Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Við Atli þurfum ekki að tala saman. Við lesum bara bloggið. Oj, ég er hætt að blogga um það sem er gaman að tala við Atla um. Hér eftir ætla ég bara að blogga um Jamie Oliver.
Ég fór í spænskupróf í morgun. Það gekk ágætlega, þrátt fyrir að ég hafi gleymt öllum sagnbeygingum, einfaldlega vegna þess að af miklu peningaleysi sló ég til þegar frænka mín bauð mér að þiggja peninga fyrir að passa drengina sína. Ég átti lítinn tíma aflögu til lærdóms og ákvað því að fara í gegnum mikið efni á stuttum tíma. Það var vitlaysa. Ég átti bara að fara yfir málfræðiatriðin, ekki lesa alla kaflana. Minnið mig á það næst.
Iðunn spænskukennari og drottning sendi mig upp á kennarastofu til að athuga hvort salurinn væri laus fyrir næstu kennslustund hennar. Lára leikfumikenari kom til dyra. Þá varð mér ljóst að ég hafði gleymt leikfumidótinu mínu í fáti morgunsins og fékk ég vægt taugaáfall. "Neiiiiii........... ég gleymdi leikfumidóti...... (taugaáfall) Ég þarf að athuga fyrir Iðunni hvort salurinn sé laus í næsta tíma....." En Lára varð ekkert reið. Hún hló bara að mér. Ég ætlaði að vera svo dugleg í leikfumi eftir jól. Þá rófubeinsbrotnaði ég og gat ekki komið í nokkra tíma. Svo er ég eitthvað lömuð í heilanum á morgnanna og gleymi ALLLLLLLLLLLTAF (OK, kannski ekki alltaf en voða oft) dóti.
Í gærkvöldi fór ég með frænku minni í 10-11. Það var Tómas nokkur, sem ég er að fara að mæta í brúðkaupið hjá næsta sumar. Hann þekkti mig ekki. "Kannski er hann að spara," hugsaði ég, "svona ef hann heilsar mér ekki, þá verð ég fúl og kem ekki í brúðkaupið hans og hann sparar pening...." Ég heilsaði honum samt, því að það er bara svo draugaskemmtilegt í brúðkaupum. Við Ásta Hrönn keyptum ísmola og hundamat fyrir gæludýrið hennar, Garm. Ég held stundum að Garmur sé ísbjörn (svona eins og Snæbjörn) , en hún heldur því fram að þetta sé hundur. En ég sé núna í gegnum þetta allt. Af hverju ætti hún annars að kaupa ísmola og hundamat í sömu andrá?
Ég er búin að kaupa ársafmælisgjöf fyrir Skúla. Jeij! Við erum bráðum eins árs... váááááááá... ÉG ER ORÐIN SVO GÖMUL!
Ég skellti mér á bókamarkað í dag. Ég keypti afmælisgjöf handa Hilmi. Ég vona að vinskapurinn haldist allavega til 24. apríl, því annars kastaði ég mörgum peningum á glæ. Þetta er voða sniðugt. Ég ætla ekki að segja á hvaða staf það byrjar og ekki í hvaða bíómynd það er. Ég keypti líka bók um tarot spil og þess gerðan spilastokk. Síðan ætla ég að spá fyrir fólki í partíum. Neiiiiii. En ég held að þetta muni gera mig mjög mystíska týpu. Eru tarotspil á einhvern hátt tengd svartagaldri?
S.s. Ég keypti mikið í dag. Ég eyddi 4999+2130 kr. Það eru 7129 kr.. eða eitthvað.
Our database server has been repaired and everything should be running smoothly now. Thanks for all your patience.
-Tekið af haloscan.com
Ég er komin með orð í staðinn fyrir "ógeðslega" til að leggja áherslu á eitthvað. Þetta datt upp úr mér þegar ég spilaði Rommí (sem heitir Gin á ensku) við systur mína. Alltaf þegar hún vann sagði ég henni að hún væri draugaleiðinleg. Þetta fór afskaplega í taugarnar á henni, jafnvel meira en þegar ég vildi skíra páfagaukinn hennar Gáfapauk. Síðan hef ég notað drauga- framan við ýmis orð með góðum árangri. Skýringin er þessi: Svo mikið x að það nær út fyrir gröf og dauða. Dæmi: Þú ert alveg draugafyndinn! = Þú ert svo fyndinn að það nær út fyrir gröf og dauða.
