Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Bestu partí í heimi Þau eru haldin heima hjá Snæbirni og Sverri. Sverrir var húsmóðurlegur og bakaði pizzu og gef þeimsem höfðu áhuga á. Æ, hann er svo mikil dúlla. Oddur var með falið klám í beinni útsendingu. Við sáum það á upptökunni. Oddur fær því hér með viðurnefnið meiri kallinn. Atli varð aggressívari með kvöldinu. Hilmir og Frank tóku STÓRAN HRING og það var mjög skemmtilegt. Sömuleiðis sannfærði Hilmir landsfræga tónlistarmenn á að búa til þemalag fyrir Blúndukappann. Una var sérstaklega eggjandi þetta kvöld. Jón Eðvald var eins og snyrtilegur mormóni. Helgi Hrafn kvaðst myndu vilja taka í ********u. Þroskahefti Japaninn sem selur stundum bíla kom með Hilmi. Ji, hann er svo skemmtilegur. Skúli skildi ekki alveg hvað var í gangi. Þura var með krot á kinnunum.
Þetta var hið besta kvöld. Ég fór snemma heim, af því að Skúli var að fara að vinna snemma í morgun og af því að mér var orðið flökurt því ég hló svo mikið.
Þegar heim var komið hlustuðum við á endann á músíktilraunum. Hljómsveitin Dáðadrengir vann og hún spilaði skemmtileg lög. Þegar þeir komu upp á svið spurðu þeir: "OK, vort viljiði að við tökum Jesús er í nintendotölvunni minni eða Allar stelpur úr að ofan?" Síðan tóku þeir lagið Jesús er í nintendotölvunni minni. Hér kemur örlítið textabrot:
Jesús er í nintendo.
Hver er það? Æ dónt nó... Síðan hlustuðum við á Ókindardiskinn og hann er mjög skemmtilegur. Ég er samt dálítið hrædd við Steina þegar hann syngur svona óhuggulega. En Hænulagið er skemmtilegt. Svo fórum við að sofa. Búbbabú.
Magnús Davíð Norðdahl, engill réttvísinnar, hyggst leggja fram kæru í dag vegna viðtals við hórmangarann sem rekur X-nudd. Já, hann mætti í viðtal og auglýsti "stofuna" í útvarpinu.
Annars er ég að leggjast í veikindi. Gat ekki opnað augun í morgun út af viðbjóði í þeim.
Ég man ekki hver sagði mér það, en Jón ólafsson Skífumaður var kallaður Jón Bæjó þegar hann var lítill og bjó í Keflavík. Jón Eðvald er kallaður Jón Bæjó...
Besti vinur pabba á líka djammynd af Jóni Bæjó eldri nöktum í baði að drekka áfengi. DV bauð honum víst 60.000 á sínum tíma fyrir myndina. Hann sagði nei.
Ég þarf að skila grein í kosningablaðið í dag. Það vefst fyrir mér. Óskað er eftir pennum.
Mómentið kallaði Ég hef lengi borið þá hugmynd í maganum að verða inspector, en ákvað að hætta við framboð því að það eru svo afskaplega margir frambærilegir í 5. bekk í ár. Á kosningafundinum í gær kom þó í ljós að aðeins ein manneskja hyggðist bjóða sig fram. Það er hin mæta Erna Blöndahl sem hefur staðið sig eins og hetja í Framtíðarmálum undanfarin tvö ár. Þar sem það er bara svo leeeeeiðinlegt að vera sjálfkjörin þá ákvað ég að hlýða maganum í mér. Ég er inspectorskandídat. Húbbahúlle.
Hammó með ammó Vigdís , systir mín, er 10 ára í dag. Til hamingju.
Í gær fékk ég slæman kjúklingaborgara á McDonalds. Já, ég fór á McDonalds því að systir mín var ólm og á iði að fara þangað. Ég hafði á orði þessi fleygu orð: "Þetta brauð er nú bara eins og birgitta haukdal!" Vigdís varð alveg brjáluð, en mér fannst þetta mjög sniðugt.
Mamma mín kemur heim frá Belgíu í kvöld. Hún fór þangað til að horfa á óskarinn með Erlu Halldórs vinkonu sinni. Og til að djamma.
Ég sá ekki óskarinn, en ætlaði að horfa á best-of í kvöld og loka eyrunum í dag, en nei. Ég vaknaði við bavíanana í Ísland í bítið að segja frá því öllu. Megi þau soðna í eigin nuddpottum.
