
MR, Herranótt, gaman, hlý og knúsa.
Wham! eða Duran Duran?
Duran Duran. Wham! eru með of plebbaleg lög.
Bítlarnir eða Rolling Stones?
Bítlarnir því þeir fá mig til að gráta af gleði.
Hvaða lag kveikir blossan?
Æ, ég veit það ekki. Bara Hey með Pixies.
Hver er furðulegasti matur sem þú hefur smakkað?
Ég er svo skeptísk á mat (af því að ?ar var víst eitrað fyrir mér í fyrra lífi) að ég læt ekkert upp í mig sem mér finnst furðulegt. Ég segi bara Jelly Bellies. Þetta er ótrúlegt að eitt nammi skuli hafa svona mörg brögð maður.
Trúir þú á líf eftir dauðan?
Ég veit það ekki og tel mig ekki hæfa til þess að vera með yfirlýsingar um að trúa einhverju um hvað verður um sálina á mér. En ég vona að það sé eitthvað skemmtilegt eftir dauðan.
Margrét: "Það er búið að breyta herberginu mínu og búið að smíða nýjan skáp og..."
Jón: "Og er lokrekkjan komin upp?"
Margrét: "HA?"
Jón: "Bara.. ég sé þig alltaf fyrir mér í lokrekkju."
MIKILVÆGT Frumsýning Herranætur flyst fram á við um 2 daga = frumsýning hinn 12. mars
Í dag eru tvö ár síðan ég og Skúli byrjuðum saman (a.m.k. hljóp ég um allt daginn eftir og sagði að ég hefði eignast kærasta)
Hverjum lofaði ég heimfylgd?