Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






30.9.03 :::

Opinbert bréf
Komdu sæll hr. menntamálaráðherra.
Ég er svo ósammála þér að mig langar mest að gráta en mig langar samt næstum því jafn mikið að hrista þig. Þú ert einn af þeim mönnum sem vill steypa fólk í sama horf og þess vegna finnst mér þú bæði vondur og grimmur. Ég eyddi 4 árum í grunnskóla að læra ekki neitt. Strokað var úr bókunum mínum ef ég fór fram úr bekknum mínum, sem taldi misjafnan manninn. Ég þurfti t.d. að reikna TVISVAR SINNUM bækurnar Við stefnum á margföldun og Við stefnum á deilingu. Ég var í Ísaksskóla fyrstu þrjú ár skólagöngunnar þar sem gerðar voru gerað miklar en sanngjarnar kröfur til nemenda og það er bara hollt. Síðan fór ég í Austurbæjarskóla, týpískan grunnskóla, steyptan í sama horf og aðra grunnskóla. Það var hræðilegt. Í 4 skólaár lærði ég EKKERT nýtt. Það bættist aðeins við í áttunda bekk. Svo leiddist mér í tvö ár og loksins komst ég í Menntaskólann og þá fyrst varð gaman. Ég gat sérhæft mig í því sem mér þótti skemmtilegt. Það er stórkostlegt.
En í latínutíma í morgun komst ég að því að þú ætlir að stytta menntaskólann um eitt ár. Það er svo ódýrt. Þú vilt ekki stytta grunnskólann vegna þess að þá fara hvað 3% menntaskólafólks fyrr "að heiman" á heimavist... Hvernig væru að nýta bara þessa heimavist sem þú hefur þegar byggt í heimabæ þínum í þessi fjögur ár?
Ég vil ekki að menntaskóli verði aðeins ósérhæft framhald af grunnskóla, því að þá liði mér illa og Kolbrún latínukennari myndi líklega missa vinnuna.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:11







29.9.03 :::

Lítið barn sem hélt að það væri í lagi að borða fugl fyrst það var hvort eð er í kattarbúning. Stórskemmtilegt.

Svo er hér annar sem er nú svolítið sætur og hann er að borða mús og finnst það mjög skemmtilegt.

Ég myndi persónulega strjúka að heiman ef ég kæmist að því að foreldrar mínir hefðu gert mér þetta.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:27







26.9.03 :::

CURIOSITY KILLED THE CAT...
Áðan var ég í eyðu og ég ákvað að líta á fornfræðikennarann, enda tala stelpurnar á forn I um að hann sé alveg guðdómlega fallegur. Ég leit á manninn og nei, ég er ekki sammála og efast ég nú um fegurðarmat bekkjarsystkinanna. Meira að segja Frank var á því að hann væri voðalega sætur. Frank finnst líka gaman að fara í fatapókar með konum sem múra rassinn. Reyndar komst ég að því að hann var víst einhvern tíma með mikið hár og var þá voða sætur en klippti sig svo, og þá var bara helmingurinn á því að hann væri enn þá sætur.
Mér finnst mjög fallegt að vera með mikið hár, enda vel ég mér vini eftir því. Bragi er reyndar búinn að klippa sig frá því ég kynntist honum , en það var af því að það bjó víst eitthvað í hárinu á honum. ATH, ég er ekki að tala um skaparhár.

Stóllinn fyrir dyrnar
Skúli vildi í gær að ég samþykkti að hann snoðaði sig. Bara glætan. Ekki séns. Frekar vildi ég að hann fengi sér húðflúr. Flúðhúr... Sem mér finnst ekki sniðugt svona án þess að fólk segi: "Hvort viltu að ég snoði mig eða fái mér tattú?"