Svo var íslenski fáninn brenndur í Kaupmannahöfn. Það fannst mér töff og vona að fólk sjái að sér. Ég hlustaði á BBC World sörviss í gær þar sem Egyptar tóku skýrt fram að það væri ekki hægt að berjast við eitt múslimaríki, því að þau væru öll svo samrýnd. Og af hverju er Ameríka ekki ein af þjóðum stríðsglæpadómstólsins?
Getraun Frestur til að svara þessari getraun rennur út kl. 16:00 í dag, 24. mars.
Hver var söngvari hljómsveitarinnar The Frozen Embryos?
Stríð í heiminum Megi Bush, Blair og íslenskur stjórnarmeirihluti brenna í helvíti. Megi Samfylkingin gera það líka fyrir að nota stríðið til þess að veiða atkvæði.
Í gærkvöldi um áttaleytið þegar tilkynnt var um stríð hljóp Vigdís systir mín inn í herbergi. Ég fór á seftir henni til að athuga hvort hún væri nokkuð að fara sér að voða. Nei, hún sat í rúminu og fór með faðirvorið.
Integer vitae, scelerisque purus.... Ég er með þetta á heilanum.
Ég er búin að finna lausn á stríðinu. Við tökum bara saddam hussein og bush og látum þá slást fyrir allra augum!
Íslenskir fjölmiðlar hafa mestar áhyggjur af Íslendingunum sem eru í Mið-Austurlöndum. Mér er nokk sama hvort þar eru Íslendingar eða ekki. Okkar blóð er ekkert verðmætara en hinna sem eru þar.
Af hverju er Rauði krossinn að senda föt til Afríku? Er þeim kalt? Er ekki afskaplega heitt þar?
Annars er lítið búið að gerast. Nýverið hef ég notið ásta með skattskýrslunni minni. Djöfulsins vesen er þetta. Ég er að telja fram eina og tvær og þrjár krónur í einhvern eignaskatt. Blelelelele.
Nú ætla ég að fara að mórmæla með latínubókina mína. OOOOOhhh, ég er svo kúl. Ég og Ármann Jakobsson. Like this.
Now I've got to know what is and isn't mine
If you received my letter telling you I'd soon be free
Then you'll know just what to do
If you still want me
If you still want me
Whoa, tie a yellow ribbon 'round the old oak tree
It's been three long years
Do ya still want me?
If I don't see a ribbon round the old oak tree
I'll stay on the bus
Forget about us
Put the blame on me
If I don't see a yellow ribbon round the old oak tree
Bus driver, please look for me
'cause I couldn't bear to see what I might see
I'm really still in prison
And my love, she holds the key
A simple yellow ribbon's what I need to set me free
I wrote and told her please
Whoa, tie a yellow ribbon round the old oak tree
It's been three long years
Do ya still want me?
If I don't see a ribbon round the old oak tree
I'll stay on the bus
Forget about us
Put the blame on me
If I don't see a yellow ribbon round the old oak tree
Now the whole damned bus is cheerin'
And I can't believe I see
A hundred yellow ribbons round the old oak tree
Um lokasýningu Mikið flipp, þótt Lazershowið hefði klikkað. Þurfum bara að undirbúa það betur á næsta ári. Right? Margir kennarar voru í salnum, þar á meðal hin nafntogaða Sigríður Jóhannsdóttir. Sveinbjörn sá sér leik á borði og flassaði í einu af síðustu atriðunum. Það fannst mér fyndið, þar sem ég var á senunni eins og sagt er.
Og ef einhver myndi móðga þennan mikla hestamann myndi hann skjóta pæng pæng beint á hann.... Í dag fór ég til Akureyrar. Það var gaman. Atli, Helgi, Oddur og Snæbjörn voru skólanum til mikils sóma. 3/4 liðsins flugu heim seinna um daginn. En hvað varð um Odd? Hann varð eftir til að fá sér á brodd.
(Sorrí að ég kann Hesta-Jóa... þetta er bara svo skemmtilegt lag!)
íeíei íeíó íeíei íeío-o-o-o-ó....
Á vit ævintýranna Seinna í dag stíg ég upp í flugvél og flýg til norðurs. Ég hlakka til að sjá fallega landið okkar út um gluggann. Ég halkka líka ómælanlega til að hitta Halldóru, Stefán, (Hinrik?), Jón Árna og Örlyg Hnefil.