Ég þoli ekki... ritstjórapistlana í Mannlífi eða Nýju lífi (eða Saurlífi?) sem hefjast á þessum orðum.
Skúli sýndi mér í gær síðasta pistil Andy Rooney, hvar hann skammast út í Frakka fyrir að standa ekki með Ameríku. Rök hans eru þau að Ameríka hafi bókstaflega frelsað Frakkland, og því bæri Frökkum siðferðileg skylda til þess að standa með Bandaríkjamönnum gegn Írak. Ég (og allur heimurinn) skil Frakka mjög vel, því sama hverjar ástæðurnar eru ætti aldrei að úthella saklausu blóði. Ameríka er yndisleg.
Í gær var matarboð hjá ömmu minni, Margréti Erlu. Hún er algjört æði. Gulli frændi var þar, afskaplega mystískur með sólgleraugu í rökkrinu. Óli og Esther verða líka á Mývatni eitthvað næsta sumar. Þau fá úthlutað ættaróðali Estherar í Höfða í ca 3 vikur. Vá hvað við verðum mörg! Og það verður svo gaman! ...en enginn Skúli til að hlýja mér.
Ég vann "Haldálofti" keppnina í íþróttavikunni. Mig grunaði ekki að fótbolti væri svona skemmtilegur. Til hamingju með íþróttavikuna.
Í gær rifjuðum við Kristín María upp textann af "Ástin dugir" með Unun. Ég man hann ekki alveg en ég ætla að sýna fystu erindin.
Hún:
Snemma í morgun hringdi spákona,
það var sem hún læsi sálina-a-a.
Hún sá þig í bolla og las í spil;
þú ert enn sá eini sem ég vil...
Hann:
Ég vil ekki kjafta neitt við neinn.
Ég hringi og panta pizzu fyrir einn.
Þó ég reyni að gleyma, ég man og man
nú er aðeins eitt sem ég get sagt...
Þá benti Kristín María, hin fagra, á hversu skemmtileg pæling þetta væri:
Hann: "Hæ, ég ætla að fá ...litla pizzu með bara pepperóní..."
Afgeiðandi: "Eitthvað fleira?"
Hann: "Neitakk..."
Afgreiðandi: "Við sendum ekki undir 1300 krónum..."
Maður þarf ekki að vera skemmtilegur ef maður á límband... Bragi hringdi í mig seint á laugardagskvöldið. Þá var ég nakin. Hann og Björk eru víst eitthvað... Hann var voða glaður.
Sölumaður deyr var leiðinlegt og hálfstaðfært í tíma og rúmi, sem gerði ekkert annað en að trufla. Fjöskyldan stóð sig vel, þó hvert í sínu horni, þannig að þau virkuðu ekki sem fjölskylda... blleeeeeeehhh....
Sýningar helgarinnar gengu vel. Amma mín og afi komu í gær. "Varst þú bara lampi? Við vorum alltaf að leita að þér á senunni...." Takk, frábært. Síðan ætlaði ég aðeins að tala við Nönnu vinkonu mína, en amma togaði mig í burtu til að kynna mig fyrir ömmu Hallgerðar. Það var fínt, en afskaplega tillitslaust af henni að gera þetta, ég var að tala við Nönnu.
Við fengum brjálaða gagnrýni í Mogganum í dag, en ég get ekki sýnt greinina hér, því ég þarf að kaupa einhvern aðgang og eitthvað á netinu.
Ég er í náttbuxum í dag í skólanum. Ohhh.. ég er svo mjjjjjjjúk.
Gulli frændi kom til landsins á laugardaginn. Nú tekur við stíft prógramm, því að hann þarf að sjá Hundshjarta, Rómeó og Júlíu, Dansflokkinn og Tattú (brjóstaleikritið) á einni viku. Ég kbúsaði hann og hann er enn massaðri en síðast. Balletrassgat...
Mig langar að óska nemendum veslunarskólans til hamingju með það að hafa nú sannað hversu ósmekkleg þau eru. Þau lofsyngja Ameríku á þessum síðustu og verstu...