Una, gáfaða vinkona mín
Ég sit við hliðina á henni í næstum öllum tímum. í gær velti hún upp athyglisverðri spurningu:
"Hvort myndirðu kjósa mann til forseta sem héti Ísar Máni eða Jóhann?"
Síðan sá hún framtíðarsýn þar sem utanríkisráherrann Apríl Sól er fulltrúi okkar á alþjóðavettvangi.
Una er afskaplega falleg og fyndin stúlka með mikið og fallegt hár og þakka ég henni fyrir að koma inn í líf mitt og varpa nýju ljósi á hlutina í kringum mig.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:18







24.9.03 :::

Ameisíng Kreis
Það horfði ég á í gær. Þar var par. "They have been dating for 12 years and are virgins"
"Yeah, you know, we want to wait until marrige, because not doing that would be against our believes."
Jæja, gott hjá ykkur. En í alvöru, það þurfti ekki að taka þetta fram!!! Þarna var líka mjög feitt amerískt fólk, sem datt út í fyrsta. Það var ekki tekið fram: "They have not had sex in six years because they simply can not...."
En þrátt fyrir þetta voru bæði pörin afskaplega ástfangin, sem er ekkert nema gott.

Hulda mín...
Ef ég er svona heimsk af hverju er þér þá ekki sama um skoðanir mínar?
Ættu þær ekki að vera ómerkileg froða fyrir þér? Og af hverju er Bjarki sjálfur ekkert búinn að segja? Mér sýnist hann sáttur við að fá smá pening.
Og P.S. Fokk- uppnefnið er old news. Eiginlega 12 ára gamalt, að minnsta kosti.

ATH. Banki:0526 Höfuðbók:26 Reikningsnúmer:850059
Sem skýringu setja: Bjarkinn heim


Gamla klíkan...
Ég verð með í UngfrúÍsland.is að ári.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:13







23.9.03 :::

Helgi Ingólfsson.....
Er fyndinn maður. En í dag er hann veikur svo ég er í ÞRIGGJA TÍMA EYÐU!!! Það er nú bara grimmd. Það er líka byrjað að snjóa sem er nú bara grimmd. Grimmmmmmmmmmmmmd

Maðurinn minn kom heim frá Englandi í gær. Ó, það er svo gott að fá hann heim og vakna við hliðina á honum. Ég fékk í gjöf fínan bol og bókina Diary. Hún er um konu sem heldur dagbók meðan maðurinn hennar er í dái eftir að hafa reynt að fremja sjálfsmorð. Bókin er eftri sama höfund og Fight Club.
Skúli keypti sér fokking kreisí brjálaða myndbandsupptökuvél (plebbalegt orð) svo nú getum við tekið myndir af öllum afmælum barnanna okkar og komum til með að eiga ca 17 spólur af svona: "Komdu, labbaðu til mín... Ég get svo svarið það að hann labbaði í gær..." Það verður nú gaman.
Og talandi um myndbandsupptökuvélar... í gær elti mig maður með myndbandsupptökuvél. Hann heitir víst Ingimar og var að búa til þátt um MR. Hann elti mig eftir skóla í gær, á kóræfingu og leiklistarnámskeið. Og Örlygur Hnefill gat logið að mér að hann ætti barn, þar til að ég spurði hann hvað barnið héti. "Af hevrju þarftu að vita það?" Og þá vissi ég sko að hann væri að plata mig upp úr skónum.
Ég er glöð að Frasier er byrjaður aftur í sjónvarpinu.
Og Dikta spilar á Airwaves!!!!

Er fólk alveg hætt að vanga?
Ég hef ekki tekið almennilegan vangadans síðan í áttunda bekk!!


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:24







22.9.03 :::

Afi hefur það fínt, hann er svona að koma til. Sjúff.
Feluleikur
Ég fór í matarboð í glr til frænku minnar. Hún leyndi syni sína því að það væri ekki í lagi með afa, sagði þeim bara að hann hefði farið í aðgerð. Hún sagði að þeir yrðu svo hysterískir ef hún segði þeim að hann væri í hættu. Ég spyr: Á maður ekki að segja börnunum sínum svona mikilvæga hluti til að þau geti tekið þeim þegar að þeim kemur? Og er ekki rétt að kenna þeim að vera heiðarleg með því að vera það sjálfur?
Annar þeirra er 6 ára og hinn 10 ára. Ég held að 6 ára gömul börn skilji alveg að fólk deyr, sérstaklega ef það er gamalt. Og maður á ekki að fá móðursýkiskast út af því! 10 ára drengurinn vissi þetta ekki heldur. 10 ára systir mín vissi þetta, og hún tók þessu eðlilega. Varð leið um stund, en sætti sig síðan við þetta sem hluta af lífinu.
Ég er ekki sátt við fólk sem leynir börnunum sínum mikilvægum hlutum.