Þegar ég verð stór og eignast börn mun ég skíra þau einhver þessara nafna: Ragnheiður, Darri, Helga, Brimir, Hilmir, Vigdís, Una. Tilvonandi barnsfaðir verður bara að sætta sig við það. Ef ég verð einstæð móðir mun einn drengurinn heita Júlían. Það ætti að duga til að koma í veg fyrir að ég verð yfirgefin, alein og ólétt í þokkabót. Þá mun lítill drengur heita Júlían. Jafnvel Júlían Darri. Svo ætla ég líka að skíra eitt barnið Barbie Rósa. Það er fallegt nafn.
Tónlistarfólk sem á afmæli sama dag og ég:
1918 Ella Fitzgerald
Legendary jazz singer, died 15/6/96.
1933 Jerry Leiber
Leiber & stoller, songwriter, producer for Elvis Presley, Buddy Holly. The Monkees, Cliff Richard.
1945 Bjorn Ulvaeus
guitar, vocals, Abba, first UK hit was 1974 No.1 single 'Waterloo', followed by 8 other UK No.1 singles and 9 No.1 albums.
1945 Stu Cook
Creedence Clearwater Revival, 1969 UK No.1 and US No.2 single 'Bad Moon Rising'.
1958 Fish
Marillion and solo, singer, 1985 UK No.2 single 'Kayleigh'.
1964 Andy Bell
Erasure, 1992 UK No.1 single 'Abba-esque' plus over 20 other UK top 40 singles.
1965 Simon Fowler
Ocean Colour Scene, 1996 UK No.4 single 'The Day We Caught The Train'.
Og hvað var á toppnum?
Í Bretlandi var það "Hello" með Lionel Richie.
Í helvítis Bandaríkjunum var það "Against All Odds (Take A Look At Me Now)" með Phil Collins.
Ef einhver getur sungið þessi lög fyrir mig, og sannað með því að þau séu til, má hann eiga mig í 2 mínútur.
Mokkurinn til Agueijar Ég náði mér í miða til Akureyrar næsta fimmtudag til að fylgjast með Gettu betur og fá mér Brynju-ís. Ég beið í klukkutíma í kaldri röð til þess að eiga möguleika á að sjást í sjómmanum. Neeei, að sjálfsögðu fer ég sem grúppía.
Ég vil minna fólk á að aðeins tvær sýningar eru eftir af Hundshjarta, í dag og á morgun... og Sigga Jó ætlar að koma á morgun. Það eru nokkur sæti laus í kvöld en færri á morgun.
Annars eru góðar einkunnir búnar að einkenna vikuna, ég fékk 9.0 í spænskuprófi og 10.0 í armbeygjuprófi. Einkunnirnar virðast vera í uppsveiflu... vona að sveiflan haldist til vors og svingi í latínu og frönsku.
AEG Hver er þessi manneskja sem kallar sig þvottavélaofurhetjuna? Hún laumast um ýmis blogg vina minna og kommentar eins og hún eigi lífið að leysa.
Jæja, við hoppuðum alla nóttina á trampólíninu, samtímis kysstum við himininn og fengum systur þína til að öskra. Helgin var góð. Ég er samt dálítið þreytt að þurfa að stjórnast af duttlungum í systur minni og móður. "Þú þarft að passa í kvöld. Nei þú þarft ekki að passa. Nei, jú annars, ég ætla að vinna. Nei, farðu bara eitthvað með vinum þínum..."
Þetta gerir afskaplega erfitt að plana sig, og er afskaplega oft uppspretta mikilla tára af minni hálfu, það þarf svo lítið til að ég verði einmana. En þá er gott að eiga góðan mann sem ávalt kemur til bjargar og leyfir mér að keyra.
Ég kvíði fyrir að fara norður í vor. Ég er strax byrjuð að fá kökk í hálsinn. Aumingja Hilmir. Hann verður með mér í herbergi og þarf að hlusta á mig grenja mig í svefn.
Þetta verður samt ekki jafn erfitt og þetta leit út fyrir að verða. Óprúttni náunginn sem eyðilagði fyrir mér bæði sumurin sem ég var þarna, verður til dæmis ekki. Þorgerður verður vaktstýra. Ég hef Hilmi og Þuru og Þuríði (og líklega Jón) til að skemmta mér. Ég verð í mun boðlegri húsakynnum en síðast, en þá svaf ég í herberginu sem óprúttni náunginn missti sveindóminn í. Mér fannst ég óhrein eftir að hafa sofið í rúminu. Þetta verður ágætt. Ég á samt eftir að gráta mig í svefn af söknuði.