Annars vil ég benda á grein um leikhússiðfræði í Danmörku.
Abre los ojos Við fengum að horfa á vídjó í spænsku í gær og horfðum á sálfræðispennutryllinnAbre los ojos. Ekki sjá Vanilla sky, ég hef heyrt að hún sé hræðileg. En A.L.O. er ein af bestu myndum sem ég hef séð. Ég hataði Penelope Cruz, en ég verð að hætta því nún afyrst að hún lék í svona brjálaðri mynd. Ég ætla að horfa á hana aftur eins fljótt og ég get. Ég hélt að þetta væri mynd sem maður gæti horft á í rólegheitunum, en svo var ekki. Við Una vorum skíthræddar... Ég ætla að fara að stunda spænskar kvikmyndir. Ég er alveg búin að sjá tvær, og þær voru báðar góðar. Hin myndin er Habla con ella.
Í kvöld deyr sölumaður í Borgarleikhúsinu og ég ætla að horfa á. Ég er engu betri en Parísarlýðurinn sem skemmti sér við að horfa á aftökur. Pétur Einarsson leikur aðalhlutverkið. Ég á mjög erfitt með að fylgjast með honum leika. Röddinn sker mig eitthvað.
Ég lýsi hér með yfir fordæmingu minni á eftirtöldum dögum: Valentínusardegi, bóndadegi og konudegi.
Það eiga ekki að vera til dagar til að gleðja þann sem þú elskar, allir dagar eru til þess. Það fer svo í taugarnar á mér þegar menn þykjast vera góðir og gefa konunni sinni blóm á konudaginn OG BARA Á KONUDAGINN. Ef ég fæ einhvern tímann konudagsgjöf skal það vera hrærivél eða önnur eldhúsáhöld. En helst vil ég að þessir dagar séu lagðir niður.
Frumsýningin var yndisleg. Ég get ekki beðið eftir að sýna á morgun, mamma mín grét úr hlátri, en jafnframt hryllingi, allan tímann. Tinna sagðist hafa séð Skúla haldandi um andlitið á sér af aðdáun þegar Gvendólína og Pálína birtust á sviðinu. Hilmir, Kalli og Siggi (stafrófsröð til að gera ekki upp á milli) stóðu sig eins og hetjur. Allt í einu heyrðist hvað Arngrímur sagði. Skurðstofusenan virkaði. Brandur brunaliðsmaður ældi eins og múkki og dó, hafandi gubbað á svefnpoka Unfríðar.
Já, Herranæturferðin var subbuleg. Ef einhver var með kvef þá eru allir í Herranótt með það núna nema við HARÐGIFTA fólkið. Nokkrar stúlkur tóku sig til og flöðruðu upp up Jón fram eftir kvöldi, og að lokum gafst leikstjórinn upp og stakk tungu ofan í kok Jóns og gaf þá ástæðu að hann "vildi ekki verða síðastur til að kyssa hann."
Síðan samdi Ólafur lag um þetta athæfi sitt. Textinn var á þessa leið:
Ég var að kyssa Jón
samt erum við ekki hjón.
Hann tryllir marga menntaskólamær
ég verð alveg óður og ær. Og svo vann Birgitta Haukdal júróvisjón, þegar slíkir hæfileikamenn leika lausum hala í Kjósinni.
Ég er komin með vinnu næsta sumar á Mývatni, fjarri skarkala og reyk reykvísku strætanna. Svona svipað og Quintus. Hilmir er líka kominn mep vinnu þar. Við ætlum að búa saman í kjallaranum á Austurhlíð. Það verður brjálað gaman. Við tökum sveitaböllin með trompi.
Ég er búin að grennast líka. Alveg eins og Önundur. Ég er samt 38 kílóum léttari en hann. Ennþá....
Að dansa Jänka er draumurinn Við mamma og Vigdís tókum léttan Jänka í afmæli móðurbróður míns. Það var skemmtilegt, fyrir utan þá staðreynd að ég var ekki í brjóstarahaldara. Þarna var alveg húbbalega mikið af frægu fólki, ég vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera.