Um lygar
Ég held að ég hafi passað svona 20 börn um ævina og ég fordæmi það þegar fólk getur sagt blákalt við börnin sín: "Við ætlum bara aðeins að skreppa út í bíl" og skilur síðan barnið eftir hjá ókunnugri konu og fer í bíó og kemur seint um kvöld. Þá ertu neflilega að ljúga að barninu þínu og kenna því að það sé allt í lagi. Það eru þessi börn sem grenja ef móðir þeirra fer á klósettið, því þau halda að mamman sé bara að stinga þau enn einu sinni í bakið. Rólegustu börnin eru þau sem fá þetta frá foreldrum sínum: "Við ætlum út, kannski í bíó, og við komum þegar þú ert sonfnuð/aður. Á meðan verður þú hjá Margréti."

Nammidagar
Ég fordæmi líka nammidaga. Mér finnst að þá sé verið að ala upp alkóhólista. Jább- nammi einu sinni í viku og þá springur allt!!!!!!! Það verður allt brjálað! Þessi börn verða líka alveg kreisí þegar þau komast í nammi utan laugardaga, fylla vasana og maula í felum. Nammi á bara að vera hluti af eðlilegu lífi -ég er ekki að tala um nammi í öll mál og öll börn verða offitusjúklingar- heldur að ef þú ert í stuði fyrir nammi þá færðu þér bara nammi. Og ef þér finnst nammi vont þá er það bara í góðu lagi.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:49







19.9.03 :::

Í gær var ég klædd laki. Ég labbaði hægt, öskraði og leiddi fólk. Síðan köstuðu bekkjarfélagar mínir mér í loft upp. Voða gaman. Um kvöldið fór ég í fyrirpartí í stúdentakjallaranum í laki. Svakalega er þægilegt að þurfa ekki að velta fyrir sér í hverju maður á að vera.

Það eru 50% líkur á því að afi minn, Viggó, lifi daginn af. Úff. Hann var í aðgerð í gær. Greyið.

Og maðurinn minn er í Englandi. Hann skildi mig eftir og fór í drengjaferð. Þeir ætla á strákatónleika, fótboltaleik og veitingastaðinn Wagamama.

...þetta Huldufight...
Ég veit ekkert hvaða stúlka þetta er. I've been doing some research (ég er búin að rannsaka) og hún er á linkalistanum hennar Rögguplögg vinkonu... skrýtið og dularfullt. Erla Elíasdóttir er vinkona hennar... skrýtið og dularfullt. Og samkvæmt síðustu bloggfærslu kann hún að bera nafnið mitt fram... skrýtið og dularfullt.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:30







18.9.03 :::

HULDA
Hver er hún?
Farið á síðuna hans Braga og kíkið á ÖLL kommentin. Mér sýnist hún ekki eiga samleið með fólki eins og mér. Ef þið hafið gígantískan áhuga á að fræðast um kynlífið hennar, bendi ég á bloggsíðuna hennar. Ég er að pæla í að stofna söfnunarbankareikninginn "frelsum Bjarka."


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:07







16.9.03 :::

GÖT
Ég er stödd í tölvustofunni í skólanum. Á tölvunni sem ég er að skrifa á núna var myndskeið með Christinu Aguilera (Mér er sama ef þetta er vitlaust skrifað) sem var ekki merkilegt nema fyrir þær sakir að þar sést í brjóstið á henni. OG hún er með gat í geirunni. Ég er ekki með þannig og það freistar mín ekki. Ég hef aldrei verið með önnur göt á líkamanum nema þau sem nauðsynleg þykja. Af hverju að gata á sér geirvörtuna? Ekki til þess að setja hana í möppu, það er nokkuð víst. (múhhahahah)
Hún er líka með mörg tattú. Hún verður mest töff á elliheimilinu, það er nokkuð víst. Hún og Markús geta tofnað "Gamalt fólk með tattú"- klúbbinn. Frank getur líka verið með. Hann verður gjaldkeri.