En hér kemur smá (af blogginu hennar Sólrúnar) sem hún sá í DV. Mér finnst þetta bara svo fyndið:
Hvar varst þú 28. maí 1994?
Varst þú kannski að halda upp a ad R- listinn vann borgina, hittir drukkna stúlku sem lenti í því að detta og fá skurð á augabrún, fylgdir henni heim, svafst hjá henni en fórst ádur en hán vaknaði? Úr þessu varð barn sem langar að vita hver pabbi þess er. Ef þú lest þetta og vilt gefa þig fram, sendu þá tölvupóst á Dimma_00@yahoo.com
Boðskapur: Kjóstu R-listann og þú verður ólétt eftir mann sem þú þekkir ekki.
Um grein MT (persónulegt sjónarhorn)
Já, það mætti segja að við séum sár þegar okkur er hallmælt fyrir slæmt starf af fólki sem er í bróðurfélagi okkar. MT heldur því fram að Herranótt sé blóðsuga á Skólafélaginu og þeir sem koma að leikritinu séu einungis mennigarsnobbarar sem telja sig vera á hærra plani en samnemendur sína.
Það er afskaplega erfitt að sæta skyndilega slíkri gagnrýni, einkum í ljósi þess að MT-piltarnir standa mikið fyrir utan og vita í raun ekki hvað þeir gagnrýna. Ummælin eru hörð og þeir vilja að Herranótt breyti afstöðu sinni í því að velja leikverk, og hætti að hafa þá sérstöðu sem hún hefur sem leikfélag.
Annars er það ekki hugmynd mín um menntaskólaleikfélag að það sé gróðavél (en heldur ekki blóðsuga) skólans, heldur á það að vera skemmtan, bæði fyrir þáttakendur og áhorfendur. Leikhús er neflilega ekki bara aðstandendur þess, heldur líka áhorfendur. Og mér hefur þótt báðir aðilar vera ánægðir.
MT-menn hallmæla helst maskaðssetningu leikritsins. Fyrst hugmyndir þeirra eru svo frábærar þá furða ég mig á því að þeir hafi ekki boðið sig fram í markaðsnefnd í haust.
Að lokum vitna ég í orð Örlygs Hnefils vinar míns sem hann sagði í menningarferð til Reykjavíkur; ”Í gær fórum við á Nemó og sáum ljós og glimmer. En í kvöld fórum við leikhús.”
Um Júróvisjón Það að leyfa höfundinum að endurgera lagið finnst mér vera óvirðing við aðra sem tóku þátt og fengu ekki innblástur annars staðar frá. Mér finnst að Botleðja mætti bara fara, þeir geta betur staðið undir nafninu "þjóðarstolt." Eftir Palla höfum við aðeins sent eitthvað commercial rusl og það er komin tími til að hrista upp í þessu á ný. Birgitta og verkfræðingurinn fá þá að lýsa keppninni með Gísla Marteini. Eða bara vera heima hjá sér og bíða eftir pizzu í þrjá tíma. Eins og venjulegt fólk sem hefur klúðrað tækifærinu. Birgitta veit ekki einu sinni hvar Lettland er. Og hún sagði frá því í sjónvarpinu.
FG = Forhertir Gómorrumenn Í gær var Morfís og við unnum. Það var gott og mér líður vel í hjartanu. Til hamingju. Liðið sem við kepptum við var í alla staði ódrengilegt og ómálefnalegt.
Dæmi: Þegar MR byrjaði með klöpp og söngva þá hækkuðu þeir bara ótrúlega mikið í græjunum... og voru að spila móra. Æ, greyin.
Öll svörin þeirra byggðust á orðum eins og: "Feitt? Þú veist hefurðu séð mömmu þína nýlega?"
Besta svar keppninnar var þegar Tómas Pajdak steig í pontu eftir að fg-ingar höfðu hallmælt mömmu hans svo um munar og sagði: "Mamma mín er pólsk." Umræðuefnið var Íslendingurinn. Jóhann Alfreð átti daginn og var öruggur og kynþokkafullur, en jafnframt dulítið geðveikur en hvetjandi, í pontu og sópaði til sín með einstökum persónutöfrum einum 590 stigum.
