Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt.
Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.

Mokki litli á Myspace

Alexandra Kjeld
Anna Samúelsdóttir
Arnór Bogason
Sir Atli Freyr Steinþórsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Ásdís Eir White
Ásta Heiðrún Elísabet Pétursdóttir
Björn Egilsson
Björn Helgason
Birgir Pétur Þorsteinsson
Bragi Páll Sigurðsson
Colin McNally
Einar Steinn Valgarðsson
Elín Lóa Baldursdóttir
Erna Guðríður
Freyr Dyrason
Guðrún Inga
Gunnar Benediktsson
Helgi Hrafn Guðmundsson
Ingi Einar Jóhannesson
Íris Hauksdóttir
Kári Sighvatsson
Konráð Jónsson
Kristín Ósk
Nanna Gunnarsdóttir
Orri Tómatsósuson
Ólafur Egill Egilsson
Ómar Sigurvin
Ragnheiður Sturludóttir
Rósalind Soheir
Santino
Sigurjón Bergþór Daðason
Steindór Grétar Jónsson
Steingrímur Karl Teague
Særós Mist Hrannarsdóttir
Tinna Mjöll Karlsdóttir
Una Sighvatsdóttir
Þórður Gunnarsson
Þuríður Pétursdóttir
Önundur Páll Ragnarsson
Örlygur Hnefill Örlygsson


Gamalt:

september 2002 október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008


This page is powered by Blogger. Why isn't yours?






30.9.02 :::

Ég held að Markús sé kona. Hann er í e-s konar "í kjólinn fyrir jólin"-átaki, nema það er svona´"í jakkafötin fyrir árshátíðina"-átak. Hann borðar bara hrökkbrauð og gengur um allt með hrökkbrauðið í annarri og vatnsbrúsa frá baðhúsinu í hinni. Á brúsanum stendur: Baðhúsið-Heilsulind fyrir konur. Jisús minn. Frank benti á það að hann hefði einu sinni verið kona. Svo lærðum við um blóð í líffræði.

Og Skúli heldur að einhver maður í golfi sé Gunnar afi sinn.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:47







Og nú sagði Frank að lagið sem við ákváðum að það væri ekki nógu grípandi... hann Frank er líka svo kínkí. En við höfum það bakvið eyrað. Eða að Frank bara krotar það á bakið á mér.

Skúla fannst merkilegt að ég teldi hann taka sig vel út með börn í fanginu... og móðgaðsist þegar ég sagði fjölskyldu hans vera duglega í barnaframleiðslu... (sem er alls ekki slæmur hlutur) (sérstaklega þar sem hann tekur sig vel út með börn í fanginu)

Standpínuumræðan er að líða undir lok. Þó hefur hópur 1 eignast fleiri karlkyns fylgendur. Og vil ég benda á að til að vita um hvað þú ert að tala þarft þú eiginlega að vera karlmaður. Þeir sem hafa bæst í hóp 1 eru:
Bjarki
Höddi
Konni
Önni (sem er kærastinn hennar Unu, en hún er einmitt í hinu liðinu)
Í hitt liðið hafa bæst menn eins og:
Birgir
Hilmir

Kannski er þetta bara spurning um hvað menn eru með massíft og þungt typpi...
Jæja, ég er hætt í þessum pælingum. FOR CRYING OUT LOUD! ég er stelpa...


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:16







29.9.02 :::

Á föstudaginn var húll hjá Jóni. Við fengum okkur Sisha með jarðaberjabragði. Reyndar leið okkur eins og dópistum þar sem við sátum kringum vatnspípuna (þetta er tóbak reykt úr vatnspípu) og meira að segja Önni var hræddur við okkur.
Svo drapst hamstur. Ég bendi á hana Unu í sambandi við nánari fréttir. Hún einmitt eyddi bróðurpartinum af kvöldinu við tölvuna að skrifa.