Ómannúðlegt á B59
Í gær var slegið upp hvalkjötsveislu að heimili mínu. Hvalkjötið bragðaðist sem besta steik og var ég södd fram eftir kvöldi. Mamma og pabbi fóru í keppni hvor gæti eldað betur. Pabbi eldaði sitt hvalkjöt án krydds, og bar fram með svissuðum lauk og spæleggi, svipað og hann gerði þegar hann bjó einn á Rauðalæknum í den. Móðir mín kryddaði steikurnar með steinselju og hvítlauk og penslaði með ólífuolíu. Havlkjötið bar hún fram með piparsósu sem er í raun hægt að drekka með röri, hún er svo góð. Síðan létu þau Skúla dæma um hvort væri betra. Skúli átti góðan sprett þar sem hann lýsti steikunum líkt og manneskjunum sem elduðu þær. Pabbasteik sagði hann góða og mjúka, dálítið harða en mömmusteik var jafnvel mýkri, en hrárri. Varð af þessu mikil skemmtun.
Vigdís fékk þó unglingaveikina og sagði að þetta væri það versta sem hún hefði smakkað og kvartaði undan magaverkjum fram eftir kvöldi. Þó gekk hvorki upp- né niður úr henni og var hún rjóð og sælleg þegar hún sofnaði yfir 70 mínútum. Mamma grátbað pabba að hafa þetta ekki aftur á borðstólnum "annað kvöld", svona mat væri nóg að borða sjaldan.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:12







12.9.03 :::

Það er aftur kominn föstudagur og ég ætla að sofa mikið þessa helgi og gera íslenskuritgerð... þó svo að ritgerðarefnin séu alveg hræðilega leiðileg.

Er aldur afstæður?
Ég var í stjörnufræði í dag. Þar var afstæður aldur skilgreindur svo að það væri ekki aldur í árum heldur svona: "Þetta er eldra en þetta... þetta er yngra en þetta..." og hann er fundinn með því meðal annars að tékka á gígafjölda plánetna. Ef við yfirfærum þetta á mennina þá skiptir ekki máli hvað við erum gömul, bara hvað við erum hrukkótt, miðað við að mannfólkið alist upp í sama umhverfi. Sá sem er hrukkóttari er eldri. Gaman.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:09







8.9.03 :::

Góð helgi...
Á föstudaginn fór ég á hann Pablo vin minn og skemmti mér vel, þrátt fyrir að hafa heyrt 80% af prógramminu áður. Síðan fór ég á verst skipulögðu tónleika Íslandssögunnar í norðurkjallara MH. Það var nú ágætt. Dóri sonur Dunu (oft kenndur við DNA) var að rappa og bumban á honum flubbaðist svona upp og niður. Hann var eins og Barbapabbi. Það var gaman.

Á laugardeginum labbaði ég upp á Esjuna ásamt móður minni og systur meðan ástkær eiginmaður minn svaf. Síðan kom ég heim og borðaði humarsúpu. Þá héldum við Vigdís og Skúli á generalprufu á Erling í Loftkastalanum. Benedikt Erlingsson leikstýrir þessu meistarastykki, sem skartar þeim Stefáni Jínssyni og Jóni Gnarr í aðallutverkum. Stefán var BRILLIANT og var í Áka Egils-jakkanum!!!!!! Jón Gnarr kom svakalega á óvart, hann er í alvöru talað að vinna leiksigur. Hann er alveg svakalega góður í þessu.
Síðan fór ég í Civilisation meðan Skúli fór til Hödda að horfa á fótbolta og drekka bjór. Eftir að hafa gert út af við Caesar og alla Rómverja fór ég á Chicken Fried og borðaði kjúkling. OG SVO- fór ég upp í Dreng í Kjós á tónleika Blúsbyltunnar.... og það var sko brjálað. Ég hitti mikið af skemmtilegu fólki, þar á meðal hann Himma sem leikur KR-ljónið....

Á sunnudaginn gerði ég ekki bofs nema að horfa á myndina BARK! sem fjallar um konu sem er með það a hreinu að hún sé hundur. Alveg ágætismynd.
Það var ekki til örbylgjupopp svo ég pottapoppaði. Það fannnst tengdaföður mínum afskaplega merkilegt. AAAAAAHHHH- smjörpopp....