Annars var mikið mikið mikið djamm á mér um helgina (ég veit, ópró að djamma helgi fyrir frumsýningu). Ég held að ég hafi orðið ófrjó á laugardagskvöldið af bassatitringi. "Hækkíbassanum!!!" gaulaði einhver maður sem finnst ég ekki eiga skilið að eignast börn. Ég svaf ekki neitt yfir helgina.
Ég er alveg ömurleg kærasta Loksins, loksins að það er hægt að slappa af með kærastanum og ég sofnaði eins og steinn. Ömurlegt. Fyrr um kvöldið vældi ég og vældi því að hann ætlaði á hljómsveitaræfingu. Svo kom í ljós að hún var ekki, vegna lærdóms eins limanna. Við vorum að tala saman og svo sofnuðum við. Ég aðeins fastar en hann... Hugsði ykkur hvað þetta hefði verið ógeðslega næs ef við hefðum bara getað sofið til morguns í fangi hvors annars... (skjóttu þig, pabbi minn) Þegar pabbi kom heim sat Skúli við eldhúsborðið og sagði pabba að ég væri sofandi, en hann vildi ekki fara ef ég yrði hrædd þegar ég vaknaði og væri ein í húsinu. Það gerist neflilega oft. Ég er alveg sjúklega hrædd við húsið mitt.
Þegar ég er ein heima fer ég ekki upp nema það sé nauðsynlegt. Mér finnst alltaf eins og það muni einhver grípa í lappirnar á mér í gegnum götin milli trappanna. Ég fer líka helst ekki fram, það gæti einhver verið þar sem ég vissi ekki af. Síðan er húsið mitt gamalt og stundum tekur það upp á því að anda. Þá er eins og maður sé staddur í risastórum lungum, og það er alveg hræðilega óhuggulegt. Ef einhver labbar framhjá glugganum mínum og ég er ein heima stirðna ég upp af hræðslu. "I'm I paranoid? Yes you're paranoid!" (Streets, sko)
Ég er orðin mamma. Barnið mitt heitir Guðmundur Benedikt Þorsteinsson og er í 5.B. Hann er ca milljón cm stærri en ég og jafnframt einu ári eldri.
Í gær var ég að tala um Jamie Oliver. Atli sagðist hata hann af því að hann talaði svo slæma ensku. Mér er nú alveg sama um ensku hjá manni sem ég á ekki samskipti við á hverjum degi OG gerir sig út fyrir að vera klár að elda ekki að tala. Atla varð heitt í hamsi og ég sagði óvart í hita leiksins að hann væri snobb without a clue. Þá var orðið svo heitt að við fórum úr fötunum. Nei, djók í poka. En fyrirgefðu Atli minn. Mér er sama hversu góða ensku fólk kann, svo lengi sem það getur bjargað sér í eldhúsinu.
Bylgjur Eftir "Hey-allir að hætta saman"-bylgjuna kom ný sem heitir "Hey-allir að reyna við alla"-bylgjan. Af hennar sökum er næstum ólíft í skólanum og á Herranæturæfingum, maður veit ekkert hvað hefur gerst. Í kjölfarið hafa síðan sprottið upp milljón pör. Elsku Jói minn á víst að vera kominn með konu. Það eru næstum allir karlmennirnir á nærbuxunum í leikritinu, nánast á typpinu... svona þannig að hvert sem maður lítur eru strákar sem ég vil ekki að séu með typpi (t.d. Siggi sem er búinn að vera vinur minn síðan við vorum sex ára) að sveifla þeim til að stríða mér. Nóg um það.
Ég byrjaði að lesa LoveStar í gær, í fjórða sinn.
Og HaloScan er komið aftur. Vá hvað ég er glöð. Ég er viss um að það var gömul íslensk kona sem kom með nafnið. "Skírum þetta bara Halló elskan...." en hún talaði sevo hratt að þetta var bara skírt "HaloScan." Hallóskan fannst þeim of STAR WARS-legt.
