Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
MY NAME IS MR.FRANK OKOLO, THE MANAGER CREDIT AND
FOREIGN BILLS OF ECOBANK OF NIGERIA .I AM WRITING IN
RESPECT OF A FOREIGN CUSTOMER OF MY BANK WITH ACCOUNT
NUMBER 14-255-2004/utb/t WHO DIED IN A PLANE CRASH
[ETHIOPIAN AIRLINE 961] WITH OTHER PASSENGERS ABOARD.
SIR, SINCE THE DEATH OF THIS CUSTOMER I PERSONALLY
HAVE WATCHED WITH KEEN INTEREST TO SEE THE NEXT
OF KIN BUT ALL HAS PROVED ABORTIVE AS NO ONE HAS COME
TO CLAIM HIS FUNDS OF USD15.5 M, [FIFTEEN MILLION FIVE
HUNDRED THOUSAND UNITED STATES DOLLARS] HAS BEEN WITH
MY BANK FOR A VERY LONG TIME. ON THIS NOTE I DECIDED
TO SEEK FOR WHOM HIS NAME SHALL BE USED AS THE NEXT OF
KIN AS NO ONE HAS COME UP TO BE THE NEXT OF KIN. AND
THE BANKING ETHICS HERE DOES NOT ALLOW SUCH MONEY TO
STAY MORE THAN FOUR YEARS, BECUASE AFTER FOUR YEARS
THE ACCOUNT WILL BE DECLARED DORMANT AND THE MONEY
FORFEITED TO THE BANK.
IN VIEW OF THIS, I DECIDED TO CONTACT YOU TO ACT AS
THE NEXT OF KIN. THE REQUEST OF A FOREIGNER AS NEXT OF
KIN IN THIS BUSINESS IS OCCASIONED BY THE FACT THAT
THE CUSTOMER WAS A FOREIGNER. I AGREED THAT 30% OF
THIS MONEY WILL BE FOR YOU AS A FOREIGN PARTNER IN
RESPECT OF PROVIDING AN ACCOUNT, WHILE THE REST WILL
BE FOR ME.
THEREAFTER I WILL VISIT YOUR COUNTRY FOR
DISBURSEMENT . THEREFORE TO FACILITATE THE IMMEDIATE
TRANSFER OF THIS FUND TO YOUR ACCOUNT AS ARRANGED, YOU
MUST APPLY FIRST TO THE BANK AS A RELATION TO THE
DECEASED INDICATING YOUR BANK NAME, YOUR BANK
ACCOUNT NUMBER, YOUR PRIVATE TELEPHONE NUMBER, AND FAX
NUMBER FOR EASY COMMUNICATION AND LOCATION WHERE THE
MONEY WILL BE REMITTED. UPON THE RECEIPT OF YOUR
REPLY, I WILL SEND YOU BY FAX OR E-MAIL THE
APPLICATION AND THE NEXT STEP TO TAKE. I WILL NOT FAIL
TO BRING TO YOUR NOTICE THAT THIS BUSINESS IS HITCH
FREE AND THAT YOU SHOULD NOT ENTERTAIN ANY FEAR
AS THE WHOLE REQUIRED ARRANGEMENT HAS BEEN MADE FOR
THE TRANSFER. YOU SHOULD CONTACT ME IMMEDIATELY AS
SOON AS YOU RECEIVE THIS LETTER.
TRUSTING TO HEAR FROM YOU.
YOURS RESPECTFULLY,
MR FRANK OKOLO.
Og ég svaraði honum að ég hefði ekki áhuga, væri ekki sir og að ég hefði látið löggumennina vita. Þetta verður spennandi.
Tómlegt Að loknum prófum er líf mitt frekar innihaldslaust. Þetta er svona millikafli núna, fer til Mývatnssveitar um 29. maí. Ég hlaka mikið til, en samt æi... það er svo mikið að fara frá.
Ég spurði mömmu hvort hún og fjölskyldan kæmu að heimsækja mig norður í sumar. "Nei, við komum að heimsækja þig síðast!"
Það er ekki rétt. Síðast þegar fjölskyldan fór saman til mývatnssveitar varsumarið áður en ég byrjaði að vinna þar og við kíktum hálfan dag af því að ég var að deyja úr unglingaveiki í einhverri veiðiferð. Ég þakkaði mömmu pent fyrir og sagði að þau þyrftu ekkert að koma frekar en þau vildu. Pff.
Um partí Ég var búin að ræða við einhverja þrjá um kveðjupartí hjá mér næstu helgi, en því miður verð ég að aflýsa því. Það verður því ekkert húll á Bergstaðastrætinu næstu helgi. í staðinn getið þið kíkt á þetta partípleis.
Stúdentspróf. Úff. Stærfræði á mánudaginn, og munnleg á þriðjudaginn. Ég hef ákveðið að mæta ekki og verða vændiskona þegar ég verð stór. Mikill mónnípeningur. Ég ætla að bjóða upp á nýja þjónustu: Eftir athafnirnar sem þú kýst að borga fyrir, færðu afhendan fallegan blómvönd til að gefa konunni þinni til að þú fáir ekkert samviskubit.
Síðan Sigríður Jóhannsdóttir hélt því fram að fólk gæti ekki fylgst með fréttum nema kunna að diffra hef ég tekið meira og meira eftir þessu. Ég skil bara ekkert í kosningabaráttunni. Það er af því ég kann ekki að diffra.
Mér finnst málflutningur Ingibjargar Sólrúnar vera hreinasta móðgun við konur. Samkvæmt honum erum við minnihlutahópur sem getur ekkert nema hafa alveg milljón málssvara á þingi. Svo tala félagar hennar í samfylkingunni eins og hún hafi ekkert fram að færa sem forsætisráðherraefni nema það eitt að hún er kona. Ég ætla ekki að velja forsætisráðherra eftir því hvort viðkomandi er með pjöllu eða pippaling. Mér finnst það ekki skipta neinu máli. Fram að kosningabaráttunni, sem er að ljúka í þessum töluðu orðum, hafði ég mikið álit á Ingibjörgu Sólrúnu. Mér var nákvæmlega sama um kynfærin á henni. En nú hefur hún ásamt vinum sínum og félögum dregið óþarfa athygli að þeim og reynir að heilaþvo þjóðina: "Konur eru aumingjar og þurfa konu sem FORSÆTISRÁÐHERRA svo þær hafi eitthvað að segja í þjóðfélaginu." Veistu Samfylking, ekki ég. Ég kemst áfram á eigin ágætum, en ef ekki þá finnst mér allt í lagi að halda í þá trú.
Ingibjörg, ég er ótrúlega heppin að vera kona. Ég ilma dásamlega, er rosalega mjúk og Cosmo segir að raðfullnægingar kvenna séu staðreynd. Ég er svo heppin að fá að ganga með börnin mín í maganum og fæða þau í þennan heim og með því að ala börnin mín vel upp get ég haft meiri áhrif á framtíðina en sitjandi forsætisráðherra. Fæða já, mjög sársaukafullt (samkvæmt Cosmo) þar af leiðir: Ég og allar hinar konurnar erum engir aumingjar. Við erum dásamlegar.