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:17







5.9.03 :::

Mig langar að hrósa Britney Spears fyrir að hafa ekki haldið á míkrófóninunum, heldur geymt hann á milli brjóstana á sér á MTV-hátíðinni um daginn. Þá gat hún alveg dansað með höndunum. Mjög kúl. Ef ég væri með svona stór stór stór brjóst myndi ég gera þetta á söngkeppninni í vor.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:25







4.9.03 :::

Sigurjón sagði við mig í gær á kóræfingu eftir að ég hafði ausið (?) úr skálum reiði minnar út af orðlaus-blaðinu að ég yrði svo skemmtilega reið. Merkilegt.

Það er strákur með mér í bekk sem heitir Helgi. Hann hlæjir mig mikið.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:39







3.9.03 :::

Konutímaritið Orðlaus
Ég er orðlaus. Tímaritið þykist vera svona girl power tímarit en það mistókst eitthvað. Fyrsat ber að nefna prófið "Ert þú tilbúin að verða mamma?" Ég tók þetta próf og á að hætta öllu og fara að punga út. Það stóð punga út í blaðinu. Nei, ekki unga út. Ein spurnigin var: "Ert þú í sambandi?" Og ef svo var fékk maður fleiri stig því konur geta þetta greinilega ekki einar. Síðan kom framhaldssagan. Hún er um telpu sem hugsar bara um karlmenn og að komast í samband strax og hún er að stinga vinkonur sínar í bakið hægri vinstri og vinnur í sjoppu þess á milli. Ég fletti langra. Nei, grein eftir Dadda Diskó. Hann talar mikið um raunir sínar í kvennamálum og nú tók hann fyrir konur sem nöldra af því að hann skilur klósettsetuna eftir opna. Þetta n0ldur hefur eyðilagt öll hans sambönd og hann á mjög bágt. Ég hef gott ráð: LOKAÐU BARA KLÓSETTINU (það er hvort eð er ógeðslegt að sturta niður með það opið) OG ÞÚ ERT EKKI JAFN SÆTUR OG ÞÚ HELDUR.
Síðan kom grein eftir tvo unga karlmenn um hvernig nærfötum konur eiga að ganaga í. Annar talaði um að ósamstæð nærföt væru off. OK.... Veit hann hvað nærföt kosta? Veit hann hvað það er erfitt að finna brjóstahaldara sem smellpassar OG fylgja nærur með? Hinn talaðiu samt um að ósamstæð nærföt væru flott, svo lengi sem það væri t.d. D&G brjóstahaldari og C.K. nærur og sokkabönd. Sokkabönd-OK, ef honum finnst það svo mikið atriði að hann er til í að leggja út fyrir þeim. Merkjanærföt- WHY?
Síðan var kynfræðsluhorn. Það vbar skrifað fyrir stráka. HA? Já, þetta er svona svipað og matreiðslusíðurnar í FHM!
Niðurstaða: Sorprit sem er ritstjóranum til skammar miðað við upphaflega stefnu blaðsins, en ágætt að skoða ef maður vill fá sönnun á því að maður er meiri vitsmunavera en Daddi Diskó og fólk sem er með honum í liði.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 09:25







2.9.03 :::

Konan sem söng
Ég fór á fyrstu MR-kóræfinguna mína í gær og AF HVERJU BYRJAÐI ÉG EKKI Í ÞESSUM KÓR STRAX Í 3. BEKK? Þetta er algjör snilld! Allir vinir að syngja saman og búa til falleg hljóð. Alveg dásamlegt.

Afmæli
Vá. Nú er ég búin að eiga sama manninn í eitt og hálft ár og það er nú dásamlegt. Reyndar eru margir búnir að spyrja mig undanfarið hvort við séum hætt saman. Úti á Krít var þetta oft það fyrsta sem fólk sagði við mig eftir einn eða tvo; Og eruð þið Skúli hætt saman? Nei. Hilmir spurði mig að þessu bara rétt fyrir helgi. Skrýtið. En nei. Við erum saman enn and still going strong (Shania Twain). Hæ Skúli Æ klof jú

Lallalla ég er að breytast í önd...... ahhhhhhhhhDOFF


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:50