Systir mín tekur þátt í einhverju sem heitir "meðvitað skólastarf." Þau eru hvött til að fylgjast með fréttum, og einu sinni í viku hafa þau "Kastljós." Þá eru tveir stjórnendur og hinir klæða sig í búning og koma í viðtal. Mamma mín frétti þetta á foreldrafundi og líka það að Vigdís pantar alltaf að stjórna, sem hún fær svo að lokum með mikilli ...ákveðni. Síðan fékk móðir mín í hendurnar einkunnir Vigdísar úr miðsvetrarprófunum. Hún fékk 9 og 10 í öllu, og ef hún fékk 8, þá stóð alltaf "hæst gefið 8."
Hún sagði okkur ekkert frá því að hún væri í miðsvetrarprófunum. Gott hjá henni.
Pabbi, af hverju viltu ekki gefa mér gula hondu? Í morgun í Íslandi í bítið var Nemó með lítið lag. Það var ógrípandi (eiginlega sleppandi... sem hefur einmitt sömu rót og slappur) lag um Ameríku. Fermingardrengurinn sem söng það var í kúrekabúning. Það eru örugglega mörg betri lög í sýningunni. Kannski var þetta svona falleg pæling eins og "sýnum ekki það besta í treilernum..." Erna Guðríður sem var í balletinum í gamla daga var að dansa á bakvið og einnig Rúdólf vinur minn. Það er of seint að bjarga honum núna... Dansinn var settur saman eins og eróbikkæfing. Ég hélt að Ástrós myndi aðeins færa þetta á betra plan, en þá mundi ég hvernig dansarnir hennar urðu oft, gaman að dansa þá, en kannski ekki gaman að horfa á þá úr sal. Það er auðvitað líka möguleiki að takmarkað rými hafi gert dönsurunum erfitt fyrir og því hafi þeir ekki sett allt fúttið í þetta. En annars óska ég Nemó alls hins besta, enda er margt gott fólk sem kemur að sýningunni.
Sögin að krepera er komin úr latínu. Tökuorð beint úr latínu.
-Perfect- You're the perfect girlfriend. Which means you're rare or that you cheated :P You're the kind of chick that can hang out with your boyfriend's friends and be silly. You don't care about presents or about going to fancy placed. Hell, just hang out. You're just happy being around your boyfriend.
Ass mass brotinn rass... Ég fór ekki í leikfimi. Sem betur fer... það var fótbolti. Ég er ömurleg í svona boltaíþróttum, og Þórunn í B-bekknum er svo ógnvænleg. Hún spilar neflilega fyrir KR.
Ég er ekki á æfingu í dag. Gott að brjóta þetta upp með fríum. Ég ætla bara að liggja í dag. Það verður ágætt.
Hvað fannst fólki um Júróvisjón? Ég ona að Botnleðja vinni... Hvað var málið með helgarpabbann? Ég held að hann verði sviptur forræðinu í kjölfar þessa óskapnaðar. Ég ætla að vinna Júsóvisjón einn daginn. Einhvern tímann í eilífðinni.
Ég skilaði í gær ritgerð um LoveStar. Djöfull er hún fyndin. Andri Snær er sniðugur maður.
Congratulations, you are Arwen, a true romantic at heart. There is more to you than meets the eye.
You would do anything for your true love, even give up your immortality.
You are known for being Graceful, Elegant, and faithful.
Samræmt... allir eins... Íslenskuprófið 8. janúar 2004... Ég skil þetta ekki alveg. Bóknámsskólar munu koma betur út úr prófinu en verkmenntaskólar. Til hvers að mæla það? OK, fínt fyrir hrokann í okkur í bóknámsskólunum, en í alvöru, ég nenni ekki svona annarri Gettu betur pælingu. Þá meina ég að allir aðrir en MR-ingar eru að dissa sigurinn okkar. Ég veit að ég er hrokafull þegar ég spái því að MR eigi eftir að koma vel út úr þessu prófi. Ég nenni ekki að fá skítkast á borð við "MR.. þokkaleg klíka með samræmda prófið mar.." ...svona eins og "MR.. þokkalega leiðinlegt rass maður og klíka þú veist að vinna alltaf Gettu betur eð eitthvað.."
Nenni því ekki. Svo á fólk "ekki að læra neitt" fyrir prófið. Verður stafsetningaræfing á spólu? Verða bjánalegar krossaspurningar um framburð á Norðurlandi? Ég bíð spennt.