Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Mikið bíó Síðastliðið föstudagskvöld horfði ég á Með allt á hreinu. Þá varð mér ljóst að Sveppi er Eggert Þorleifsson okkar kynslóðar.
Síðan sá ég Finding Nemo og hún er gjörsamlega stórkostleg. Og í gær horfði ég á The Shining í fyrsta sinn á ævinni. Hún væri ekki svona skelfileg ef tónlistin væri ekki til staðar. Jack Nicholson vék ekki úr huga mér í gær og því sofnaði ég ekki fyrr en svona upp úr tvö... Sem var í lagi því ég átti frí í fyrsta tíma. Ég á enn eftir að sjá The Exorcist.
Ég gleymdi að fara á Bibo... sem gerir mig gífurlega ókúl á því.
Þegar fólk talar um Davíð Oddsson sem bláu höndina heyri ég alltaf eins og fólk sé að tala um bláu öndina, enda er það mikið skemmtilegra ljós til að sjá hann í. (Þetta var nú erfitt að orða...)