MR er því komið í úslit Morfís, í fyrsta sinn síðan '97, en unnum síðast '88.
Ekki öll þar sem hún er séð Þuríður kom mér á óvart í gær með þeirri ákvarðanatöku sinni að fara í Djúpu laugina ásamt Evu vinkonu sinni og annarri bekkjarsystur. Ja hérna hér.
Maggidúddidú Pabbi minn er í sumarbústaðnum. Ég svaf því á Skúla græna eyra í nótt. Það var ágætt. Reyndar um eittleytið þegar við vorum að tala um mikil leyndarmál og hlæja hátt heyrðist í mömmu: "Fariði að sofa þaddna!" Pabbi Skúla keypti sér bíl í gær. Og mamma hans er að fara til útlanda í dag, í annað skipti í vetur. Já, mikill lúxus.
Í dag er frí i spænsku, skv. Gunnari Skelfingu. Æi, þetta átti að vera svo þæjó tími, við ætluðum að hlusta á fyrirlestur og horfa á Habla con ella. Það er einmitt besta mynd í heimi fyrir utan Court Jester. Handritið af hinni síðari má nálgast hér. Þetta er mjög gott handrit og ég hef aðeins talið tvær villur. En fyrst að fólk er hvort eð er að tékka á IMDb þá endilega tékkið á þessu....
Ég þarf samt að fara á fund kl. 15 vegna Herranætur. Mikið gaman og mikið flipp. Ég ætla að vinna í frönskuritgerð þangað til.
Vorið Í gær bauð eiginmaður minn mér út að borða á La primavera. Hann fékk sér spaghettini með humri og risarækju og hvítlauk og ég fékk mér nautalundir með balsamikediki, rucola og parmesan og það var best í heimi. Síðan fórum við heim og lágum á meltunni.
Þegar ég fór út í morgun ákvað ég að fara ekki í ílpu. Ég fór bara í jakka, og mér var ekkert kalt.
Fréttir gærdagsins Mig grunar að þetta með 300 milljónirnar hafi verið siðblindur brandari sem Hreini (sem hefur kannski eitthvað óhreint mjöl í pokahorninu?) fannst alveg ógeðslega fyndinn og langaði að segja Davíð frá. "... og það var ÓGEÐSLEGA fyndið." Davíð misskyldi þetta eitthvað því að Hreinn var að herm eftir Jóni Ásgeiri og gerði sig alvarlegan í framan. Í morgunviðtalinu var Davíð ennþá sofandi og hugsun hans, sem og hár, afskaplega brengluð.
...eða eitthvað.
Eitt ár Við Skúli erum búin að vera saman í heilt ár. Þetta ár er búið að vera besta ár lífs míns og ég vona að það verði milljón í viðbót. Takk elsku Skúli minn.
Við fórum á Rómeó og Júlíu og það var kreisí. Ég fór í þriðja sinn, en þetta var fyrsta skiptið hans Skúla. Margrét Vilhjálms er hætt, og Kristjana (útskrifaðist með Gísla, Birni, Víkingi og Nínu) komin í staðinn. Hún stóð sig vel, en Margrét náði söngnum betur. Steinn Ármann er líka búinn að taka við Darra. Steinn kom með mikið skemmtilegt en Darri var betri í tuddaskapnum. Ég gaf Skúla blender að gjöf, svona í búið.
Annað og ógeðslegra: Ég veit að það er ömulegt að blogga um svona lagað í sama pósti og maður segist elska einhvern en...
Pabbi minn er kennari og hefur átt í miklum vandræðum með ólátapilt. Hann er búinn að haga sér afskaplega illa, en aldrei virðist ástæðan vera "nóg" til þess að fá hann rekin úr skólanum, fyrr en um daginn. Þá var drengurinn staðinn að verki við það að skíta í lófann á sér og maka því um ganga skólans. Skólastjórinn brjálaðist, en var jafnframt glaður að hægt væri að vísa honum úr skóla. Það eina sem móðirin sagði um þetta athæfi var: "Ég ætla að kæra þig." Hún ætlaði að kæra skólastjórann fyrir að hafa tekið í öxlina á honum (auðvitað harkalega) til þess að stöðva hann.
Skemmtilegt fær.: kamelur: jórturdýr með tveimum kúlum á bakinum.