Á ţetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um ţađ sem henni finnst skemmtilegt, leiđinlegt, sniđugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verđur skilyrđislaust eytt.
Krísa Á ég ađ taka ţátt í söngkeppninni ţrátt fyrir ađ Frank sé puttabrotinn og geti ekki spilađ undir? Á ég ađ treysta utanađkomandi fyrir undirspileríi?
Og í hverju á ég ţá ađ vera og hvađ á ég ađ syngja?
Fjúsjon Ég hef aldrei skiliđ fjúsjon matargerđ. Ţađ er svona matargerđ sem gengur út á ađ borđa mat međ einhverju sem telst eftirréttur... t.d. "hreindýralund međ súkkulađisósu" eđa "önd međ karamellusósu." Hver einustu jól gerir móđir mín svokallađ Waldorf salat. Ţađ samanstendur af rjóma, sýrđum rjóma, valhnetum, eplum (ég gerđi innsláttarvillu ţarna og skrifađi óvart eđlum), selleríi og einhverju fleiru. Ţetta er of mikiđ fjúsjon fyrir mig. Fyrir utan ţađ ađ borđa ekki rjóma eđa sýrđan rjóma ţá borđa ég ekki epli međ matnum. Ţađ vekur hjá mér klígju ţegar ég horfi á familíuna taka ţrjár kúffullar af ţessu međ dýrindis kalkúni eđa öđrum mat sem henni finnst "passa viđ."
Af sama meiđi er klígjan sem ég upplifi ţegar fólk borđar sultu međ mat. Eđa setur rúsínur í salatiđ. Fyrir mér er ţetta eins og ađ borđa ís međ bernaisesósu. Ekki nógu ógeđslegt? Bernaisesósu OG lifrarpylsu!!!!
Um áramótinn dró ég mig, Skúla, Bjarka og Hjördísi Maríu út úr siđmenningunni og viđ fórum í Titt, sem er bústađur sem ammi og afa eiga undir Eyjafjöllum. Ţar sprengdum viđ lárétta flugelda og tertur, borđuđum, spiluđum, sváfum og sturtuđum niđur međ ţví ađ hella hratt úr fötu ofan í klósettiđ.
Gleđilegt ár og jól og prófalok.
P.S. Una ćtlar víst ađ gefa út kvćđabálk eftir mig á internetinu og bíđur nú eftir fjárvetingu úr sjóđnum "Ungt fólk og kveđskapur" til ađ ţetta geti orđiđ ađ veruleika.