í gær skoðaði ég á ný óskírt barn vinkonu minnar og Skúli og Vigdís komu með. Skúli tekur sig vel út með börn í fanginu.
Síðan fórum við í sumarbústað að hitta fjölskylduna hans Skúla. Þau eru mörg. Mörg mörg mörg. His family is like a bunch of rabbits. Samt gaman. Núna er ég neflilega komin með öll nöfnin.

Í dag er svo Herranæturfundur því að öll handritin eru komin.

Og ég og Frank erum búin að finna lag fyrir söngkeppnina... sem er í febrúar.

Lífið brosir.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:45







27.9.02 :::

OK. Ég veit um einn sem getur pissað með standpínu en ég fer ekki að draga hann fram fyrir vini mína og bara: "Mígðu í bullandi bóner, núna takk." Nei, það gæti ég ekki sagt. Er ekki svo gróf í kjaftinum. Hæverska stúlkan sko.

Verið í bandi (bæ ðe vei Þorvaldur vinur minn sem er alltaf með í vörinni svo að flestir halda að hann sé héri á afmæli í dag)


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:22







Oddur bjó til nýtt orð. framríðinn. Það þýðir að vera ákafur þegar á hólminn er komið, t.d. gleyma að fara úr sokkunum, og fá svo bráðasáðlát. Annars var ég í líffræðiprófi. Gekk alveg vel, sko.
Annars er í gangi mikið rifrildi milli mín og vina minna hvort hægt sé að pissa með standpínu. Lið 1 sem segir að hægt sé að pissa með standpínu: Margrét og Snæbjörn. Lið 2 sem segir að það sé ekki hægt: Frank, Markús og endalaust margir í viðbót. Una er á báðum áttum. (Þori ekki að spyrja líffræðikennarann) Endilega sendu mér emil um þetta mál.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:29







26.9.02 :::

Var að klára skólann. Dagurinn byrjaði illa. Skúli ætlaði að koma áður en ég færi í skólann að ná í úrið sitt. Ég þorði ekki að fara í sturtu, var hrædd um að hann kæmi meðan ég heyrði ekki. Skúli kom ekki. Ég mætti og seint í skólann og fór ekki í sturtu.

Núna fer ég heim í smá tíma, því ég þarf að mæta í Loftkastalann kl 4 að setja upp leikmynd. Það er rosalegt vesen. Og ekki einu sinni í mínum verkahring. Jú, ég á að sjá um að því sé lokið kl.6. AS IF að það takist nokkurn tímann. Og enginn hlýðir mér.

Rass.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:47







25.9.02 :::

Merkilegt hvers konar fólk er í MR. Það eru ofsalega margir sem halda að þeir séu Satan... amk klæða þeir sig þannig. Svo er annað gengi, það eru busar. Við Una vinkona mín nefnum þá "That 70's show"-gengið. Merkilegt. Svo eru 80% karlmanna við skólann með meira hár en ég. Þar á meðal Helgi sem situr v hliðina á mér *núna* (maintenant).


Slegið inn af Mokki litli klukkan 13:04







Seint í gærkvöldi talaði ég við Gavin vin minn á MSN. Við vorum bestu vinir fyrir 2 árum síðan, kynntumst í alþjóðlegum sumarbúðum í Noregi. Ég var að vinna þar og hann var að taka þátt. Það eru 5 ár á milli okkar... sem þýðir að hann er alveg á gelgjunni núna. Ji, ég sakna hans svo mikið. Gat bara talað við hann í 5 mín, því að pabbi varð brjálaður hvað ég væri lengi á netinu. (Símreikningur síðasta mánaðar 21.000... allt mér að kenna. Sem ég skil ekki, var aldrei heima)

Æi, það er svo gott að vera stolt eiginkona. Kæró læró bara að meika það feitt. ALLIR HLUSTA Á BABÝLON Í KVÖLD! (Lagið gæti komið) Ahhhhh......
Ég fékk bara að hitta manninn minn í hálftíma í gær Helvítis lærdómur alltaf hreint. Rass rass rass. En ég hitti hann samt, það er meira en hægt er að segja um flesta daga í lífi mínu.

Ég er í hádegishléi í skólanum. Tíminn er að byrja. Farðu vel með þig.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 11:33







24.9.02 :::

Vá.. sveitt eftir fyrsta Herranæturnámskeið. Það var ógeðslega gaman. Geislavirka sósan!
Svo áttum við að segja það fyrsta sem okkur datt í hug. Hilmir vinur minn er nýbyrjaður með yndislegri stúlku sem heitir Þura. Hún sagði: "BIBBI!" En Bibbi er einmitt nafnið á typpinu á Hilmi. Það er gaman að þessu.
Finnst fólki styttan hér til hliðar hommaleg?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 22:49







Var að koma úr latínustílnum. Ef ég væri að kenna mér latínu myndi ég hafa það alveg á hreinu að ég væri þroskaheft.
Hvað myndi gerast ef Margrét kúkaði á latínustílinn sinn? Hún myndi fá nákvæmlega sömu einkunn og vanalega!
Ég er að bíða eftir að allir séu búnir, gleymdi neflilega símanum mínum inni í stofu. Það er svona að mæta drukkin í skólann, maður er alltaf að gleyma einhverju hér og þar.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 14:58







Jæja. Nýkomin úr leikfimi. Var að tala við leikstjóra Herranætur vegna námskeiðanna sem byrja í kvöld. Ég er svo spennt!. Hann heitir Óli og er fændi minn (Ég veit... geðveikt plögg!). Afskaplega skemmtilegur maður. Já, það er af því að ég er í stjórn Herranætur. Það er soldið erfitt, en það er allt smollið þar á bæ. Bara eftir að velja í hlutverk og milli örfárra leikrita sem við erum með í sigtinu. Kannski að velja leikrit fyrst OG SVO í hlutverk... Æi, ég spyr einhvern sem er í verkfræði. Afi minn er verkfræðingur. Hann fékk fálkaorðuna.
Annars er lífið gott. Það er gott að vera ástfangin.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 12:16







Jú, heyrðu þetta reddaðist. Í dag verður mikið að gera. Á eftir er Unglistarfundur með Skólafélagsstjórn og svo eru Herranæturnámskeiðin að byrja í dag. Með þetta tvennt + skóla, þurfti ég að beila á Þrándarfundi í dag. Hvað er Þrándur? Það er ble ble ble ble..... búin að útskýra þetta of oft fyrir ömmum og öfum og ættboganum yfir höfuð. kíktu hingað: Fullkomið brúðkaup
í dag áttum við að hittast og hengja upp plaköt. Ég fór í gær í sundlaugar sem ég komst í á hálftíma. Seltjarnarneslaugin bannaði mér að hengja upp... "Bara fyrir starfsemi í húsinu"
Djöfuls Seltjarnarneslaugarmafía.
Annars náði ég að fara fara í matarboð í gær og síðan upp í HR með kæró læró (Skúlasíða) og Hödda vini hans (egmanekkibloggidhans) (kemur inn sídar) (þó ekki nærbuxur.....) og lærði eins og kengúra. Ég gerði afskaplega skemmtilegt verkefni fyrir málvísindi sem fjallaði um tyrkneska orðmyndun. Jah hérna hér. Og las latínu. Ég fatta ekki beygingarfræðina. Það er kannski spurning að fara bara í aukatíma til Eika... (bleika)?


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:20







ég kann ekkert á þetta. Það er kannski að sannast fyrst núna að ég er kvenmaður.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:11







Þetta er pæling. Leggja grænu dagbókina til hliðar og taka þátt í gervihnattaöldinni. Ég er að fara í leikfimi á eftir. Og líka latínustíl. Ef þú ert slæm/slæmur á taugum, ekki fara í MR.


Slegið inn af Mokki litli klukkan 10:09